Þjóðviljinn - 20.08.1982, Qupperneq 6
6 StÐA — ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 20. ágúst 1982
DROPLAUGARSTAÐIR
við
Snorra-
braut
Nýtt vist- og
hjúkrunar-
heimili aldraðra
i ■
Dorplaugarstaðir við Snorra-
braut, nýtt vist- og hjúkrunar-
heimili fyrir aldraða, hefur nú
verið lekið i notkun. Gerðist það i
fyrradag, á 196 ára afmæli
Keykjavikur. Við það tækifæri
flultu stutt ávörp þeir Markús
Örn Antonsson, borgarfulltrúi,
Davið Oddsson, borgarstjóri, AI-
bert Guðmundsson, borgarfull-
trúi, Siguröur E. Guðmundsson,
formaöur byggingarnefndar, sem
greindi frá aðdraganda bygg-
ingarinnar og lýsti gerð hennar,
Gisli Sigurbjörnsson, forstjóri og
Sigrún óskarsdóttir, forstöðu-
kona vistheiinilisins.
Kramkvæmdanelnd vegna
byggingastofnana i þágu
aldraðra sá um undirbúning
byggingarinnar en nei'ndina skip-
uðu: Albert Guðmundsson, for-
maður, Páll Gislason, Markús
örn Antonsson, Úlfar Þórðarson,
Adda Bára Sigfúsdóltir, Kristján
Benediktsson og Sigurður E.
Guömundsson. Með nefndinni
störfuðu Þórður Þorbjarnarson,
borgarverkfræðingur, Sveinn H.
Kagnarsson, félagsmálastjóri og
Skúli Johnsen borgarlæknir.
Á fundi framkvæmdanefndar i
byrjun jan. 1979 var lögð fram
byggingarforsögn og á fundi 16.
jan. voru eftirtaldir menn til-
nefndir i undirnel'nd vegna vist-
heimilisins: Kristján Benedikts-
son, Markús örn Antonsson og
Sigurður E. Guðmundsson, sem
var formaður nefndarinnar.
í byrjun var byggingin miðuð
við 66 vistmenn. Þvi var breytt i
feb. 1981 og ákveöið að gera 3.
hæð hússins aö hjúkrunardeild
fyrir 44 vistmenn. Til aö byrja
með verða vistmenn á hjúkrunar-
deild 32 en á vistheimilisdeild 36
að alls 68 vistmenn. Fyrstu vist-
menn fluttu i vistdeild hússins um
mánaöamótin júnf-júir. Að þvi er
stefnt að hjúkrunardeildin veröi
tekin i notkun i sept.
Grafið var fyrir húsinu 1979.
Verkið boðið út i júni 1980 og
miðað við að þvi yröi lokiö 1.
mars 1982. Ófyrirsjáanleg atvik
komu þó i veg íyrir að þaö tækist,
þótt mjóu munaði. Samiö var við
Byggingarfélagið Armannsfell,
sem var iægstbjóðandi.
Hönnuðir hússins voru: Arki-
tektar og burðarþol: Teiknistofan
Óðinstorgi. Hita-, vatns-, hrein-
lætislagnir og loítræstikerfi:
Verkfræðiskrifstofan önn. Raf-
lagnir: Rafteikning hf. Lóð:
Reynir Vilhelmsson.
Húsið er þrjár hæðir auk kjall-
ara að hluta og rishæðar.
Heildarflatarmál þess er 4880
ferm. og heildarrúmmál 14.474
rúmm. Byggingarkostnaður er
áætlaður kr. 36.185.000 innifalin
tæki og allur búnaður, gerö bila-
stæða og endurbætur á öörum.
Reykjavikurborg íjármagnar
bygginguna. KRON gaf kr. 25.000
til hússins I tilefni afmælis félags-
ins.
Eftirtaldir myndlistarmenn
skreyta veggi hússins með
grafikmyndum : Þórður Hall, Jón
Reykdal, Ragnheiður Jónsdóttir,
Kjartan Guðjónsson, Björg
Þorsteinsdóttir, Valgerður
Bergsdóttir, Edda Jónsdóttir,
Jóhanna Bogadóttir,
Félagsmálastofnun Reykja-
vikurborgar annast rekstur
heimilisins en Sigrún Óskars-
dóttir, hjúkrunarfræðingur, veitir
fostöðu daglegum rekstri.
Deildarstjóri hjúkrunardeildar er
Jona Guðmundsdóttir, hjúkr-
unarfræðingur og forstöðumaður
mötuneytis ölafur Reynisson,
martreiðslumaður.
Greiðslur vistmanna eru i dag-
gjaldaformi, annarsvegar vist-
heimilisgjöld á almennri vistdeild
og hins vegar sjúkradaggjöld á
hjúkrunardeild.
Vistmenn eru i fullu fæði og sér
eldhús hússins um þaö. Læknis-
þjónusta verður veitt af lyflækn-
isdeild Borgarspitalans.
Hér hefur á fáu einu verið
gripið af þvi, sem fram kom i
ýtarlegri ræðu Sigurðar E.
Guðmundssonar.
— mhg
Sigrún Óskarsdóttir, forstöðumað- (Jr herbergi gæslumanns. Beint símasamband er við hvert herbergi og
ur Droplaugarstaða. sjónvarpsskermar á göngunum.
Forstöðumaður mötneytis, Ólafur Reynisson, matreiðslumaður, að spjalla við vistmcnn.
Einstaklingsíbúð.
Hjónaíbúð.