Þjóðviljinn - 09.10.1982, Side 15
Helgin 9.-10. október 1982 ÞJÓÐVILJINN — SIDA 1S
„Innan tveggja ára
hafa verið boðaðar
beinar sendingar
frá gervihnöttum
á allt að 40 rásum
beint á mótttöku-
disk á hverju húsi.
Þeir munu leysa
kapalsjónvarp
af hólmi.
veseni að útvarpa um allt land með
dýru dreifikerfi. Það er einfaldast
að selja auglýsingar í litlum stö-
ðvum í Reykjavík og spila plötur.
Eitthvað sveitafólk í afdölum þar
sem þarf að byggja endurvarpsstöð
til þess að það nái útvarpssendingu
getur bara átt sig.
Reynslan frá
Bandaríkjunum
Ég talaði áðan urn nokkur atriði
sem menn hafa nefnt ríkisútvarp-
inu til hnjóðs, úppbyggjandi efni
alls konar, kvséðalestur ög leikrit.
Þessar stöðvar mundu trúleg forð-
ast slíkt efni eins og heitan eldinn.
Hér í Bandaríkjunum var ýms-
um ákvæðum um skylduútvarps-
stöðvar til þess að flytja efni er var-
ðaði heill almennings aflétt með til-
komu nýju ríkisstjórnarinnar. Það
voru varla liðnir nema nokkrir dag-
ar þegar allt slíkt efni hafði verið
þurrkað út af dagskrá útvarpsstöð-
va hér og menn spila plötur og
þylja auglýsingar í síbylju.
Reyndur blaðamaður hér kvað
upp þann úrskurð að ef Banda-
ríkjamenn ættu að treysta einvörð-
ungu á þær 8500 útvarpsstöðvar
sem hér eru til upplýsingar væru
þeir illa á vegi staddir.
Og fyrst við erum að tala um
auglýsingar þá er rétt að víkja
aðeins að því hvernig menn haldi
að útvarpsstöðvar þessar yrðu
reknar. Auðvitað með auglýsing-
um. Því meiri auglýsingar því meiri
tekjur. Við þekkjum ekki sem bet-
ur fer auglýsingaútvarp eins og það
er rekið t.d. í Bandaríkjunum.
Sama gildir um sjónvarp þar sem
auglýsingar um hundamat dynja á
áhorfendum, jafnvel í frétta-
tímum.
Dagblöðin og
auglýsingarnar
Og eitt annað sem menn hafa
ekki gætt að. Við stærum okkur af
því að á íslandi séu gefin út 5 dag-
blöð og hafsjór af öðrum viku- og
tímaritum. Höfum í huga að mark-
aðurinn er ekki nema 230 þúsund
manns. Ég þykist vita að ríkisút-
varpið hafi meðvitað forðast að
lengja auglýsingatíma sína og forð-
ast þannig óþarfa samkeppni við
dagblöðin á auglýsingamarkaðn-
um. Hagur þeirra er ekki það stór-
kostlegur að allir virðast sammála
um að nauðsynlegt sé að sem flest-
ar skoðanir heyrist. Það er svo ann-
að mál og tengist afskiptum stjórn-
valda af ríkisútvarpinu að verð á
auglýsingatíma þess er nokkru
lægra en sambærilegt verð á auglý-
singum í blöðum. Það hefur heyrst
nóg í eigendum blaða út af þessu.
En hvað skyldi verða upp á tening-
num ef í Reykjavík væru allt í einu
komnar 3 útarpsstöðvar, allar selj-
andi auglýsingar? Blöðin eru lík^
vinnustaður fjölda manna. Fari
þau á hausinn hefur enn dregið úr
fjölbreytni atvinnulífs á íslandi og
víst er að útvarpsstöðvar af því tagi
sem heita má víst að menn vilji
setja upp verða ekki mannfrekar.
Öll lög
þverbrotin
Allt málið um kapalsjónvarp á
íslandi hefur verið kynnt fólki á
snarvitlausum forsendum. Þetta
virðist ekki kosta nokkurn skapað-
an hlut. Fólk í Reykjavík og í þétt-
býliskjörnum öðrum þar sem kap-
alsjónvarpi hefur verið komið á fær
sína bíómyndir og teiknimyndir
fyrir slikk gegn vægu mánaðar-
gjaldi. Engan skal undra. Það er
einungis vegna þess að kapalsjón-
varpsmenn Irafa þverbrotið öll lög
og reglur varðandi greiðslur fyrir
efni sem flutt hefur v.erið og því
ekki innheimt rétt gjöld, langt frá
því.
