Þjóðviljinn - 01.05.1982, Qupperneq 4

Þjóðviljinn - 01.05.1982, Qupperneq 4
4 SÍOA — ÞJÓÐVILJINN Helgin 1.— 2. mai 1982 stjórnmál á sunnudcgi r% Einar Karl Samtök atvinnurekenda stilla saman krafta sína Haraldsson skrifar Notum atkvæðið gegn atvinnuley sisstefnu Sókn atvinnurekenda bíður sigra Sjálfstœðisflokksins i iðnríkjum Vesturlanda# þar sem kapítalísk lögmál eru ráðandi i efnahagslífi með íblöndun opinberra afskipta á mismunandi stigi/ hefur hagvöxtur farið hjaðnandi sl. áratug samfara vaxandi atvinnu- leysi og verðbólgu. Hér er um að ræða illviga kreppu sem á sér margar og flóknar orsakir. I löndum þar sem verkalýðshreyf- ing og stjórnmálaöfI sem henni tengjast hafa ítök i ríkisvaldi hefur margt verið reynt til þess að bæta ástandið/en þó hefur sigið á ógæf uhliðina. Hægri sinnuð stjórnmálaöfI hafa nýtt sér þessa þróun til þess að boða trú á töfra- mátt einfaldra efnahags- lausna. Almenningur hefur látið blekkjast af fagur- gala um náðarmeðöl frjáls markaðar,athafnafrelsi og frjálshyggju/ afnám ríkis- afskipta og niðurskurð félagslegra útgjalda. En reynslan hefur þegar sýnt i Bandaríkjunum og Bret- landi að valdataka hægri harðlínuafla leiðir um- svifalaust til þess aö kreppuástand iö hríð- versnar/ og það sem áður var á hægri niðurleið er nú á hraðri. Kreppumetin falla Kreppumetin frá byrjun fjórða áratugarins eru hvarvetna i hættu eða þegar slegin út. Gert er ráð fyrir að i Bandarikjunum og Vestur-Evrópu verði um 30 millj- ónir manna atvinnulausir á þessu ári. Hlutfall atvinnulausra af vinnufærum er nú komið fast að 10% i Bandarikjunum, 12.5% i Bretlandi og er 9,7% i rikjum Efnahagsbandaiagsins að meðal- tali. Þyngst leggst atvinnuieysið á ungt fólk og viða gengur um helmingur ungs fólks atvinnu- laust fram undir þrítugt. 1 Banda- rikjunum fer saman að hinir riku verða rikari og hinir fátæku fá- tækari. Munaöarneysla yfir- stéttarinnar eykst, en æ fleiri lenda undir hinum opinberu fá- tæktarmörkum. Um 29.3 milljónir manna eru nú taldar hafa tekjur undir fátæktarmörkum og er það um 15% þjóðarinnar. Þetta hlut- fall hefur farið hraðvaxandi undir stjórn Reagans. Þessar kreppuaðstæður setja svip sinn á verkalýðsbaráttu i öllum helstu viðskiptalöndum Is- lendinga. Hver sem opnar banda- risk og bresk blöð þessa dagana rekur strax augun i fréttir um gjaldþrot fyrirtækja, félagsleg vandamál i kjölfar atvinnuleysis, súpugjafir til fátækra og hungr- aðra á vegum liknarfélaga o.s.frv.. Og það stingur i augun að lesa hverja fréttina á fætur ann- arri um að bresk og bandarisk verkalýðsfélög séu unnvörpum að semja um einhverskonar at- vinnutryggingu til handa félags- mönnum sínum gegn þvi aö fall- ast á kauplækkun, afnám verð- bóta á laun og réttindaskerðingu. óskastaða atvinnurekenda Hér er ekki tóm til þess að rekja orsakir og afleiðingar þessarar þróunar eins og þó væri vert. Hitt er augljóst að komin er upp óska- staða atvinnurekenda og auð- valds. Kreppan hefur viðast ekki sama ógnarsvipinn og á fjórða áratugnum þar sem neyslugetu almennings er haldið uppi að vissu marki. En verka- lýðurinn er auðsveipari