Þjóðviljinn - 09.10.1982, Blaðsíða 9

Þjóðviljinn - 09.10.1982, Blaðsíða 9
Helgin 9.-1Ó. október 1982 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 9 Norrœnafélagið 60 ára Skemmtun á Hótel Sögu Norræna félagið heldur upp á 60 ára afmæli sitt með skemmt- un og kaffidrykkju í Súlnasal Hótel Sögu nú á sunnudaginn kl. 15.00. Skólahljómsveit Mos- fellssveitar leikur utandyra, ef veður leyfir, frá kl. 14.30. Skemmtunin hefst með ávarpi formanns Norræna félagsins á Is- landi Hjálmars Ólafssonar. Þá er samfelld norræn dagskrá sem Aðalsteinn Davíðsson hefur tekið saman. Þjóðsögur, þjóðbúningar og þjóðlög sem Vísnavinir flytja. Flokkur úr Þjóðdansafélagi Reykjavíkur sýnir þjóðdansa. Al- mennur söngur við undirleik Gunnars Axelssonar, og loks syng- ur gestur hátíðarinnar færeyska söngkonan og leikkonan Annika Hoydal. Hún er góðkunn hér á landi fyrir söng sinn m.a. með Harkaliðinu. Hver kannast ekki við „Ólaf riddararós", „Rasmus Ó. Rasmus" og ótal fleiri lög, sein hún hefur sungið. Annika hefur getið Annika Hoydal frá Færeyjum. sér góðan orðstír í Danmörku sent leikkona bæði á leiksviði, í sjón- varpi og kvikmyndahúsum. Hún hefur m.a. leikið stór hlutverk í „Brúðuheimili" Ibsens og í „Eins og yður þóknast" eftir William Shakespeare. Kl. 20.30 á sunnudagskvöld halda þau Annika og Lars tónleika í Norræna húsinu á vegum Norr- æna hússins og Norræna félagsins. Tónlistin sem þau flytja er eftir Anniku Hoydal, Birte Zander og Lars Trier. Marley FLOWLINE þakrennur eru úr frostþolnu, sterku, gegnlituðu plasti sem ekki þarfnast viðhalds. PAKRENNUR SEM ERU EINFALDAR í UPPSETNINGU heildverslun MarinóPétursson Sundaborg 7. 124 Reykjavik simi: 81044 Hraðfrystihús Fiskverkendur Getum nú boöiö meö stuttum fyrirvara hinar þekktu japönsku MYCOM frystivélar og skrúfuþjöppur á mjög hagstæöu verði. Ennfremur loftkælda kondensa fyrir ammoníak, sér- staklega húöaöa til varnar tæringu af saltlofti. Vinsamlegast leitiö tilboöa. Kæling hf., Langholtsvegi 109, símar 32150 og 33838. Nú er hún komin ... Vélin, sem tengist köldu vatni eingöngu eða heitu og köldu — sama vélin — en þú velur með spamaðartakka ódýrasta þvottamátann, við þínar heimilisaðstæður Hitun Þvottur Þurr— vinding • Þeytivinding með 850 sn. á mín. • Tekur 5 kg af þurrþvotti. • Hefur 10 grunnþvottakerfi. • Sjálfstilltur forþvottur og aðalþvottur. • Auk þess sjálfstætt hitaval fyrir 30,40, 60 og 95 gráðu heitan þvott (suða). • Staðgreiðsluverð: ^ RAFBIIÐ kr.ii.950- @ SAMBAHDSIHS Armúla 3 ■ Simi 38900

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.