Þjóðviljinn - 09.10.1982, Blaðsíða 5

Þjóðviljinn - 09.10.1982, Blaðsíða 5
Helgin 9.-10. október 1982 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 5 „Allt er tengt líkama okkar segir María Jósefs- dóttir, gyðingur með íslenskan ríkisborgararétt, sem nú sýnir listaverk sín í Gallerí Lækjartorg „Ég er fædd í Berlín, en foreldrar mínir voru landlausir gyðingar. Ég fluttist til ísrael með foreldrum mínum þegar ég var barn og bjó þar á uppvaxtarárunum. Tvö ár var ég í ísraelska hernum, en hélt síðan til Parísar til myndlistar- náms. Faðir minn var drcpinn af aröbum, en við sluppum frá Þýska- landi rétt fyrir ofsóknir nasist- anna“, segir Myriam Bat-Yosef, öðru nafni María Jósefsdóttir, en hún opnar nú um helgina myndlist- arsýningu í Gallerí Lækjartorg. Saga hcnnar er óvanaleg um margt. Og hún heldur áfram að segja okk- ur frá: „Til framhaldsnáms hélt ég til Florence. Þar kynntist ég íslenska listamanninum Erró og við fluttum til íslands. Það var skrýtið að koma hingað í kuldann frá Italíu. Ég eignaðist dóttur og varð að vinna fyrir okkur. Ég fékk vinnu í súkku- laðiverksmiðjunni Freyju og vann þar við að pakka inn sælgæti. Þar lærði ég að tala íslensku. En ég viidi verða listamaður, — halda áfram við það sem ég hafði rnennt- að mig til. Og ég varð að velja á milli hjónabands og starfs. Við skildum eftir 9 ára hjónaband og ég fluttjst frá íslandi. Én ég hef alltaf komið hingað af og til og er ennþá íslenskur ríkisborgari, þótt ég búi í París". María hefur haldið yfir 50 einka- sýningar víða um heim og tekiö þátt í fjölda samsýninga, Verk hennar eru á nútímasöfnum t.d. í París, New York, Stokkhólmi, Tokýo og Tel Aviv. Hún hefur einnig hlotið margs konar viður- kenningu fyrir verk sín. Hún hefur unnið talsvert með geðlæknum að myndtjáningu féiagslega truflaðra ungmenna. Og hún er ntikii jafn- réttiskona: „Staða kvenna í listum er mjög sérstök. Þær verða að helga sig tjáningu sinni, eigi þær að ná ár- angri: en eigi þær fjölskyldu, hvílir áþeim kvöð, sem karlinenn þekkja sjaldnast. Karlmaður, sem sinnir lítið börnum sínum er gjarnan tal- inn séni, á meðan kona sem tekur list sína fram yfir fjölskylduiíf, er fordæmd. Öll mín tjáning er tengd kyni mínu, og ég held að konur og karlar séu raunverulega ntjög ólík. Ég hef rnikinn áhuga á Taóisma og trúi á tilvíst hinna andstæðu afla í heiminum, Yin og Yang. Á santa liátt er manneskjan samansett úr þessunt tveimur andstæðum, þótt Yin sé oftast ríkara hjá konum og Yang hjá körlurn. Unt leið og jafn- vægið á milli þessara afla raskast, deyr manneskjan. Á sama hátt og mannkynið tortímist, ef þessum öflum er endaniega stíað í sundur í heiminum. 91 r Aj I 1 ■ ■ r y rj o pjjj 3 ' Ifeéi r i \% María við eitt verka sinna, hreyfanlegt tatlborð. Ljósmyndarinn var fljót- ur að stilla upp í drekaafbrigði Sikileyjarvarnarinnar. Ljósni.: eik. Ég held að listaverk kvenna séu yfirleitt tiltinningaríkari og gjöf- ulli, þótt karlmenn hafi gjarnan kallað þau dútl og handavinnu. Aðeins konan getur fætt nýtt líf. Það skýrir allt. Allt sem við gerunr er tengt líkama okkar á einhvern hátt. Og það er engin tilviljun að konur hafa síður áhuga á að vinna með skipuleg, vitsmunaleg og háspekileg form í myndlist en karl- ar. En það þýðir ekki að list okkar sé