Fyrirtækin hafa ekki framleitt að
neinu gagni eigið 'efni og svo ekki
komið á fót dreifikerfi um allt land
eins og ríkisútvarpið er skvldugt til
þess að gera og er grundvallaratriði
laga um útvarp og sjónvarp í
landinu, að allir landsmenn njóti
efnisins. Það er þar sem kostnaður-
inn liggur. Kapalsjónvarpsmenn
hafa lagt áherslu á að koma upp
kerfum þar sem það er tiltölulega
auðvelt og ég er ekki farinn að sjá
að þeir mundu koma á landskerfi.
Raunar er ég ekki farinn að sjá að
þeir mundu halda þessum rekstri
áfram ef þeir yrðu settir við sama
borð og ríkisútvarpið hvað varðar
höfundalaun og annan raunveru-
legan kostnað.
Það er trúa mín að þegar á þessu
máli verður tekið, muni kapalsjón-
varpsmenn einfaldlega leggja upp
laupana enda eru þeir ekki í þessu
til þessað tapa fé. Stjórnmálamenn
hafa sumir talað um þá miklu
möguleika senr kapalsjónvarp hafi
í kennslumálum. Það er rétt. Hlut-
verk kapalsjónvarpsins getur
auðvitað verið mikið og áhrifaríkt
sé það notað á réttan hátt. En við
þurfum ekki annað en að líta á það
efni sem sýnt er í ólöglegu kapal-
sjónvarpi nú þegar til þess að sjá
hvert hugurinn stefnir.
Kapalsjónvarpsmenn
hafa þverbrotið öll
lög og reglur fyrir
efni sem flutt hefur
verið og þvi ekki
innheimt rétt gjöld,
langt frá því. ”
íslensku ríkisútvarpi hefur orðið
margt að óhamingju í gegnum tíð-
ina en nú vegur hvað þyngst stjórn-
málamaður í embætti menntamála-
ráðherra sem hefur gjörsamlega
brugðist hlutverki sínu. Það er í
raun makalaust að ráðherra skuli
hafa látið þetta mál allt komast
svona langt og leyft mönnum
óhindrað að gefa lögunr landsins
langt nef.
Ný tœkni er
að leysa kapal-
sjónvarp afhólmi
Það er svo annað mál að senni-
lega erum við að rífast hér um
hluti, sem svo oft áður, sem eru að
verða úreltir. Margt bendir til þess,
t.d. hér í Bandaríkjunum, að út-
breiðsla'kapalsjónvarps verði ekki
víðtækari en orðið er eða um 30%
heimila. Ný tækni er að leysa kap-
alsjónvarpið af hólmi.
Innan tveggja ára hafa verið
boðaðar beinar sendingar frá
gervihnöttum á allt að 40 rásum
beinl á móttökudisk á hverju húsi.
Framfarir á sviði fjölmiðlunar hafa
orðið mestar í smíði gervihnatta.
Styrkleiki sendinga frá þeim hefur
verið stóraukinn og nú er verið að
smíða gervihnetti sem, eins og áður
sagði, anna um 40 rásum. Með ný-
rri tækni munu þeir senda frá sér
myndir í því sem kallað hefur verið
„high versolution", myndgæði sem
eru sambærileg kvikmynd á tjaldi,
strik og punktar hverfa af skermin-
um og þeir senda út í stereo.
Innan fárra mánaða koma á
markað hér litlar jarðstöðvar eða
diskar sem taka munu við sending-
um þessuni og koma í stað venju-
legu loftnetsgreiðslunnar. Þessir
diskar eru ekki lengur 3 eða 4 metr-
ar í þvermál heldur 40 sentimetrar
og munu kosta um 300 dollara. En
það væri svo sem eftir öllu öðru að
við færum að grafa okkur niður í
kapalkerfi og það m.a.s. í eigu ein-
staklinga.
Höfum í huga að það sem er að
gerast á íslandi í kapalsjónvarpi er
rétt aðeins toppurinn af ísjakan-
um. Þetta er ekkert gamanmál. Og
það er auðvitað Ijóst að við íslend-
ingar munum aldrei standa á móti
eðlilegri þróun í tækniefnum.
