Þjóðviljinn - 20.08.1982, Side 4
4 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 20. ágúst 1982
UOÐVIUINN
Málgagn sósíalisma, verkalýðs-
hreyfingar og þjódfrelsis
Útgefandi: Otgáfufélag Þjóöviljans.
Framkvæmdastjóri: Eiöur Bergmann.
Ritstjórar: Arni Bergmann, Einar Karl Haraldsson, Kjartan
Ólafsson.
Fréttastjóri: Þórunn Siguröardóttir.
L'msjónarmaöur sunnudagsblaös: Guðjón Friöriksson.
Auglýsingastjóri: Svanhildur Bjarnadóttjf.
Afgreiðslustjori: Baldur Jónasson
Blaöamenn: Auöur Styrkársdó'tir, Helgi Ólafsson
Magnús H. Gislason, Ólalur Gislason, Óskar Guðmundsson,
Sigurdór Sigurdórsson, Sveinn Kristinsson, Valþór Hlöðversson.
iþróttafréttaritari: Viöir Sigurösson.
Ltlit og hönnun: Andrea Jónsdóttir Guöjón Sveinbjörnsson.
I.jósmvndir :Einar Karlsson, Gunnar Elisson.
Ilandrita- og prófarkalestur: Elias Mar. Trausti Einarsson.
Auglysingar: Hildur Kagnars, Sigriður H. Sigurbjörnsdóttir.
Skrifstofa: GuörUn Guövarðardóttir, Jóhannes Haröarson
Afgreiösla: Bára Sigurðardóttir, Kristin Pétursdóttir.
Simavarsla: Sigriöur Kristjánsdóttir. Sæunn óladóttir.
liúsmóöir: Bergljót Guðjónsdóttir.
Bfistjóri: SigrUn Báröardóttir.
Innheimtumenn: Brynjólfur Vilhjálmsson, Gunnar
SigUrmundsson.
Pökkun: Anney B. Sveinsdóttir, Haila Pálsdóttir, Karen
Jónsdóttir.
Ltkeyrsla, afgreiðsla og auglýsingar: Sföumúla 6,
Keykjavik, sími 81233
Prentun: Blaöaprent hf.
Hækkun húsnæðislána
• Húsnæðismálin snerta hverja f jölskyldu í landinu.
Alltaf er eitthvert skyldmenni að kaupa eða byggja
eða í húsnæðisvandræðum. Lán hafa ekki aðlagast
sem skyldi hinni nýju verðtryggingarstef nu og í efna-
hagstillögum sínum gerir Alþýðubandalagið ráð fyrir
að úr kjarajöfnunarsjóði verði veitt fé til þess að
hækka verulega lán til þeirra sem byggja og kaupa í
fyrsta sinn.
• Alþýðubandalagið var með tillögugerð um skyldu-
sparnað á hæstu tekjur sl. vor en hún strandaði í þing-
inu enda þótt auðsætt væri að mikil óhófsneysla væri í
gangi. Flokkurinn hefur tekið upp tillöguna um
skyldusparnað að nýju og mælir með því að þeim sem
hæstar tekjur hafa verði gert að leggja fé til hliðar
sem varið verði til þess að hækka lán þeirra í Bygging-
arsjóði ríkisins sem byggja og kaupa í fyrsta sinn.
Lánin skulu tvöfölduð að verðgildi. Lagt er til að
skyldusparnaðurinn verði 10% á þann tekjuskatts-
stofn sem lendir í hæsta skattþrepi hjá einstaklingum
og lögaðilum á árinu 1983 samkvæmt nánari reglum.
Gert er ráð fyrir að slíkur skyldusparnaður snerti um
5% skattgreiðenda í landinu.
• Mikið hefur verið um það rætt að bankarnir hafi
ekki mætt verðtryggingunni með lengingu lána til hús-
byggjenda. Alþýðubandalagið vill veita ríkisstjórninni
heimild til þess að ákveða að bankarnir verji allt að
100 milljónum króna til þess að lengja lán húsbyggj-
enda á þessu ári, 1982, með svipuðum aðferðum og
beitt var 1981.
