Þjóðviljinn - 30.12.1982, Síða 12
12 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 30. desember 1982
ALÞÝÐUBANDALAGIÐ
Alþýðubandalagið Ólafsvík - Aðalfundur
Aðalfundur Alþýðubandalagsfélags Ólafsvíkur verður í Sjóbúðum, Ól-
afsvík, fimmtudaginn 30. desember n.k. og hefst kl. 20.30.
Dagskrá: Aðalfundarverkefni.
Félagar fjölmennið. - Stjórnin.
Alþýðubandalagið í Neshreppi utan Ennis
Almennur fundur verður í félagsheimilinu Röst sunnudaginn 2. janúar kl.
14. Fyrir svörum sitja Skúli Alexandersson alþingismaður, Kristinn Jón
Friðþjófsson og Svanbjörn Stefánsson. Umræðan snýst um landsmálapól-
itíkina, hreppsmálin og hið almenna félagsstarf. - Stjórnin
| Alþýðubandalagið í Neskaupstað 'WL jgT-.. 1 Alþýðubandalagið í Neskaupstað heldur félagsfund ' sunnudaginn 2. janúar kl. 16 í Sjómannastofunni. Hjörleifur Guttormsson iðnaðarráðherra kemur á fundinn. - Félagar fjölménnið. - Stjórnin. Hjorleifur
Ív) Alþýðubandalagið Reyðarfirði Tt Félagsfundur verður haldinn sunnudaginn 2. janúar kl. 16. Helgi Seljan alþingismaður verður á fundin- dh um. Félagar, fjölmennið. - Stjórnin
Alþýðubandalagið Húsavík Árshátíð Alþýðubandalagsins á Húsavík verður haldin í Félagsheimili Húsavíkur laugardaginn 29. janúar n.k. Fjölbreytt dagskrá að venju. Nánar auglýst síðar. Undirbúningsnefndin.
Létt vinna Kona á aldrinum 20 - 50 ára óskast út á land á vegum ríkisstofnunar. Má hafa meö sér barn, eldra en 2ja ára. Hreinleg vinna og létt. Einn karlmaöur í heimili. Kaup 14-15 þúsund á mánuði, gott orlof. Umsóknir merktar „Létt vinna“, sendist blaöinu fyrir 7. jan. n.k.
(pÚTBOÐ=|| Tilboð óskast í stálpípur fyrir Hitaveitu Reykjavíkur. Útboðs- gögn eru afhent á skrifstofu vorri að Fríkirkjuvegi 3, Reykja- vík. Tilboðin verða opnuð á sama stað þriðjudaginn 1. febrúar 1983 kl. 14 e.h.
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVIKURBORGAR Frikirkjuvegi 3 — Sími 25800
Ólafsvík — Sveitarstjóri Starf sveitarstjóra í Ólafsvík er laust til umsóknar. Starfið veitist frá 1. febr. 1983. Umsóknir um starfið ásamt upplýsingum um menntun og fyrri störf sendist sveitarstjóra Olafsvíkurhrepps, sem veitir allar nánari upplýsingar, fyrir 7. jan. nk. Hreppsnefnd Ólafsvíkurhreps.
Leikskólinn í Ólafsvík Starfskraft vantar strax aö leikskólanum í Ólafsvík, fóstrumenntun æskileg. Staöa forstööumanns meö fóstrumenntun er einnig laus til umsóknar. Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun og fyrri störf sendist sveitarstjóra Olafsvíkurhrepps, sem veit- ir ailar nánari upplýsingar í síma 93-6153, fyrir 10. jan. nk. Fyrir hönd leikskólanefndar: Sveitarstjórinn Ólafsvíkurhreppi.
Ástkær eiginmaður minn, faðir, afi, sonur og bróðir Gunnar Guðjónsson vélsmiður, Blikahólum 2, Reykjavík lést af slysförum aðfaranótt 24. desember. Eiginkona, börn, barnabörn, móðir og bróðir.
Guðmundur V.
Sigurðsson
Borgarnesi, 70 ára í dag
Afmæliskveðja frá
Verkalýðsfélagi
Borgarness
Guðmundur V. Sigurðsson, bif-
reiðastjóri og fyrrverandi formað-
ur Verkalýðsfélags Borgarness er
70 ára í dag 30. desember. Það er
mér ánægjuefni að fá tækifæri til að
senda honum afmælisóskir frá
Verkalýðsfélagi Borgarness hér í
blaðinu.
í byrjun árs 1960 var gengið til
stjórnarkjörs í Verkalýðsfélagi
Borgarness. Félagsmenn gátu valið
unt tvo lista. Þetta var svo sem ekki
nýjung í félaginu, því um árabil
hafði óeining verið ríkjandi og
pólitískir flokkadrættir drógu úr
starfsmætti.
