Þjóðviljinn - 09.10.1982, Blaðsíða 31

Þjóðviljinn - 09.10.1982, Blaðsíða 31
Helgin 9.-10. október 1982 ÞJÓDVILJINN — SIÐA 31 Óvissa um opinberar verðhækkanir: „Ábyrgð stjórnvalda mikíT Könnun Verðlags- stofnunar sýnir að miklar verðhækkanir hafa skollið yfir, ✓ segir Asmundur Stefánsson „Sú könnun sem Verðlagsstofnun hefur nú gert sýnir svo ekki verður um villst að verðhækkanir hafa skollið yfír með miklum hraða að undanförnu. Ef við lítum fram til verðupptöku vegna vísitöluút- reiknings í byrjun nóvember er sý- unt að niðurstöður hennar munu ráðast af því hvaða afstöðu stjórn- völd taka til hækkana á verði opin- berrar þjónustu á næstu vikum.” Þetta sagði Ásmundur Stefáns- son forseti ASÍ í samtali við blaðið í gær í tilefni þeirrar samþykktar sem miðstjórn ASÍ hefur gert um verðhækkanir þar sem stjórnvöld eru hvött til aðhalds I verðhækkun- um á opinberri þjónustu og minnt á að verkalýðshreyfingin hafi áskilið Ásmundur Stefánsson: Miklu skiptir hvaða afstöðu stjórnvöld taka til hækkunarbeiðna opinberra aðila á næstunni. ser allan rétt til uppsagnar samn- inga í kjölfar setningar bráða- birgðalaganna. „Ábyrgð stjórnvalda í þessum efnum hlýtur að vera meiri en nokkru sinni fyrr", sagði Ásrnund- ur, „á sania tíma og þau ætlast til skerðingar á verðbótum almennra launamanna 1. desember n.k.”. í lok september kannaði Verð- lagsstofnun verðhækkanir á nokk- rum liðum vöru og þjónustu frá 1. ágúst. Þar var um að ræða mat- vöru, drykkjarvöru, hreinlæti- svöru. bensín og ýmsa þjónustu. sem samanlagt vega rúmlega fjórð- ungi af heildarupphæð framfærslu- vísitölu. Vegin hækkun þeirra frá 1. ágúst til loka september reyndist vera nærri 19%. í niðurstöðum könnunarinnar segir m.a. að gera megi ráð fyrir að nær allar verð- hækkanir séu komnar fram á verði innlendrar iðnframleiðslu en óvíst sé um innflutta vöru sent breytist eftir þróun gengis. Þá segir að ýms- ir liðir innlendrar þjónustu hafi hækkað minna en meðal hækkun á þeim vörum sem könnunin náði til eða í samræmi við launahækkun 1. september síðstliðin. Þessvegna megi gera ráð fyrir að hækkun framfærsluvísitölu á tímabilinu ág- úst - nóvember verði minni en 18- 19%. Óvíst sé hinsvegar hvaðopin- ber þjónusta rnuni hækka mikið um mánaðarmótin næstu, og það er einmitt sú óvissa sem nriðstjórn ASí beinir spjótum að. - ekh Daggjöld eða bein framlög til sjúkrastofnana? Bein framlög mun betri segir Sigurður Þórðarson, deildarstjóri í fjár- málaráðuneytinu „Ég teldi skynsamlegast að öllum sjúkrastofnunum í landinu yrði út- hlutað beinum framlögum úr ríkis- sjóði og ég andmæli því sem firru lað með því sé verið að svipta þessar istofnanir sjálfræði”, sagði Sigurð- ur Þórðarson deildarstjóri í fjár- málaráðuneytinu þegar Þjóðviljinn innti hann álits á málinu. „Ég hef mjög lengi verið hlynn- tur beinni fjármögnun sjúkrastofn- ana vegna þess einfaldlega að dag- gjaldakerfið er meingallað og þjónar alls ekki tilgangi sínum. 