en þegar næg atvinna er, tekur á sig kaup lækkanir og samþykkir tækni- breytingar i veikri von um að halda vinnu. Sterk öfl stjórn- málaflokka og hagsmunasam- taka hafa prédikað þá efnahags- kenningu sem til þessarar stöðu Nokkrar úrklippur úr bæklingaflóði Verslunarráðs íslands, lengst til hægri er skrifstofusveit Verslunarráðsins koma á „heilbrigðara” efnahags- lifi. Alþýðubandalaginu tókst þá að koma i veg fyrir að milliflokk- arnir tækju höndum saman við leiftursóknaröflin i Sjálfstæðis- flokknum. En það er hafður i frammi hat- rammur og stöðugur áróður fyrir atvinnuleysisstefnu sem fengið hefur hljómgrunn meðal hægri manna i Framsóknarflokki og Al- þýðuflokki. Og nái Sjáifstæðis- flokkurinn undir forystu Geirs Hallgrimssonar undirtökunum á ný er allt til reiðu af hálfu at- vinnurekenda. Eining atvinnurekenda í erlendum rannsóknum hefur inga sem hefur fulla atvinnu af þvi að gæta hagsmuna þeirra. A skrifstofu Verslunarráösins eru tam 3 hagfræðingar og 1 lögfræð- ingur, auk annars starfsliðs, Þegar við bætist sérfræðingalið á skrifstofum Félags isl. iðnrek- enda, VSl, KI, FtS, Llú, SÍF og fleiri atvinnurekendasamtaka má ljóst vera að sé þessum her beitt sameiginlega getur hann verið mikill áhrifavaldur. At- vinnugreinar deila að visu um kökuna oft á tiðum, en á siöustu árum hafa hver atvinnurekenda- samtökin á fætur öðrum mótað og gefið út efnahagsstefnu sem i öll- um aðalatriðum er byggð á grund vallarhugsjón frjáls- hefur ieitt Og kjarni kenningar- innar er þrátt fyrir skrauthann- aðan umbúnað ekkert annað en „hóflegt” atvinnuleysi. „At- vinnuleysið er það gjald sem greiðabarf fyrir heilbrigt efna- hagslif”, segja ihaldsmenn i Bretlandi og komast upp með það. Annar svipur á islandi Verkalýðsbaráttan hefur haft annan svip á íslandi en viðast annarsstaðar siðustu ár. Tekju- lega hefur afkoman verið eins og menn þekkja best áður og um- ræðan hefur borið svip af saman- burði miili einstakra hópa sem taldir eru hafa borið meira úr býtum en aðrir. Verðbóiguþreyta er meira áberandi heldur en ótti um atvinnumissi, deilt er um hvort meta beri félagslegar um- bætur til kaups, og hvort skerðing verðbóta vegna versnandi við- skiptakjara og fleiri þátta sé rétt- lætanieg eða ekki. Um kjör lág- launafólks er einnig margt rætt. Segja má að tslendingar geti prisað sig sæla meðan umræðan snýst um þessa hluti, sem vissu- lega geta horft alvarlega við ein- staklingum og félögum, en sýnast á hinn bóginn iéttvægir séð af sjónarhóli alþjóðlegrar kreppu. Atvinnuleysisstefna Það er aftur á móti háskalegt hve litill gaumur er að þvi gefinn i verkalýðshreyfingunni hvernig atvinnurekendavaldið hefur verið að búa sig i stakk til átaka, og hversu litlu má skeika til þess að leiftursóknarlið Sjálfstleðisflokks- ins nái aö fylgja fram atvinnu- leysisstefnu hægri afla. 1 kosning- unum 1979 greiddu um 80% kjós- enda atkvæði sitt flokkum sem höföu á stefnuskrá sinni stór- fellda kauplækkun til þess að komið i ljós aö aðferðin til þess að komast i valdastöðu i nútima- þjóðfélagi er að mynda samtök um tiltekna hagsmuni og hafa