Þjóðviljinn - 30.12.1982, Page 10
1« SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 30. desember 1982
Hannyrðir í Úkraínu
Sauðfjárbúskapur í Kirgisíu
SOVÉTRÍKIN SEXTUG
í dag, þrítugasta desember, eru
Sovétríkin sextug. Þau eru meö
öðrum orðum fimm árum yngri en
októberbyltingin sem varð upphaf
þeirra. Ástæðan er sú, að borgara-
stríð og ýmislegt annað tafði bolsé-
vikastjórnina frá því verkefni að
finna svar við því, hvernig hún ætti
að leysa þann vanda aö hún hafði
tekið við landi fjölmargra þjóða.
Um tíma hafa ýntsir bolsévikafor-
ingjar sjálfsagt hugsað sent svo, að
þeim málum mætti fresta þar til
byltingin hefði sigrað um víða ver-
öld. En 1922 voru stórtíðindi íþeim
efnum ekki í vændunt og meira en
brýnt orðið að setja hinu víðlcnda
ríki stjórnskipunarlög.
Sambands-
hugmyndin
Diog að þeint voru lögð á
ráðstefnu sem fram fór í desentber-
lok 1922 í Kremlarhöllu. Þar var
lýst yfir stofnun sambandsríkis og
voru fjögur lýðveldi aðilar að því -
hið rússneska, úkraínska, hvítrúss-
neska og svo Kákasussambandið
sem síðar varð að sovétlýðveldun-
um Armeníu, Grúsíu og Aserbæd-
sjan. Síðar hefur lýðveldunum
fjölgað og eru þau nú fimmtán, auk
þess eru svonefnd sjálfstjórnar-
lýðveldi 20, átta sjálfstjórnarhéruð
og 10 sjálfstjórnarsvæði.
Þessi skipting endurspeglar fyrst
og fremst búsetu og stærð einstaka
þjóða. Lýðveldin eru öll á útjöðr-
um ríkisins, (nema Kazakstan) og
í flestum þeirra er meirihluti íbú-
anna ekki rússneskur. Sjálfstjórn-
arlýðveldi eru t.d. Baskíría ogTat-
aría, þarsem inni í miðju Rússlandi
búa allfjölmennar þjóöir (flestar
hinnar helstu mæla á tyrkneskum
málum). Á þessum svæðum hefur
iðnþróun og vöxtur borga leitt til
þess, að frumbyggjum hefur fækk-
að mjög hlutfallslega (það hefur
líka gerst í ýmsum lýðveldum), og
eru þeir einatt í minnihluta en
Rússar eða rússneskumælandi fólk
í meirihluta.
Fögur
fyrirheit
Þessi skipan mála er jafnan mjög
lofuð í opinberum málflutningi Sov-
étríkjanna. Þar er staðhæft, og nú
síðast í gögnum sem APN dreifir í
tilefni afmælisins að lýðveldin séu:
„fullvalda ríki. Þau hafa sína
stjórnarskrá, eigin löggjöf, skjald-
armerki og fána. Hvert lýðveldi
getur með sjálfstæðum hætti tekið
upp bein samskipti við erlend ri'ki,
gert við þau samninga skipt við
þau á diplómötum... Það er tryggt
að eining lýðveldanna sé frjáls með
því að þau hafa rétt til að ganga úr
bandalaginu (SoVétríkjunum) -
aðeins hvert lýðveldi fyrir sig getur
tekið þá ákvörðun".
Ekki mundu þeir margir, sem
Arni Bergmann
tók saman
þekkja til Sovétríkjanna, sent taka
þessar fullveldisstaðhæfingar alvar-
lega: sannleikurinn er sá, að Sov-
étríkin búa við geysisterkt miðs-
stjórnarkerfi og frávik frá al-
mennum reglum eru í lágmarki.
