Þjóðviljinn - 09.10.1982, Blaðsíða 29

Þjóðviljinn - 09.10.1982, Blaðsíða 29
Helgin 9.-10. október 1982 ÞJÓÐVILJINN — StÐA 29 útvarp • sjonvarp Sjónvarp laugardag kl. 21.00:___________ Fyrsti þáttur Félagsheimilisins: Sigvaldi og sænska línan eftir Guðnýju Halldórsdóttur Félagsheimilið, sexþáttungur- inn sem Hrafn Gunnlaugsson leikstýrir hefur göngu sína í sjónvarpinu í kvöld, iaugardags- kvöld, með þætti Guðnýjar Hall- dórsdóttur. Nefnist þátturinn Sigvaldi og sænska línan og fjallar um það þegar Sigvaldi Jónsson kemur heim frá námi í Svíþjóð og er fenginn af áhugamanna- leikhúsi úti á landi til að setja upp „Þorlák þreytta“. Þetta vclþekkta kassastykki er valið með tilliti til þess, að fjárhagur lcikfclagsins er í molum, auk þess sem áhorfend- ur hafa í scinni tíð haldið sig heima þegar þyngri stykki hafa verið tekin upp. Sigvaldi tekur Þorlák föstum tökum og þykist sjá, að á bak við Borgar Edda kímnina og allt gamanið megi finna útsmogna þjóðfélags- ádeilu. Hann setur sér það mark- mið að koma áhorfendum í skiln- ing um, hvers vegna Þorlákur sé virkilega svona þreyttur. Flosi Fyrsti þátturinn um Félags- heintilið tekur röska klukkustund í flutningi, en með hlutverk fara Borgar Garðarsson, sem leikur hin sænskmenntaða léikstjóra Sigvalda, Edda Björgvinsdóttir Gísli Rúnar Lilja Guðrún Sigurveig sem ieikuf Önnu, Gt'sli Rúnar Jónsson sem leikur Þórð, Fiosi Ólafsson sem leikur Alfreð, Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir sem leikur Helgu, og Sigurveig Jóns- dóttir sem leikur Guggu. Leikstjóri er Hrafn Gunn- laugsson, en stjórnandi upptöku er Andrés Indriðason. Þættirnir um Félagsheimilið verða á dagskrá hálfsmánaðar- lega. Sjónvarp sunnudag kl. 21.40:_ Schulz í herþjónustu Nýr breskur framhaldsmyndaflokkur Nýr breskur sjónvarpsmynda- flokkur, Schulz, birtist á skjánum á sunnudaginn, en þættirnir eru alls 6 talsins. Myndaflokkurinn cr af léttara taginu og fjallar uni siunginn náunga Schulz sem fær það erfiða verkefni að konta fölskum pundum í umferð, cn sögusviðið er heimsstyrjöldin síð- ari. í fyrsta þættinum er Schulz leystur úr tangelsi og settur í Schulz ásamt yfirmanni sínum Neuheim. verksmiðjuvinnu. Hann er lítið gefinn fyrir starfið og er settur í að vera sérlegur aðstoðarmaður Neuheints ntajórs. Brátt tekur að útvarp laugardagur sunnudagur 7.00 Veöurfregnir. Fréttir . Bæn. Tón- leikar. Pulur velur og kynnir. 8.00 Fréttir. Dagskrá. 8.15 Veðurfregnir. Morgunorð: Bryndís Bragadóttir talar. 8.30 Forustugr. dagbl. (útdr.). 9.00 Fréttir. Tilkynningar. Tónleikar. 9.30 Óskalög sjúklinga. Ása Finnsdóttir kynnir. (10.00 Fréttir. 10.10 Veður- fregnir). 11.10 Þangað liggur leiðin. Umsjón: Fleiðdís Norðfjörð. Þáttur um sumar- búðir þjöðkirkjunnar við Vestmanns- vatn. Fræðst um tildrög að stöfnun sumarbúðanna og hlutverk þeirra. (RÚVAK). 12.00 Dagskrá. Tónleikar. Tilkynningar. 12.20 Fréttir. 12.45 Veðurfregnir. Til- kynningar. Helgarvaktin. Umsjónar- menn: Arnþrúður Karlsdóttir og Hró- bjartur Jónatansson. 