■ tilkynningar
IAuglýst eftir framboðum
til kjörnefndar fulltrúa-
, ráðs sjálfstæöisfélag-
Ianna í Reykjavík vegna
Alþingiskosninga
Samkvæmt ákvöröun stjórnar Fulltrúaráös
sjálfstæöiBfólaganna í Reykjavík, er hér
1 meö auglýst eftir framboöum til kjörnefnd-
Iar Fulltrúaráðs sjálfstæöisfélaganna í
Reykjavík. Framboösfrestur rennur út
föstudaginn 27. ógúst kl. 12.00.
Samkvannt 11. gr. reglugeróar fyrir FuNlrúaréö »)állsl»ðislelaganna
i Reyk|avik eiga 15 manns saatl i kjórnetnd og skulu • kjörnefndar-
msnn kosmr skrlttogr) kosningu af fuUtrúsréóinu
I Samkvsamt 5 málsgr. 11. gr reglugeróarinnaé. tetst framboó gift, ef
Iþaö bersl kosnlngasljórn fyrir lok framboösfrests. enda sé gerð um
það skrilleg tillaga af 5 fulltruum hið faesta og ekkl fleirl en 10
fulltrúum Frambjóðandl hatl skrtflega gefið kost é ser til stsrfans.
Tilkynmng um frsmboð berlst st|órn Fulttrúsréðs s|éllstasðisfélsg-
snns I Reykiank. Valhófl vlð Hésleitisbraut.
St/Orn FuHtnJtráós I
IGeirsliðið í kosningaham
Bráðræðisíhaldið undirbýr
J nú kosningar af kappi. Styrm-
I ir Gunnarsson lýsir leiftur-
I sóknina dauða (þó hún gangi
J aftur í stefnu Verslunarráðs-
Iins og ræðum forystumanna
Sjálfstæðisflokksins) og
Morgunblaðið lætur blíðiega
. við almenning í marga daga.
Þannig hefur ekki verið ráðist
á veðurfréttir í útvarpinu fyrir
pólitík í marga daga — og það
þrátt fyrir að austan vindur
hafi verið grunsamlega víða á
» landinu undanfarnar vikur.
II Mogganum í fyrradag var I
svo "auglýst eftir framboðum |
til kjörnefndar fulltrúaráðs s
J sjálfstæðisfélaganna í Reykja- I
I vík vegna Alþingiskosninga“. I
• Þá er það og tillaga Alþýðubandalagsins að ríkis-
stjórninni sé heimilt að ákveða að verðtrygging lána í
bönkum og lánastofnunum og lífeyrissjóðum verði
miðuð við breyfingu kaupgjalds launamanna, það er
meðaltalsbreytingar á kaupi og verðbótum sam-
kvæmt mati Þjóðhagsstofnunar. Þarna er orðuð sú
hugsun að verðtrygging f járskuldbindinga verði að
haldast í hendur við verðtryggingu launa eigi verð-
tryggingarstefnan ekki að kollsigla fjárhag launa-
fólks.
Frestun á Seðlabanka
• Alþýðubandalagið leggur til að ríkisstjórninni sé
heimilt að ákveða að meiriháttar byggingarfram-
kvæmdum opinberra stofnana og fyrirtækja skuli
frestað í allt að 18 mánuði. Hér er ekki síst átt við
opinberar byggingar eins og Seðlabankahúsið sem
getur varla talist forgangsverkef ni þegar hvatt er til
aðhalds og útgjaldasparnaðar hjá hinu opinbera af
stjórnendum peningamála í landinu.
Framkvœmdastofnun
lögð niður
• Alþýðubandalagið leggur til að Framkvæmda-
stof nun verði lögð niður í núverandi mynd, og áætlun-
arverkef ni stof nunarinnar verði færð til annarra hag-
stof nana og ráðuneyta. Byggðasjóður verði hinsvegar
sjálfstæð stof nun sem starf i undir sérstakri stjórn f rá
og með 1. janúar 1983. Gert er ráð fyrir að fram-
kvæmdastjóri Byggðasjóðs verði ráðinn til fimm ára í
senn.
Endurnýjunarregla
• Alþýðubandalagið leggur til að sett verði endur-
nýjunarregla í ríkiskerf ið til þess að koma í veg fyrir
stöðnun meðal stjórnenda. Flokkurinn vill að sett
verði lög um að stjórnendur ríkisstof nana, ráðuneyta,
ríkisbanka og Seðlabanka verði einungis ráðnir til
fimm ára í senn og taki sú löggjöf gildi á árinu 1983.
