Þjóðviljinn - 09.10.1982, Síða 18
hvihmyndir
Ingibjörg
Haraldsdóttir
Jurgcn Arndt og Eva Mattes í Celeste, fyrstu mynd vetrarins í Fjalakettinum.
Fjalakötturinn,
vin í eyðimörkinni
Á þessum voðalegu vídeó-tímum
þykir sumum sérvitringum gott að
geta farið í bíó og séð góðar
kvikmyndir. Bíóstjórarnir í
Reykjavík hafa víst litla trú á
þessum sérvitringum, a.m.k.
virðast fáir þeirra bregðast við
vídeó-vandanum (þ.e. minnkandi
aðsókn að kvikmyndahúsunum)
með því að bjóða upp á eitthvað
annað en samskonar rusl og
vídeóleigurnar, sem eru reyndar
sumar hverjar á vegum
bíóstjóranna, og má það heita
undarlegsjálfstortímingarstefna.
Og minnir helst á þá stefnu sem
ríkir í sumum iðngreinum hér á
landi: að bregðast við erlendri
samkeppni með því að leggja niður
innlenda framleiðslu og taka þess í
staðað flytjainn
samkcppnisframleiðsluna. Ef þú
getur ekki sigrað andstæðinginn
skaltu ganga í lið með honum,
einsog kerlingin sagði.
En hvaö um þaö, viö förum þá
bara í Fjalaköttinn. Vetrarstarf-
semin hófst þar nú um mánaða-
mótin og er ekki aö sjá að þeii
fjalakettlingar láti neinn bilbug á
sér finna. Nýtt fyrirkomulag hefur
veriö tekiö upp og sýnist mér það
vera aðgengilegra og einfaldara en
áöur. Nú geta allir keypt sér félags-
skírteini, sem kosta 65 krónur og
fást í Tjarnarbíói, Bókabúö Máls
og menningar, Bókabúö Sigfúsar
Eymundssonar, Bóksölu stúdenta,
Bókabúö Braga við Hlemm, Fálk-
anum v/Laugaveg og Hljómplötu-
versluninni Stuð. Síðan kaupa
menn miða sem kostar 45 krónur
og gildir á fimm sýningar. Það er
undir hverjum og einum komiö
hvaöa myndir hann sér, en þegar
hann er búinn aö sjá fimm stykki
endurnýjar hann miðann, borgar
45 krónur fyrir að sjá aðrar fimm
myndir og þannig koll af kolli.
Ódýrari bíóferöir er ekki að hafa í
henni Reykjavík um þessar mund-
ir: að stofnkostnaöinum (félags-
skírteininu) frádregnum kostar
bíóferöin níu krónur.
Fram til 1. febrúar 1983 veröa
sýndar fimmtán myndir, auk nokk-
urra sem ekki hafa verið endanlega
ákveönar en verða auglýstar sér-
staklega. Hver mynd verður sýnd
allt aö tíu sinnum, og er þaö önnur
kærkomin nýjung í starfseminni.
Ný mynd veröur frumsýnd í hverri
viku og síðan er hún sýnd í hálfan
mánuö, þannig aö alltaf eru tvær
myndir í gangi. Sýningarnar veröa
auglýstar á bíósíðum dagblað-
anna — enn ein nýjungin. Auk
þess er hægt að fá sýningarskrá
fyrir allt misserið í Tjarnarbíói.
Semsagt, gott. En hvað fáum við
þá aö sjá í Tjarnarbíói í vetur?
Ráðskona segir
frá
Fyrsta mynd vetrarins er þýsk,
gerð í fyrra og heitir Celestc. Sýn-
ingar á henni hófust 2. október og
lýkur þann 15. Höfundur hennar er
Percy Adlon, og er þetta fyrsta
leikna myndin sem hann stjórnar,
en áður hefur hann gert heimildar-
myndir fyrir þýska sjónvarpið. Cel-
este er byggð á bókinni Monsieur
Proust eftir Celeste Albaret,
franska konu sem tók að sér að
annast rithöfundinn Marcel Proust
í veikindum hans síðustu árin sem
hann lifði, 1918—22. Celeste og
Proust eru leikin af þeim Evu Matt-
es og Jurgen Arndt, sem hlotið
hafa einróma lof fyrir frammistöðu
sína. Myndin hefur reyndar fengið
frábæra dóma þar sem hún hefur
verið sýnd, m.a. á kvikmyndahá-
tíðinni í London, en þar er jafnan
sýndur rjóminn úr kvikmynda-
framleiðsíu heimsins á hverju ári.
