Þjóðviljinn - 29.05.1982, Qupperneq 20
20 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Helgin 29. — 30. mai 1982
dægurtónlist
Combat rokk
Þá er biöin loks á enda og hin
langþráöa Clash plata, Combat
Rock, loksins komin. Nú er
rúmt ár frá þvi meistara-verkiö
Sandinista leit dagsins ljós.
Allt er á huldu um framtiö
hljómsveitarinnar þvi Joe
Strummer söngvari og gitar-
leikari hljómsveitarinnar er
horfinn og hefur ekkert til hans
spurst I nokkrar vikur. Þetta
hvarf Joe Strummers minnir
nokkuö á brotthlaup Jas Colman
Jón Viðar
Sigurðsson* ^ 1
skrifar
úr Killing Joke hér á dögunum.
Hvort Strummer sé endanlega
hættur I Clash skal ósagt látiö en
miklar vangaveltur eru I gangi
um afdrif Strummers I bresku
músikpressunni. 1 nýjasta
Melody Maker má sjá frétt þar
sem segir aö Strummer hafi
veriö vera frá öörum hnetti!
Flestir telja þó aö Strummers
hafi horfiö af sjónarsviöinu til
aö meta stööu sina og stööu
hljómsveitarinnar.
óneitanlega varpar hvarf
Strummers skugga á plötuna og
setur aö manni kviöa um fram-
tiö hljómsveitarinnar. Þvi þaö
yröi mikiö fráfall ef Clash hyrfi
af sjónarsviöinu, þvi meö henni
myndi hverfa merkisberi alls
þess sem pönkiö táknaöi i upp-
hafi.
Combat Rock er frábrugöin
fyrri plötum hljómsveitarinnar
aö þvi leyti aö þeir hafa róast og
keyrslan ekki eins mikil og áöur
þó krafturinn sé enn á sinum
staö. Tónlistin á þessari plötu er
eins og gefur aö skilja öllu heil-
steyptari en á Sandinista, þeir
geta þó ekki á strák sinum setiö
eins og heyra má f laginu
„Overpowered by Funk”. Ég
varö fyrir örlitlum vonbrigöum
fyrst, en eftir aö hafa hlýtt á
plötuna nokkrum sinnum þá
likar mér betur og betur viö
hana.
Hljóöfæraleikur er allur hinn
ágætasti og söngur Strummers
góöur eins og endranær.
You have the right not to
be killed
murder is a crime
unless it was done by a
policeman or aristocrati.
(Úr Know your right)
Textarnir eru eins og áöur
mjög góöir og auöheyrt aö þeir
Clash.
hafa engu gleymt af sinum fyrri
hjartansmálum. Textarnir eru
mjög skýrir og þarf ekki mikiö
til aö greina og skilja boöskap
þeirra. Margir hafa gagnrýnt
þá eftir aö þeir komust i álnir.
og fundist þeir ekki vera sam-
kvæmir sjálfum sér I oröi og
æöi. Þaö er lifa viö allsnægtir og
berjast um leiö fyrir þeim sem
minna mega sin. Hvort þessi
gagnrýni er réttmæt skal ósagt
látiö en hitt finnst mér virö-
ingarvert aö þrátt fyrir vel-
gengnina skuli þeir ekki hafa
gleymt uppruna sinum og selt
Mammon sig meö húö og hári.
Can you cough it up loud
and strong
the immigrants they wanna
sing all night long it could
be anywhere most likely
could be any frontier any
hemisphere no mans land
there aint no asylum here
king Solomon he never lived
round here.
(Úr Straight to Hell)
Combat Rock er plata sem
vinnur á, plata sem sýnir aö
ýmislegt býr enn i hljómsveit-
inni. Svo er bara aö vona aö
Strummer birtist og viö fáum aö
njóta ávaxta af samstarfi þeirra
i nokkur ár enn.
— JVS
Paul Simonon bassaleikari
Clash. Myndina tók — gel — á
Listahátiö '80.
Jethro Tull
Gamlir en standa
enn fyrir sinu.
Þaö fylgir þvi alltaf viss
spenna þegar maöur fréttir aö
ný plata meö Jethro Tull/Ian
Anderson sé á leiöinni. Þvi þetta
er ein af þeim fáum hljómsveit-
um sem hafa fylgt manni i
gegnum árin.
