Þjóðviljinn - 29.05.1982, Side 9
Helgin 29. — 30. mal 1982 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 9
Nýjasta tíska:
Að líta út eins
og fátæklingur
Það er margt skrýtið i kýr-
hausnum, ekki sist ef fatatiska er
annars vegar. Nú er nýjasta tisk-
an — einkum hinna vel stæðu —
að lita út eins og fátækur. Það eru
tveir ungir menn I tiskuheiminum
Frakkinn Charles Chevignon og
italinn Jimmy Taverniti, sem eru
brautryðjendur i þessum efnum
oghafa rakaðsaman fé. A siðasta
ári seldi hvor um sig föt fyrir and-
virði 130—140 miijóna islenskra
króna og i ár blómgast viðskiptin
enn frekar. Á sýningu sem nýlega
var I Milanó voru seldir nýir en
snjáðir leðurjakkar frá Traver-
niti fyrir 10 miljónir króna.
Fyrir ári siðan var linan frá
tiskufrömuðum sú að menn
skyldu klæðast mjög finum fötum
og var almennt álitið að nýtt, ,ele-
gant” timabil væri að hefjast.
Þetta virðist ætía að fara þveröf-
ugt. Gluggarnir á finustu fata-
verslun Rómarborgar, Alexand-
er’s, lita út eins og flóamarkaður.
Pokalegar buxur, leðurjakkar
sem virðast vera ættaðir úr
heimsstyr jöldinni og þæfðar
peysur.
„Þessi tiska er tekin beint af
götunni”, segir Taverniti. „Al-
menningur vill hafa þetta svona
og mikilvægasti almenningurinn
eru krakkarnir á strætunum.”
Ef litið er hins vegar á verð
fliknanna kemur i ljós að aðeins
vel stæðir krakkar hafa efni á að
lita út eins og fátæklingar. Verðið
Ný tegund
af plast-
gróðurhúsum
Hafin er framleiðsla á nýrri
tegund af plastgróðurhúsum og er
það Piastprent hf. sem sér um
framleiðsluna I samvinnu við
Skógræktarfélag Reykjavikur.
Þau eru samsett úr hálfbogum úr
galvaniseruðu járni sem fest er á
grind úr vandlega fúavörðu
timbri. Yfir hálfbogana er siðan
strengdur plastdúkur.
Gróðurhúsin eru að sögn bæði
auðveld og fljótleg I uppsetningu.
Sem dæmi um verö má nefna að
3,8x10 metra hús kostar 8.850 kr.
1279 bækur
og tímarit
Bókavarðan, fornbókaverslunin
Hverfisgötu 52 I Reykjavik.hefur
nýlega sent frá sér 15. bóka-
skrána.
1 bókaskránni eru alls 1279 titl-
ar yfir bækur og timarit og er
meirihluta þeirra venjulegar og
sigildar bækur en innan um eru
dýrmæti. Þar má t.d. nefna elstu
ljóðabók sem prentuö var á Is-
landi, þegar sleppt er veraldleg-
um kveðskap Hallgrims Péturs-
sonar, en það eru „Nokkur ljóð-
mæli til almennings gagnsemi”
útgefin eftir séra Þorlák Þórar-
insson og prentuð á Hólum 1
Hjaltadal árið 1780. Einnig er að
finna 1 bókaskránni eintak af
frumútgáfu Sturlungu, Kaup-
mannahöfn 1817-18, úrvals eintak
fyrsta verks sem Hið fslenska
Bókmenntaf jelag stóð fyrir
prentun á.
Bóksöluskráin er send ókeypis
til allra sem óska utan Reykja-
vikur.
á buxum frá Traveniti er allt að
1000 krónum og jakki frá Chevig-
non kostar yfir 4000 krónur. Báðir
þessir tiskuhönnuðir halda þvi
fram að það sé ákaflega dýrt að
láta ný föt lita út eins og gömul.
Fötin frá Taverniti eru sérstak-
lega lituð og siðan sett i þvotta-
vélar með sterkum efnablöndum.
Chevignon byrjaði á þvi að búa til
jakka úr ekta gömlum lrönskum
herjökkum, þegarhann hafði ekki
efni á að kaupa nýtt leður, en nú
Máður jakki frá Chevignon: Þú
þarft ekki að hafa áhyggjur af þvi
að skita hann út
lætur hann herða og berja alla
jakkana til að láta þá lita út
einsog máða. „Að sjálfsögðu eru
Klæðnaður frá Taverniti
þetta dýrar aðlerðir”, segir
Taverniti, „og aðeins besta fáan-
lega efni þolir þessa meðferð".
En hvers vegna i ósköpunum
leggja þeir sem eru ofan á i þjóð-
félaginu svona hart að sér til að
lita út eins útigangar? Fyrir
suma eru þessi föt einfaldlega
þægileg og krakkarnir sem eru i
þeim þurfa ekki að hafa áhyggjur
af þvi að skita þau út. Ýmsar aðr-
ar ástæður eru lika til staðar.
Þjóðfélagsfræðingurinn Franco
Ferrarotti segir að i velmegunar-
þjóðfélagi þurfi hinir riku ekki að
sýna opinberlega auð sinn. „Þeir
geta raunverulega leyft sér þann
„lúxus” að lita út eins og úr-
þvætti. Þeir þurfa ekki að sanna
neitt fyrir neinum”.
En ekki er allt sem sýnist.
Margir af þeim sem bera snjáða
skinnjakka eru i dýrum silki-
blússum undir eða finum ullar-
peysum og rándýrum „stæl”-leð-
urstigvélum. Þegar allt kemur til
alls borgar sig aðeins að lita út
eins og fátæklingur ef fólk veit að
þú hefur efni á þvi.
(GFr —byggt á Newsweek)
VOLVO 340
Ný reglugerð-Ný verð
2395
4235
Farangursrými þegar aftursæti er lagt fram er 1,2 rrr
Verð f rá 129.800.-
með ryðvörn (5-5-82)
Hjá öðrum eru gæði nýjung - hjá Volvo hefð!
VOLVO