Þjóðviljinn - 30.12.1982, Side 2
2 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 30. desember 1982
Sérstakir tón-
leikar í Stúdenta-
kjallaranum á
mánudagskvöld
Hundafæði
Eftirfarandi ráöleggingar um
fæðisval, rákumst við á í blaði
nokkru.
Dæmi um morgunverð:
Hafragrautur, grjónagrautur al-
mennt,
corn flakes, cerios,
súrmjólk, jógúrt (ca 1 matskeið)
brauð, ostur, sólblómasmjör.
Dæmi um kvöldverð:
Kjötmeti, soðið eða steikt,
fiskmeti, soðið eða steikt,
kartöflur, hrísgrjón, brauð, spag-
hetti, grænmeti.
rifnar gulrætur.
Það er ekki hægt að segja að
hér sé um neitt hundafæði að
ræða, en hitt er samt satt að þess-
ar ráðleggingar um fæðisval er að
finna í tímariti hundaræktafélags-
ins, um dagiega fóðrun fullvaxta
hunda.
að leika með öðrunt. Hún verður
að fá að njóta sín ein, og Itver
verður að fá að spila í sinni tón-
tegund, með sínunr stfl. Tónninn í
þessunt pípunr et' nrjög þýður og
hljóðlátur, líkist einna helst
cellói.
Nýtur þetta hljóðfæri mikilla
vinsælda á írlandi enn í dag?
Já, alveg ótrúlegra vinsælda
einkum meðal ungra hljómlistar-
manna. Margir telja þessar pípur
hin fullkomnu hljóðfæri fyrir ein-
leikstúlkun á hinu viðanrikla og
ríka danslagasafni 18. aldar.
Er erfitt að leika á þetta
hljóðfæri?
Já það er nokkuð strembið. Til
að leika vel á pípurnar þarf geysi-
lega þjálfun. Þetta er mjög flókið
hljóðfæri.
Þú hefur alltaf jafn gaman af að
írsk píputónlist
All óvenjulegir tónleikar verða
haldnir í Stúdentakjallaranum á
mánudaginn kemur 3. janúar.
Engilsaxneski Irinn Konnie Wat-
hen ætlar að spila á „Olnboga-
pípu“af írskri gerð, eða Villeann-
pípu eins og hún er nefnd. Um-
ræddar pípur eru blásnar með
fýsibelg sem festur er við olnboga
spilarans. I’ípan sjálf nemur við
jörð og styðst við hné spilarans
sem leikur sitjandi. Af lýsingunni
sjá ókunnir að hér er um gjörólíkt
hljóðfæri að ræða skosku
sekkjapípunum.
Ronnic var því miður ekki með pípuna góðu með sér, sem er smíðuð í
Astralíu, en þess í stað bendir hann á mynd al' pípu sömu gerðar. Mynd
-Atli.
Gœtum
tungunnar
Sagt var: Fólkiö á bænum
skammaði hvert annað.
Rétt væri: Fólkið ... skammaði
hvað annað.
Skák
Pípuleikur af þessari gerð er
ekki með öllu ókunnur landan-
um, því þetta er í annað sinn sem
Wathen heldur hljómleika hér-
lendis. Aður spilaði hann í Stúd-
entakjallaranum árið 19756 fyrir
fullu húsi og hlaut mjög góðar
undirtektir, að því er hann tjáði
tíðindamanni síðunnar.
Wathen er í stuttri jólaheint-
sókn á Islandi ásamt konu sinni
íslenskri, Ástu Kristinsdóttur, og
tveimur börnum. Einungis verð-
ur um þessa einu hljómleika að
ræða, þar sem þau munu halda
utan 4. janúar.
Þetta er fimmta íslandsheim-
sókn pípuleikarans. Fyrst kom
hann hingað 1952, þá með
skólafélögunt. Aftur 1964 og
1972 en þá starfaði hann m.a.
sem sjómaöur og kenndi tónlist í
höfuðborginni.
En hvenær kynntist hann írsku
pípunni?
