Þjóðviljinn - 20.08.1982, Blaðsíða 2
2 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 20. ágúst 1982
viðtalið
Jón
Oddur og
Jón
B j arni
hlaut
silfurverð
launin
á 12. alþjóðlegu
barna- og unglinga
myndahátíðinni í
Giffoni á Ítalíu
”Ég fór niörá Ítalíu í lok júlí-
mánaðar til að vera viðstaddur
þessa hátíð, ekki vegna þess að ég
gerði mér svo miklar vonir með
mvndina, heldur fyrst og fremst
til þess að vera viðstaddur og
fylgjast með því sem fyrir augun
bar. Ég frétti það svo þegar ég var
kominn heim að myndin helði
hlotið silfurverðlaun á hátíð-
inni,“ sagði Þráinn Bertelsson
leikstjóri myndarinnar Jón
Oddur og Jón Bjarni en niyndin
hlaut 2. verðlaun á virtri kvik-
myndahátíð í Giffoni á Suður-
Ítalíu, en hátíð þess fór fram í
tólfta sinn dagana 31. júlí - 8.
ágúst.
Þarna var samkeppni í tveim'
tegundum barna- og unglinga-
Þráinn Bertelsson: Gaman að sjá hvernig krakkarnir tóku mynd
inni.
Annar tvíburanna í kvikmyndinni ”Jón Oddur og Jón Bjarni'
Mögnuð kvikmyndasýning
Kvikmyndasýning í Borgarbíói
á Akureyri fór öll úr böndunum
eina kvöldstund eigi alls fyrir
löngu. í kvikmyndahúsinu var
sýnd mynd um þrælahald og var
atgangur þar harður. Þrælarnir
voru ekki ýk ja ánægðir meö hlut-
skipti sitt og braust út ntikill <í-
friður. Mannvíg voru tíð og ætl-
aðialltaf göflunum að ganga. Frá
iogandi spenntum bíógestum leið
mikil stuna þegar ein söguhetjan
og reyndar fleiri birtust aftur á
hvíta tjaidinu skömmu eftir að
þeir höfðu verið drepnir, að því
er sannað þótti. Sprelllifandi
tóku söghetjurnar aftur við hina
fyrri iðju sína og fannst þá bíó-
gestum gamanið heldur farið að
grána.
Þegar upp var staðið kom í ljós
að spólur höfðu ruglast, en ekki
sáu aðstandendur sýningarinnar
ástæðu til að biðjast afsökunar á
mistökum þessum.
(Ur Degi á Akureyri)
mynda, annarsvegar stuttar
myndir og hinsvegar langar
myndir og Jón Oddur og Jón
Bjarni fórí síðarnefnda flokkinn,
en þar var valið um 18 myndir frá
17 löndum. Spönsk mynd, Upp-
reisn fuglanna, hlaut 1. verðlaun.
”Ég renndi blint í sjóinn þegar
ég fór utan, en það var alveg sér-
staklega gaman að vera viðstadd-
ur sýningar myndarinnar. Krakk-
arnir skemmtu sér að því er virtist
konunglega og þar sem þetta var
kvikmyndasamkeppni myndaðist
talsverð spenna í kringum hinar
einstöku myndir. Þannig var ég
kominn með dyggan hóp fylgis-
manna í hópi barnanna. Þau voru
alveg hörð á því að Jón Oddur og
Jón Bjarni fengi 1. verðlaun.
Myndirnar voru með ítölskum
texta auk þess sem túlkur þýddi
talið jafnóðum meðan á sýningu
stóð og var hann mjög sannfær-
andi í því hlutverki," sagði
Þráinn.
— Aukast nú ekki möguleik-
arnir á því að koma myndinni á
framfæri?
”Jú það getur varla verið að
þessi ”frammistaða“ hafi skemmt
fyrir sölumöguleikum. Við sem
stöndum að þessari mynd höfum
fengið boð um að sýna hana á
sérstakri kvikmyndahátíð í
Frankfurt í september, en þar
verða sýndar 11 barna- og ung-
lingamyndir, sem valdar eru af
alls eitthvað um 80 myndum.
Myndin hefur verið sýnd í danska
sjónvarpinu og í krítík sem birtist
nýlega í Politiken fékk hún þar
lofsamlega dóma. Annars höfum
við nú flýtt okkur hægl í því að
koma þessari mynd á framfæri,
m.a. vegna þess að við vissum
aldrei nákvæmlega hvar við
stóðum.
