Þjóðviljinn - 29.05.1982, Side 19

Þjóðviljinn - 29.05.1982, Side 19
Helgin 29. — 30. mal 1982 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 19 Núgeturðu fengið þér Ruuktiiitam með ílugfari og bílaleigubíl fyrir2.963.-krónur! Þetta er örugglega ekki ódýrasti Frankfúrtari sem hægt er að fá, en það er líka leitun að betra og ódýrara meðlæti. Helgarferðir Flugleiða til Frankfúrt hefjast 17. júní og verða í boði fram til loka ágúst. Brottfarir verða alla fimmtudags- morgna og komið heim á sunnudagskvöldum. Það er hægt að velja um tvenns konar fyrirkomulag: Flug og bílaleigubíll Innifalið er flugfar og bílaleigubíll allan tímann með ótak- mörkuðum akstri. Verð fer eftir því hversu margir eru um bílinn og úr hvaða verðflokki hann er. Dæmi: 5 í bíl 2 íbíl Bíll A BÍIIB BíllC BíllD BíllE VW Polo VW Golf Opel Ascona VW Passat BMW316 2953.00 2983.00 3008.00 3048.00 3112.00 3142.00 3218.00 3281.00 3378.00 3536.00 (plús tíkall fyrir Frankfúrtara) Flug og gisting Innifalið er flugfar og gisting í þrjár nætur. Hægt er að velja milli tveggja úrvals hótela, Ramanda-lnn og Frankfurter-Hof. Verð: Ramanda-lnn Frankfurter-Hof tvíbýli 3765.00 4158.00 einbýli 4158.00 4552.00 Ef keypt er flug og gisting er einnig hægt að fá bílaleigubíl á föstu verði, óháð akstri og fjölda ferþega. Verðið er frá 630 krónum. Auk þess að vera miðstöð verslunar og viðskipta í Evrópu, er Frankfurt stórskemmtileg borg og umhverfi hennar fagurt og fjölbreytt. Það vantar líka örugglega ekki rúsínurnar í pylsu- endana hjá Þjóðverjunum! Ath. verðin sem eru gefin hér að ofan gilda fyrir fyrstu tvær ferðirnar, en hækka síðan um u.þ.b. 500 krónur. Leitið upplýsinga hjá söluskrifstofum Flugleiða, umboðs- mönnum og ferðaskrifstofum.

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.