Þjóðviljinn - 20.08.1982, Page 14
14 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 20. ágúst 1982
Iðntæknistofnanir
Norðurlanda þinga
Fundur Iðntækn is tofnana
Noröurlanda um sjálfvirkni og
örtölvutækni verður haldinn að
Laugarvatni dagana 22.-27. ágúst
n.k. Verður þar m.a. rædd
samvinna um námskeið og
menntun á nýjum tæknisviðum,
þróun og áætlanir fyrir iðnaðinn
og framtiðarhorfur.
Rafeinda- og sjálfvirknideildir
systrastofnana ITl á Norðurlönd-
um halda fundi sem þennan ár-
lega og skiptast starfsmenn þá á
upplýsingum og gögnum svo sem
rannsóknarskýrslum, úttektum
ýmis konar og námskeiðs-
gögnum.
Meðal þess sem sérstaklega
verður tekið fyrir á þessum fundi
er nám með aðstoð tölva (CAL),
en tilraunir hafa verið gerðar á
þvi sviði i Danmörku og veröa
niðurstöður athugana þar
kynntar. Þá verður fjallað um
fjölvinnslu i ADA forritunarmáli,
þróun i kerfisforritun, hönnun
tölvurása, gagnafjarskipti, upp-
lýsingatækni og fleira.
Um 40 manns sækja fundinn og
eru meðal þeirra margir færustu
sérfræðingar Norðurlanda á
þessu sviði.
ALÞYÐU BAN DALAGIÐ
Alþýðubandalagið á Egilsstöðum
Hreppsmálaráð Alþýðubandalags Héraðsbúa boðar til fundar að
Tjarnarlöndum 14 mánudaginn 23. ágúst kl. 20.30.
Dagskrá:
A. Kosning stjórnar
B. Starfsáætlun
C. Gerðmálelnasamnings
D. önnur mál
Til fundarins eru sérstaklega boðaöir allir þeir frambjóðendur G-
listans á Egilsstöðum svo og allir þeir sem sitja i nefndum fyrir
Alþýðubandalagið. Allt áhugafólk er einnig velkomið meðan húsrúm
leyfir.
Hreppsmálaráð.
Alþýðubandalagsfélag
Selíoss og nágrennis
Aðalfundur Alþýðubandalagslélags Selfoss og nágrennis verður hald-
inn fimmtudaginn 2. september að Kirkjuvegi 7 og hefst hann ki. 20.
Venjuleg aðallundarstörf. Stjórnin.
Alþýðubandalagiö i Ilveragerði — Berjaferð i Dali
Alþýöubandalagsféiagíö i Hverageröi fer i berjaferð vestur aö Laugum
i Dalasýslul elgina 27.-29. ágúst n.k. —Lagt af staö kl. 16 á föstudegi og
komiö heim aftur a sunnudag. Gist veröur i svefnpokaplássi — eldhús-
aöstaöa og sundlaug fyrir þá sem vilja sulla. — Laugardagurinn verður
notaöur lil berjatinslu I nágrenni skólans. Fólk er beðið að skrá sig hjá
Ingibjörgu i sima 4259 og Guörúnu i sima 4518 eða Sigurði i sima 4332
fyrir 24. ágúst.
Allir eru velkomnir i þessa lerö og ætti fólk aö notfæra sér þetta tæki-
færi til aö salna velrarforöa. — Ferðanefndin.
Alþýðubandalagið á Vestfjörðum — Kjördæmis-
ráðstefna.
Kjördæmisráðstel'na Alþýðu-
handalagsins á Vestfjörðum
verður lialdin i Keykjanesi við
isafjarðardjúp dagana 28. og 29.
ágúsl. Káðstei'nan hefst kl. 2 cftir
hádegi laugardaginn 28. ágúst.
Dagskrá raöstefnunnar er á
þessa leiö:
1. Stjórnmálaviöhorlíö, 2. Sjáv-
arútvegsmál, 3. Byggöamál á
Vestljöröum, 4. Félagsstarf Al-
þýöubandalagsins á Vestfjöröum,
5. Onnur mál.
Framsögumenn á raöstefnunni
eru Guövaröur Kjartansson,
Flateyri, Geslur Kristinsson,
Súgandaliröi, Kjartan ólafsson,
ritstjóri og Skúli Alexandersson,
alþingismaöur.