sérfræðinga á launum til þess að reka erindi þessara hagsmuna- samtaka gagnvart aiþingi, rikis- stjórn og ráðuneytum. Islensku atvinnurekendasamtökin hafa verið að skipuleggja sig upp á nýtt I samræmi við þessar stað- reyndir mála. Verslunarráð tslands er dæmi- gert fyrir þessa þróun. Það eru samtök fyrirtækja i atvinnulifi og viðskiptum og i stjórn þess sitja m.a. fulltrúar ÍSAL, IBM, Olis, Eimskips, Almennra trygginga, SIF og Slippstöðvarinnar h.f. Nýverið hafa Verslunarráðið Kaupmannasamtök Islands (K.í.) og Félag isl, stórkaup- manna (F.I.S.) gengið i Vinnu- veitendasambandið (V.S.Í.) og annast VSI öll kjaramál af hálfu þeirra. Verslunarráðið, Kaup- mannasamtökin og Félag isl. stórkaupmanna mynduðu með sér i byrjun árs sérstakt Sam- starfsráð „um sameiginlega hagsmuni”. Og Vinnuveitenda- sambandið og Verslunarráðið hafa gert með sér samstarfs- samning um „samstarf, verka- skiptingu og tengsi” til þess að „auka enn annars ánægjulegt samstarf I sameiginlegum mál- um og skiptast á upplýsingum”. Verkaskiptin eru á þann veg að VSl annist samskipti við stjórn- vöid i „efnahags- og kjaramál- um”, en VI i „efnahags- og við- skiptamálum”. Skylt er skeggið hökunni. Samstæður sérfræðinga- her A vegum atvinnurekendasam- takanna islensku hefur á siðustu árum sprottið upp her sérfræö- hyggjumanna. Ihaldsmenn, sem eru yfirgnæfandi i röðum at- vinnurekenda, sameinast harð- linu- og bókstafstrúarmönnum úr hagfræðideildum háskólanna og setja hagsmunasamtökum at- vinnurekenda stefnuskrá i efna- hagsmálum, sem ber sterkt ættarmót af leiftursóknarstefnu Sjálfstæðisflokksins. Þetta var einkar ljóst þegar Ragnar Hali- dórsson forstjóri ISAL og for- maður Verslunarráðsins kynnti nýútgefna stefnuskrá þess. Nú skal safna liði Hjalti Geir Kristjánsson fylgir bæklingi meðlýtarlegri stefnuskrá Verslunarráðsins, sem samþykkt var á viðskiptaþingi 1981, úr hlaði I ársskýrslu VI 1980—1981 með þessum oröum m.a.: „Næsta skrefið er að fylgja þessu verki eftir, kynna stefnuna og vinna henni brautargengi”. I þessu sambandi er vert að minnast þess að á undan sigrum Thatchers I Bretlandi, Reagans i Bandarikjunum og Willochs i Noregi fóru rækilega undirbúnar auglýsingaherferðir atvinnurek- endasamtaka sem féllu saman við áróður hægri stjórnmála- manna og voru undir keimlíkum slagorðum. Og Verslunarráðið hefur enda fengið Indriða G. Þor- steinsson og kunnan forstjóra auglýsingastofu til þess að gang- ast fyrir námskeiöum meðal félagsmanna i greinaskrifum og sjónvarpsframkomu ef verða * mætti til þess að stefnan kæmist betur á framfæri, eins og fram kemur i ársskýrslunni. I ársskýrslunni segir og að sá þáttur i starfi Verslunarráðsins aö fylgjast með störfum og að- gerðum stjórnvalda hafi farið vaxandi. „A siðasta starfstima- bili veitti Verslunarráðið um- sagnir um eða gerði athuga- semdir við yfir 40 þingmál”. Aöferðunum er rækilega lýst: Sérfræðingar Verslunarráðsins semja umsagnir að beiðni þing- manna, þingflokka og rikis- stjórnar, leggja fram umsagnir um þingmál að eigin frumkvæði og hafa forgöngu um samningu lagafrumvarpa eða semja