Þjóðviljinn - 30.12.1982, Qupperneq 11
Fimmtudagur 30. desember 1982 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 11
íþróttir
Umsjón:
Viöir Sigurösspn
Byrjun síðari hálfleiks
felldi íslenska liðið í gær
Sagan endurtekur sig alltaf hjá
íslcnska landsliðinu í handknatt-
lcik. í síðari lciknum gegn Dönum í
Laugardalshöllinni í gærkvöldi
urðu upphafsmínútur síðari hálf-
leiks liðinu að falli eins og svo oft
hcfur skeð áður í gegnuni árin. ís-
land lciddi 14:13 í háltlcik og Leif
Michaclscn þjálfari Dana var
greinilega ekki par ánægður með
frammistöðu sinna inanna. Hann
þreif óþyrinilega til nokkurra
þeirra á leiðinni fram í búnings-
klefa og þar virðist hann hafa mess-
að vel og lengi yfir þeim. Að
minnsta kosti þurfti að sækja þá
fram til að síðari hálfleikur gæti
hafist. Þcir komu þá til leiks af full-
uni krafti, léku vörnina framarlega
og tóku Pál Ólafsson og Hans Guð-
mundsson úr umfcrð til skiptis.
Þetta riðlaði sóknarleik íslenska
liðsins gersamlega, Danir komust í
18:15 og sigruðu með fjögurra
marka mun, 26:22.
Fyrri hálfleikur var fjörugur og
þokkalega leikinn af íslenska
liðinu. Brynjar Kvaran varði eins
og berserkur og liðið í heild barðist
vel, bæði í sókn og vörn. ísland
komst fyrst yfir á 16. mínútu, 9:8,
og síðan í 12:10. Sfðan átti liðið
gullið tækifæri á að ná tveggja
marka forskoti fyrir hálfleik en
sóknarmistök komu í veg fyrir það
og Brynjar sá til þess að Dönum
tækist ekki að jafna með því að
verja glæsilega frá Nielsen á loka-
sekúndunni eftir hraðaupphlaup.
íslenska liðið átti ekkert svar við
varnaraðferð Dananna í upphafi
síðari hálfleiks og sífellt seig meir á
ógæfuhliðina. Munurinn hélst tvö
til fjögur mörk og það var oft grát-
legt að sjá hve vörnin opnaðist illa,
einkum vinstra megin. Um leið
datt markvarslan niður, þó Gísli
Felix Bjarnason næði ágætum kafla
um miðjan hálfleikinn. Vonar-
neisti kviknaði þegar Kristján Ara-
son braust í gegn upp á eigin spýtur
nákvæmlega tveimur mínútum
fyrir leikslok og minnkaði muninn í
22:24. Islenska vörnin feistaði þess
að stöðva Danina framarlega en
það gekk ekki upp og Haurum
skoraði tvö síðustu mörkin úr
horninu.
Það voru margfalt fleiri veilur í
Leif Michaelsen þjálfari Dana í
öngum sínum yfír frammistöðu
sinna manna í fyrri hálfíeik.
íslenska liðinu en í fyrri leiknum þó
þessi hafi verið um margt skemmti-
legri á að horfa, einkum fyrri hálf-
leikurinn. Sérstaklega var það
vörnin sem náði ekki eins vel
saman. Þá var sóknarleikurinn oft
ansi ráðleysislegur, enda „kipptu"
Hans Guðntundsson, cinn bestu
leikmanna íslcnska liðsins í gær-
kvöldi, cr stöðvaður af dönskum
varnarmönnum. Mynd: -eik.
Danirnir mjög framarlega í horn-
amennina okkar. Bjarni Guð-
mundsson og Guðmundur Guð-
mundsson áttu því erfitt uppdrátt-
ar, en Guðmundi tókst þó oft að
skapa usla. Kristján Arason var
besti maður liðsins og lék mun bet-
ur í sókninni en í fyrri leiknum. Þá
átti Hans Guðmundsson mun yfir-
vegaðri leik og er í stöðugri fram-
för. Hann á hrós skilið fyrir sína
frammistöðu. Páll Ólafsson lék
ágætlega og ekki má gleyma Brynj-
ari í markinu í fyrri hálfleiknum en
aðrir voru með daufara móti.
Kristján var markahæstur,
skoraði 8 rnörk. þrjú þeirra út vít-
um. Hans kom næstur með 6,
Guðmundur 3, Bjarni 2, Páll,
Steindór Gunnarsson og Þorgils
Óttar Mathiesen skoruðu eitt mark
hver.
Danska liðið var erfitt viður-
eignar í síðari hálfleiknum enda ró-
aðist Leif Michaelsen mjög þegar á
leið. Góð breidd er á þeim bæ og
sést það best á markaskoruninni en
ntörkin dreifðust á níu leikmenn.
Sá tíundi, Skaarup, var marka-
hæstur í fyrradag. Jörgen Gluver,
Morten Stig Christiansen, Christi-
an Haurum og Kjeld Nielsen
skoruðu 4 mörk hver.
