Þjóðviljinn - 29.05.1982, Síða 16
16 StÐA — ÞJÓÐVILJINN Helgin 29. — 30. mal 1982
Helgin 29. — 30. mal 1982 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 17
— Ert þú Friða frænka? spyr
ég-
Hún hristir kollinn og segir svo
ekki vera og visar okkur á aðra
unga konu i innra kamesi.
— Þú munt vera Friða frænka,
segi ég.
— Nei, ég heiti Anna Ringsted.
Verslunin er Friða frænka.
Nú, þar lágu Danir i þvi. Það er
sem sagt verslunin sem heitir
Friða frænka, og sennilega er það
nafn með rentu þvi að þarna inni
er sannarlega frænkulegt og fritt
um að litast. 1 tveimur stofum
ægir aðskiljanlegum klæðum og
varningi saman,en þó er öllu hag-
anlega fyrir komið, allt hreint og
snurfusað og ryklaust. Þetta er
ekki eins og sumarskranbúðir.
Gardinur, krukkur, tölur, dósir,
teppi, eyrnalokkar, keleriis-
myndir, Jesúmyndir, lampar, út-
varp, strútsfjaðrir, klukkur, disk-
ar, styttur, gleraugu, körfur, háls-
men, vasar og hattar.
Anna Ringsted heitir kaupmað-
urinn og hún segir að allt sé gam-
alt i búðinni nema strútsfjaðrirn-
ar.
— Hvaðan færðu varninginn?
— Flestfæ ég frá útlöndum, að-
allega Belgiu, Hollandi og Eng-
landi en einnig kaupi ég allt af
fólki hér heima sem mér þykir
fallegt.
— Og hvernig gengur?
— Þaö gengur alltaf betur og
betur. Hér kemur fólk á öllum
aldri. Fullorðna fólkið hefur gam-
an af þvi að koma hér inn og rifja
upp gamla tima og unga fólkið er
spennt fyrir ýmsu hérna.
— Sérhæfirðu þig i einhverju
sérstöku timabili?
— Eins og ég sagði áðan kaupi
ég allt sem mér þykir fallegt en
hef þó mestan áhuga á timabilinu
eftir strið, svokölluðu artdeco
timabili. Þá fóru að koma miklir
litir i tiskuna eftir grámósku
striðsáranna og eru þeir stundum
allt að þvi glannalegir.
— Hvað gengur best?
— Það eru aðallega gardinur og
Skrifstofa kaupmannsins, önnu Ringsted, er I stil við allt annað I búðinni.
Gramsað
hjá Fríðu
frœnku
Einhver skemmtilegasta búð, sem nú er i Reykja-
vik, heitir Friða frænka og er i Ingólfsstræti 6. Lik-
lega hefur hún farið fram hjá býsna mörgum, enda
er hún dálitið til hliðar við meginstrauminn, handan
við horn ef svo mætti segja. Auk þess lætur hún ekki
mikið yfir sér, aðeins tveir búðargluggar á gömlu
timburhúsi og þarf að fara upp tröppur til að kom-
ast inn i hana. Verslunin Friða frænka er orðin árs-
gömul og satt að segja veitti ég sjálfur henni ekki
athygli fyrr en um daginn þegar ég rakst á pinulitla
eindálka auglýsingu i dagblaði. Mér fannst nafnið
frumlegt og tvær vinkonur minar upplýstu mig um
ágæti búðarinnar. Ég ákvað að fara á vettvang með
ljósmyndara og heimsækja Friðu frænku.
Þetta var i blíðviðrinu á mið-
vikudaginn og bærinn fullur af
fólki. Þegar viðstóðum á horninu
á Bankastræti og Ingólfsstræti
sáum við strax skiltið, fagurlega
málað, innan um mörg önnur:
Utan á búðinni blakti m.a. hvitt nærhald. Þaö trekkirsjálfsagt að.
FRIÐA FRÆNKA ANTIQUE. Og
viti menn! Neðan undir þvi blakti
snjóhvitt nærhald i vorgolunni.
Ung kona gekk til móts við okk-
ur er við smeygðum okkur inn um
dyragættina.
Saumakonan, Svala ólafsdóttir, hallar sér fram á strauboröiö á miðju búðargólfinu. Hún saumar fllkur upp úr gömlum efnum
Hver hlutur nýtur sin vel hjá Fríðu frænku. Hér er kelerlispóstkort I ramma, dós utan af grammófónnálum, skrautlegir eyrnalokkar með
smetlum, og vasi svo að eitthvaðsé nefnt.
Eitthvaö fyrir unglingana. Fullar skálar af eftirstrlðsáraeyrnalokkum
dúkar,en einnig seljast t.d. skart-
gripir og póstkort vel. Ég kaupi
lika mikið af gömlum efnum er-
lendis og læt sauma flikur uppúr
þeim. Þaðer hún Svala ólafsdótt-
ir sem þið hittuð þegar þið komið
inn, sem er saumakonan min.
— Hvernig veistu að þetta eru
gömul efni þegar þú kaupir þau?
— Slik efni eru einfaldlega ekki
framleidd lengur t.d. góð
baðmullarefni og hör. Þessi efni
eru ofboöslega vinsæl erlendis
enda verða þau dýrari og dýrari
með hverju ári sem liður.
— Hérna ertu með fullar skálar
af gömlum og skrautlegum
eyrnalokkum. Hver kaupir nú
svoleiðis lagað?
— Unglingarnir kaupa þá mik-
ið, oft einn og einn stakan þvi að
það fellur inn i pönktiskuna.
Þessir eyrnalokkar eru lika meö
smellum en ekki fyrir göt i eyrun
og eru þess vegna þægilegir.
— A hvað selurðu póstkortin?
— Þau kosta frá 4 kr. og upp i 8
kr. stykkið en gömul islensk kort
eru dýrari. Ungt fólk er sérstak-
lega spennt fyrir gömlu keleris-
kortunum.
i öðrum glugganum var alda-
mótaklukka með styttu.
— Kunna Islendingar að versla
isvona búð?
— Nei, það er nú varla. Þeir
hafa tilhneigingu til að koma og
kaupa svo einhvern hlut sem ligg-
ur efst i hrúgu, en i svona grams-
búðum á að róta i öllu og gefa sér
góðan tima. Maður kemur ekki og
stoppari lOminútur.
Inn af búðinni er smákompa og
þar hefur Svala aðsetur viö
saumaskapinn. Strauborð er hins
vegar á miðju búðargólfinu svo
að þetta er afskaplega heimilis-
legt. Anna segir okkur að hún
þvoi allt og hreinsi sem hún fái og
ekkert skitugt fari i búðina. Hún
vill taka fram að hún kaupi af
fólki og taki i umboðssölu.
Við ljósmyndarinn grömsum
dálitið hjá Friðu frænku áður en
við förum út og það sem i fljótu
bragði hefði kannski sýnst ótta-
legt drasl niður i kjallara heima
hjá manni verður bara fallegt i
þessari litlu búð. Hún er likiega
súeinasinnar tegundar i Reykja-
vik og auðgar götulifið.
—GFr