Þjóðviljinn - 20.08.1982, Qupperneq 7
* ostudagur 20. ágúst 1982 >JÓÐV1LJINN — SIÐA 7
Israelsher býr sig undir vetursetu
Brottflutnlngur PLO-manna
leysir ekki vandann í Lábanon
Samkomulag virðist nú endanlega hafa náðst um
brottflutning liðlega 7000 hermanna úr Frelissam-
tökum Palestínu frá Líbanon, og hefur í heimsfréttun-
um undanfarið verið hamrað á því að ”bjartsýni“ ríki
um þessa lausn á málinu.
Það er hins vegar vandséð, að
hversu miklu leyti brottflutningur
þessi getur talist ”lausn“ á þeint
vanda sem innrás ísraels í Líbanon
hefur skapað, hvað þá á þeim
vanda sem Palestínumálið er í heild
sinni.
Það er síður en svo, að fararsnið
sé komið á ísraelska innrásarliðið,
og hefur stjórnin í Jerúsalem sett
fram ýmis skilyrði fyrir því að svo
mætti vera þrátt fyrir ítrekuð til-
mæli Allsherjarþings Sameinuðu
þjóðanna unt tafarlausan brott-
flutning.
Meðal þeirra skilyrða, sem
stjórnin í Jerúsalem hefur sett fram
er brottflutningur alls sýrlensks
herliðs frá Líbanon, en sýrlenski
herinn kom til landsins á sínum
tíma að beiðni líbanskra stjórn-
valda til þess að stilla til friðar í
borgarastríðinu sem geisaði á milli
kristinna maroníta og múslíma og
ísraelsstjórn átti mikinn þátt í að
kynda undir. Þá mun stjórnin í
Jerúsalem hafa sett fram þau skil-
yrði að komið verði á laggirnar
ríkisstjórn í Beirút, er verði reiðu-
búin til þess að gera öryggis- og
varnarsáttmála við ísrael. Vandséð
er hvernig slíkt megi verða, og ekki
er heldur líklegt að Sýrlendingar
hverfi á brott árekstralaust. Talið
er að um þriðjungur Líbanons sé
nú í reynd á valdi sýrlenska hersins
og PLO. Þýska vikuritið Der
Spiegel segir að ísraelsher hafi þeg-
Stríöið er að
sliga efnahag
ísraelsmanna
"Peningar spara blóð“ var
hið nýja slagorð, sem stjórn-
in í Jerúsalem tók upp er hún
tilkynnti hinar nýju efna-
hagsaðgerðir sínar í kjölfar
innrásarinnar í Líbanon.
Jorarn Aridor fjármálaráðherra
fsraels hefur gefið upp að innrásin í
’Teningar spara blóð“, segir Beg-
in, en bókhaldið sýnir að blóðið
kostar líka peninga.
Líbanon hafi kostað ríkið sem sam-
svarar 15 miljörðum íslenskra
króna, en þessi upphæð er þó ekki
nema brot af þeim miklu skuldum,
sem ísrael hefur safnað erlendis á
undanförnum árum og nema nú
um 230 miljörðum ísl. króna. Engu
að síður fær ísrael efnahagsaðstoð
frá Bandaríkjunum, er nemur ár-
lega um 2,2 miljörðum dollara eða
30 miljörðum króna auk ýmissar
hernaðaraðstoðar.
Efnahagspakki Begins í tilefni
innrásarinnar í Líbanon fól í sér
eftirfarandi atriði:
— Hækkun gildisaukaskatts úr
12 í 15 af hundraði
— Tíu prósent skattur á
kauphallarviðskipti
— 24 dollara skattur á alla flu_g-
miða til útlanda
— 4% skyldusparnaður á öll
laun næstu 10 mánuðina
— Bann við öllum áformuðum
launahækkunum
— Stórlækkaðar niðurgreiðslur
á algengustu matvælum.
Samkvæmt upplýsingum fjár-
málaráðuneytisins s.l. sunnudag
jókst verðbólgan í júlímánuði í ís-
rael um 9% og verðbólgan í
landinu mun nú á einu ári hafa
aukist úr 101% í 140%.