Þessi mynd er fengur öllum sem
áhuga hafa á kvikmyndum og bók-
menntum. Marcel Proust var sér-
kennilegur og merkur rithöfundur
og hér er hann sýndur í nokkuð
óvenjulegu ljósi, frá sjónarhóli
ráðskonu hans.
Nicholas Ray
A fimmtudaginn hefjast svo sýn-
ingar á bandarísku myndinni Hinir
lostafullu (The Lusty Men), sem
Nicholas Ray stjórnaði árið 1952. I
aðalhlutverkum eru Robert Mitc-
hum og Susan Hayward.
Fjalakötturinn sýnir þessa mynd
til að minnast Nicholas Ray, sem
iést fyrir ekki alllöngu. Hann var
senniiega þekktastur fvrir myndina
Rebel Without a Cause (1955), þar
sem James Dean lék aðalhlutverk-
ið. Ray var hæfileikamaður, sem
átti ekki upp á pallborðið hjá þeirn
sem með völdin fóru í Hollywood,
og svo fór að hann var útilokaður
þaðan eftir 15 ára feril. Á síðustu
árum hafa margir fengið áhuga á
gömlu myndunum hans og ekki
síður persónunni Nicholas Ray.
Pýski kvikmyndastjórinn Wim
Wenders hefur gengið lengst í þess-
um áhuga og gerði kvikmynd um líf
Ray, sem sýnd var hér á síðustu
kvikmyndahátíð (Nick's Movie).
Hinir lostafullu segir frá ævintýr-
um ródeo-kappa í villta vestrinu,
en svo eru þeir menn nefndir sent
skapa s5er lífsfyllingu með því að
ríða ótemjum og snara beljur, og er
sá mestur kappinn sem næst kemst
því að týna lífinu við þessa iðju án
þess þó að týna því alveg.
Thomas og
Kafka
Under Milkwood lteitir næsta
mynd sem sýnd verður 21. októ-
ber. til 4. nóvember. Þetta er tíu
ára bresk mynd, gerð eftir sam-
nefndu frægu leikriti Dylan Thom-
as. Leikstjóri er Andrew Sinclair
og meðal ieikenda eru Richard
Burton, Elizabeth Taylor og Peter
O'Toole. Hér er á ferðinni önnur
mynd sem ætti að heilla bók-
menntaáhugamenn engu síður en
kvikmyndafríkin. Ef marka má
sýningarskrá’ Fjalakattarins eru
„orð og myndmál santofin á hinn
fullkomnasta hátt“ í Under Milk-
wood.
Og áfram er haldið með bók-
menntirnar: næst er það sjálfur
Kafka og saga hans Réttarhöldin.
Orson Welles gerði myndina í
Frakklandi 1962 og leikur sjálfur
stórt hlutverk í henni, en aðaíhlut-
verkið, Joseph K. leikur Anthony
Perkins. Tvær frægar leikkonur
koma einnig við sögu, þær Romy
Schneider og Jeanne Moreau. Um
Kafka og verk hans þarf varla að
fjölyrða, og Orson Welles var á-
reiðanlega rétti maðurinn til að
kvikmynda Réttarhöldin, því varla
er hægt að hugsa sér betri express-
jónista í kvikmyndastjórastétt en
höfund Citizen Kane. í Réttar-
höldunum er expressjónisminn í
öndvegi einsog vera ber í Kafka-
mynd.
Fleira gott
Gríski ráðherrann Melina Merc-
ouri leikur aðalhlutverkið í næstu
mynd, Stellu, eftir Michael Cacoy-
annis, Cacoyannis er einna þekkt-
astur grískra kvikmyndastjóra, eða
hver man ekki eftir myndinni um
Grikkjann Zorba? Stella er frá ár-
inu 1956, önnur mynd Cacoyannis.