Formlegur réttur til að ganga úr
sambandinu er víst álíka rnikils
virði og staðhæfingarnar í stjórnar-
skrá landsins um að þar ríki hið
besta málfrelsi. En engu að síður
væri rangt að staðhæfa að það svar
sem sovéskir ráðamenn reyndu að
finna við sínum þjóðernavanda sé
einskis virði.
Hver var vandinn?
Vandinn var vissulega mjög mik-
ill. í því Rússaveldi sem varð að
Sovétríkjunum búa meira en 100
þjóðir. Rússar eru nú um helming-
ur af 270 milipnum íbúa, önnur
þjóð náskyld, Úkraínumenn, kem-
ur næst og mun um 40 miljónir en
hin þriðja í röðinni er Úzbekar,
tyrknesk þjóð í Mið-Asíu - þeir
munu álíka fjölmennir og Svíar og
Norðmenn til samans. En svo er
mikill fjöldi örsmárra þjóða, bæði
veiðiþjóðir norðurhjarans, sem að
lifnaðarháttum hafa verið skyldir
Eskimóum, og svo sú undarlega
þjóðblanda sem hefur safnast
saman í Kákasuslöndum: í fjalla-
landinu Dagestan eru íbúarnir hálf
önnur miljón, en þeir tala víst einar
þrjátíu tungur.
Mestur vandinn var þó ekki
sjálfur fjöldi þjóða, heldur það á
hve misjöfnu stigi þamvoru. Sumar
voru hámenningarþjóðir sem
stóðu á gömlum merg, en aðrar
mjög fátækar, ólæsar og óskrifandi
og lítt amboðum búnar.
Menntunar-
átak
Það sem Sovétríkin geta svo stát-
að sig af í framvindu þjóðernamála
er fyrst og fremst það, að þróunin
hefur leitt til jafnari menntunar- og
lífskjara en áður ríktu. Það var gert
merkilegt átak til að iyfta t.d.
veiðiþjóðum norðursins eða þjóð-
um Mið-Asíu til jafns við Rússa,
Armena eða aðra sem betur voru
settir í menningarlegum og tækni-
legum efnum. Árangurinn er sá
nreðal annars, að þótt Rússar séu í
helstu lykilsstöðum mjög víða -
einnig í lýðveldunt sem kennd
eru við aðrar þjóðir, þá verður því
ekki haldið fram að rússneskur
almenningur búi við betri lífskjör
en ýmsar þjóðir aðrar. I ýmsum
tilvikum eru Rússar almennt held-
ur verr settir en t.d. Eystrasalts-
þjóðir sem njóta góðs af eigin verk-
menningu, eða Kákasusþjóðir
sem njóta góðs af blóntlegri ávaxta-
rækt í suðlægum héruðum. í annan
stað hefur hin alnrenna fræðslu-
bylting sem orðið hefur í landinu
efit þjóðir sem áður töldust „van-
þróaðar" til vísinda og fræða-
iðkana sem þættu drjúg afrek ef
borin væru saman við þjóðir sem
eiga sér hliðstæða forsögu t.d. í
Asíu.
Smærri þjóðir hafa reyndar lagt
fram furðu drjúgan skerf til þess sem
forvitnislegast er í sovéskum bók-
menntum. Líklega er Kirgísinn
Tsjingis Ætmatof í hópi þriggja eða
fimm núlifandi manna sem gera til-
kall til að véra frenrstu höfundar
ríkisins. Avarar í Dagestan, sem
eru litlu fjölmennari en Isiending-
ar, eiga sér jafnágætt skáld og Ra-
súl Gamzatof. Og svo mætti lengi
telja. Það er ekki nema rétt, að
mikið er gert til að útbreiða rúss-
nesku og hin opinbera stefna er sú,
að allir smærri þjóða rnenn læri svo
rnikið í henni að þeir verði tví-
tyngdir. En þetta hefur ekki komið
í veg fyrir allmikla útgáfustarfsemi
á tungunr smærri þjóða, eða fyrir
það, að tungur þeirra hefðu þann
tíma í skólum og útvarpi sem þjóðir
eins og Bretónar eða Baskar hefðu
- a.m.k. til skamms tíma - mátt
öfunda þær af.