13.35 íþróttaþáttur. Umsjónarmaöur:. Hermann Gunnarsson. Helgarvaktin, frh. 15.10 í dægurlandi Svavar Gests rifjar upp tónlist áranna 1930-60. 16.00 Fréttir. Dagskrá. 16.15 Veöurfregn- ir. 16.20 í sjónmáli. Þáttur fyrir alla fjölskyld- una í umsjá Sigurðar Einarssonar. 16.40 Barnalög, sungin og leikin. 17.00 Hljómspegill Stefán Jónsson bóndi á Grænumýri í Skagafirði velur og kynnir sígilda tónlist. (RÚVAK). 18.00 Tónleikar. Tilkynningar. 18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins. 19.00 Kvöldfréttir. Tilkynningar. 19.35 Á tali. Utnsjón: Helga Thorberg og Edda Björgvinsdóttir. 20.00 Harmonikuþáttur. Umsjón: Bjarni Marteinsson. 20.30 Þingmcnn Austurlandssegjafrá. Vil- hjálmur Einarsson ræðir við Hjörleif Guttormsson. 21.30 Hijómplöturabb Þorsteins Hannes- sonar. 22.35 „ísland“, eftir Iivari Leiviská. Þýð- andi: Kristín Mántylá. Arnar Jónsson . les (5). 23.00 Laugardagssyrpa - Asgeir Tómas- son og Porgeir Ástvaldsson. 00.50 Fréttir. Dagskrárlok. S.00 Morgunandakt. 8.35 Morguntónleikar a. Karl Hoc- hreither leikur á orgel Maríukirkjunnar í Björgvin 1. Fantasía í f-moll, K. 594 eftir Wolfgang Amadeus Mozart. 2. „Gráta, harma, gljúpna, kvíöa“, til- brigöi eftir Franz Liszt. b. „Helgimessa“ eftir Frans Liszt Edith Kertkesz. María Brand, Josef Protsehka. Ralf Lukas og kórar Kirkjutónlistarskólansog Borgar- kirkjunnar í Bayreuth syngja meö Sin- fóníuhljómsveitinni í Bamberg; Viktor Lukas stj. > 10.25 Ut og suður. Þáttur Friöriks Páls Jónssonar. ,.Ja drengur, aldrei heföi ég trúað því að veður gæti oröiö svona vont.“ Gunnar Helgason á Akureyri segir frá hrakningum á Nýjabæjarfjalli í febrúar 1976. Fyrri hluti. 11.00 Messa á 50 ára afmæli Siglufjarðar- kirkju. (Hljóör. 28.8. s.l.) Biskup ís- lands, herra Pétur Sigurgeirsson prédik- ar. Sr. Siguröur Guömundsson, sr. Ósk- ar J. Porláksson, sr. Ragnar Fjalar Lár- usson, sr. Kristján Róbertsson, sr. Rögnvaldur Finnbogason, sr. Birgir Ás- geirsson og sr. Vigfús Pór Árnason þjóna fyrir altari. Organleikari og söng- stjóri: Guöjón Pálsson. Hádegistón- leikar. 13.15 Nýir söngleikir á Broadway - IV. þáttur „Kona ársins“ eftir John Kandcr og Fred Ebb. Árni Blandon kynnir. 14.00 Leikrit: „Manntafl“ eftir Stefan Zweig. (Áöur útv. ‘72.) Útvarpshandrit: Klaus Graebner. Pýöandi: Pórarinn Guðnason. Leikstjóri: Lárus Pálsson. Leikendur: Róbert Arnfinnsson. Rúrik Haraldsson, Valur Gíslason. Baldvin Halldórsson, Helgi Skúlason, Valdimar Lárusson, Indriöi Waage, Lárus Páls- son, og Helga Bachmann. 15.00 KafTitíminn Winifred Atwell og tríó San José leika og syngja. 15.30 íslensk ópera - Draumur eða veru- leiki? Sigmar B. Hauksson stjórnar um- ræöuþætti. Pátttakendur: Puríöur Páls- dóttir, Garöar Cortes og Jón Ás- geirsson. 16.20 I»að var og... Umsjón: Práinn Ber- telsson. 16.15 „Ýlustrá“, Ijóð eftir Guðrúnu Brynj- úlfsdóttur Lóa Guðjónsdóttir les. 17.00 Síðdcgistónleikar: Frá austurríska útvarpinu Kammersveitin í Vín leikur. a. Strengjakvartctt í F-dúr eftir Joseph Haydn. b. „Nannerl“ septett eftir Wolf- gang Amadeus Mozart. c. Nonett í F- dúr op. 31 eftir Louis Spohr d. Menúett eftir Wolfgang Amadeus Mozart. 