Þetta er kraftmikii mynd um
ástrfðufulla konu sem vill umfram
allt vera frjáls.
í nóvember verða sýndar tvær
myndir um Reggaemenninguna frá
Jamaica. Önnur þeirra, Roots,
Rock, Reggae, er gerð á Jamaica
1978 og gefur innsýn í þann heim
sem reggae-tónlistin er sprottin úr.
Þar er m.a. fjallað um Rastafari-
trúarbrögðin, sem upprunnin eru í
fátækrahverfum Kingston. Hin
myndin, Babylon, er gerð í Bret-
landi 1981 og segir frá lífi Jamaica-
búa í London.
Fjórar nýlegar myndir frá Pól-
landi eru á dagskrá þessa misseris:
Samningurinn eftir Krystof Zari-
ussi, Perlur í sama talnabandi eftir
Kazimerz Kutz, Amatör eftir
Krysztof Kieslowski og Dreifbýlis-
leikarar eftir Agnieszka Holland.
Allt eru þetta myndir sem vakið
hafa athygli og eru einkar áhuga-
verðar, einkum með tilliti til þess
sem hefur verið að gerast í Póllandi
uppá síðkastið, og enn er ekki séð
fyrir endann á.
í desember verður sýnd aldeilis
frábær mynd frá Sviss: Messidor
eftir Alain Tanner, gerð 1979 og
segir frá sambandi tveggja ungra
stúlkna sem hittast á þjóðveginum
og lenda í ævintýrum sem enda
með ósköpum. Söguþráðinn notar
Tanner til að segja okkur dæmi-
sögu um einstaklinginn í neyslu-
samfélaginu og myndin verður því
miklu meira en frásögn af þessunt
tveimur stelpum og ferðalagi
þeirra.
Síðasta myndin á þessu fyrra
misseri heitir Rokksvindlið mikla
og er bresk, gerð 1979 af Julien
Temple. Þar segir frá upphafsárum
„pönksins" og aðalhetjurnar eru
Johnny Rotten og Sid Vicious og
gengi þeirra, Sex Pistols.
Hér hefur verið farið fljótt yfir
sögu, en þessum myndum verða
væntanlega gerð betri skil þótt
síðar verði. Einsog menn sjá af
þessari upptalningu ættu flestir að
finna eitthvað við sitt hæfi í Tjarn-
arbíói í vetur, og er þá ekki annað
eftir en að óska Fjalakettinum
gæfu og gengis og langra lífdaga.
A
Félagsstarf
aldraðra
Kópavogi
Vakin er athygli á bókbandsnámskeiði sem
verður í haust á fimmtudögum kl. 13.00-
16.00 í Fannborg 2 og kostar kr. 400.
Upplýsingar í síma 43400 eða 41570.
Tómstundaráó
Heimilisiðnaðarskólinn
Laufásvegur 2 — sími 17800
Innritun er hafin á JÓLAFÖNDURNÁM-
SKEIÐIN, sem hefjast 20. okt.
Önnur námskeið í október og nóvember:
Knipl
Fótvefnaður
Vefnað|r ifyrir
TuskutíFÚður
Munsturgerð
Spjaldv@^iaður
Tóvinná
börn
9. okt.
11. okt.
19. okt.
19. okt.
25.okt.
1. nóv.
9. nóv.
Auk þess minnum við á námskeið í munstur-
gerð og bótasaum, ætluð fólki utan af landi
(dagleg kennsla)
Innritun ferfram í HEIMILISIÐNAÐARSKÓL-
ANUM Laufásvegi 2, sími 17800.
á erindi til allra
Nýtt tímarit homma og lesbía.
Fæst í bókaverslunum og hjá félaginu.
Samtökin ’78, Félag lesbía og homma á íslandi,
pósthólf 4166, 124 Reykjavík, sími 28539, síma-
tími þriöjudaga kl. 18—20 og laugardaga kl. 14—
16. Skrifstofan Skólavöröustíg 12 opin fimmtu-
daga kl. 17-20.
18 StÐA — ÞJÓÐVILJINN Helgin 9.-10. október 1982