Formannsefni á þeirn lista, sem
boðinn var frarn gegn þáverandi
stjórn var Guðntundur V. Sigurðs-
son. Listi hans sigraði. Guðmund-
ur hafði ekki mikla þjálfun í félags-
störfum, en hann var staðráðinn í
að gera sitt besta í formanns-
starfinu. Það var enginn „dans á
rósum“ að taka við formennsku á
þessum tíma. Ég minnist þess þeg-
ar ég var unglingur og mætti á fundi
félagsins nokkru eftir að Guð-
mundur tók við formennsku
hversu hávaðasamir fundirnir
voru. Stjórnin hafði lítinn starfs-
frið. Þannig hafði þetta gengið til
um árabil. Fjárhagur félagsins var
erfiður og eignir þess voru: einn
skápur, kjörkassi og nokkrar krón-
ur í sjóði.
Guðmundur V. Sigurðsson og
félagar hans gerðu sér strax ljóst,
að hér þurfti að verða breytin á, ef
félagið átti að geta orðið öflugur
málsvari alþýðu manna. Fyrstu
þrjú til fjögur árin eftir að Guð-
mundur tók við stjórninni voru
mikil átök innan félagsins, en listi
stjórnarinnar hafði jafnan betur í
kosningum þótt litlu munaði
stundum.
Guðmundi tókst að fá ólíka póli-
tíska aðila til að starfa saman að
stjórn félagsins og flokkadrættir
sem einkennt höfðu starf þess
lögðust niður. Listi stjórnar og
trúnaðarmannaráðs liefur síðan
verið sjálfkjörinn í félaginu.
Komið var á ýmsurn nýjungum.
Haldnar voru árshátíðir, skemmti-
ferðir farnar að sumarlagi og ýmis-
legt fleira mætti nefna. Fjárhagur
félagsins var efldur og byrjað að
taka félagsgjald sem hiutfall af
kaupi. Keypt var orlofshús í Ölfus-
borgum og Snorrabúð félagsheim-
ili stéttarfélaganna í Borgarnesi var
keypt árið 1972. Tilkoma Snorra-
búðar hefur gjörbreytt starfs-
aðstöðu félaganna. Þess má geta að
árið 1964 eignaðist félagið fyrst
samastað þegar tekið var á leigu
herbergi undir starfsemina. Stofn-
aður var Sjúkra- og orlofssjóður og
hefur Guðmundur átt sæti í stjórn
sjóðanna frá stofnun þeirra fyrir 20
árum. Allar þær framkvæmdir sem
hér hefur verið drepið á urðu í
formannstíð Guðmundar V. Sig-
urðssonar.
Kjara- og atvinnumál tóku að
sjálfsögðu mestan tíma, en allt var
starfið unnið í frístundum og lítil
sem engin greiðsla kom fyrir. Guð-
mundur varð oft að verja ómæld-
um tíma í félagsstarfið og fyrstu ár-
iri var heimili hans aðsetur félags-
ins. Ég minnist þess hversu gott var
að koma til Guðmundar og Ingvar-
ínu Einarsdóttur konu hans, en
hún lést árið 1972. Þar ríkti alltaf
glaðværð og gott viðmót og ávallt
var tími aflögu til að sinna málefn-
um félagsins.
Guðmundur tók þátt í stofnun
Lífeyrissjóðs Vesturlands og átti
sæti í stjórn sjóðsins í nokkur ár. í
hreppsnefnd Borgarneshrepps í
fjögur ár og var fulltrúi Verkalýðs-
félags Borgarness á þingum ASI og
VMSÍ. Auk þessa hefur Guð-
mundur átt sæti í fjölmörgum
nefndum á vegum félagsins.
Mikil breyting hefur orðið á
starfsemi Verkalýðsfélags Borgar-
ness hin síðari ár og er óhætt að
fullyrða að Guðmundur lagði
grunninn að mörgum framfara-
sporum sem stigin hafa verið í fél-
aginu.
Guðmundur V. Sigurðsson var
farsæll formaður. Árið 1974 gaf
hann ekki kost á sér til endurkjörs
en hefur setið í trúnaðarmannaráði
síðan. Á fimmtíu ára afmæli
Verkalýðsfélags Borgarness árið
1981 var hann einróma kjörinn
heiðursfélagi þess.
Það var lædrómsríkt og ánægju-
legt að starfa í stjórn félagsins með
Guðmundi. Hann vildi ævinlega
leysa mál með sátt, en gat verið
manna harðastur til baráttu ef
ósanngirni var sýnd.
Nú þegar Guðmundur V. Sig-
urðsson er sjötugur veit ég, að allir
félagsmenn Verkalýðsfélgs Borg-
arness taka undir innilegar ham-
ingjuóksir mínar til hans um leið og
ég flyt honum þakkir fyrir óeigin-
gjarnt og mikilsvert starf í þágu
verkafólks á félagssvæðinu.
