Þjóðviljinn - 20.08.1982, Page 3
Föstudagur 20. ágúst 1982 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 3
j Úr atvinnutillögum Alþýðubandalagsins j
\Jöfnun starfsskilyrða i
Efling iönaöar sem á í samkeppni viö
innflutning eöa erlenda markaöi:
II þingsályktun sem Al-
þingi samþykkti sl. vor er
hvatt til þess að starfsskil-
Iyrði iðnaðar verði ekki lak-
ari en í öðrum atvinnugrein-
um, en talið er að verulega
hafi hallað á iðnaðinn að
Iþessu leyti á undanförnum
árum.
Mikil vinna hefur farið fram á
Ivegum ríkisstjórnarinnar allt frá
árinu 1980 í að kanna aðbúnað og
starfsskilyrði atvinnuveganna
með tilliti til opinberra gjalda,
skattlagningar, tolla og framlaga
úr ríkissjóði. Svokölluð starfs-
skilyrðanefnd ríkisstjórnarinnar
skilaði áliti í janúar sl. og um það
hefur síðan verið fjallað af emb-'
ættismönnum.
Fyrir utan jöfnun starfsskil-
yrða er einnig talið mikilsvert að
iðnaður sem á í harðri samkeppni
við innfluttan varning búi við
eólileg skilyrði meðal annars
varðandi verðlagningu.
Með framangreint í huga
leggur Alþýðubandalagið til í
efnahagstillögum sínum:
• að ”verðlagning á innlcndum
iðnaðarvörum sem eiga í
óheftri erlendri samkeppni
verði gefin frjáls.”
• að "útlánareglur, lánstími og
vaxtakjör hjá öllum fjárfest-
ingalánasjóðum atvinnuveg-
anna verði sambærileg.”
• að ”ríkisstjórnin hcfji undir-
búning að því að sameina fjár-
fcstingalánasjóði atvinnuveg-
anna í sameiginlegan atvinnu-
vegasjóð."
0 að "felldur vcrði niður launa-
skattur af iðnaði og fisk-
vinnslu og með því jafnframt
bætt samkeppnisstaða í þess-
um greinum."
• að ”til mótvægis verði lagt 3%
vörugjald á innfluttar og inn-
lendar samkcppnisvörur og I
renni það til þróunarstarfscmi !
og skipulagsbreytinga í I
atvinnuvegunum."
• að ”heimilað verði að leggja á ■
allt að 1.3% aðstöðugjald á I
atvinnurekstur og þjónustu til |
þess að skapa svigrúm fyrir ■
jafnari álagningar aðstöðu- I
gjalds. Tckjur af aðstöðu- I
gjaldi renni áfram óskiptar til I
sveitarfélaganna."
• að ”ríkisstjórnin ákveði tíma- I
bundna innborgunarskyldu á I
vissar greinar innflutnings til '
að draga úr gjaldeyriseyðslu I
og bæta samkeppnisaðstöðu J
innlendrar framleiðslu."
Einnig er í tillögunum ákvæði I
um að beina viðhaldsverkefnum |
flotans til innlendra skipasmíða- •
stöðva enda séu þær santkeppnis- I
færar við erlendar skipasmíða- I
stöðvar.
—-ekh |
Heimilið og fjölskyldan ’82
Skráning náttúruminja á Austurlandi
t sumar hcfur staðiö yfir skrán-
ing náttúruminja á landsvæöum
viö Vopnafjörö og Bakkafjörö og
heiöum þeim og fjöllum, sem aö
þessum sveitum liggja. Er þetta
liður í stærra verkefni á þessu
sviöi.
Siðastliöið vor sóttu Náttúru-
verndarsamtök Austurlands um
styrk úr Þjóðhátiðarsjóði, — og
fengu hann, — til þess að halda
áfram skráningu náttúruminja á
Austurlandi. Þorsteinn Bergsson
frá Refstaö i Vopnafirði vann i
einn og hálfan mánuð i sumar að
skráningu i Vopnafirði og Bakka-
firði og á aðliggjandi svæðum.
Hugmyndin er og að fá jarð-
fræðing til þess aö fara um þessi
svæði.