18.15 Létt lög Paul Desmond, Bix Bcider- becke og hljómsveit og Mills bræöur syngja og leika. 19.45 Veistu svarið? - Spurningaþáttur á sunnudagskvöldi. Stjórnandi: Guö- mundur Heiðar Frímannsson á Akur- eyri. Dómari: Jón Hjartarson skóla- meistari á Sauöárkróki. Til aðstoðar: Pórey Aöalsteinsdóttir (RÚVAK). 20.00 Úr stúdíói 4 Eðvarö Ingólfsson stjórnar útsendingu meö létblönduöu efni fyrir ungt fólk. 20.45 Gömul tónlist Ásgeir Bragason kynnir. 21.30 Menningardeilur milli stríða. Átt- undi og síöasti þáttur: Skáldskapur og stjórnmál. Umsjónarmaöur: Örn Ólafs- son. Lesarar meö honum: Ingibjörg . Haraldsdóttir og Hjalti Rögnvaldsson. 22.(KJ Tónleikar. 22.15 Veöurfregnir. Fréttir. Dagskrá morgundagsins. Orð kvöldsins. 22.35 „Island“ eftir livari Leiviská. Pýö- andi: Kristín Mántilá. Arnar Jónsson les (6). 23.00 Kvöldstrcngir Umsjón: HildaTorfa- dóttir ÍRÚVAK.). mánudagur 7.00 Veöurfregnir. Fréttir. Bæn. Séra Porbergur Kristjánsson flytur (a.v.d.v.) Gull í mund - Stefán Jón Hafstein - Sigríöur Árnadóttir- Hildur Eiríksdótt- ir. 7.25 Leikfimi. Umsjón: Jónfna Bene- diktsdóttir. 8.00 Fréttir. 8.15 Veöurfregnir. Morgun- orö: Ágúst Porvaldsson talar. 9.00 Fréttir. 9.05 Morgunstund harnanna: „Barna- sögur“ eftir Peter Bichscl í þýöingu Franz Gíslasonar. Sigrún Björnsdóttir byrjar lesturinn. 9.20 Leikfimi. Tilkynningar. Tónleikar. 9.45 Landbúnaðarmál. Umsjónarmaöur: Óttar Geirsson. 11.(K) Létt tónlist. Ellý Vilhjálms, Róbert Arnfinnsson, Haukur Morthensog Ber- gþóra Árnadóttir syngja. 11.30 Lystauki. Þáttur um lífiðog tilverúna í umsjá Hermanns Arasonar (RÚVAK). 13.30 Frá setningu Alþingis. 14.30 „Ágúst“ eftir Stefán Júlíusson. Höf- undurinn les (6). 15.(K) Miðdegistónleikar. Armin Rosin og David Levin leika saman á básúnu og píanó „Kavatínu** í Des-dúr eftir Cam- ille Saint-Saéns og „Rómörisu** í c-moll eftir Carl Maria von Weber / Kyung- Wha Chung og Konunglega fílharm- oníusveitin í Lundúnum leika „Skoska fantasíu** eftir Max Bruch; Rudolf Kem- Pe stj. 16.20 Gagn og gaman. Umsjónarmaður: Gunnvör Braga. Fluttir kaflar úr „Sög- unni af Dúdúdú“ eftir Örn Snorrason. Sögumaöur: Sigrún Sigurðardóttir. Aörir lcsarar: Helga Haröardóttir, Ragnheiður Gyöa Jónsdóttir og Her- mann Gunnarsson. (Áöur útv. 1982) 17.00 Við - Þáttur uni fjölskyldunuil Um- sjón: Hclga Ágústsdottir. 17.40 Skákþáttur Umsjón: Jón P. Pór. 19.35 Daglegt mál Olafur Oddsson flytur þáttinn. 19.40 Umdaginnog veginn. Benedikt Ben- ediktsson kennari talar. 20.00 Lög unga fólksins. Póröur Magnús- son kynnir. 20.40 Tónlistarhátíð norrænna ungmenna í Reykjavík 1982 (Ung Nordisk Musik Festival) Frá kammcrtónlcikum í Nes* kirkju 23. september. Umsjón: Hjálm- ar H. Ragnarsson. Kynnir: Kristín Björg Porsteinsdóttir. 21.45 Útvarpssagan: „Brúðarkyrtillinn** eftir Kristmann Guðmundsson Ragn- heiöur Sveinbjörnsdóttir les (3) 22.15 Veöurfregnir. Fréttir. Dagskrá morgundagsins. Orð kvöldsins. 22.35 íslensk safnaðarfélög. Sr. Árelíus Ní- elsson flytur erindi. 