Það er von mín, að við megunt
sem lengst njóta starfskrafta og
félagsskapar Guðmundar V. Sig-
urðssonar.
Jón Agnar Eggertsson.
Mér er sagt að vinur minn, Guð-
mundur V. Sigurðsson fyrrum for-
maður Verkalýðsfélags Borgar-
Skúli Alexandersson alþingismaður:
ness, sé sjötíu ára í dag og vildi ég
því nota tækifærið og flytja honum
mínar bestu afmæliskveðjur.
Guðmundur mun hafa tekið við
formennsku í verkalýðsfélaginu í
Borgarnesi þegar þar höfðu átt sér
stað mikil átök um nokkurt árabil.
Strax í upphafi mun hann hafa sett
sér að lægja þær öldur og það tókst
honum og samstarfsmönnum hans
með þeim ágætum, að félagið er nú
meðal þeirra öflugustu félaga og þó
að Guðmundur hafi nú fyrir nokkr-
um árum látið af formennsku og
yngra fólk tekið við, sem hefur bor-
ið gæfu til að halda áfram og bæta
við, mun lengi búa að hans starfi í
félaginu.
í formannstíð hans var bryddað
á ýmsum þeirn nýjungum, sem fé-
laginu og félagsmönnum hafa orð-
ið hvað drýgstar til framdráttar.
Guðntundur rækti formennsku-
starf sitt af einstakri kostgæfni og
trúmennsku og samviskusemi, og
hafa þó störfin fyrir félagið oftast
verið unnin til viðbótar við annars
langan vinnudag. Hætt er við að þá
hafi hvíldartími á stundum verið í
styttra lagi, en Guðmundur er einn
þeirra öndvegismanna verkalýðs-
hreyfingarinnar, sem taldi hverri
stund vel varið, sem í hennar þágu
var unnið og aldrei spurt um laun.
Þá hefur formennskustarf hans
verið mikið álag á heimili hans, því
að fyrstu formennskuár hans átti
félagið engan samastað. En heima
naut hann aðstoðar ágætrar eigin-
konu Ingvarínu Einarsdóttur, sem
lést langt um aldur fram 1972.
Heimili hans og þeirra hjóna
meðan eiginkona hans lifði, hefur
ávallt verið vinum hans og
samstarfsmönnum í verkalýðs-
hreyfingunni opið og þar er gott að
koma, gestrisni og alúð hefur ávallt
verið þar í fyrirrúmi. Trúlega hafa
þar innan veggja verið teknar ýms-
ar þær ákvarðanir, sem verkalýðs-
félaginu hafa orðið til mestra
heilla.
Guðmundur Sigurðsson er fá-
gætur maður í viðkynningu og dag-
legri umgengni. Glaðværð hans,
hjálpsemi og greiðvikni er við
brugðið. Gæti ég sagt af því sögur
til sannindamerkis ef þyrfti.
Að lokum sendi ég og við hjónin
bestu afmælisóskir og þökkum
órofavináttu.
Þórir Daníelsson.
Sameining sveitarfélaga á
Vesturlandi kemur til greina
Eg tel að nú sé kominn tínii til að
skoða það í fullri alvöru hvort ekki
sé rétt að sameina sveitarfélögin á
norðanverðu nesinu í eitt sveitarfé-
lag, einn kaupstað sagði Skúlj Alex-
andersson alþingismaður í viðtali
við Þjóðviljann fyrir skömmu en
hann flytur ásamt öðrum þing-
mönnum Vesturlands þingsálykt-
unartillögu á alþingi um að Olafs-
Nýr hæsta-
réttardómari
Forseti íslands hefur, að til-
lögu dómsmálaráðherra skipað
Guðmund Jónsson, borgardómara
og settan hæstaréttardómara, í
embætti dómara í Hæstarétti ís-
lands frá 1. janúar 1983 að telja.
vík fái kaupstaðarréttindi.
Skúli sagði að í sjálfu sér væri
ekki ntikil breyting fólgin í því að
Ólafsvík yrði kaupstaður. íbúar Ól-
afsfjarðar fá bæjarfógeta, í stað
þess að sækja til sýslumannsemb-
ættisins í Stykkishólmi. Þetta gildir
ekki fyrir nágrannabyggðarlögin,
nema lagabreyting komi til.
- Mikið jafnræði er nú með þess-
um byggðarlögum í félagslegu og
atvinnulegu tilliti. Og með lagn-
ingu vegar fyrir Enni tengjast þau
enn betur saman en áður.
- I ljósi alls þessa tel ég að kom-
inn sé tími til að kanna í alvöru
hvort ekki væri rétt að sveitarfé-
lögin í eina kaupstað. Þessi
sveitarfélög eru Neshreppur, Ól-
afsvík, Fróðaárhreppur og Breiðu-
víkurhreppur.
-óg