Ríkisstjórn ísraels virðist í raun
ávallt hafa treyst á það að Banda-
ríkjastjórn og hið fjölmenna
samfélag gyðinga í Bandaríkjunum
(um 6 milljónir) gengju í ábyrgð
fyrir þá hernaðarhagstjórn sem
hún hefur beitt. Þannig skorti Beg-
in ekki fé, er hann í síðustu viku
keypti sér stuðning Tehija-
þjóðernissinna á þinginu með því
að lofa 750 miljónunt króna í auka-
fjárveitingu til þess að hraöa ”land-
námi“ gyðinga á vesturbakka ár-
innar Jórdan, sem ísrael hertók í
stríðinu 1967.
Ísraelsríki virðist nú bókhalds-
lega ramba á barmi gjaldþrots. Út-
flutningsiðnaði í ísrael hefur geng-
ið stöðugt erfiðara að finna markað
fyrir vörur sínar, m.a. vegna vax-
andi andúðar á hernaðarstefnu
ríkisstjórnarinnar. Undantekning
er þó vopnasalan, en ísraelsk vopn
eru sögð orðlögð fyrir gæði og eftir-
sótt á alþjóðlegum vopnamarkaði.
Tekjur af ferðamönnum hafa
einnig dregist stórlega saman
vegna stjórnmálaástandsins, og
mun samdrátturinn á núverandi
vertíð vera um 20% frá síðasta ári.
Þrátt fyrir fskyggilegar horfur í
efnahagsmálum og ævintýralega
stefnu ísraelskra stjórnvalda munu
þau enn sem fyrr geta treyst því að
Banaríkjastjórn haldi þessum
"tryggasta bandamanni sínum"
fyrir botni Miðjarðarhafsins á floti
efnahagslega í náinni framtíð, þótt
sumum Bandaríkjamönnum kunni
nú orðið að virðast að kálfurinn
launi illa ofeldið.
ólg/DN-Spiegel
Palestínumenn draga fallinn félaga úr rústunum í Beirút. Brottflutningur þeirra leysir ekki vandann í
Líbanon.
ar búið sig undir vetrarherferð í
fjöllum Líbanon, og sama rit hefur
það eftir valdhöfum í Jerúsalem að
Israelsher sé undir það búinn að
dvelja ekki bara mánuðum, heldur
árum saman í Líbanon ef þurfa
þykir.
Brottflutningur PLO-hermanna
frá Beirút er því engin "lausn" á
þeim vanda, sem innrás ísraels í
Líbanon hefur skapað. En hvert
munu þessir hermenn halda? Talið
er að flestir ntuni fara til Jórdaníu
og Sýrlands, en hins vegar mun það
ákveðið að Yasser Arafat flytji
höfuðstöðvar PLO til Túnis og
honum mun væntanlega fylgja um
1000 manna lið.
Palestínuarabar, sem telja um
4.5 milljónir eru annars dreifðir á
um 11 arabaríki. Flestir þeirra eru
þó búsettir í ísrael, eða 1.8 milljón-
ir. í Jórdaníu búa unt 1.2 milljónir
og í Líbanon um 600 þúsund. Þá
búa um 278 þúsund palestínuara-
bar í Kuwait og 215 þúsundir í Sýr-
landi. Öllu þessu fólki hefur í raun
verið stökkt á vergang með yfir-
gangsstefnu ísraelsstjórnar. Brott-
flutningur 7000 hermanna frá
Beirút mun einungis auka enn á
þann vanda. Því má vænta þess aö
bjartsýni sumra vegna þessa brott-
flutnings eigi innan tíðar eftir að
snúast í andhverfu sína.
ólg/DN-Spiegel
FÖSTUDAGSKVÖLD
IJUHUSINU 11JUHUSINU
0PIÐ DEILDUM TIL KL. 10 I KV0LD
Fullt hús matar
okkar stóra
og vinsæla kjötborð
Lokað laugardaga I a
MATVÖRUR RAFUOS
FATNAÐUR REIÐHJÓL
HÚSGÖGN
RAFTÆKI
JIHI
c □ c 0 a 3
zzzz: cj
—i. __j ua G3
t s * m i 1 fts
Jón Loftsson hf.
Hringbraut 121 Sími 10600