Eg er uppalinn á Englandi, en
hef alltaf haft miklar mætur á ír-
landi og írskri menningu. Eigin-
lega er ég íri. Á sama ti'ma hef ég
verið mikill heimshornaflakkari,
ferðast vítt um Evrópu, Ameríku
og Ástralíu. Upp úr 1950 fékk ég
mikinn áhuga á þjóðlegri tónlist
hvers konar og kynnti mér náið
bæði írska tónlist, gríska og ara-
bíska, og víðar kynnti ég mér tón-
list. Ég féll alveg fyrir þeirri
írsku, í og með vegna þess að
ég komst upp á lag með að
spila hana, og hef síðan gert það
meira og minna.
Spilar þú einn eða með öðrum?
-Irska pípan er ein-
leikshljóðfæri. Það er ekki hægt
spreyta þig á því?
Já, fyrir okkur pípuleikara sem
erum líklega eitthvað um 1000 í
öllum heiminum, þá er írsk pípu-
hljómlist sú besta sem til er.
Ronnie Wathen hefur undan-
farin ár verið á tónleikaferð víða
um heim. Þeim sem áhuga hafa
að kynnast írskri píputónlist er
bent á að mæta tímanlega í kjall-
arann á ntánudaginn kemur. Tón-
leikarnir hefjast kl. 20 og munu
standa til miðnættis. Aðgangur er
ókeypis.
-Ig.
Karpov að tafli — 74
Þaö var Ijóst aö baráttan um sætin þrjú í
Áskorendakeppninni yröi geysihörð. Bent
Larsen sem haföi unnð fimm fyrstu skákir
sínar varö aö draga dálítíö í land. I sjöttu
skák sinni gegn Torre varö hann aö gera
sér jafntefli aö góðu eftir að hafa haft gjör-
unnið tafl og i 7. umferð hékkTukmakov á
jafntefli eftir langt og strangt endatafl. Kort-
snoj komst við þaö upp að hliöinni á honum
með því aö sigra Qinteros á meðan Karpov
vann landa sinn Kusmin auöveldlega.
Staöa efstu manna eftir 7 umferðir: 1 -2.
Larsen og Kortsnoj 6v. 3.-4. Karpov og
Byrne 5'/2 v. Frammistaða Roberts Byrne
vakti verðskuldaða athygli en hann átti eftir
aö koma mikið við sögu í mót þessu:
abcdefgh
Karpov - Kusmin
Karpov hefur byggt upp stööu sína á rök-
réttan hátt:
27. g4! Dc7
28. g5 Hh8
29. Kg3! Rc5
30. bf5 g6
31-. b4! Re4+
(Eöa 31. - gxf5 32. bxc5 Dd7 33. Rd4!
o.s.frv. eöa 31. - Rd7 32. Bxg6! fxg6 33.
Dxg6 og mátar.)
32. Bxe4dxe4
33. Dxe4 Kg7
34. b5!
(Karpov teflir þessa stööu af mikillí ná-
kvaemni.)
34. .. Ra5
35. De7!
(Meö hótuninni 36. Df6+ o.s.frv.)
35. .. Dxe7
36. Hxe7 Hd3
37. Hc7 Rb3
38. Kg4! Hf8
39. Hee7
- Svartur gefst upp.
Togara-
inga frá
upphafi
Þessi fróðlega talla um togara-
eign Islendinga frá upphafi inn-
lendrar togaraútgerðar árið 1904
til ársloka 1982, birtist í nýjasta
tölublaði Ægis.
í upphafi var einn togari í eigu
íslendinga „Jón forseti“ en 6
árum síðar, árið 1910 hafði þeim
fjölgað um 5. 1915 voru togarar í
eigu íslendinga orðnir 20 talsins
og 10 árum síðar alls 45.
Eftirstríðslok 1945 áttu íslend-
ingar aðeins 28 togara en nýsköp-
unarstjórnin 1944—46 bætti um
betur og árið 1950 voru þeir
orðnir alls 43.
Árið 1970 var nýsköpunarflot-
inn úr sér genginn og endurnýjun
flotans hafði í engu verið sinnt,
og aðeins 23 togarar í eigu lands-
manna - litlu fleiri en árið 1915.
Vinstri stjórnin lét til sín taka
og árið 1975 voru íslenskir togar-
ar orðnir 65 talsins. Fjöldinn
hafði hátt í þrefaldast á 5 árum.
í lok þessa árs eru íslenskir tog-
arar orðnir 103. Á rúmunr áratug
hefur fjöldi þeirra rúmlega fjór-
faldast. -Ig.
L
, eign
Islend