Truffaut heiðraður
Á kvikmyndahátíðinni voru
margar stórstjörnur kvikmynd-
anna staddar, t.d. franski
kvikmyndaleikstjórinn Francois
Truffaut en hann hlaut einu sinni
1. verðlaun á þessari hátíð. Sýnt
var úr nokkrum mynda hans.
Einnig var þarna staddur mjög
þekktur höfundur teiknimynda,
Rúmeninn Popoeschu Gopo og
ýmsir fleiri.Ég lít á þessa verð-
launaveitingu sem viðurkenn-
ingu fyrir íslenska kvikmynda-
gerð almennt, sem þýðir að við
erum á réttri braut.“
Að lokum kvaðst Þráinn hafa
ýmislegt á prjónunum þessa dag-
ana, hann væri að vinna í kvik-
myndahandriti að Sólon Islandus
og öðru sem hann vildi ekki segja
um hvað fjallaði auk þess sem
hann væri að skrifa skáldsögu —
þannig að í nógu væri að snúast.
— hól.
Svínharður smásáil
Eftir Kjartan
Arnórsson
KONUR SKYLDAÐAR TIL
AÐ GEGNA HERÞJÓNUSTU
í SVISS. Beru/Sviss. Miklar
líkur eru taldar á því að
konur verði skikkaðar í
herþjónustu. Stjórnin....
Veslings konurnar. Iiugsa sér j
að þetta skuli gerast í landi
sem færir okkur súkkulaði,
osta, úr...
...Ég mótmæli!
Nýr skyndi-
bitastaður
í Eyjum
Um síðustu mánaðamót opnaði
nýr skyndibitastaður í Vestmanna
eyjum. Það var veitingamaður-
inn Pálmi Lórens sem stóð að
opnuninni, en veitingastaðurinn
er í anddyri Gestgjafans, þar sem
Pálmi hefur rekið veitingastarf-
semi sína lengi.
Á hinum nýja stað er boðið
uppá kjúklinga, hamborgara og
annað það sem fylgir slíkum stöð-
um s.s. franskar kartöflur, sósu
og fleira.
Þá er Pálmi með í byggingu við-
auka við Gestgjafann. Þar er
meiningin að opna diskótek í
haust. Viðbyggingin er alls um
250 fermetrar að stærð.
*
Utimarkaður
á Akureyri
Nokkrar líkur eru taldar á því
að á næsta ári verði rekinn úti-
markaður á Akureyri.. Það er
Kaupmannafélag Akureyrar sem
sótt hefur um leyfi til að reka úti-
markað fyrir félagsmenn sína.
Bæjarlögmanni, bæjarverkfræð-
ingi og skipulagsstjóra hefur ver-
ið falið að ræða við fulltrúa
kaupmannafélagsins og Kaupfé-
lags Eyfirðinga um fyrirkomulag
á útimarkaðinum.
Rauði kross-
inn færir út
kvíarnar
Á vegum Reykjavíkurdeildar
RKÍ er nú langt komið með inn-
réttingar á 600 fermetra húsnæði
í Ármúla 34. Húsnæði þetta fellur
til nota fyrir aldrað fólk og ör-
yrkja. í húsnæðinu verður ýmis
konar þjónusta veitt, aðstaða
verður fyrir föndur, verkstæði,
verslun og lækningastofu. Þá
verður aðstaða fvrir prest og fé-
lagsráðgjafa.
Stór malsalur verður í húsnæð-
inu í Ármúla, eldhús, setustofa,
herbergi fyrir fótasnyrtingu, hár-
greiðslufólk fær þarna inni og
margir nrargir fleiri.
Stefnt er að því að húsnæðið
verði tekið í notkun strax í haust,
en það er í eigu SÍBS og kemur
SÍBS til með að standa að rekstri
dagheimilisins ásamt Félagi aldr-
aðra í Reykjavík og Reykjavíkur-
deild Rauða krossins.
— hól
Gætum
tungunnar _________
Heyrst hefur: Auka þarf
skilning Norðurlandaþjóð-
anna á tungumálum hver
annarrar.
Rétt væri: Auka þarf skilning
Norðurlandaþjóða hverrar á
annarrar tungumáli (eða:
hverrar á tungumálum ann-
arra).
Betra væri: Auka þarf gagn-
kvæman skilning Norður-
landaþjóða á tungumálum,
sínum.