22.55 Frá tónleikum Sinfóníuhljómsveitar íslands í Iláskólabíói 7. okt. s.l. Stjóm- andi: Jean-Pierre Jacquillat. Sinfónía nr. 6 í h-moll op. 74 eftir Pjotr Tsjaíkov- ský. - Kynnir: Jón Múli Árnason. sjonvarp laugardagur 16.30 íþróttir. Umsjónarmaður Bjarni Felixson. 18.30 Riddarinn sjónumhryggi. Spænskur teiknimyndaflokkur geröur eftir sögu Cervantes um riddarann Don Ouijote og Sancho Panza, skósvein hans. Þýð- andi Sonja Diego. ] 18.55 Enska knattspyrnan. 119.45 Fréttaágrip á táknmáli. 20.00 Fréttir og veður. 20.35 Auglýsingar og dagskrá. 20.35 Löður. Bandarískur gamanmynda- flokkur. Þýðandi Ellert Sigurbjörnsson. 21.00 Þættir úr félagsheimili. Sjónvarpið bauð sex höfundum að skrifa leikþætti sem áttu að gerast í félagsheimili í litlu plássi á landsbyggðinni. Þessir þættir verða nú á dagskrá hálfsmánaðarlega. 1. þáttur. Sigvaldi og sænska línan eftir Guðnýju Flalldórsdóttur. Leikstjóri Hrafn Gunnlaugsson. Stjórnandi upp- töku Andrés Indriðason. Persónur og leikendur: Sigvaldi ... Borgar Garðars- son, Anna ... Edda Björgvinsdóttir, Þórður ... Gísli Rúnar Jónsson, Alfrcð ... Flosi Olafsson, Helga Jóna ... Lilja Guðrún Þorvaldsd., Gugga ... Sigurveig Jónsdóttir. Sigvaldi Jónsson, íslending- ur sem hefur verið við leikstjórnarnám í Svfþjóð, er fenginn af áhugafélaginu á staðnum til að æfa og setja á svið leikrit. Leikfélagið hefur þegar valið hláturs og kassastykkið Þorlák þreytta og stjórnast það val af bágbornunr hag leikfélagsins og „af því að menn eru að öllu jöfnu of þreyttir til að horfa á þyngri verk“. Sig- valdi finnur hins vegar djúphugsaða þjóðfélagsádeilu í þessum gamla farsa og hyggst með nýjum leikstjórnarað- ferðunr leiða fólk í sannleikann unr það hvers vegna Þorlákur sé þreyttur og hvaða þjóðfélagslegar aðstæður liggi þar að baki. 22.05 I.cikið til lausnar (PlayingforTime). Bandarísk sjónvarpsmynd frá 1980 byggð á sjálfsævisögu Faniu Fenelon. Leikstjóri Daniel Mann. sunnudagur 18.00 Sunnudagshugvekja. Séra Vigfús Þór Árnason flytur. 18.10 Stundin okkar. Heimsótt verða hjónin Elín og Magnús að Jaðri í Hruna- mannahreppi en þau reka eitt af fáum kanínubúunr hér á landi. Sýndur verður annar þáttur um Róbert og Rósu og gamall kunningi, Dolli dropi, birtist aftur. Tekið verður upþ það nýmæli að segja fréttir í Stundinni okkar og að lok- um verðursýnd mynd frá Hjólreiðadeg- inum, sem var haldinn 23. nraí í vor. Umsjónarmaður Bryndís Schram. Stjórnandi upptöku Kristín Pálsdóttir. 19.00 Hlé. 19.45 Fréttaágrip á táknnráli. 20.00 Fréttir og vcður. 20.45 Auglýsingar og dagskrá. 20.40 Sjónvarp næstu viku. 20.55 Glugginn. Nýr þáttur unr listir og menningarmálo.fl. semverðurásunnu- dagskvöldunr næstu mánuði. Dagskrár- gerð: Áslaug Ragnars, Sveinbjörn I. Baldvinsson, Andrés Indriðason og Elín Þóra Friðfinnsdóttir. 21.40 Schulz í hcrþjónustu NÝR FLOKK- UR- 1. þáttur. Breskurframhaldsflokk- ur í sex þáttum senr lýsir á gamansaman hátt ævintýrum þýska dátans Schulz í heimsstyrjöldinni síðari. í söguþráðinn fléttast hin alrænrda Bernhardaðgerð en tilgangur hennar var að eyðileggja gjaldmiðil Breta nreð fölsuðunr seðlunr. 