7 fyrsta lagi er það útgjaldahvetjandi því það fylgir ekki sveiflum í rck- fiIL________ Sigurður Þórðarson: Daggjalda- kerfið hefur ekki reynst heppilegt og ég tel að stefna eigi að beinum framlögum til sjúkrastofnana. strinum og tilhneigingin er sú að daggjöldin haldist í hámarki enda þótt tilkostnaðúr lækki. Ég get nefnt sem dæmi að vegna hjúkrun- arfræðingaskorts í Vestmanna- eyjum og á Borgarspítalanum hef- ur þurft að fækka innlögnum en það hefur ekki leitt til lækkunar á heildarupphæð daggjaldanna", sagði Sigurður ennfremur. „I öðru lagi átti daggjaldakerfið að verka í þá átt að innlagningar- dagar sjúklinga yrðu færri. Þetta hefur því míður ekki gerst og það er staðreynd að sjúklingar liggja lengur á daggjaldastofnunum held- ur en á ríkisspítölunum". „Þegar breytingin var gerð á rek- stri ríkisspítalanna 1977 frá dag- gjaldakerfi yfir í föst framlög ríkissjóðs, var stefnt að því að efla innri stjórn sjúkrahúsanna og það h^fur tekist. Rekstur þeirra er betri og það er mun meira eftirlit með öllum rekstri og kostnaðarþáttum. Þetta hefur hins vegar ekki tekist með daggjaldastofnanirnar því eins og rannsókn sem nýlega fór fram leiðir í ljós, fylgja daggjöldin ekki nógu vel kostnaði. Daggjalda- nefnd á í miklum erfiðleikum með að fá nauðsynlegar upplýsingar um raunveruleg rekstrarumsvif til þess að ákveða daggjöld þannig að rekstur verði í jafnvægi", sagði Sig- urður Þórðarson, deildarstjóri í fjármálaráðuneytinu, að lokurn. Ferðakostnaður eða rógur Þjóðviljanum hefur borist eftirfarandi athugasemd frá Ferðaskrif- stofunni Utsýn vegna lesendabréfs, sem birtist í Þjóðviljanum sl. mi- ðvikudag. Vegna lesendabréfs í Þjóðvilj- anum hinn 6. þ.m. „Eru íslenzkir ferðamenn rændir?" óskar Ferðaskrifstofan Útsýn birtingar á eftirfarandi: „Ferðalangur" sá, er skýlir sér bak við nafnleynd í rógskrifum sínum, ber fram slíkar blekkingar að furðu sætir að dagblað skuli birta, án þess að kynna sér nrála- vöxtu. Umræddur „ferðalangur" gerði ekki viðskipti sín við Útsýn, svo vandséð er. hvers vegna hon- um eru viðskipti Útsýnar svo hugleikin. Öllum er væntanlega Ijóst, að raunhæfur verðsaman- burður ferðalaga er oft mjög hæpinn og langsóttur. þar eð um misjöfn fargjöld er að ræða og ólíka gististaði í mismunandi gæðaflokkum óg samkvæmt því misdýrir. Verðlag leiguflugsferða er t.d. mun lægra en áætlunarflugs, en „ferðalangurinn" mun liafa keypt leiguflugsferð á svokölluðum „standby" afslætti frá Kaup- mannahöfn, en farþegar Útsýnar ferðuðust í áætlunarflugi til London og þaðan áfram í áætlun- arflugi til Portúgals. Verð ferðar- innar var kr. 13.800 á mann í 3 vikur með gistingu í fyrsta flokks íbúðum í Portúgal og 2 nóttum til viðbótar á einu af eftirsóttustu hótelum Lundúna og fararstjórn allar leiðina í 23 daga. Verðiö hækkaði um 35% vegna gengis- breytinga, eða kr. 4.830 en hefði átt að hækka um 41% til þess að fullri hækkun vegna gengissigs og gengisfellingar væri mætt. Ekki færu margir íslendingár