Spurningin er aðeins hvernig við
ætlum að aðlaga okkur þessari nýju
þróun. Hvort við ætlum að láta
skammtímagróða nokkurra ein-
staklinga og ráðaleysi annarra ráða
ferðinni eða hvort við berum hag
þjóðarinnar allrar fyrir brjósti.
Atlaga
að frjálsum
skoðanaskiptum
Það er einnig ljóst að allt talið
um frjálsa útvarpið og sjónvarpið
er einhver mesta atlaga sem gerð
hefur verið að frjálsum skoðana-
skiptum í landinu í langan tíma.
Þetta kann að virðast mótsagna-
kennt en við skulum líta nánar á
málið. Það kostar auðvitað stórfé
að setja á laggirnar útvarps- eða
sjónvarpsstöð. Eins og ég sagði
áðan hefur í raun ekki reynt á það
hvort menn ætli í alvöru að reka
slíkar stöðvar verði þeir skyldaðir
til að sæta sömu reglum og ríkisút-
varpið hvað varðar allar greiðslur
samfara þessari starfsemi og niaður
tali nú ekki um skyldurnar.
Hverjir, ef einhverjir, mundu þá
vilja setja á laggirnar slíkar stöðvar
og hverjir hefðu efni á því? Við
höfum þegar nokkuð fyrir okkur í
því. Ég þykist vita að ritstjórinn
sem ég hef nefnt og meðeigendur
hans í næststærsta dagblaði lands-
ins hafi bæði vilja til og efni á að
setja upp slíkar stöðvar. Ég þykist
líka vita að eigendur stærsta dag-
blaðsins í landinu hefðu efni á að
gera slíkt hið sama. Ég vil því nefna
eitt dæmi um þróun í kapalsjón-
varpsmálum sem ég efast um að
menn liafi rætt.
Hér í Bandaríkjunum, nánar til-
tekið í Columbus í Ohio hefur sem
víðar verið kornið á fót kapalsjón-
varpskerfi.
Þetta er nýjasta og tæknilegasta
kerfið til þessa, búið þeim hæfi-
leikum að þú getur talað við sjón-
varpstækið og látið þína skoðun í
ljós. Þetta gerist á þann hátt að
þegar stjórnandi þátta biður um
skoðun á einhverju ákveðnu máli
gefur hann sér þrjá möguleika:
Ertu sammála, á móti eða siturðu
hjá? Þú stillir á takka líkt oggerist í
fjarstýrðum sjónvarpsstillum eftir
því hvaða skoðun þú hefur á mál-
inu og allt er það tekið 'saman í
tölvu sjónvarpsfyrirtækisins. Það
kemur að vísu ekki fram hver ýtti á
takkann, hvað hann var gamall eða
þar fram eftir götunum. Tölunum
er.samt safnað saman og þær birt-
ast á skerminum og sjá: Hér er
niðurstaðan í skyndiskoðanakönn-
un.
í Columbus búa nokkur hundr-
uð þúsund manns en ég minni á að
á íslandi búa aðeins 230 þúsund
manns. Hafa memv hugsað það til
fulls hver yrðu áhrif einkaaðila sem
ættu kapalsjónvarpskerfi á íslandi
með öllum þess möguleikum? Ég
efast um að eigendur Morgun-
blaðsins og Dagblaðsins Vísis geti
talist andstæðingar í stjórnmálum.
Til samans gefa þessir menn út 75
þúsund eintök á dag. Ég undir-
strika að það er ekkert rangt við
það en ég óttast mjög áhrif á
skoðanaskipti í landinu færi svo að
stórtækir fjármálamenn hefðu yfir-
höndina í allri fjölmiðlun.
Blöð svonefndra mið- og vinstri
flokka berast í bökkum og vissu-
lega er það af því að þau hafa færri
kaupendur. En ég vil biðja menn
að hugsa þetta vandlega áður en
yfirburðir annarra skoðana vegna
yfirburða tækni og í krafti fjár-
magns þögguðu niður í öðrum
sjónarmiðum í þjóðfélagsumræðu.
Um hvað er
ríkisútvarpið
sakað?
Mig vantar alveg inn í þessa um-
ræðu skilgreiningu áeinu atriöi: Af
hverju eigum við að afnema sam-
eiginlegan rétt þjóðarinnar til út-
varps og sjónvarps? Sjálfur hlýt ég
að líta á niðurstöðu myndbanda-
nefndár sem ég talaði um áðan og
alla skipan nýrrar nefndar, sem á
að endurskoða útvarpslög, líklega
með það að leiðarljósi að afnema
þennan rétt, sem einhverja gróf-
ustu móðgun sem dengt hefur verið
í andlit starfsfólks ríkisútvarpsins í
mörg ár.
