Þjóðviljinn - 20.08.1982, Blaðsíða 8
8 StÐA — ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 20. ágúst 1982
Frá Deildartungu.
Deildartunguhver. Dæluhúsiö er til vinstri á myndinni.
Hitaveitulögnin liggur meðfram þjóðvegi nr. 1 á löngum spotta undir Hafnarfjallinu. Búið er að grafa
yfir hana að mestu leyti.
Hitaveitulögnin frá Deildartunguhver i Reyk-
holtsdal i Borgarfirði til Akraness er eitt af mestu
mannvirkjum þessa lands. Þetta mikla mannvirki
lætur litiö yfir sér, enda er það bæði langt og mjótt.
Hitaveituiögnin er um 60 kilómetrar að lengd, og
ekkert annað bæjarfélag sækir heitt vatn jafn langa
leið og Akranes.
Það var fyrir um tveimur ár-
um að byrjað var á að leggja hita-
veitulögn frá Bæ i Bæjarsveit til
3orgarness og var þar sett upp
bæði dælustöð og geymir. Sam-
timis þessu var byr jað á að leggja
lagnir i hús i Borgarnesi og eitt-
hvað byrjað á Akranesi. Akranes
og Borgarnes sameinuðust um að
leggja hitaveitu frá Deildar-
tunguhver og hófust aðalfram-
kvæmdirnar i fyrrasumar en þá
var lagt frá Deildartungu að Bæ
og frá Borgarnesi til Akraness. I
desember var vatnið komið til
Akraness en þá var búið að leggja
lagnir i flest hús bæjarins. Nú um
þessar mundir er vatn frá Deild-
artungu komið i öll hús i Borgar-
nesi og á Akranesi og er nú unnið
að frágangi.
Deildartunguhver er vatns-
mesti hver i heimi og þar hefur
ekkertþurftaðbora eftir vatninu.
I þvi felst mikill sparnaður, þvi
það er bæði mjög dýrt að bora
hverja holu og ekki fæst vatn úr
öllum holum sem boraðar eru.
Þykir það gott ef hægt er að nýta
aðra hverja holu. Fjórar dælur
eru á leiðslunni frá Deildartungu
til Akraness og er sú fyrsta að
Deildartungu. Þá er dæluhús að
Grjóteyri, næst við Hafnará og
fjórða dælan er á Akranesi.
Gifurlega mikið sparast
með þessari lögn. Þó að hún hafi
verið dýr, þá er talið að hún borgi
sig upp á nokkrum árum. Vatnið
kostar nú um 50% af oliukostnaði
en vatnið er ekki borgað sam-
kvæmt mæli heldur er ákveðið
gjald tekið af hverju húsi.
Þeir sem eiga leið um Borgar-
fjörðinn eða eru á leið frá Akra-
nesi aö Borgarnesi geta fylgst
með leiðslunni á löngum spotta.
Búið er að moka yfir leiðsluna að
mestu leyti og er það gert til að
einangra hana. A um sex kiló-
metra f resti eru svokölluð lokhús,
en það eru eins konar jarðhús.
Þar er hægt að loka fyrir rennsli á
hluta leiðslunnar ef einhvers
staðar skyldi veröa bilun. Þá þarf
ekki að taka vatn af allri leiðsl-
unni. Það var lengi umdeilt hvort
þessi framkvæmd borgaði sig en
nú er hagkvæmni þessarar hita-
veitu óbum að koma i ljós og
vatnið frá Deildartungu á eflir að
velgja ibúum Akraness og Borg-
arness um ókomin ár.
Dæluhúsið að Deildartungu.