22.35 Ilorg sem bíður. Bresk fréttamynd frá Hong-Kong. 23.00 Dagskrárlok. mánudagur Mánudagur 19.45 Fréltaágrip á táknniáli. 20.00 Fréttir «g veður. 20.25 Auglýsingar og dagskrá. 20.35 Tommi og Jenni. 20.40 Iþróttir. Umsjónarmaöur Steingrímur Sigfússon. 21.10 Fjandvinir. Breskur gamanmynda- flokkur í sex þáttum. 2. Brúðargjöfin. Pýöandi Guöni Kolbeinsson. 21.40 Einmana snillingur (L.S. Lowry - A Privatc View). Leikin sjónvarpsmynd um breska málarann, L.S. Lowry (1886- 1976), ævistarf hans og einkalíf. Leik- stjóri er David Wheatlcy en Malcolm Tierney leikur málarann. Pýöandi Krist- mann Eiðsson. 22.35 Dagskrárlok. bera á hæfileikum Schulz, og hann vinnur „gott starf" í þágu Þriðja ríkisins. Majórinn sem ekki er mikill bógur þakkar sér allt það sem Schulz fær áorkað og skammar Schulz blóðugum skömmum ef hlutirnir ganga ekki alveg upp. Með aðaihlutverk fara Michael Eiphick, Ian Richardson og Gawn Grainger. Þýðandi er Dóra Hafsteinsdóttir og þáttur- inn tekur tæpa klukkustund í flutningi. tJtvarp sunnudag kl 14.00: Leikrit vikunnar Manntafl Eftir hinni víðfrægu smásögu Stefáns Zweig Lciklistardcild Ríkisútvarpsins ræðst ekki á garðinn þar scm hann cr lægstur, þcgar tekið cr til fiutnings í útvarpinu lcikrit cftir hinni frægu sögu Stcfáns Zweig MANNTAFL. Manntafi samdi Zwcig undir lok ævi sinnar, og lýsir sagan vel hugarástandi hans og afstöðu til hcimsstríðsins. Margoft hcfur vcrið reynt að sctja MANNTAFL á svið, cn oft- ast nær hcfur túlkunin mistckist, jafnvel þó svo vcrkið virðist scm sniðið fyrir lciksvið. Með aðalhlutverk fara Róbcrt Arn- finnsson, Ualdvin Halldórsson, Helgi Skúlason, Valur Gíslason, og Rúrík Haraldsson. Lcikstjóri var Lárus Pálsson, cn leikurinn var fyrst fluttur í útvarpi fyrir 10 árum. Um borð í skipi á leið frá New York til Buenos Aires er heimsmeistari í skák meðal far- þega. Hann lætur tilleiðast að tefla við mann að nafni McConn- or, sem ekki þykist lakari en hver annar í skáklistinni. En það kost- ar skildinginn. Meöan á skákinni stendur gcfur sig fram maður úr c áhorfendahópnum, og það kem- ur í ljós að hann kann meira en lítið fyrir sér. Stefan Zweig fæddist í Vínar- borg 1881. Hann stundaði nám í heimspeki og málvísindum, átti lengstum heima í Salzburg, en þegar nasistar innlimuðu Austur- ríki 1938 fór hann til Englands og síðar til Brasilíu. Þar átti Zweig við mikið þunglyndi að stríða, ekki síst vegna heimsstyrjaldar- innar, en hann var alla tíð mikill friðarsinni. Hann og kona hans kusu sjálfviljug að ganga í dauðann í bænum Petrópólis ná- lægt Rio de Janeiro í febrúar 1942. . Zweig hóf ritferil sinn árið 1901 með útgáfu ljóðabókar, síð- an komu leikrit, ritgerðir og skáldsögur, að ógleymdum sagnfræðiritum um ólíkustu per- sónur eins og Maríu Stúart Skota- drottningu og franska rithöfund- inn Balzac. Sjálfsævisaga Zweigs, „Veröld sem var" (1942) hefur komið út á íslensku, auk nokkurra fleiri verka hans.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.