Þjóðviljinn - 09.10.1982, Qupperneq 32
Helgin 9.-10. október 1982
hafn
vikunnar
Friðrík
r
Olafsson
Friðrik Olaf'sson stór-
nieistari og forseti FIDE hefur
verið í sviðsljósinu þessa vik-
una. Ekki cinasta vegna hins
leynilcga einvígis við Boris
Spasskí fyrrum heimsmeist-
ara, heldur ekki síður fyrir
það, að nú cr kosningabarátta
hans komin á fullt. Undir lok
mánaðarins heldur hann til
Luzern í Sviss, en þar er vett-
vangur forsetakjörsins og
Olympíumótsins í skák. Fjög-
ur ár eru liðin frá'því að Frið-
rik var kjörinn forseti eftir
einhverja tvísýnustu kosn-
ingabaráttu sem alþjóðasam-
tök skáklistarinar þckkja. Þá
munaði í raun ekki nema einu
atkvæði að Friðrik tapaði
kosningunum. Eftir fyrstu
umferð kosninganna hafði
hann hlotið 30 atkvæði, Kafa-
el Mendez31 atkvæði og Júgó-
slavinn Gligoric 30.
Margt bendir til þess að
styrkleikahlutföllin verði
svipuð nú. Frambjóðendurnir
eru þrír, sem fyrr eru Júgósla-
var með sinn mann, Kazic, og
Filippseyingar sem hafa haft
sig mikið í frammi í skáklist-
inni eiga fulltrúa, bragðaref-
inn Florencio Campomanes.
Til marks um það hversu
mikla áherslu Filippseyingar
leggja á að vinna þessar kosn-
ingar þá hafa um 60 manns
unnið dag og nótt undanfgrna
mánuði að kosningu Cam-
pomanes. Þar er ekkert til
sparað, fjárframlögin koma
beinustu leið frá forsetanum
og vini Campomanes, Marcos
forseta.
Islendingar mættu gjarnan
spyrja sig með hvaða hætti
þeir geta lagt baráttu Friðriks
lið. Næstum því einn síns liðs
hefur hann unnið að framboði
sínu, fór fyrir stuttu í kynnis-
ferð til um 20 landa og hefur
staðið undir dýrri kynninga-
starfsemi. Margháttaður
kostnaður fylgir þessari bar-
áttu, en kassinn er tómur.
Hann hefur í samvinnu við
Skáksamband Islands höfðað
til landsmanna með því að
senda styrktarbeiðni á hvert
heimili í landinu. Þar er
mönnum gefið frjálst að ákve-
ða peningaupphæð til styrktar
framboðinu, en sú upphæð
ætti að standa í nokkurn-
veginn svipuðu hlutfalli við
þann hlýhug sem menn bera
til Friðriks og skáklistarinnar í
landinu.
Um það gagn sem Friðrík
hefur unnið skáklistinni og ís-
lenskri menningu almennt
þarf ekki að fara mörgurn orð-
um. Það atriði ættu menn að
hugleiða þegar gíróseðillinn
er athugaður nánar.
- hól.
Aðalsími Þjóðviljans er 81333 kl. 9-20 mánudaga til föstudags. Utan þess tíma er
hægt að ná í blaðamenn óg aðra starfsmenn blaðsins í þessum símum: Ristjórn
81382, 81482, og 81527, umbrot 81285, ljósmyndir 81257. Laugardaga kl. 9-12 er
hægt aðnáí afgreiðslu blaðsins ísíma 81663. Prentsmiðjan Prent hefursíma 81348og
eru blaðamenn þar að auki á vakt öll kvöld.
Alþýðubandalagið á Akureyri:
Ráðstefna um
flokkana og
Vetrarstarf Alþýðubandalagsins
á Akureyri er nú komið á fullan
skrið og var gengið frá starfsáætlun
til áramóta á félagsfundi 22. sept-
ember s.l. Soffía Guðmundsdóttir
er formaður félagsins og leitaði
Þjóðviljinn til hennar eftir fréttum
af starfinu.
„Auk fastra liða eins og félags-
funda og bæjarmálaráðsfunda
vérða einnig opin hús og kvöldvök-
ur í Lárusarhúsi," sagði Soffía.
„Stjórn félagsins var kjörin á aðal-
fundi 10. júní s.l og hinn 24. júní
var haldin Jónsmessuvaka sem var
mjög vel sótt. í haust hafa tveir
félagsfundir verið haldnir, sá fyr’ri
30. ágúst um efnahagstillögur sem
þá voru í brennidepli og komu
þingmennirnir Ólafur Ragnar
Grímsson og Stefán Jónsson á
hann en þeir héldu vinnustaða-
fundi hér um svipað leyti. Á síðari
fundinum 22. september var síðan
gengið frá starfsáætlun vetrarins og
m.a. ákveðið að efna til ráðstefnu
30.'og 31. október n^.
