Þjóðviljinn - 09.10.1982, Blaðsíða 30

Þjóðviljinn - 09.10.1982, Blaðsíða 30
» /T ♦ - \ * Ty* 30 SIÐA — ÞJÖÐVILJINN' Helgin 9.-1Ó.' október’ Í982 í stað kvalafullra rannsókna liggur sjúklingur nú á þessum rennibekk meðan tölvusneiðmyndatækið vinnur sitt verk. Á innfelldu myndinni má sjá Kolbein Kristófersson taka við tækinu af Svavari Gestssyni en hjá tækinu sjálfu standa Jón L. Sigurðsson yfirlæknir á röntgendeild og Art Glenn forstjóri General Electric lækningatækjadeildarinnar í Bandaríkjunum. Ljósm. -eik. Tölvusneiðmyndatækið afhent í gær: Bylting í sjúkdómsgreiningu í gær afhenti heilbrigðisráðherra Landspítalanum formlega tölvusn- eiðmvndartækið, sem ríkisstjórnin gaf fyrirheit um á 50 ára afmæli spíta- lans í desember 1980. Kolbeinn Kristófersson, prófessor, ylirmaður rönt- gendeildar Landsspítalans veitti tækinu móttöku en viðstaddir voru starfs- menn spítalans og stjórn ríkisspítalanna. í ávarpi. sem Svavar Gestsson, heilbrigðisráðherra hélt við þetta tækifæri. kom fram að nýja tækið, kostar ríflega 700 þúsund dollara eða um 11 milljónir íslenskra króna. Um leið og þessunt áfanga í rannsóknarstarfi spítalans er fagn- að sagði Svavar að hugíi yröi að því hvert væri næsta verkefnið. Þröngt væri um rannsöknardeildir spíta- lans og brýnt væri að hefjast handa hjartaskurðlækningum hér á landi. Pctta kom fram í ávarpi sent Svavar Gestsson, heilbrigðisráð- herra flutti í Landspitalanum í um byggingu svonefndrar K- deildar, sem hýsa á stoðdeildir spít- alans. Tölvusnéiðmyndatækið sem kom til landsins í maí og starfs- menn spítalans settu upp hefur nú þegar nýst um 350 sjúklingum. Hér er urn að ræða eitt fullkomnasta rarinsóknartæki á sviði læknisfræ- ðinnar í dag,- tæki sem kemur í veg fyrir að börn og fullorðnir þurfi að gær. Sagöi Svavar í samtali við ÞJóðviljann að mál þetta hefði lengi verið í bígerð og að mati gangast undir kvalafullar og stund- um lífshættulegar rannsóknir eins og Davíð Á. Gunnarsson, fram- kvæmdastjóri ríkisspítalanna benti á. Þá mun tækið auka nýtingu spít- alans, stytta legu og rannsóknart- íma sjúklinganna og koma í veg fyrir óþarfa skurðaðgerðir. Með sneiðmyndatækinu má festa á filmu og tölvuskjá ótal þversnið af líkama sjúklingsins. Myndataka af öllu höfði manns tekur milli 40 og 50 mínútur og í flestum tilfellum er greiningu þar með lokið, því læknir fylgist með: sérhverri mynd á tölvuskjánum. Myndataka af bol tekur hálfan ráðunauta sinna væri fyllilega tímabært að hefjast nú handa. Árlega fara milli 80 og 90 manns tjl útlanda til hjarta- skurðslækninga sem ekki er hægt að framkvæma hér á landi. annan tíma. Sneiðmyndin sem tölvan framkallar er greinilegri en þó skorin væri úr líkantanum sneið og hún skoðuð. Með tækinu má einnig gera rannsóknir á slagæðast- íflum án þess að beita æðaþræ- ðingu og eftir að sjúklingurinn er farinn úr tækinu má kalla myndirn- ar fram, stækka þær og minnka og líta á þær frá öðru sjónarhorni, þ.e. hronrétt á sneiðarnar. Myndir úr tölvusneiðmyndatæk- inu rná nú með nýju geislaáætlun- arkerfi spítalans nýta til út- reikninga á geislaskömmtum en það kerfi leysir útreikninga sent eðlisfræðingur þarf marga vinnu- daga tif á