Þjóðviljinn - 09.10.1982, Blaðsíða 24
Á miðvikudagskvöld var ég illa
kvefaður og slappur og fékk ágætis
tilefni til að fá mér Toddý. Það var
munaður, og brátt fór mér að iíða
reglulega vel - þrátt fyrir kvefið.
Svo kom ég mér vel fyrir í þægileg-
asta hægindastólnum, færði lita-
sjónvarpið sem næst mér og byrj-
aði að glápa. Væri ég köttur, hefði
ég malað af ánægju. Fyrst mændi
ég á fréttir og í þeim var svo sem
ekkert nýtt. Þá horfði ég á Nýjustu
tækni og vísindi, og þar voru frétt-
ir. Og svo kom Dallas.
Værðarsvipurinn á andliti mínu
breyttist brátt í værðargrettu. Illa
er komið fyrir þjóð minni ef það er
sáluhjálparatriði að hafa svona
kvikmyndir heima í stofu í hverri
viku. Ég þraukaði þennan þátt
samt af, enda heitt toddý við hönd-
ina. Ég megnaði hins vegarekki að
horfa á mynd um vatnshöfuö í dag-
skrárlok. Dallas var n'óg í bili og ég
kominn með grautarhöfuð. Þessi
Toddý
og
Dallas
þáttur um Dallas fjallaði um
sambúð Sue Allen, sern er fegurð-
ardís, alkóhólisti og rola, og J.R.,
sem er fantur, illmenni og sálufé-
lagi morðingja. Hún eignast
barn, sem . öldungadeildaþing-
maður nokfcur (ég man ekki hvað
hann heitir) er faðir að. Öldunga-
deildarþingmaðurinn vill hreppa
bæði konu og barn úr höndum J.R.
í myndarlok er svo barninu rænt,
og fæst Væntanlega úr því skorið í
næsta þætti hvort það var pabbinn,
„pabbinn", eða morðingjarnir sem
stóðu fyrir barnsráninu. Líklegt
þykir méT samt að það hafi verið
morðingjarnirj en öldungadeildar-
þingmaðurinn verði grunaður lengi
vel.
Aðrir sem koma við sögu eru ætt-
arhöfðinginn, gamall skúrkur sem
hefur fengið hjartaslag, kona hans,
sönn húsmóðir sem ekkert skilur,
hvorki í bissnes, framhjáhöldum
né öðrum myrkraverkum. Þá er
það bfóðirinn Bobby, traustvekj-
andi og einfaldur náungi og kona
hans, fegurðardrottning sem veit
nú hvað hún syngur. Hún er systir
öldungardeildarþingmannsins.
Ennfremur er dálítið gáluleg stelpa
í fjölskyldunni.
Ekki virðist hyski þetta hafa
önnur andleg áhugamál en græða
peninga og verður vel ágengt
með klækjum, mútum og öðrum
óþokkabrögðum. Allt býr það í
einu og sama húsinu og eru þar
kræsingar á boðstólum upp á hvern
dag og dýrindisvín. Samt eru flestir
óhamingjusamir eða hafa ógnar-
stórar áhyggjur af peningunum sín-
um og er líklega boðskapur þátt-
anna sá að best sé að vera fátækur
og una glaður við sitt.
Að því leyti er Dallas heldur
svona forheimskandi án þess að ég
ætli að gern veður út af því - enda
er ég hvorki í Kattavinafélaginu,
Músavinafélaginu né Mannræktar-
félaginu.
Sjálfur undi ég glaður við toddý-
ið mitt það sem eftir lifði kvölds og
fór svo bara að sofa.
Guðjón
Fyrirlestur á
Landspítalanum:
Börn á
sjúkra-
húsum
Prófessor Lennart Köhler, sem er
rektor við Norræna Heilsuverndar-
háskólann í Gautaborg, heldur er-
indi á mánudagskvöld 11. október
kl. 8.30.
Talar hann um heilbrigð-
isþjónustu við börn með langvar-
andi sjúkdóma á Norðurlöndum.