Nýir vendir sópa best, og þeim stjórnendum sem vel
reynast veitir ekki af aðhaldi endurnýjunarreglu.
—ekh
Á Albert að fjúka?
”Það hefur engin afstaða
verið tekin til hvort haldið
verði prófkjör eða ekki“,
segir Arni Sigfússon fram-
kvæmdastjóri fulltrúaráðs
sjálfstæðisfélaganna í Reykja-
vík í viðtali við Morgunblaðið
í gær. Þar með er auðvitað
verið að láta óþekktarormana
vita það að ef þeir sitji ekki og
standi einsog Geirsklíkan og
Eimreiðarliðið vill — fái þeir
ekkert prófkjör. Árni segir
enn fremur í viðtalinu að óvíst
sé um líf þessarar ríkisstjórnar
og ”að það er eins gott að vera
við öllu búinn og þessi aðgerð
var einnig ákveðin af þeirri
ástæðu".
Heiðursfélagar í
J gáfumannafélaginu
”Ekki verður sagt að
| stjórnarandstaðan leggi mikið
' að mörkum til þess að auka
Itraust almennings á stjórn-
málamönnum. Þórarinn
Tímaritstjóri líkir foringjum
■ stjórnarandstöðunnar við álfa
Iút úr hól og er það hógværlega
að orði komist, enda Þórarni
vafalaust persónulega vel til
* þeirra beggja eins og mér.
IVissulega hafa þeir fullan rétt
til þess að skamma ríkisstjórn-
ina fyrir að hafa brugðist allt
I’ of seint við þeim geigvænlega
vanda sem steðjar að, af
fjölmörgum ástæðum, bæði
, heimatilbúnum og óviðráðan-
Ilegum. En að taka enn þátt í
lýðskrumsleiknum með því að
láta sem engir raunverulegir
• utanaðkomandi erfiðleikar
Isteðji að er ekki sæmandi for-
ingjum þeirra flokka, er háðu
harða baráttu f viðreisnar-
* stjórninni sálugu.
IGáfumannafélag Alþýðu-
bandalagsins væri fullsæmt af
þeim báðum sem ævilöngum
Iheiðursfélögum fyrir við-
brögð þeirra.“
(Magnús Bjarnfreðsson í
, DV í gaer)
Klrippt
Stefnir timarit Sambands
ungra Sjálfstæöismanna er ný-
komiðútmeð nokkrum greinum
um afskipti flokksins af verka-
lýðsmálum og fleiru. Meðal
þeirra sem skrifa i timaritið að
þessu sinni er Styrmir Gunnars-
son ritstjóri Morgunblaðsins og
fjallar hann um rit Hannesar
Hólmsteins hirðsagnfræðings
Sjálfstæðisflokksins (Strið eða
friður? — hugleiðingar i tilefni
af verkalýðssögu Hannesar H.
Gissurarsonar), Um leiö og
Styrmir gerir sér það að leik að
striða Hannesi fyrir ofstækið
notar hann tækifærið til aö setja
fram pólitiska stefnu sina á
skjön við leiftursóknarliö Geirs
Hallgrimssonar. Hins vegar
verður að skilja gagnrýnina á
Geir á milli lina. Opinskáar um-
ræður eru nú ekki sterkasta
hliðin i þessum flokki.
Leiftursóknin
í líkkistuna
Styrmir er að reyna að vera
klókari en bráðræðishaldið sem
hingað til hefur ráðið ferðinni i
Sjálfstæisflokknum. I greininni
afgreiðir hann leiftursóknina
svo:
„Agreiningur um leift-
ursóknina var gerður upp á
landsfundi Sjálfstæðisflokksins
sl. haust. Þar náðist full sam-
staða um stjórnmálayfirlýs-
ingu, sem þýðir að leiftursóknin
hefur verið lögð af, sem stefna
fiokksins i efnahags- og at-
vinnumálum. Þetta er svo ótvi-
ræð niðurstaöa, að ekki þarf um
að deila. Sjálfstæðisfiokkurinn
gengur þvi til næstu þingkosn-
inga með meginstefnu i efna-
hags- og atvinnumálum, sem
breið samstaða er um innan
flokksins þ.á m. milli stjórnar-
sinna og stjórnarandstæðinga i
Sjálfstæðisflokknum ’ ’.
