Þjóðviljinn - 20.08.1982, Síða 15
Föstudagur 20. ágúst 1982 ÞJöÐVILJINri — SIÐA 15
l^3?| Hringið í síma 81333 kl. 9-5 alla virka
daga, eða skrifið Þjóðviljanum
frá
lesendum
Kynþáttahatur
11. ágúst 1982
Agætu Þjóöviljamenn
Kynþáttahatur er mér þyrnir i augum og hefi
ég ætið talið aö slikur óþverri ætti ekki heima á
siðum okkar blaös. En á bls 7 i blaðinu i dag er
komist svo að oröi: ,,..sem boðuð voru af
Chicagojúðanum Friedman... ”
Hefur Miklaholts-
prestakall verið
lagt niður?
Mig langaði til að forvitnast um hvort Mikla-
holtsprestakall hefur verið lagt niður. Áður
heyrðu Kolbeinsstaðahreppur, Eyjahreppur og
Miklaholtshreppur undir Miklaholtsprestakall,
en nú er alltaf talaö um Söðulsholtsprestakall.
Þetta finnst okkur gömlum enda þótt prestssetrið standi i
Snæfellingum einkennilegt, Söðulsholti.
Markús B. Þorgeirsson.
Oröið „júði” er almennt
notaö i niðrandi merkingu um
þann hluta mannkyns er telst
af gyðingaættum. Slik orö eru
til um flesta kynþætti manns-
ins og iðulega notuö af þeim
sem l'inna fil vanmáttar gagn-
vart öðrum kynþáttum.
Ég ætla ekki aö bera kyn-
þáttahatur upp á viðkomandi
blaðamann, en verö aö biðja
hann að halda aftur af þeim
persónulega vanmætti sem
virðist hrjá hann gagnvart
gyðingum, a.m.k. þegar hann
skrifar annars sinar ágætu
greinar fyrir Þjóöviljann.
Hitt er svo lika, að það sér
hver maður sem les greinina
aðælterm Miltons Friedmans
kemur malinu alls ekkert við,
nema þá að blaðamaöurmn
hafi viljaö benda á þá óneitan-
legu staðreynd aö verulega
stór hluti mikilia hugsuöa og
visindamanna hafa ai ein-
hverri tilviljun veriö af gyö-
ingaættum, þannig geta menn
rifjaö upp aö til var maður er
Karl Marx hét. En þaö af-
sakar ekki notkun hins niör-
andi orðs, þvi drengilegra
hefði verið að nota hið skýra
orð, gyðingur, enda er það jú
sannkristið orð.
Með þökk fyrir birtinguna
og vinarkveðju,
Kúnar (ieir Sigurðsson
Lausn á
eldspýtnaþraut
Þannig lita sjö fern-
ingar út þegar búið er
að færa tvær eld-
spýtur til. Þetta var
nú ekki erfitt, eða
hvaðV
r= 1 B! JL,
U
Svar við gátu
Svarið við gátunni
hennar Elinar Arn-
disar Gunnarsdóttur
er: Kona að mjólka
kú!
Hún heitir Gesine
og er ellefu ára þýsk
stúlka sem teiknaði
þessa mynd. Hún
sýnir garðinn á
barnaheimilinu
Barnahornið
hennar og alla krakk-
ana sem þar eru að
leika sér. Sennilega
eru þetta fóstrurnar
sem eru þarna efst til
vinstri.
John
Lennon
og fleiri
Það eru nokkrir góökunn-
ingjar poppara og poppáhuga-
manna sem sjá um léttu
tónlistina i útvarpinu i
morgunsárið i dag, eða
klukkan hálftólf.John Lennon,
Manfred Mann’s Erth Band og
Led Zeppelin leika og syngja
af fullum krafti alveg fram að
hádegisútvarpi eða til klukkan
tólf.
John Leniion
• Útvarp
kl. 11.30
Slund niilli striða. Sjómenn fá sér i svanginn uin borð, en ætli,
þeir hafi mikinn tima til að hlusta á óskalög sjómanna i dag eftir
hádegi?
Hefurðu
heyrt í
Elsu og
Hallbjörgu?
Sigrún Björnsdóttir leikari
og leikstjóri sér um þátt fyrir
börn og unglinga um tónlist og
ýmislegt flcira og er þátturinn
á dagskrá i dag kl. 16.40.
,,Ég mun fjalla um tvær
islenskar söngkonur sem
báðar eiga þaö sameiginlegt
að hafa alið manninn að
mestu leyti erlendis. Það eru
þær Hallbjörg Bjarnadóttir og
Elsa Sigfúss. Hallbjörg var
bæði söngkona og skemmti-
kraftur og hún var upp á sitt
besta um 1950. Hún söng
slagara og dægurlög og ennþá
heyrist oft lag sem hún söng
og varð vinsælt, „Vorið er
komið og grundirnar gróa”.
Hún var feikna góður kontra-
alt. Hún hrökklaðist úr landi
og átti allan sinn listamanns
feril erlendis. Það urðu fáir til
Sigrún Björnsdóttir
að styðja hana hér á landi svo
hún neyddist til aö fara út og
leita tækifæranna þar. Elsa
Sigfúss var af sömu kynslóö og
hún var allan sinn tima i Dan-
mörku. Móðir hennar var
dönsk, hún var pianóleikari og
þær fluttu saman út og Elsa
var þar það sem eftir var.’^
•Útvarp
kl. 16.40
A dagskrá sjónvarpsins i kvöld er frönsk mynd frá því i fyrra
sem fjallar um vandræði einstæðs föður sem heitkonan skildi
eftir með nýfæddan son þeirra. A myndinni eru þcir feðgar uppi
i sól'a og er ekki að sjá á svip þeirra að þeir taki hlutskipti sinu
mjög illa.