að beiðni stjórnvalda. „A þennan hátt hefur tekist að koma hagsmunamálum V.t. i gegn á Alþingi, þótt eðli málsins samkvæmt hafi hér oft verið um varnarstarf að ræða, þvi að mörg þessara þingmála hafa þrengt kosti atvinnulifsins”. Og ennfremur segir i ársskýrslunni: „Vegna náinna tengsla Verslunarráðsins við störf Al- þingis hafa þingmenn i vaxandi mæli ieitað til ráðsins um sér- fræðiaðstoð. Hefur Verslunar- ráðið þannig haft afskipti af mörgum þingmálum, þótt ekki sé vert að geta þeirra hér sérstak- lega. Nokkur þessara þingmáia hafa hlotið samþykki”. Hér er i raun verið að segja að atvinnurekendasamtökin leggi hægrisinnuðum þingmönnum á Alþingi til aðstoðarmenn og sér- fræðiaðstoð að vild sinni fyrir utan allt það fóður sem þau birgja ritstjóra Morgunblaðsins og Al- þýðublaðsins með.Og ekki er látið þar við sitja: „Ekki er unnt að segja frá ÖU- um viðfangsefnum ráðsins. Ar- angur i ýmsum málum er oft best tryggður með þvi að vinna að þeim i kyrrþey og þvi er stundum ekki hægt að segja frá þátttöku Verslunarráðsins i mikilvægum málum fyrr en löngu siðar”. Sterk aðvörun Þessi innsýn i starfshætti Verslunarráðsins og samstillingu atvinnurekendasamtaka sem þeir Verslunarráðsmenn veita sjálfir er sterk aðvörun til verka- lýðssamtakanna. Enda þótt verkalýðshreyfingin hafi svarað sérfræðingaveldi atvinnurekenda með þvi að ráða til sin sérfræð- inga er það litil sveit gegn heilum her. Atvinnurekendasamtökin eru pólitiskt einlit, en verkalýðs- hreyfingin islenska eins marglit og pólitiska litrófið i landinu. Atvinnurekendasamtökin eru miðstýrð að uppbyggingu og auka miðstjórnarvald sitt i sifellu. Verkalýðssamtökin á íslandi eru byggð upp með ákvörðunarvaldið hjá félögunum og litið mið- stjórnarvald. Sameiginleg stefnumótun i efnahagsmálum hefur ekki verið styrkur verka- lýðssamtakanna en er aðal at- vinnurekenda. Atkvæðið nærtækast Það er ekki auðvelt að gefa skynsamlega forskrift að þvi hvernig verkalýðssamtökin eigi að bregðast við skipulagsað- gerðum og stefnumótun atvinnu- rekenda. Varla er eftiröpun ein- hlit ráðstöfun og flestir vita að skipulagsmálaumræðan t.d. innan ASI hefur vægast sagt gengið hægt. Engan veginn ber heldur að vanmeta þau áhrif sem samtakamáttur verkalýðshreyf- ingarinnar hefur haft á löggjafar- starf, félagsmálalöggjöf og efna- hagslausnir stjórnvalda I nútið og þátiö. En sókn atvinnurekenda hefur verið vandlega undirbúin. Og það verður erfitt um varnir eftir að hún hefst.Atvinnurekendur munu blása i lúðra leiftursóknar sinnar ef og um leið og Sjálfstæðis- flokkurinn vinnur kosningasigra i komandi sveitarstjórna- og þing- kosningum. Sú þróun sem hér hefur verið lýst kallar á virkt andóf verka- fólks og vökult starf verkalýðs- hreyfingarinnar gegn atvinnu- leysisstefnu á Islandi, en nærtæk- asta verkefnið er aö kjósa gegn Sjálfstæðisflokknum i komandi kosningum.22. mai þarf launafólk að reisa þann pólitiska varnar- múr sem dugir til þess aö stefna og kröfur Verslunarráösins og Vinnuveitendasambands Islands verði ekki að veruleika.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.