Þjóðviljinn - 30.12.1982, Side 1
DJQÐVIUINN
Er Alþýðubanda-
lagið í sókn eða á
undanhaldi? Eru
átök undir hinu
friðsæla yfirborði?
Hver verður fram-
tíðarþróunin?
Sjá 8.
desember 1982
fimmtudagur
47. árgangur
291. tölublað
60 ár eru liðin frá
stofnun
Sovétríkjanna.
Sjá grein eftir
Arna Bergmann.
Enn verða upphafs-
mínútur síðari hálf-
leiks í handknatt-
leik að falli, nú gegn
Dönum í
Laugardalshöllinni
í gærkvöldi.
Um 200 starfsmcnn Bæjarútgerðar Hafnarfjarðar fengu uppsagnarbréf fyrir hátíðarnar. A myndinni
sjáum við hvar Ólafu 'íalar Olafsson tæmir síðustu pönnurnar úr frystiklefanum fyrir lokun.
Sjá viðtöl á baksíði Ujósm. Atli
Verkamannabústaðir við Ásenda í Kópavogi. Þar voru 18 íbúðir afhentar í
gær og jafn margar verða tilbúnar í mars n.k.
Verkamannabústaðir í Kópavogi
18 nýjar íbúðir
í gær afhenti stjórn verkamann-
abústaða í Kójjavogi 18 íbúðir til
notkunar við Ástún 14 í Kópavogi.
Björn Ólafsson forseti bæjar-
stjórnar sagði að rekja mætti sögu
þessa framtaks aftur til ársins 1978,
en þávcrandi meirihluti bæjar-
stjórnar gerði með sér málefna-
samning er fól í sér að stöðugt yrði
unnið að smíði verkamannabú-
staða í Kópavogi.
Sagði hann að verkamannabú-
staðakerfið væri merkilegt átaka er
skipti sköpum um efnahagslegt
sjálfstæði þess lágtekjufólks er yrði
þess aðnjótandi og væri auk þess
fjárhagslega hagkvæmt fyrir bæjar-
félagið.
Sagði hann að jafn margar íbúðir
yrðu tilbúnar til afhendingar í mars
n.k. og þegar hefðu verið fengnar
nýjar lóðir fyrir nýbyggingar.
Loftur Þorsteinsson formaður
stjórnar verkamannabústaða í
Kópavogi sagði að 2 herbergja
íbúð kostaði nú 761.000 kr., 3
herb. íbúð kostaði 997.000 og 4
herb. íbúð kostaði 1253.000 krón-
ur. Greiðslukjör eru þau að út-
borgunarverð er 10% af kostnaði,
en afgangurinn er lánaður til 42
ára, verðtryggður með '/2% vöxt-
um. Tvær af þeim íbúðum sem nú
voru teknar í notkun eru leiguíbúð-
ir sem Kópavogsbær mun leigja út.
Fréttamönnum voru í gær sýndar
íbúðirnar, og eru þær vel hannaðar
og snyrtilegar með góðu geymslu-
rými og vönduðum eldhúsinnrétt-
ingum.
- ólg.
Svavar Gestsson 1 áramótagrein á morgun:
Róttækar kerfisbreytingar
verða þungamiðjan í vor
Forsenda árangursríkra efna-
hagsaðgerða er róttæk kerfis-
breyting í cfnahagsmálum, segir
Svavar Gestsson formaður Ál-
þýðubandalagsins m.a. í ára-
mótagrein sinni scm birtist í
blaðinu á morgun. Alþýðubanda-
lagið muni leggja aðaláherslu á
breytingartillögur í þessa veru í
kosningabaráttunni í vor og gera
þær að þungamiðju viðræðna um
stjórnarmyndun, fari svo að
bandalagið verði þar kvatt til
eftir kosningar.
í áramótagreininni er að venju
víða komið við.
Svavar fer yfir mismunandi
áróðursaðstöðu flokkanna nú við
áramót í upphafi kosningabar-
áttu.
Þessu næst gerir hann grein
fyrir þeim málum sem helst hafa
breytt stjórnmálastöðunni á ár-
inu sem nú er að kveðja. Þá gerir
hann grein fyrir tillögum Alþýðu-
bandalagsins um leiðir út úr þeim
efnahagsvanda sem nú er við að
etja og ræðir um afstöðu annarra
flokka til þeirra. Síðan fjallar
formaðurinn um stöðu íslenskra
stjórnmála og bendir á að Sjálf-
stæðisflokkurinn sé of stór - það
þurfi að skapa sterkt mótvægi við
hann til þess að tryggja eðlilegt
jafnvægi íslenskra stjórnmála.
f síðari hluta greinarinnar ræðir
Svavar Gestsson hvaða málefna-
forsendur þurfi að vera grundvöll-
ur víðtækrar pólitískrar samstöðu
á næstu mánuðum, en víkur svo
að kosningastöðu Alþýðubanda-
lagsins. Hann minnir á það ákall
til einingar sem Alþýðubandalag-
ið hefur látið frá sér fara að
undanförnu, ræðir leiftursóknar-
tillögur Sjálfstæðisflokksins í
borgarstjorn Reykjavíkur og
dregur af þeim ályktanir. í loka-
orðunum segir:
„í vorkosningunum 1983 þurf-
um við að kjósa gegn kreppu og
kvíða og hefja hátt á loft merki
raunsæis, félagslegra viðhorfa -
og bjartsýni. íslendingar hafa
áður tekist á við miklu stærri
vandamál, en þau sem eru fram
undan. Ef okkur tekst að róa í
gegnum brimgarðinn bíður okkar
góð höfn, því möguleikar ís-
lensku þjóðarinnar til blómlegs
og batnandi þjóðlífs eru meiri en
flestra annarra þjóða, ef við mun-
um líka að fara með gát og fyrir-
hyggju að auðlindum okkar,
hefjum ræktun til vegs, en höfn-
um rányrkju.“
- ekh