Sem fyrr segir er þetta liður i
stærra verkefni, sem byrjað var á
upp úr 1970. Hjörleifur Guttorms-
son, iðnaðarráðherra, vann þá að
þvi á vegum NAUST. Þessu er
enn engan vegin lokið. Er einkum
eftir að fara um svæði á norðan-
verðu Austurlandi. Ætlunin er að
ljúka þessu heildarverkefni innan
3—4 ára. — mhg
Anker
til íslands
Forsætisráðherra Dan-
merkur, Anker Jörgensen,
er væntanlegur hingaö til
lands i ljögurra daga opin-
bera heimsókn á sunnudag-
inn kemur.
Mun ráðherrann m.a. ræða
við dr. Gunnar Thoroddsen
forsætisráðherra og fara i
skoðunarferðir til Norður-
lands og Vestmannaeyja.
— jsj
ofurhugar
Matvæli og orka cru tvö stærstu
sérsvið heimilissýningarinnar
Heimilið og fjölskyldan ’82, sem
opnar í dag kl. 18.00. Fjöldi fyrir-
tækja í matvælaiðnaði hefur komið
básum sínum fyrir í anddyri, og
gefst fólki þar árciðanlega kostur á
að smakka á ýmsu góðgæti, sem
fyrirtækin hafa upp á að bjóða.
Orku alheimsins eru gcrð skil í
bandarískri orkusýningu, sem
fengin hefur verið hingað til lands
fyrir milligöngu Menningarstofn-
unar Bandaríkjanna hér á landi. A
sýningunni verður svo auðvitað ót-
almargt, sem tcngist heimilishaldi í
víðasta skilningi þess orðs.
Það er Kaupstefnan hf., sem
stendur fyrir þessari sýningu, eins
og fyrri vörusýningum, sem hald-
nar hafa verið í Laugardalshöll.
Alls eru um 80 sýningarbásar víðs
vegar um Laugardalshöllina og
utandyra, en fjöldi þeirra fyrir-
tækja, sem nærri koma sýningunni
er rúmlega 200, að því er fram kom
í máli forráðamanna Kaupstefn-
unnar, á blaðamannafundi sem
haldinn var í tilefni sýningarinnar.
Eins og síðast verður starfrækt
Tívolí á heimilissýningunni, og auk
þess verða á boðstólum skemmti-
atriði, sem sýnd verða fjórum sinn-
um á virkum dögum og einu betur
um helgar, en atriðin eru að sumu
leyti háð veðrum og vindum, svo
hugsanlegt er að hluti þeirra verði
að fara fram á skemmtipalli innan-
dyra.
Þeir, sem leika listir sínar eru
fimleikaparið Tatyana og Gennady
Bondarchuk frá frægasta sirkus í
heimi, Moskvusirkusnum, töfra-
maðurinn Amyak Akopian, sem
kemur einnig frá Moskvusirkusn-
um og hefur unnið fjölda verð-
launa í alþjóðlegum keppnum
töframanna, og síðast en ekki síst,
breski eldmaðurinn Roy Frandsen,
sem steypir sér ofan úr 16 metra
háu mastri ofan í litla tunnu — log-
andi.
Þá er starfræktur veitingastaður,
meðan sýningin er opin, þar sem
fólki gefst kostur á að næra sig og
hvíla lúin bein milli þess sem rölt er
milli sýningarbása.
Þess má geta, að flugfélögin og
Hótel Esja og Hótel Loftleiðir
verða með sértilboð í gangi fyrir
fólk utan af landi, meðan sýningin
stendur, og selja söluskrifstofur og
umboðsmenn ilugfélaganna miða á
sýninguna um leið og farseðlar eru
keyptir.
Aðgöngumiðaverð á sýninguna
er kr. 80 fyrir fullorðna, kr. 50 fyrir
ellilífeyrisþega og kr. 25 fyrir börn,
en möguleikar eru á sérstökum
hópafsláttum. Aðgöngumiðinn
gildir á allt sýningarsvæðiö og á
skemmtiatriði hinna erlendu
skemmtikrafta, en þeir, sem vilja
skemnita sér í tækjum Tívolísins
þurfa að greiða aukalega fyrir það
Breski ofurhuginn Roy Frandsen sýndi sig stutta stund, en stökk hins
vegar ekki — enda var ekkert vatn I tunnunni. Hann er orðinn óvenju
gamall, miöaö viö aöra ofurhuga og hefur dvaliö oftar á sjúkrahúsi cn
tekur aö telja — en er samt enn aö.
frá 10 og upp í 35 kr. eftir tækjum.