Efni ráðstefnunnar er þríþætt:
Stjórnmálaflokkarnir staða þeirra
og starfshættir. - Afstaða Alþýðu-
bandalagsins til kvennahreyfinga
og annarra félagslegra hreyfinga og
- Jafnréttisbarátta, kvenna-
hreyfingar - markmið og leiðir.
Framsögumenn munu fjalla um
hvert mál fyrir sig, starfað verður í
hópum, og loks almennar umræð-
ur. Ráðstefnan er ætluð
Alþýðubandalagsmönnum um
land allt og við vonumst eftir þátt-
takendum ekki aðeins héðan af
Akureyri og nágrenni heldur víðar
að.“ sagði Soffía.
- Hver eru tildrög þess að þið
ákveðið að fjalla um einmitt þessi
efni?
„Við teljum tímabært að ræða
stöðu stjórnmálaflokkanna og
tengsl þeirra við ýmsar hreyfingar í
þjóðfélaginu. Og það er ekki óeðli-
legt að ræða þessa hluti í ljósi kosn-
inganna í vor þar sem til kom nýtt
afl til hliðar við flokkana. hvað svo
sem úr því verður."
- Hvernig er afstaða til félags-
starfs hjá ykkur?
„Hún er mjög góð. Við höfum
Lárusarhús, sem Alþýðubandalag-
ið fékk að gjöf frá Lárusi Bjöms
syni fyrir nokkrum árum. Við höf-
um lagfært það nokkuð og þó salur-
inn sé fulllítill þá rúmar hann alla
venjulega félagsfundi. Þetta
húsnæði hefur verið félaginu feiki-
leg lyftistöng og það er vaxandi
þátttaka í félagsstarfinu, einkum í
bæjarmálaumræðunni."
- Hvað er að frétta af Norður-
landi?
„Því miður urðum við að hætta;
útgáfu Norðurlands s.l. vor í bili
vegna fjárskorts. Hins vegar er
lögð mikil áhersla á það að koma
því út á nýjan leik enda getur ekk-
ert komið í staðinn fyrir eigin
fjölmiðil. Á félagsfundinum 22.
september voru settir á laggirnar
nokkrir starfshópar, m.a. um
fræðslustarf, skemmtistarf, barna
vaktir, lagfæringar í Lárusarhúsi og
um útgáfumál. í síðast talda hópn-
um er nú verið að leita leiða til að,
hefja útgáfu Norðurlands á ný og
við vonum að það geti oröið sem|
fyrst”, sagði Soffía.
I stjórn Akureyrarfélagsins eru
auk Soffíu þau Heimir Ingimars-
son, varáformaður, Hannveig
Valtýsdóttir, gjaldkeri, Ingibjörg
Jónasdóttir, ritari og Geirlaug Sig-
urjónsdóttir meðstjórnandi. I var-
Brýnt að hefja útgáfu Norðurlands
að nýju, segir SoflTa Guðmunds-
dóttir, formaður Alþýðubanda-
lagsins á Akureyri.
astjórn eru Hrafnhildur Helgadótt-
ir og Sigurlaug Anna Grétars-
dóttir. _ ÁI
í xi ll Sl ll tu ÍI lí iu 8L H JC li
& »C jí T -t€ A/afti1 F1 ft a^MIFÍ
i\ e rj r rt mt Rií b íi n ii rf i< f
3
alir
« «\s takt ©R li b 4 44-
fei* kh] • iiMuimwnrara
11,1 I .11 1] Ll. LJ.i.
J«L. Brt 1,1 I J. M- k i .1. I J*\ ■_> .k I I I
■■L;jJ££L:LlUEIliaDfclU.ti:ULUi:iJi:JLU.U
Ji.ia.uukULJ.ULi j.j.i iux jlui : i
[ ■■
Nú um helgina 9. og 10. október mun Rafrás hf.
gangast fyrir sýningu að Síðumúla 27 á annarri hæð.
Þar ber hæst North Star HORIZON og ADVANTAGE tölvurnar
sem þegar eru í þjónustu fjölmargra fyrirtækja og einstaklinga hérlendis.
Einnig verða kynntir VISUAL tölvuskjáir, Microline,
Mannesmann Tally og NEC tölvuprentarar.
Eftirtalinn hugbúnaður verður kynntur:
Ritvinnsla Viðskiptamannabókhald - Skuldunautar
Upplýsingaskrá Birgðabókhald og lagerstýring
Fjárhagsbókhald Tollvinnsluforrit
Fjárhagsskýrslugerð Áætlanagerðarforrit o.fl.
Sýningin hefst kl. 13 og stendur til kl. 19 báða dagana.
BYLTING í tölvubúnaði.
Rúsínan í pylsuendanum verður svo OSBORNE tölvan
sem fer nú sigurför um heiminn
vegna hins ótrúlega lága verðs og fjölhæfni sinnar.
Komið og kynnist kostum OSBORNE af eigin raun.
Þú ferð fróðari af okkar fundi
ÞÚ GETUR REITT ÞIG Á RAFRÁS.
Söluskrifstofa Simi 91 — 82980
Fellsmúla 24 105 Reykjavík.