Fundarstaður er í fundarsal Geð-
deildar Landspítalans á 3. hæð.
Á sænsku nefnist fyrirlesturinn:
Organisering av omsorgen för
kroniskt sjuka barn av olika kate-
gorier í nordiskt - eventuellt eruop-
eiskt - perspektiv.
Athöfn
við sty ttu
Leifs
heppna
I dag, laugardag, kl. 11.30 fer
fram athöfn við styttu Leifs Eiríks-
sonar á Skólavörðuholti í tilefni af
því að 50 ár eru liðin frá því að
Bandaríkjastjórn gaf Islcndingum
styttuna. í dag er minningardagur
Leifs heppna í Bandaríkjunum.
Við athöfnina flytja ávörp for-
seti íslands, forsætisráðherra,
sendiherra Bandaríkjanna, borg-
arstjórinn í Reykjavík og Patricia
McFate, forstjóri American-
Scandinavian Foundation í Nevv
York. Sigurður Helgason, formað-
ur Íslensk-ameríska félagsins, stýr-
ir athöfninni.
sunnudagskrossgátan
Nr. 342
l 2 3 V s ÍP 7 s 8 */ 8 9 *L y
)ö s 'Y' V II T~ 12 )l $2 II 13 6 iV Ý V
)V /6 2 » V /é t> V 1) é> 7- V Vt WT íZ
20 )3 )) )3 * V V 2) 13 1T 7- /3 /7 ¥ 22
2Z n )0 IT W~ V )0 3 7 /4
20 IS S V V- ID 12 )Z TT d )0 7 13
/3 sr /0 J~ b> '4 (V) IZ )t> !Z i2 /
k? 2£ 7- y H- II )2 /0 n 13
2? h * 28 7/ U é> /S ID /2 S2 )? /L
30 9 /D i? 8 8 T/ // 3o IV V
9 3/ H- 7 13 TT n £2 32 8 s 8 II i/ (vj
7 /? T~ 12 (, V i? i ID IV- '3 5? 23
4 T~ l8 8 $2. id- TtT 22 T~ u 12 So 3 10
AÁBDÐEÉFGHIÍJKLMNOÓPRSTUÚVXYÝþÆÖ
Setjið rétta stafi í reitina hér fyrir neðan. Þeir mynda þá nafn á
stofublómi. Sendið þetta nafn sem lausn á krossgátunni til Þjóðvilj-
ans. Síðumúla 6, Reykjav ík, merkt: „Krossgáta nr. 342". Skila-
frestur er þrjár vikur. Verðlaunin verða send til vinningshafa.
1 12 )/ 1S & 2S H-
Stafirnir mynda íslensk orð eða mjög kunnugleg erlend heiti hvort se
lesið er lá- eða lóðrétt.
Hver stafur hefur sitt númer og galdurinn við lausn gátunnar er sá ao
finna staflykilinn. Eitt orð er gefið og á það að vera næg hjálp, því með
því eru gefnir stafir í allmörgum orðum. Það eru því eðlilegustu vinnu-
brögðin að setja þessa stafi hvern í sinn reit eftir því sem tölurnar segja
til um. Einnig er rétt að taka fram, að í þessari krossgátu er gerður skýr
greinarmunur á grönnum sérhljóða og breiðum, t.d. getur a aldrei
komið í stað á og öfugt.
Verðlaunin
Verðlaunin fyrir krossgátu nr.
338 hlaut Karen M. Gestsdótt-
ir, Lyngheiði 14, Kópavogi.
Þau voru bókin Ritsafn I eftir
Sverri Kristjánsson. Lausnar-
orðið var Búkarest.
Verðlaunin að þessu sinni er
mikil og vegleg bók sem kom út
hjá Iðunni í sumar og nefnist
Hverju svarar læknirinn, 335
spurningar um heilsufar,
læknismeðferð, lyfjanotkun og
fleira.
vertó
Bertd Mðrtcnv
t.urtMriniv l*cu
svöf°r
æknirin
55 spumingar
im heilsufar, læknismeflferö,
fjanotkun og fleira
úmlega 200
ýringarmyndir