Á blaðamannafundinum kom
fram, að um 80.000 gestir komu á
síðustu heimilissýningu, og kváð-
ust forráðamenn sýningarinnar.
Ljósm.: — gel.
þeir Guðmundur Einarsson, fram-
kvæmdastjóri Kaupstefnunnar og
Halldór Guðmundsson, blaðafull-
trúi sýningarinnar bjartsýnir með
aðsókn.
Matvæli, orka, tívolí og
r
Islensk
Ijóðabók
á ensku
Sigurður A.
Magnússon þýddi
Stærsta Ijóðasafn islenskra
skálda á ensku er aö koma út
þessa dagana i Bandarikjunum i
þýöingu Sigurðar A. Magnússon-
ar scm einnig ritar formála bók-f
arinnar.
Þetta er 288 blaðsiðna bók með
ljóðum eftir 28 ljóðskáld. Bókin
kemur á vegum Iowa Press undir
heitinu „The postwar Poetry of
Iceland”, eða íslensk eftirstríðs-
ljóð. Siguröur þýddi flest þessara
ljóða fyrir nokkrum árum en fæst
þeirra hafa komið á prent áöur.
Þó eru sýnishorn i nýútkomnu
bókmenntariti sem gefið er út i
tengslum við sýninguna Scandi-
navian today i Bandarikjunum.
_____________ —óg
Uppsláttar-
rit um
íslenskan
rafíðnað
A vegum stjórnar Samtaka raf-
tækjaframleiöenda hefur nú veriö
gefið úl uppsláttarrit um islensk-
an rafiðnað. Smáiönaður ýmis-
konar hcfur færst mikið i vöxt aö
undanförnu og er nú svo komið aö
æ fleiri fyrirtæki leggja sig eftir
framleiðslu á ýmsuin þeim
tækjum sem geta orðiö tii aö nota
bæði i rafiðnaði og rafeinda-
iðnaði.
t hinu nýja uppsláttarriti er að
finna skrá yfir öll þau fyrirtæki
sem sérhæfa sig i þessum iðnaði.
Þar er einnig greinargóð skrá um
tegund framleiðslu hvers fyrir-
tækis, starfsmenn umfang og
annað.
t kjölfar þeirrar gifurlegu
hröðu þróunar sem orðiö hefur i
raíeindaiðnaði helur verið kallað
á mun sérhæföari tækjabúnaö en
áður þekktist. Þess má geta að i
þessumiðnaði hefurverið fundinn
kjörinn vettvangur fyrir öryrkja.
t húsakynnum öryrkjabanda-
lagsins að Hátúni 10 hefur t.d.
veriðkomið fyrir tæknivinnustofu
sem sérhæfir sig i tæknibúnaði
fyrir samsetningarvélar, hita-
skápa, frystikistur, viðnáms-
mæla, sveiflusjár og fleira.
Eftirtalin fyrirtæki eru i
skránni, en skrána má nálgast á
fjölmörgum stöðum s.s. Iðn-
tæknistofnun Islands: Alternator
h/f, E.N. Lampar h/f, Flúr-
lampar h/f, Framleiðni s.f.,
Framleiðslusamvinnufélag
iðnaðarmanna, Rafafl svf/Stálafl
svf., Hrafnatindur s.f., Jötunn
h/f, Kórall s.f., Kóran h/f, Neon-
þjónustan h/f, Óðinn s.f., Póllinn
h/f, Rafagnatæki s.f., Rafha,
Rafis h/f, Raforka h/f, Rafrás
h/f, Sameind h/f, Samvirki h/f,
spennubreytar, Stálumbúðir h/f,
Tæknibúnaöur h/f, Töflur s.f.,
Tæknivinnustofa ÖBI, örtölvu-
tækni s.fl.
Skráin er unnin af Hólmgeiri
Guðmundssyni verkfræðingi.
— hól.