Þáttur vestur-þýsku dómaranna
var einstakur og þeir fóru langt
með að eyðileggja leikinn á köfl-
um. Danirnir högnuðust vel á dóm-
gæslu þeira, svo mjög að annars
hógværum íþróttafréttaritara sem
sat við hlið undirritaðs varð að
orði: „Þeir hljóta að vera frá þýska
hluta Jótlands þessir!“. - VS
Jóhannes Bárðarson
til Nes-
kaupstaðar
Jóhannes Bárðarson, knatt-
spyrnumaðurinn kunni úr Víkingi,
hefur verið ráðinn þjálfari 3.
deildarliðs Þróttar frá Ncskaup-
stað. Jóhannes er afar reyndur
varnarmaður sem hefur verið
orðaður við landsliðssæti og verð-
ur mikill styrkur fyrir hið unga lið
Þróttar að fá hann í sínar raðir.
Mikill hugur er í Þrótturum, sem
fcllu úr 2. dcildinni í haust eftir scx
ára dvöl, og þeir vonast til að
endurheimta nokkra af þeim leik-
mönnum sem þeir misstu fyrir síð-
asta keppnistímabil. Að sögn Guð-
mundar Bjarnasonar hjá Þrótti
kemur ekkert annað til greina hjá
þeim en að vinna aftur sæti sitt í 2.
deild. -VS
Enska knattspyrnan:
Watford vann West
ham og er í 3. sæti
Nýliðar Watford komust upp í
þriðja sæti 1. deildar ensku knatt-
spyrnunnar í gærkvöldi með því að
sigra West Ham, annað toppbar-
áttulið, 2:1 á Vicarage Road í Wat-
ford. Nýliðarnir eru þó heilum átta
stigum á eftir efsta liðinu, Eng-
landsmeisturum Liverpool.
Úrslit í ensku knattspyrnunni í
gærkvöldi:
1. deild:
Aston Villa-lpswich..............1-1
Swansea-Birmingham................0-0
Watford-West Ham.................2-1
2. deild
Blackburn-Oldham..................2-2
Charlton-Q.P.R....................1-3
Derby-Shrewsbury..................2-3
3. deild
Bristol Rovers-Exeter........... 4-4
Wigan-Walsall.....................1-3
Staðan í 1. deild ensku knatt-
spyrnunnar eftir leiki vikunnar er
þá þessi:
Liverpool 21 13 5 3 50-19 44
Nottm.For 21 12 2 7 38-30 38
Watford 21 11 3 7 39-24 36
Manch.Utd 21 10 6 5 28-17 36
West Ham 21 11 1 9 37-32 34
Coventry 22 10 4 8 30-28 34
Aston Villa 21 10 2 9 31-28 32
W.B.A 21 9 4 8 34-32 31
Manch.City 21 9 4 8 27-32 31
Johan Barnes og félagar í Watford
eru komnir í þriðja sætið.
Tottenham........21 9 3 9 32-29 30
Everton..........21 8 5 8 35-28 29
Southampton......21 8 5 8 27-34 29
Ipswich..........22 7 7 8 35-28 28
Notts Co.........21 8 4 9 30-36 28
Stoke............21 8 3 10 33-35 27
Arsenal..........21 7 6 8 25-28 27
Swansea..........21 6 5 10 28-33 23
Luton............21 5 8 8 37-44 23
Norwich..........21 3 2 10 24-35 23
Brighton.........21 6 4 11 19-40 22
Birmingham.......21 4 9 8 15-29 21
Sunderland.......21 4 7 10 24-37 19
2. deild
Wolves..........21 13 4 4 40-19 43
Q.P.R...........22 13 4 5 35-20 43
Fulham..........21 11 5 5 42-28 38
Leicester.......21 10 3 8 37-24 33
Sheff.Wed.......21 9 6 6 32-23 33
Shrewsbury......21 9 5 7 27-28 32
Oldham..........21 7 10 4 36-28 31
Leeds...........21 7 10 4 26-21 31
Grimsby.........29 9 4 8 32-36 31
Blackburn.......21 8 6 7 34-32 30
Chelsea.........21 7 7 7 25-24 28
Newcastle...... 21 7 7 7 30-30 28
Rotherham.......21 7 7 7 26-30 28
Barnsley........21 6 9 6 27-26 27
Cr.Palace.......21 6 8 7 24-25 26
Carlisle........21 7 4 10 39-43 25
Charlton........21 7 4 10 30-43 25
Middlesboro.....21 6 7 8 26-41 25
Bolton..........21 5 6 10 21-29 21
Cambridge.......22 5 6 11 23-34 21
Burnley.........21 4 3 14 27-41 15
Derby...........21 2 9 10 20-34 15
- vs
Vladimir Petrovic
Petrovic
til Arsenal
Vladimir Petrovic, júgóslavneski
landsliðsmaðurinn í knattspyrnu,
var í gær keyptur endanlega af en-
ska 1. deildarliðinu Arsenal. Lund-
únaliðið var búið að festa kaup á
honum í surnar en jógóslavnesk
knattspyrnuyfírvöld leyfðu honum
þá ekki að fara. _ Vs
Hess skor
inn upp
Erika Hess, skíðadrottningin
svissneska sem sigraði í heimsbik-
arkeppni kvenna síðasta vetur, var
í fyrradag skorin upp við mciðslum
í hné. Þau hafa þjakað hana síðan í
nóvember. Að sögn forráðamanna
svissneska skíðalandsliðsins ætti
hún að vera búin að jafna sig nægi-
lega til að geta keppt á móti í
heimsbikarnum í Vestur-
Þýskalandi þann 8. janúar. -VS