Alþýöubandaiagsléiögin á
Vestljöröum eru hvölt til aö kjósa
fulltrúa á ráösteínuna sem allra
l'yrst.
Stjórn kjördæmisráðsins
Gestur Guðvarður
Kjartan skúli
Larson-bræður og Anna Guðný
með tónlelka í Norræna húsinu
Bræðurnir Staffan og Chrichan
Larson og Anna Guðný Guð-
mundsdóttir eru með tónleika i
Norræna húsinu á sunnudaginn
og hefjast þeir kl. 17.00. Bræðurn-
ir leika á fiðlu og selló og Anna
Guðný á píanó. Flutt verða verk
eftir Sveinbjörn Sveinbjörnsson,
llans Eklund, Brahms og Beet-
hoven.
Bræðurnir Larson eru fæddir i
Stokkhólmi og hlutu menntun
sina þar fyrst við Tónlistarhá-
skólann. Þeir héldu áfram námi
utanlands, Chrichan i Paris og
Sviss en Staffan i London. Kenn-
arar Chrichans hafa verið G.
Gröndahl, P. Boufil, R. Flachot
og M. Rostropovitj en Staffan
naut leiðsagnar M. Parikian og
W. Pleeth I London.
Anna Guðný hefur lokið þriggja
ára námi við Guildhall School of
Music and Drama i London þar
sem kennarar hennar voru James
Gibb og Gordon Back. Hún hlaut
post-graduate diploma i kamm-
ermúsik siðasta vor.
Miðar fást við innganginn.
Norrænir teiknarar
Laugardaginn 21. ágúst verður
opnuð sýning á teikningum i sýn-
ingarsölum Norræna hússins.
Þetta er norræn farandsýning
sem kcmur til íslands frá Noregi.
Aðdragandi þessarar sýningar
ersá,að Norræna listamiðstöðin i
Sveaborg i Finnlandi, sem hóf
starfsemi sina 1978, bauð i árslok
1980 norrænum listamönnum að
taka þátt i stórri sýningu á teikn-
ingum, og 600 listamenn sendu
3000 teikningar þangað.
Þriggja manna dómnefnd,
skipuð Per Bjurström frá
Nationalmuseet i Stokkhólmi,
Sam Vanni frá finsku akademi-
unni og Tage Martin Hörling frá
Norrænu listamiðstöðinni, valdi
siðan úr 162 teikningar eftir 52
listamenn.
Orgelverk
í Skálholts-
kirkju
A „Sumartónleikum i Skál-
holtskirkju" um næstu helgi mun
Orthulf Prunncr flytja þætti úr
Klavieriibung III eftir J.S.Bach.
Dr. Orthulf Prunner er organ-
isti við Háteigskirkju i Reykja-
vik. Hann hefur haldið fjölda tón-
leika á undanförnum árum hér og
erlendis, m.a. lék hann nú i
sumar ofangreint verk i St.
Gallen-dómkirkju i Sviss og i
Heidelberg i Þýskalandi, en þar
hélt hann einnig orgeltonleika á
siðastliðnu ári og hlaut frábæra
dóma.
Tónleikarnir verða laugardag
og sunnudag kl. 15 og er aðgangur
ókeypis. Veitingasala er i Lýð-
háskólanum að loknum tón-
leikum. Messað er i Skálholts-
kirkju sunnudag kl. 14.
Jafnframt ákvað dómnefndin
að bjóða nafnkunnum teiknara
frá hverju Norðurlandanna að
sýna, og af íslands hálfu var
Kristjáni Davfðssyni boðið, frá
Danmörku var það Jörgen
Romer, frá Finnlandi Ulla Rant-
anen, fráNoregi Aase Gulbrand-
sen og frá Sviþjóð Lena Cron-
quist. Aðrir íslendingar sem
myndir eiga á þessari sýningu
eru Sigrún Gúðjónsdóttir,
Sigurður Þórir Sigurðsson og Val-
gerður Bergsdóttir.