ómerkilegri, veikari og yfir- borðskenndari", segir María. Sýning hennar verður opin dag- lega frá'kl. 14—18 fram til 24. októ- ber, en á sunnudögum er opið til kl. 22. Á sýningunni er 71 verk af ýmsum gerðunr, auk mynda á silki og nytjahluta. Einnig verður sýnd- ur videoþáttur með viðtali og per- formans eftir hana. — þs erlendar bxkur The Pelican Book of the Renaissance Penguin Books 1982. Höfundurinn er rónraður sagn- fræðingur. Hann er ritstjóri nokk- urra mannkynssagnaverka og harðduglegur við skriftir. Þessa bók unt Endurreisnina skrifaði hann fyrir Horizön. Hún kont svo út hjá Penguin 1964. Hefur hún verið endurprentuð og breytt fjór- um sinnum. Bókin segir af tilkomu og út- breiðslu Endurreisninnar. Óhægt er að tíunda innihald hennar svo nrynd verði á. Plumb er ekki sá eini sem í bókina ritar. Ein- ir sjö frómir listfræðingar eiga stuttar ritgerðir í henni um Michel- angelo. t.d., Lorenzo da Medici. Leonardo og fleiri. í bókinni er fjöldi mynda og er hún nauðsynleg þeim sent ekki eru alfarið með á nótunum um Endurreisnina á It- alíu. The Complete Works of Saki H.H. Monro. Introd. by Noél Cow- ard. H.H. Monro fæddist í Burma 1870. Hann ólst upp á Englandi og hlaut þar menntun sína. Munro ferðaðist víða nteð föður sínum og starfaði í lögregluliði í Burma um eins árs skeið. Ritferilinn hót' hann sem kól- úmnisti, og um þaö leyti séndi hann frá sér sína fyrstu bók, Reginald (1904). Reginald er hryssingslegur náungi og er bókin stuttar anectót- ur at' honum. Seinna kom svo frá Munro, sem þegar var farinn að kalla sig Saki, Reginald in Russia. Þá kontu enn fleiri smásögur og Saki skrifaði skáldsögur og leikrit. Ekki hefur Saki verið hampað aö þessu. Hann var svo óheppinn, segir Noél Covvard, að vera á undan sanrtíð sinni. Hann lést 1916. Hér er á ferðinni þykk og mikil bók. Er hér öllum smásögum hans safnað saman, skáldsögum þremur og leikritunr. Greek Literature An Anthology. Translations from Greek Proseand Poetry. Chosen by Michael Grant. Á tímum videos. soda-stream, heimilissýninga og ótölulegs fjölda at' fjólubláum Ijósum, er vissulega þörf á því. aö mannsafnáður láti svo lítið að-athuga hvað t'orfeðurn- Michelangelo Lconardo ir, þeir sent lögðu grunninn að öll- um þessum óskapnaði, undu við. Heldur hefði Herodotusi brugð- ið, ellegar þá Hómeri. Greek Literature er þýðinga- safn. Þar er að finna kviðuhrafl Hómers, lyrik Sapphoar. leikrita-. búta Sophociesar, kafla úr Histori- um Xenophons og margt margt fleira. Kaflareru XI. Aftast í henni er ártalaskrá, þá er lesendum bent á bækur senr góðar teljast til frekari kynninga. Heintildaskrá og nafna- skrá yfir höfunda og þýðendur. Michael Grant skrifar inngang. Hann er frægður mjög i kynningu bókarinnar og hefur þvtt ógrynni úr grísku og latínu fyrir Penguin forlagiö. Greek Literature kom fyrst út 1973 og er þetta þriðja prentun hennar. 'gMMAXT) Þú kemur með þinn DAIHATSU og keyrir burt á nýjum DAIHATSU CHARADE Verð frá 117.950 kr. með öllu *r þifin blll Mismunur samningsatriði CHARMANT TAFT 4x4 Verð frá 145.700 kr. með öllu t þinn bill Mismunur s amningsatriði Verð frá 208.400 kr. með öllu t j)inn bíll Mismunur samningsatriði DAIHA TSUUMBOÐIÐ, Ármúla 23, - Sími 85870-39179

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.