Þjóðviljinn - 09.10.1982, Side 3
'*A
SWi -luííólA'i .'<* -,w . ,
Helgin 9.-10. október 1982 ÞJÓÐVILJINN
M/ *
- StÐA 3
Umsókn Hagkaup um verslunarlóð i Kringlumýri:
Verði afgreidd á grund-
velli skipulagsathugana
segir formaður skipulagsnefndar Kópavogs
„Ég vona að ákvörðun um
þetta verði ekki tekin fyrr en
fagleg athugun á umferð um
höfuðborgarsvæðið hefur farið
fram í samræmi við
aðalskipulagsforsendur sem
byggðarlögin á
höfuðborgarsvæðinu hafa
komið sér saman um“ sagði
Asmundur Asmundsson
formaður skipulagsnefndar
Kópavogs í samtali við
Þjóðviljann í gær.
Eins og fram kom í Þjóðviljan-
um í gær hafa Hagkaup sótt um
28.000 fermetra lóð undir
Kaupvang í nýja miðbænum við
Kringlumýrarbraut og hafa arki-
tektarnir Hilmar Olafsson
Hrafnkell Thorlacius verið fengi
til að gera fyrstu drög að fyrirkoi
ulagi svæðisins. Áður höfðu Hag-
kaup sótt um 3—ó hektara lóð
undirKaupvangí Fífuhvammslandi
í Kópavogi, austan væntanlegrar
Reykjanesbrautar.
„Sjónarmið skipulagsyfirvalda í
Kópavogi varðandi uppbyggingu
verslunar og þjónustu í landi
.bæjarins eru til umræðu um þessar
jmundir, m.a. á grundvelli verslun-
| ar könnunar Borgarskipulags í
ÍReykjavík annars vegar og hins
'vegar sérstakrar athugunar um
[þessi efni sem Skipulagsstofa höf-
uðborgársvæðisins hefur látið fara
ifram. 1 báðum þessum athugunum
ikemur frani að svæðin meðíram
Reykjanesbraut eru mun fýsilegri
til uppbyggingar af þessu tagi en
Kringlumýrin í Reykjavík. Það er
því ósk mín og von að ekki verði
rasað um ráð frarn varðandi af-
greiðslu Reykjavíkurborgar á þess-
ari lóðaumsókn Hagkaupa, heldur
fullt tillit tekið til þeirra faglegu
rannsókna sem gerðar hafa verið
og munu verða gerðar í náinni
framtíð", sagði Ásmundur enn-
fremur.
Getur þetta mikil uppbygging
verslunar og þjónustu í Kringlu-
mýri haft áhrif á forsendur fyrir-
hugaðrar hraðbrautar í Foss-
vogsdal?
„Umsókn Hagkaupa miðast við
28.000 fermetra verslunarrými.
Þetta er helmingur af allri verslun
sem fyrir er á svæðunuin vestan
Lækjargötu í Reykjavík. Það er því
augljóst að hér er stórt mál á ferð-
inni sem getur haft víðtækar afleið-
ingar í för með sér, m.a. á forsend-
ur Fossvogshraðbrautar. Davíð
Oddsson borgarstjóri Sjájfstæðis-
Verðlaun
fyrir
spurninga-
leik
Verðlaun fyrir spurningaleik
12, þann síöasta í tlokknun, er
birtist í Sunnudagsblaðinu 26.
september hlaut Páll Skúlason,
Sólvallagötu 41, Rvík. Þau er
Nafnabókin eftir Hermann
Pálsson.
Hvenær
byrjaðir þú
-||XF
FEROAR
flokksins var frummælandi á opn-
um fundi um skipulagsmál hjá
sjálfstæðismönnum í Kópavogi ný-
lega. Þar tók haiin eindregið undir
þá skoðun fundarmanna að byggð-
arlögin á höfuðborgarsvæðinu
hefðu víðtæk samráð um skipulags-
mál sín, þar sem fagleg sjónarmið
yrðu lögð til grundvallar.
Verði Hagkaupum úthlutað
þessari aðstöðu á þessum.stað án
samráðs við Kópavogskaupstað,
hlýtur það að verða túlkað sem vís-
bending um samstarfsvilja Reykja-
víkurborgar um skipulagsmál á
höfuðborgarsvæðinu", sagði Ás-
mundur Ásmundsson formaður
skipulagsnefndar Kópavogskaup-
staðar að lokum.
Hagkaup hafa sótt um 28.000 fer-
metra lóð í Kringlumýrinpi í
Reykjavík og aðra 3—6 hektara lóð
suður í Kópavogi!
Nýr leik-
listarskóli
byrjar
í haust tekur til starfa nýr
leiklistarskóli í Reykjavík og verð-
ur það kvöldskóli, þrjá mánuði í
senn. Það er Sigrún Björnsdóttir
leikari sem rekur skólann, og verð-
ur kcnnd taltækni, raddbciting,
framsögn, upplestur, spuni, leikur
og fleira.
Sigrún sagði' í samtaii við Þjóð-
viljann að skólinn væri hugsaður
sem undirbúningsskóli fyrir
leiklistarnám. í vetur verða tvö
námskeið og verður kennt tvisvar í
viku í þrjá mánuði. Innritun er haf-
in í síma 31357 daglega. -ÁI
ódýra leiðin liggkir um
Amsterdam
í vetur liggur ódýra leiðin til Kanaríeyjar um
Amsterdam. Við bjóðum 11, 18 eða 25 daga
ferðir með brottför alla þriðjudaga svo auðvelt er
að finna brottfarardaga við hæfi og stýra lengd
ferðarinnar eftir hentugleikum.
Flogið er til Las Palmas og dvalist á völdum gisti-
stöðum sjálfrar Cran Canaria eyjunnar. í boði eru
hótel, íbúðir eða smáhýsi (bungalows) fast við
friðsælar baðstrendur og fjörugt skemmtanalíf.
Þrír dagar í Amsterdam
í upphafi ferðar er dvalist yfir eina nótt í
Amsterdam. Síðan er flogið beint til Las Palmas
en síðustu tveimur nóttum ferðarinnar eytt í
Amsterdam, ósvikinni miðstöð menningar,
verslunar og skemmtunar í Evrópu.
Lága verðið!
í meðfylgjandi dæmum um verð sýnum við hvað
við erum að meina með „ódýru leiðinni" til
Kanaríeyja. Verð er breytilegt eftir tegund
hótela, íbúða eða smáhýsa og eftir árstíma, en
ávallt er innifalið flug (Keflavík, Amsterdam, Las
Palmas, Amsterdam, Keflavík), flutningur til og
frá flugvöllum erlendis, gisting, hálft fæði í hótel-
gistingu og íslensk fararstjórn. í Amsterdam er
hótelgisting með morgunverði innifalin í verði.
Barnaafsláttur er breytilegur eftir aldri.
Dæmi um verð
11 dagar 18 dagar 25 dagar
Smáhýsi (miðað við 4 íbúa) 10.937 11.584 12.245
íbúðir (miðað við 3 íbúa) 11.040 11.789 12.539
Hótel m/Vi fœði (2 í herbergi) 12.245 14.053 15.670
Verð miðast við flug og gengi 1.10.1082
H.FERÐA..
Uíl MIÐSTODIN
dH^lTMC
FERÐASKRIFSTOFA
Kanarí -Amsterdam - tveir frábærir staðir í einni ferð
A v Flugfélag með ferskan blæ
4RNARFLUG