ntinna en einni klukku- stund. -Á1 Svavar á belnni líhu í Þjóð- vfljanum Bein lína verður til Svavars Gestssonar n.k. þriðjudag og veröur Svavar við símann hér á Þjóðviljanum frá kl. 17- 19. Svarar hann spurningunt þeirra sem hringja. Svörin verða birt (ásamt spurning- um) í blaðinu í næstu viku. Síminn er 8 13 33. -AI FYRIRLESTUR Samstarf iðnfyrirtækja og hönnuða Þriðjudaginn 12. október kl. 16.30 mun danski hönnuðurinn Jakob Jensen halda fyrirlestur í Kristalsal Hótels Loftleiða. Mun fyrirlesturinn fjalla um samstarf iðnfyrirtækja og hönnuða. Fyrirlesturinn er haldinn í tengslum við Samkeppni um iðnhönnun, sem Sparisjóður Reykjavíkur og nágrennis heldur í tilefni af 50 ára afmæli sparisjóðsins. Fyrirlesturinn er öllum opinn, meðan húsrúm leyfir. Sparisjóður Reykjavíkur - og nágrennis Hjartaskurðlækningar hérlendis? í fjárlagafrumvarpinu, sem lagt verður fyrir alþingi á mánudag er tillaga frá heilbrigðisráðuneyti um að á næsta ári heljist undirbúningur að Nýtt fyrirtæki, Farskip h.f.: Hefur rekstur farþega- skips næsta sumar Eimskipafélag íslands h.f. og Hafskips h.f. hafa samcinast um stofnun nýs fyrirtækis, Farskip h.f. til að annast útgerð bílfcrju og farþegaskips milli Reykjavíkur, Bretlands, Þýskalands frá og með næsta sumri. Fyrirtækin höfðu sitt í hvoru lagi verið að þreyfa fyrir sér um rekstur svona skips, en ákváðu af hagkvæmnisástæðum að vinna saman. Einar Hermannsson, sem ráðinn hefur verið framkvæmdarstjóri Farskips h.f. sagði í samtali við Þjóðviljann að skipið sem ákveðið hefur verið að kaupa væri eitt af skipum Silja-linen fyrirtækisins finnska sem er eitt af stærstu bílferju- og farþegaflutn- inga-skipafélögum heims. Skipið er 10 ára gamalt, byggt í Frakk- landi. Skip Silja-linen fyrirfækisins er kunn fyrir hversu véí búin og glæsi- leg þau eru. Aðbúnaöur farþega, sem geta verið 450 í ferð, er ein- staklega góður og mikið við að vera fyrir farþega um borð. Gert er ráð fyrir að ferðir frá Is- landi verði einu sinni í viku yfir sumartfmann. -S.dór -_ i Bankamenn samþykktu Bankamenn samþykktu í gær samning þann við bankana sem var undirritaður nieð venjulegum fyrirvara 24. september. Á kjör- skrá voru 2621, atkvæði greiddu 2215 og samþykktir voru 1822 eða 82,2%. Norræn ráðsteina um full- orðins- fræðslu Fullorðinsfræðsla er viðfangs- efni norrænar ráðstefnu sem haldin er um þessa helgi á vegur norrænu menningármálaskrifstofunnaf. Til ráðstefnunnar ííefur verið boðið starfsmönnum stjórnvalda, stofn- ana og samtaka sem vinna að full- orðinsfræðslu á Norðurlöndum. Ráðstefnan sem haldin er að Borgartúni 6 í Reykjavík hefst í dag kl. 9 með ávarpi Ingvars Gísla- sonar menntamálaráðherra. Á rá- ðstefnunni verða lagðar fram skýrslur um stöðu fullorðinsfræ- ðslu á Norðurlöndum. Þrír aðalfyr- irlestrar eru í höndum Johan Eng- elhardt fræslustjóra í Danmörku, Kim Mörch Jacobsen lektors í Sví- þjóð og Britten Kallerud ráðu- nauts í Noregi. í hópumræðum verður rætt um hugsanlegar lausnir á vandamálum fullorðinsfræðslu í hverju landi og um sameiginleg viðfangsefni Norðurlanda í því samhengi. Ráðstefnunni lýkur nk. sunnudag. -óg-

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.