Hvað er verið að saka ríkisút-
varpið um eiginlega? Það kann að
vera að stjórnmálamenn telji sig á
einhvern hátt ógnað af ríkisútvarp-
inu. Það er gott. Til þess er það. Ég
fullyrði að ef stjórnmálamönnum
tekst með þessum hætti að vega að
ríkisútvarpinu muni þeir endan-
lega kæfa eina vettvang ótlokks-
bundinnar gagnrýni á störf þeirra.
Ég fullyrði einnig að stjórnmála-
menn með setu sinni í útvarpsráði
hafi orðið hélsta hvöt þeirrar tor-
tryggni sem tekist hefur að magna
upp í garð stofnunarinnar.
Það væri mun heilladrýgra fyrir
þjóðina og ríkisútvarpið ef í út-
varpsráði sætu íulltrúar launþega-
samtaka, atvinnurekenda, ríkis-
starfsmanna, fulltrúar lista oc
ntenningar í stað fulltrúa frá fá-
mennum stjórnmálafélögum í
Reykjavík.
Éins og ég sagði áðan nýtur ríkis-
útvarpið vináttu þjóðarinnar. Mér
er til efs að aðrar ríkisstofnanir séu
fólki hugleiknari og víst er að fólk
myndi með glöðu geði greiða það
sem til þarf til þess að ríkisútvarpið
fengi að gegna því hlutverki sem
því hefur verið falið í lögum.
Ríkisútvarpið á
ekki að sitja hjá
Auðvitað eigum við ekki aö fá til
landsins 362 sænskar kvikmyndir.
Auðvitað á ríkisútvarpið að svara
gagnrýni. Auðvitað á sjónvarpið
ekki að setja öll sín egg í eina körfu
og framleiða stórmyndir á borð við
Snorra Sturluson. Við erum jú eng-
ir Hollywood-stórkarlar. Auðvitað
eigum viö að vera búnir að opna
aðra útvarpsrás fyrir löngu og flytja
þar léttara et'ni. Auðvitað munar
okkur ekkert um a sýna eina kvik-
mynd á hverju kvöldi fyrir þá sem
ekki vilja fara að sofa. Én allt kost-
ar þetta peninga. Og á meðan fólk
áttar sig ekki á því hvernig stjórn-
málamenn hafa riðið net sín urn
stofnunina þá er ekki von til þess
að ríkisútvarpinu verði gert kleift
að gegna hlutverki sínu.
Það sem mér gremst helst er að
nú þegar tæknin hefur stóraukist,
gert hlutina auðveldari og mögu-
leikana stórkostlegri, þá eigi að
hleypa inn einkaaðilum til þess að
hirða allan ávöxt af 50 ára starfi
ríkisútvarpsins. Ríkisútvarpið hef-
ur verið í fjársvelti undanfarin ár af
mörgum ástæðum eins og ég hef
nefnt. En þáð hefur líka haldið að
sér höndum á ýmsum sviðum
vegna þess að markaðurinn er lítill.
Núna þegar fjármálamenn eru að
færa sig upp á skaftið sé ég enga
ástæðu til þess að ríkisútvarpið
standi hjá eins og auli.
Ríkisútvarpið getur auðvitað
sett upp kapalsjónvarp með öllum
nýjustu tæknimöguleikum. Ég hef
trú á því að ýmsar stórverslanir og
pöntunarfélög mundu vilja leigja
sér rás og bjóða upp á pöntun á
vörurn í gegnum sjónvarp. Við höf-
um málaskóla og alls kyns nám-
skeið sem þar ættu einnig heima.
Ríkisútvarpið getur sent út í gegn-
um lokaða rás tvær til þrjár kvik-
myndir eða tónleika áhverri nóttu.
Þú leigir síðarr lítið tæki sem opnar
þér þessa rás og þú ræður því hvort
þú horfir á myndina eða stillir
myndsegulbandið sem tæki þá efn-
ið up meðan þú sefur. Þar með ge-
tum við kvatt myndbandaleigur-
nar. Og þetta kerfi næði um landið
allt. Ríkisútvarpið getur sent út ví-
Framhald af 2D. si6u.