Þjóðviljinn - 29.05.1982, Blaðsíða 3

Þjóðviljinn - 29.05.1982, Blaðsíða 3
Helgin 29. — 30. mal 1982 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 3 Félag sjúkraþjálfara Mótmæla kjaradómi Kjaramálanefnd Félags islenskra sjúkraþjálfara mótmælir harðlega dómum þeim, sem fallið hafa i sérkjarasamningum félagsins við riki og borg, segir í fréttatilkynningu frá sjúkraþjálfurum. 1 kröfum félagsins var megináhersla lögð á leiðréttingu á grunnlaun- um. Er það til samræmis við aðrar háskólamenntaðar stettir með sam- bærilega menntun, hvað varðar undirbúningsnám, námslengd, náms- einingafjölda, sérhæfni o.fl. Einnig voru grunnlaun hjá sjúkraþjálfur- um, sem starfa hjá sjálfseignarstofnunum og eigin fyrirtækjum höfð til hliðsjónar. Samkvæmt sérkjarasamningi BHM eru sjúkraþjálfarar starfandi hjá riki i launaflokki 105 þ.e. kr. 8.757. Hefur engin breyting orðið þar á undanfarin ár, og er þessi samningur notaður sem bein fyrirmynd við gerðsérkjarasamningssjúkraþjálfara starfandi hjá borginni. Nám til B.Sc.-prófs i sjúkraþjálfun við Háskóla Islands er 4 ár, 120 námseiningar og námsmat 173 stig. Eftirfarandi tafla sýnir launamismun þann, sem er milli sjúkraþjálf- ara og annarra háskólamenntaðra manna með sambærilega menntun. Starfsheiti Náms Náms Náms Launa flokkur Sjúkraþjálfari iengd einingar mat BHM hjá riki og borg 120 173 105 Sjúkraþjálfari hjá fasteigna- stofnunum 4 ár 120 173 108-112 Sjúkraþjálfari með einkarekstur 4 ár 120 173 Kr.15.-20.00 Viðskipta- fræðingur 120 165 nettó 109 Verkfræðingur 4 ár 120 173 109 Sálfræðingur mcð BA-próf 3 ár 90 148 107 Tæknifræðingur eftir 3 1/2 ár 3 1/2 ár 170 107 N áttúruf ræðingur Bs„ Safnvörður Bs„ Bókasafns- fræðingur II 120 160-184 107 A þessu má glögglega sjá að sjúkraþjálfarar hjá riki og borg eru gróflega hlunnfarnir. Það er þvi komin upp sú staða hvort yfirvöld verði ekki að endurskoða afstöðu sina til endurhæfingar og hvort vilji sé yfirleitt fyrir hendi til að veita landsmönnum þessa þjónustu. I aðalkjarasamningi BHM og fjármálaráðherra skv. Kjaradómi frá 21. febrúar I982segir svo igrein 1.4.1. um röðun i launaflokka. „Við röðun i launaflokka skal gæta innbyrðis samræmis milli starfs- manna og þess, að rikisstarfsmenn njóti sambærilegra kjara og þeir menn með svipaða menntun, sérhæfni, og ábyrgð, sem vinna hliðstæð störf hjá öðrum en rikinu”. Þessu ákvæði hefur ekki verið framfylgt og er þvi eðlilegt að hinn frjálsi vinnumarkaður dragi æ fleiri sjúkraþjálfara til sin. Sjúkraþjálfarar hjá riki og borg una þvi skiljanlega ekki hag sinum vel að svo komnu máli og hyggjast leita leiða til leiðréttingar málum sinum. EINAR FARESTVEIT & CO. HF. Bergstaðastræti 10 A — Sími 16995 4 hellur, termostathella Upplýst takkaborð Tvöföld köld ofnhurð með barnaöryggislæsingu Stór ofn að ofan með rafdrifnu grilli, sjálfhreinsandi Stórofn að neðan, sem lika má steikja og baka í Sterkur gufugleypir fylgir, með klukku og sjálfvirkni fyrir eldavélina Kolasía ef gufugleypirinn á ekki að blása út fæst auka- lega. Til þess að gera þér mögulegt að eignast þessa glæsilegu eldavél og gufugleypi bjóðumst við til að taka gömlu eldavélina þína upp i fyrir 500 krónur. Engar áhyggjur, við komum til þín með nýju vélina og sækjum þá gömlu án tilkostnaðar fyrir þig (gildir fyrir stór Reykjavíkursvæð- ið). Sértu úti á landi. — Hafðu samband. Umboðsmenn okkar sjá um fram- kvæmdina. + + + + + + Dragðu ekki að ákveða þig. Við eigum takmarkað magn af þessum glæsilegu KPS PA 460 eldavélum á þessum kostakjörum. Verð PA 460 etdavél með gufugleypinum Kr. 10.890.- Mínus gamla eldavélin Kr. 500,- Kr. 10.390.- Útborgun Kr. 2.000,- Eftirstöðvar kr. 1.400.- á mánuði að viðbættum vöxtum. PA 460 eldavélin er ein fullkomn- asta og glæsilegasta eldavélin á markaðnum. PA 460 eldavélin meö gufugleypi Glæsilegir tískulitir karry gulur, avocadó grænn mál: 60x60x85 (eöa 90) OGNÚERÞAÐINNANLANDSDEILDIN Farþega- og vöruafgreiösla okkar er nú í eigin húsnæöi á nýjum staö á Reykjavíkurflugvelli, Öskjuhlíöarmegin. Öll starfsemi innanlandsflugsins er nú á einum stað. Farþegaafgreiösla, vöruafgreiðsla, áætlunarflug, leiguflug og sjúkraflug. Hafiö samband við afgreiðsluna. ^tARNARFLUG Innanlandsflug 29577

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.