suður í sólina árlega með því að stóla á að komast á apex-fargjaldi sem gæti svo passað við „standby" af- sláttarferðir frá Kaupmannahöfn eða einhverjum öðrum stað í út- löndum. Portúgalsferð Útsýnar var hin ánægjulegasta, og fullvíst er, að enginn tapaði á henni nema Ferðaskrifstofan Útsýn er inn- heimti um 2.000 minna en sem svaraði útlögðum kostnað. Til frekari santanburðar má geta þess, að fullt fargjald frá Lissa- bon kostar nú kr. 20.754, en 12 - 30 daga fargjald kr. 12.315,00. Eins og sjá má af þessu eru for- sendur þær, er „ferðalangurinn" gefur sér fyrir útreikningi sínum alrangar. Það vekur til umhugs- unar um, undan hvers rifjum slík bréf eru runnin, þegar veizt er að fyrirtæki, sem er leiðandi í lágum fargjöldum á þennan hátt, sem hér er gert. Fyllst ástæða er til að láta viðkomandi sæta ábyrgð samkvæmt lögum fyrir slíka at- lögu. Virðingarfyllst, Ferðaskrifstofan UTSÝN. RIKISSPITALARNIR lausar stödur LANDSPITALINN HJÚKRUNARFRÆÐINGAR óskast nú þeg- ar eöa eftir samkomulagi viö Barnaspítala Hringsins á almennar deildir og á vökudeild í fullt starf eöa hlutastarf, Fastar næturvaktir koma til greina. HJÚKRUNARFRÆÐINGUR óskast á blóö- skilunardeild. Eingöngu dagvinna. HJÚKRUNARFRÆÐINGAR óskast á lyf- lækningadeild 2 og 4. Upplýsingar um ofangreind störf veitir hjúkr- unarforstjóri Landspítalans í síma 29000. MEINATÆKNIR óskast á rannsóknadeild Landspítalans. Upplýsingar veitir deildarmeinatæknir blóð- meinafræöideildar í síma 29000. KLEPPSSPÍTALI HJÚKRUNARFRAMKVÆMDASTJÓRI óskast til afleysinga við Kleppsspítala. Umsóknir er greini nám og fyrri störf sendist stjórnarnefnd ríkisspítalannafyrir 10. nóvem- ber n.k. Upplýsingar veitir hjúkrunarforstjóri í síma 38160. FÉLAGSRÁÐGJAFI óskast viö félagsráð- gjafadeild Kleppsspítalans. Umsóknir er greini menntun og fyrri störf sendist stjórnar- nefnd ríkisspítalanna fyrir 10. nóvember n.k. Uppýsingar veitir yfirfélagsráðgjafi í síma 29000 (631)' SJÚKRALIÐAR óskast viö ýmsar deildir Kleppsspítalans. Upplýsingar veitir hjúkrunarforstjóri í síma 38160. STARFSMAÐUR óskast á deild 2 og á deild 13. Upplýsingar veitir hjúkrunarforstjóri í síma 38160. Reykjavík, 10. október 1982, RÍKISSPÍT ALARNIR Innilegar þakkir færum við öllum þeim er sýndu okkur samúð og vinarhug við andlát og útför eiginnjanns mins, föður, tengdaföður og afa, Engilberts Óskarssonar fyrrverandi bílstjóra. Sigríður Helgadóttir Ingibjörg Engilbertsdóttir Gísli Krogh Pétursson Bryndís Krogh Gísladóttir Maðurinn minn, faðir, tengdafaðir og afi Stefán lllugason Hjaltalín Stigahlíð 14 veröur jarðsunginn frá Háteigskirkju mánudaginn 11. októ- ber kl. 13.30. Marsibil Bernharðsdóttir börn, tengdabörn og barnabörn. Eiginkona mín, móðir, tengdamóðir og amma, María Bára Frímannsdóttir verður jarðsungin frá Ytri-Njarðvíkurkirkju laugardaginn 9. okt. kl. 14.00. Alfred Georg Alfredsson börn, tengdabörn og barnabörn

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.