Þjóðviljinn - 30.12.1982, Side 3
Fimmtudagur 30. desember 1982 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 3
V innings
númerin
Seyðisfjörður:
Frystíhúsín
segja upp
starfsfólkinu
Karíus og Baktus herja á borgarsjóð:
42 MILJÓNIR KR.
í TANNLÆKNINGAR
Áætlað er að kostnaður
við tannlækningar skóla-
barna í grunnskólum
Reykjavíkur nemi á næsta
ári 42 miljónum króna. Sá
kostnaður skiptist jafnt á
borgarsjóð Reykjavíkur
og Sjúkrasamlag Reykja-
víkur.
í Reykjavík starfa nú við skóla-
tannlækningar 29 tannlæknar lang-
flestir í hiutastarfi. Stefnt hefur
verið að því að hafa 19 tannlækna í
fullu starfi við skólatannlækningar,
auk yfirskólatannlæknis. Á móti
hverju stöðugildi tannlæknis er 1,3
stöðugildi aðstoðarmanns eða 24,7
í heild.
Árslaun til tannlæknanna nema
18,2 miljónum á árinu 1982, árs-
laun aðstoðarmannanna 4,7 milj-
ónum, og 15 miljónir eru áætlaðar
til greiðslu tannviðgerða hjá öðr-
um en skólatannlæknum. Reykja-
víkurborg Ieggur sem kunnugt er til
aðstöðu fyrir tannlæknana.
Hinn mikli kostnaður við tann-
lækningar skólabarna hefur
löngum verið umræðuefni í borgar-
stjórn, og starfar nú nefnd á vegum
heilbrigðisráðs að endurskoðun
núverandi skipunar mála.
Þorskveiðibanninu kennt um — í allt haust
ast á fmmlagí þínu,
í Happdrætti S
Við tölum um að tvær hliðar séu á þessu máli,
-miða í happdrætti SÍBS.
Með fjöldaþátttöku sinni fjármagnar fólk
umfangsmikið þjálfunar- og endurhæfingarstarf á
Reykjalundi og Múlalundi.
Hin hliðin: góðir möguleikar þínirtil veglegs
vinnings því meira enfjórði hver miði hlýturvinning.
HAPPDRÆTTISÍBS
Fleiri vinningar skapa meiri möguleika til vinnings.
hefur óunninn fiskur verið fluttur til Belgíu
Frystihúsin á Seyðisfirði sögðu
upp starfsfólki sinu frá og með 24.
desember s.l. og kenna um hráefn-
isskorti vcgna þorskveiðibannsins.
Sagði Ólafur Óskarsson, skrif-
stofustjóri Fiskvinnslunnar á
Seyðisfirði, að ekki væri hægt að
búast við að vinna hæfist aftur fyrr
en í fyrsta lagi um miðjan janúar.
Fiskvinnslan á Seyðisfirði hefur í
haust flutt út óunninn fisk til Belgíu
með færeyskum skipum. Hefur
verið losað úr togurunum beint yfir
í þessi erlendu skip sem flytja
aflann úr landi. Sagði Ólafur að
mest hefði þetta verið karfi, sem
erfiðast væri að vinna í frystihús-
inu, og sagði hann jafnframt að
Rússlandsmarkaðurinn fyrir karfa
Happdrætti
Þjóðviljans 1982:
væri ótryggur, ef ekki þegar lok-
aður. Hefði fengist gott verð fyrir
karfann í Belgíu.
- S.dór
Frá Seyðisfirði
Á Þoriáksmessu voru vinnings-
númerin í Happdrætti Þjóðviijans
1982 birt og verða endurbirt hér
vegna áskorana. Jafnframt eru um-
boðsmenn og þeir sem tekið hafa að
sér innheimtu í cinstökum hverf-
um, einkum í Reykjavík, hvattir til
þess að gera skil strax á skrifstof-
unni, Grettisgötu 3. Mjög brýnt er
að hægt sé að gera happdrættið
upp nú um áramótin.
Vinningar komu á eftirtalda
miða: 1. Bifreið, Daihatsu Char-
ade, nr. 14125.
2. Húsgögn frá TM-húsgögnum
nr. 27075.
3. Normende litstjónvarpstæki nr.
18181.
4. Ferð frá Samvinnuferðum/
Landsýn nr. 14324.
5. Ferð frá Ferðaskrifstofunni
Úrval nr. 552.
6. Ferð frá Samvinnuferðum/
Landsýn nr. 12774.
7. Ferð frá Fcrðaskrifstofunni
Úrval nr. 25446.
Þjóðviljinn þakkar stuðnings-
mönnum sínum en vinninganna
má vitja á afgreiðslu blaðsins,
Síðumúla 6, síma 81333.
Hættum að
reykja
í Lögbergi
Til aðstoðar og hvatningar hin-
uin fjölmörgu, sem ætla að hætta
að reykja um áramótin, heldur Is-
lenska bindindisféiagið 5-daga
áætlun sína með tilstyrk Krabba-
meinsfélags Reykjavíkur og Reyk-
ingavarnar.
Námskeiðið hefst sunnudags-
kvöldið 2. janúar 1983 kl. 20:30 og
verður til húsa í Lögbergi, Háskóla
íslands, stofu 101. Leiðbeinendur
verða Jón Hjörleifur Jónsson frá
íslcnska bindindisfélaginu og lækn-
arnir Sigurður Björnsson, Auðólf-
ur Gunnarsson, Tryggvi Ásmunds-
son, Sigurgeir Kjartansson og
Snorri Ingimarsson.
Innritun fer fram í síma 13899
fimmtudaginn 30. desember kl. 09-
16:00 og í síma 36655 sunnudaginn
2. janúar. Þátttökugjald er 200
krónur.