Þjóðviljinn - 09.10.1982, Blaðsíða 11

Þjóðviljinn - 09.10.1982, Blaðsíða 11
ALÞÝÐUBANDALAGIÐ Skúli Halldór Engilbert Kristjón Kjördæmisráð Alþýðubandalagsins á Vestur- landi - Ráðstefna um dreifbýlismál Ráðstefna um dreifbýlismál verður haldin laugardag og sunnudag, 9.-10. október, í Samkomuhúsinu Grundarfirði. Dagskrá ráðstefnunnar verður þessi: Laugardagur kl. 14.00-19: Samgöngumál: Málshefjandi Skúli Alexandersson. Orkumál: Málshefjandi Kristjón Sigurðsson. Laugardag kl. 21.00-kvöldvaka . - Sunnudagur kl. 13.00-18.00 Skólamál: Málshefjandi Engilbert Guðmundsson. Atvinnumál: Málshefjandi Halldór Brynjúlfsson. Fólki skal bent á að taka með sér svefnpoka. Stjórn Kjördæmisráðs hvetur allt Alþýðubandalagsfólk til að fjölmenna til ráðstefnunnar. Allar frekari upplýsingar í síma 8811 - Stjórn kjördæm- isráðs Kjördæmisráðstefna á Norðurlandi vestra Aðalfundur kjördæmisráðs Alþýðubandalagsins á Norðurlandi vestra verður haldinn 9.-10. október n.k. í Suðurgötu 10 Siglufirði og hefst kl. 14:00 laugardaginn 9. október. Dagskrá: 1. Aðalfundarstörf. 2. Stjórn- málaástandið. 3. Undirbúningur næstu kostninga. 4. Önnur mál. - Stjórn kjördæmisráðsins Alþýðubandalagið Akranesi - Bæjarmálaráð Bæjarmálaráðsfundur verður n.k. mánudag 11. október kl. 20.30 í Rein. Fundarefni: Greint frá störfum atvinnumálanefndar, félagsmálaráðs og náttúruverndarnefndar. Umræður. - Stjórnin. Alþýðubandalag Selfoss og nágrennis Garðar Sigurðsson alþingismaður verður með við- talstíma að Kirkjuvegi 7, Selfossi laugardag 16. okt- óber kl. 14.00. Stjórnin. Garðar. I ;vF.V.' > uiphll Helgin 9.-10. október 1982 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 11 Alþýðubandalag Selfoss og nágrennis Alþýðubandalag Selfoss og nágrennis heldur félagsfund að Kirkjuvegi 7 laugardaginn 16. október kl. 16.00. Fundarefni: Kosning fulltrúa á flokksráðsfund. Efnahags- og utanríkismál. I Framsögu hafa þeir: Ragnar Árnason og Pétur Reimarsson. Félagar fjölmennið. i— ---------------------—— --------------------------—----- Alþýðubandalagið í Reykjavík Fundur í fulltrúaráði ABR Fulltrúar í fulltrúaráði ABR eru boðaðir til fundar þriðjudaginn 12. okt. kl. 20.30 í Sóknarsalnum Freyjugötu 27. Nánar auglýst síðar. Stjórn ABR. Alþýðubandalag Selfoss og nágrennis Bæjarmálaráðsfundur verður að Kirkjuvegi 7. þriðjudaginn 12. október kl. 20.30. Stjórnin. Landráðstefna ÆnAb Starfshópur um stöðu ungs fólks í verkalýðshreyfkigunni heldur fund þriðjudaginn 12. október kl. 18 að Grettisgötu 3. Til umræðu verða spurningarnar: 1) Hver eru áhrif ungs fólks innan verkalýðshreyfingarinnar? 2) Getur ungt fólk notað verkalýðshreyfinguna sem virkt baráttutæki gegn kreppu og atvinnuleysi? 3) Hver eru áhrif verkalýðshreyfingarinnar í íslenskum stjórnmálum? Fjölmennið. Stjórn ÆnAb. Alþýðubandalag Skagafjarðar Bæjarmái á Sauðárkróki. Alþýðubandalag Skagafjarðar heldur fund um bæjarmálin á Sauðárkróki mánudaginn 11. október kl. 20.30 í Villa Nova. Allir félagar hvattir til að mæta. Stjórnin. 1 Orðsending til styrktarmanna Alþýðubandalagið hvetur styrktarmenn flokksins til að greiða útsenda gíróseðla hið allra fyrsta. — Alþýðubandalagið. Glermunir frá Bergvík Glermunirnir frá Bergvík eru ' sérlega fallegir, en þeir eru nú sýndir hja Heimilisiðnaðarfélaginu í Hafnarstræti. í dag, laugardag, verður opið til kl. 16.00, en annars er opið á venjulegum verslunar- tíma. Myndina tók-eik af nokkrum glasanna eftir Sigrúnu Einars- dóttur. Tolli og Guðmundur Oddur í Rauða húsinu Þorlákur Kristinsson og Guð- mundur Oddur opna í dag, laugar- dag, málverkasýningu í Rauða hús- inu á Akureyri kl. 16.00. Þeir félagar sýna þar 10 málverk. Þorlákur tók þátt í samsýningu sjö- menninganna í Norræna húsinu í sumar en Guðmundur Oddur hef- ur tekið þátt í fjölda samsýninga norðan heiða og sunnan. Báðir hafa þeir stundað nám í nýlista- deild Myndlista- og handíðaskóla íslands.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.