Klassísk
leiftursókn
I gær birtist grein i Mogg-
anum eftir hirðsagnfræðinginn
o g hugmyndafræðinginn
Hannes Hólmstein Gissurarson.
Greinin, sem fjallar um
stefnu Verslunarráðs Islands,
birtist undir fastadálki blaðsins
um bókmenntir. bað sýnir að i
praxis hefur Mogginn
Verslunarráðið til hæstu hæða
menningar og lista. Auk þess
sem Hannes er kominn i
heiðursdálka sakir verðleika
sinna. Eins og alþjóð er kunnugt
hafa talsmenn Sjálfstæðis-
flokksins hvað eftir annað lýst
yfir stuðningi sinum við stefnu
Verslunarráðs og hampa hug-
myndum þess hvarvetna nær
færi gefst.
Nú vill hins vegar svo til, að
stefna Verslunarráðsins er ein-
mitt leiftursóknin gamalkunna
á la Milton Friedman. Enda
segir hugmyndafræöingur
Sjálfstæðisflokksins Verslunar-
ráð eiga lof skilið fyrir stefnu-
skrá sina
Auðvaldið
og frelsið
Hannes Hólmsteinn segir i til-
vitnaðri grein sinni:
„Tillögur Verslunarráðsins
koma frjálslyndum mönnum
ekki á óvart, þær eru svipaðar
þeim, sem bandariski hagfræð-
ingurinn Milton Friedman hefur
komið orðum að i bók sinni,
Frelsi og fraintaki (Capitalism
and Freedom): Vextir og gengi
ráðist af markaðsaðstæðum,
Hugmyndafræðingurinn klifar á
leiftursókninni einsog Versl-
unarráðið.
Styrmir Gunnarsson segir
leiftursóknina dauða.
aukning peningamagns sé
bundin föstum reglum, verð-
lagshöftum sé hætt, einokun i
útflutningi sé hætt, skattkerfið
sé einfaldað, söluskatti sé breytt
i virðisaukaskatt og auðlinda-
skatti komið á, verkefni séu
færð frá rikinu til sveitarfélaga
og rikisfyrirtæki seld, skólar og
sjúkrahús séu einkafyrirtæki,
þar sem þvi verði við komið, en
skólagangan sé kostuö með
ávisunum frá rikinu og sjúkra-
húslegan af sjúklingunum sjálf-
um eða sjúkratryggingafélög-
um þeirra. Þessar tillögur eru
allar mjög athyglisverðar”.
Allt eru þetta gamalkunnar
lummur frá Sjálfstæðisflokkum
allra landa og ganga undir nafn-
inu leiftursókn.
Óútkljáður
ágreiningur
í Flokknum?
Nú gæti einhver haldið að hér
væri kominn óútkljáður ágrein-
ingur i Sjálfstæðisflokknum : hin
mjúka lina sem Styrmir heldur
á lofti — og gamli gaddavirinn
sem þeir Hannes ota framan i
fólk? En þannig er það vafa-
laust ekki. Styrmir er þvi næm-
ari að hann gerir sér grein fyrir
þvi að svipan er ekki væn-
legasta aðferðin á kjósendur, en
ofstækið i Hannesihyrgir honum
alla sýn á atkvæðaveiðum. Þess
vegna sáust ekki langhundar
eftir hugmyndafræðinginn i
marga daga i Mogganum fyrir
siðustu bæjarstjórnarkosn-
ingar.
Þessi stóri borgaralegi
flokkur, þetta borgaralega
skrimsl, þarf að halda öllum
öflum góðum innan sinna vé-
banda allt frá frjálslyndum til
falskra afla. Þess vegna þarf
helst að halda uppi mörgum lin-
um i senn. I praxis verður það
auðvitað þeir hinir sterku sem
ráða, það er þeir sem eiga mest
undir sér i peningamálum. Það
verður stefna Verslunarráðsins
sem verður ofan á. Þess vegna
er til litils aö segja leiftursókn-
ina dauða — draugurinn er
magnaðri en svo að hann verði
kveðinn niöur á Landsfundi
Sjálfstæðisflokksins. Það er þvi
miður ástæða til að ætla að
Styrmir Gunnarsson þurfi að
skrifa margar greinar til við-
bótar gegn leiftursókninni.
Þeirri draugasögu lýkur ekki
fyrr en Sjálfstæðisflokkurinn er
ekki lengur til i núverandi
mynd. — óg
•9 skorriö