Mínusarnir
En þegar þetta er fram tekið er
ekki þar sem sagt, að allt sé í því
himnalagi sent opinber sovéskur
málflutningur vill vera láta. Unt
þjóðernamálin sovésku má stað-
liæfa, að það sem jákvætt hefur
verið í sovéskri fræðslubyltingu,
iönvæðingur og almannatrygging-
um, hefur komið hinum einstöku
þjóðum nokkuð jafnt til góða.
Tiltölulega jafrit. En þær munu svo
una hlutskipti sínu misjafnlega vel
eftir fyrri sögu og eftir því hvernig
stalínsárin hin verstu ár sovéskrar
sögu léku þær. Það er ljóst að til
dæmis Armenar suður í Kákasus
hafa sem þjóð heldur jákvæðari
taugar til Rússa en t.a.m. Lettar
við Eystrasalt. Erfðaféndur Arm-
ena voru tyrknesk yfirvöld - en
Lettland var innlimað í Sovétríkin
með fjöldahandtökum og útlegðar-
dóntum og ýmsu gerræði, sem hef-
ur leitt til þess, að smám saman
hafa Lettar orðið rúmlega helm-
ingur íbúa lands síns en voru nálægt
75%. Og ef hægt er að tala um
þjóðarlíðan þá gefur það auga leið,
að hvað sem öðru líður, þá er betra
að vera Rússi en Letti: Rússinn veit
að hans tunga og menning er ekki í
neinni hættu (nema þeirri sem at-
ómvopnin skapa öllum), en Lett-
inn hefur að vonunr þungar
áhyggjur um framtíð, sjálfa tilveru
smárrar þjóðar sinnar, og svo er
um fleiri smáar þjóðir.
Sameiginlegur
vandi
Að öðru leyti skipta þjóðir Sov-
étríkjanna með sér ókostum
stjórnarfarsins með nokkuð svip-
uðum hætti og kostum þess, Valda-
einokum Kommúnistaflokksins,
sem getur bæði þýtt skerðingu
mannréttinda og svo ýmisleg efna-
hagslega vandræði - hún bitnar í
svipuðum mæli á sovéskum þegn-
urn. Sömuleiðis hið stranga eftirlit
með listum og félagslífi, takmark-
anir á starfi trúfélaga. Þó má færa
að því mörg rök, að margt af þessu
tagi kemur ver' niður á ýmsum
smærri þjóðum en hinum rúss-
nesku þegnum Bréjsnéfs og And-
ropofs. Gyðingar eru þar sérmál,
sem ekki verður farið út í hér, og
hafa reyndar óspart greitt atkvæði
gegn Sovétríkjunum „með fótun-
um“ eins og sagt var við annað tæki-
færi: þeir liafa í stórum stíl flust úr
landi meðan kostur hefur verið. í
annan stað er það ljóst, að hin há-
timbraða valdabygging sovéska,
sem er afar óhagstæð frávikunr, og
þar með margbreytileika sem tekur
dýpra en til nrataræðis og þjóðbún-
inga - hún er í reynd þungbærari
ýmsum smærri þjóðum. Að
minnsta kosti er það víst, að úr
þeirra röðurn kernur meirihluti
þess fólks sem kallað er andófs-
ntenn.
Þjóðernismálin, senr bjartsýnar
samþykktir frá 30. desember 1922
áttu að byrja að leysa - þau eru
bæði í vissum skilningi stolt Sovét-
rnanna og urn leið þeirra veika hlið.
Einmitt vegna þessarar þverstæðu
er sérstök ástæða til að fylgjast vel
nteð framvindu þeirra. AB.
Teuppskera í Grúsíu
Hátíðarskrúðganga á Rauða torginu