Nýjasta plata hljómsveitar-
innar heitir Broadsword and the
Beast og er sennilegast 12.-15.
plata meö hljómsveitinni. Sein-
ustu plötur hljómsveitarinnar
hafa veriö svona upp og ofan og
þvi biöur maöur milli vonar og
ótta eftir næstu plötu, þvi aldrei
er hægt aö vita hverslags af-
sprengi Anderson elur af sér.
Sannast sagna þá er þessi
plata meö þvi besta sem Ian
Anderson/Jethro Tull hefur lát-
iöfrá sér fara um alllangt skeiö.
Tónlistin er ekkert ný, en það er
samt eitthvað kynngimagnaö
viö hana eitthvaö sem gamlir
aödáendur geta ekki slitiö sig
frá. Þetta er gamla Jethro Tull
tónlistin matreidd öllu ferskari
og liflegri en oft áöur og þaö er
sennilegast þaö sem gerir gæfu-
muninn fyrir plötuna.
Ég hef aldrei skynjaö Ian
Anderson sem neinn sérstakan
textahöfund, ekki svo aö skilja
aö mér hafi fundist hann léleg-
ur, en nú bregöur svo viö aö mér
finnst textar hans aldrei hafa
veriö betri. Hvort Anderson hef-
ut tekiö breytingum eöa augu
min opnast er ekki gott aö segja.
En ég hef aldrei fflaö texta hans
jafnvel og nú, og margir þeirra
finnst mér orö i tima töluö.
Hljóöfæraleikur er eins viö er
aö búast mjög góöur, enda engir
aukvisar sem skipa hljóm-
sveitina,skal þar fremstan telja
fyrir utan Anderson sjálfan,
David Pegg fyrrum meölim i
hinni stórkostlegu hljómsveit
Fairport Convention.
Broadsword and the Beast er
góö plata fyrir gamla aödáend-
ur og ágætis inngangur fyrir þá
sem ekki hafa hlýtt á þessa
merkis hljómsveit. Þaö yljar
manni alltaf um hjartarætur aö
heyra aö gamlar hetjur skuli
enn búa yfir lifsþrótti.
—jvs.
austur
Og
norður
Hljómsveitin Egó verður i
hljómleikaferöalagi um Austur-
og Norðurland næstu dægrin.
þeir byrja i Sindrabæ á Höfn i
Hornafirði l.júni.þann )(,veröa
þeir i Félagslundi i Reyöarfiröi,
4. Herðubreið á Seyðisfirði,
þann 5.kl. 4 i Egilsbúö á Norð-
firöi og aö kvöldi sama dags á
dansiballi i Valaskjálf. 8. júni
veröa Egóistar á Hótel Húsavik,
þann 9. i Dynheimum á Akur-
eyri og þann 10. i Hótel Höfn á
Egó: Þorleifur bassaleikari, Bergþór gitarleikari, Bubbi Morthens söngvari og Magnús trommari.
Siglufirði. ákveðið enn, vegna þess að ekki listahátiðinni ásamt Human
Framhald reisunnar er ekki er dagljóst hvort Egó leikur á Legue i Höllinni.
Nætur-
útvarp
Allt bendir til að nætur-
útvarpið skelli á nú í júní
á aðfaranóttum sunnu-
daga. Umsjónarmaður
þess verður Stefán Jón
Hafstein fréttamaður og
hefur hann sent fjöl-
miðlum og fleirum skrif
nokkurt, sem ástæða
þykir til að birta. Erindi
Stefáns er svohljóðandi:
Yður er hér með boðið að taka
þátt i að velja efni i tónlistar-
dagskrá útvarpsins i sumar, um
aðfaranætur sunnudaga. Vin-
samlegast ritið nafn og sima-
númer á snepilinn ásamt þvi
sem beðið er um.
Óskað er eftir þvi að valið sé
það efni úr rokktónlist siðustu 25
ára eða svo, sem talið er skara
framúr. Hér er átt við rokk i
„viðasta skilningi”.
Nefnið eina framúrskarandi,
stóra, frumútgefna rokkplötu,
og flytjanda.
Veljið eitt framúrskarandi
rokklag.
Veljiö framúrskarandi
islenskt rokklag.
Nefnið bestu nýbyljgjuhljóm-
sveitina.
Valið er auövelt — takk fyrir!
Sendist næturútvarpi Skúlagötu
4, Reykjavik.
Þetta má afrita með ýmsum
hætti og afhenda kunningum.
Stefán Jón Hafstein frétta-
maður, umsjónarmaöur
væntanlegs næturútvarps i júni
og júlí.