Þjóðviljinn - 05.06.1982, Side 9
Helgin 5.—6. júnl 1982 ÞJóÐVILJINN — SIDA 9
Brennivínslausa helgin
A föstudag fyrir hvitasunnu var
rikiö lokað eins og alkunna er og
mikið er búið að rifast um, opin-
berlega og i hljóði. Sjálfur var ég
dálitið reiður til að byrja með og
var jafnvel á timabili að hugsa
um að skrifa lesendabréf i blaðið
undir nafninu: Ættstór bóndi úr
Fljótunum. bar ætlaði ég að ausa
úr skálum reiði minnar yfir fjár-
málaráðherra og segjast hafa
ætlað halda upp á sjötugsafmælið
mitt á hvitasunnu en það hafi far-
ið algjörlega út um þúfur vegna
þess að ekki var drukkið að skag-
firskum hætti eins og við á i slik-
um afmælum. Og nú mætti Ragn-
ar Arnalds bara fara að vara sig.
Svo hætti ég við allt saman.
Nógir voru aðrir til að skrifa. Ég
tók m.a.s. upp á þvi að stunda
heilsurækt um hvitasunnuhelgina
i stað þess að liggja í þvi frá laug-
ardegi til mánudags sem ég hefði
kannski ella gert. Ég gekk
Leggjabrjótsleið á sunnudag, frá
Botnsskála i Hvalfirði og yfir til
Valhallar á Þingvöllum. Ferðin
tók hálfan niunda tíma og þegar
ég skreið inn i Valhöll, örþreyttur
og ánægður með sjálfan mig,
gaus þar út mikill og þægilegur á-
fengisþefur.
I Valhöll var múgur og marg-
menni, öll herbergi full og þar að
auki hafði þarna safnast saman
mikið brennivinslaust lið úr ná-
lægum sumarbústöðum og liklega
frá Reykjavik lika. Einhver
hvislaði þvi að mér að þetta væri
,,the jet set” eða öðru nafni ,,the
beautiful people” og þegar ég leit
nánar yfir sviðið sá ég að svo
mundi vera. A.m.k. virtist þetta
fólk bera af fyrir fegurðar sakir
og glæsimennsku i hvitvetna.
Ég átti pantað herbergi i Val-
höll og flýtti mér þangað upp, fór i
heitt bað snarlega og svo beint á
barinn. Þar var nú gaman og
margt spaklega sagt. Menn og
konurdrukku ótæpilega og reyndi
ég að vera ekki eftirbátur ann-
arra. Svona gekk þetta langt
fram eftir nóttu. Allt hóteliö var
undir lagt söng, stunum, glensi,
hrópum, öskrum, hljóðfæraleik
og slagsmálum. Og ekki kæmi
mér á óvart þó að nokkurt gjálífi
hafi verið stundað enda slikt nær-
tækt á bingvöllum. Selfosslög-
reglan var i bil fyrir utan og
fylgdist með að sundmenn i öx-
ará færu sér ekki að voða.
Þegar ég skreiddist á fætur i
morgunsárið varð mér litið inn i
barherbergið og var þar einna
likast þvi að kjarnorkusprengja
hefði fallið og var þó tiltekt i full-
um gangi. Ég tók lika eftir þvi
rétt fyrir klukkan fimm i eftir-
miðdaginn að tiltekt var þá enn i
fullum gangi á barherberginu og
mikið eftir.
Já, það er lærdómsrikt að lifa
eina brennivinslausa helgi.
Guðjón
Hagkvæmasta lausnin er að fá okkur til þess
að saga fyrir gluggum og hurðum gegnum
járnbenta steinsteypu.
Við vinnum með fullkomnustu tækjum og
bjóðum þvi lægra verð.
Við gerum tilboð yður að kostnaðarlausu.
Tökum að okkur verk um allt land
Ryklaust — Hagkvæmt — fljótvirkt
DEMANTSSÖGUN
S/G
byggingaþjónusta sími 83499
Ölafur Kr. Sigurðsson hf./ Suðurlandsbraut 6.
Blaðberabíó
i Regnboganum laugardag 5. júni kl. 1.
Mynd: Dýralæknisraunir
islenskur texti.
DJÚÐVIUINN
Fundir
brýtur verðbólgumúrinn-besta kjarabótin!
Ath. verö á Lada-bílum hefur aldrei veriö hagstæöara.
Þá mun formaður félagsins,
Tómas A. Jónasson yfirlæknir,
gera grein fyrir væntanlegum
byggingarframkvæmdum
krabbameinsfélaganna og
áformum um aukna starfsemi i
þvi sambandi.
Enn fremur verður sýnd kvik-
myndin „Frá einni frumu”, stutt
bandarisk fræðslumynd með is-
lensku tali.
SÖGUM
fyrir gluggum og hurðum
geghum járnbenta steinsteypu
um
krabbamein
Krabbameinsfélag Reykja-
vikur hefur ákveðið að taka upp
þá nýjung að halda opna fræðslu-
og umræðufundi um krabbamein
og krabbameinsvarnir. Fyrsti
fundurinn verður haldinn n.k.
mánudag, 7. júni og hefst kl.
20.30. Fundarstaður er Hótel
Hekla við Rauðarárstig.
A fyrsta fundinum munu Sig-
urður Björnsson og G. Snorri
Ingimarsson, sérfræðingar i
krabbameinslækningum, flytja
stutt erindi og svara fyrirspurn-
um um lyfjameðferð illkynja
sjúkdóma og um efnið interferon.
LADA SAFÍR kr. 75.500-
LADA STATIOf* kr. 79.500-
LADA SPORT kr. 122.700-
Munió aö varahlutaþjónusta okkar er í sérflokki.