Þjóðviljinn - 30.12.1982, Blaðsíða 15
Fimmtudagur 30. desember 1982 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 15
RUV <9
7.00 Veðurfregnir. Fréttir. Bæn. Gull í
mund. 7.25 Leikfimi.
7.55 Daglegt mál. Endurtekinn þáttur
Árna Böðvarssonar frá kvöldinu áður.
8.00 Fréttir 8.15 Veðurfregnir Morgun-
orð: Þórður B. Sigurðsson talar.
8.30 Forustugr. dagbi. (útdr.).
9.00 Fréttir.
9.05 Morgunstund barnanna Bréf frá rit-
höfundum. í dag: Páll H. Pálsson. Um-
sjón: Sigrún Sigurðardóttir (RÚVAK).
9.25 Leikfimi. Tilkynningar. Tónleikar.
10.00 Fréttir. 10.10 Veðurfregnir.
10.30 Iðnaðarmál Umsjón: Sigmar Ár-
mannsson og Sveinn Hannesson.
10.45 Vinnuvernd Umsjón: Vigfús
Geirdal.
11.00 Við Pollinn Gestur E. Jónasson velur
og kynnir létta tónlist (RÚVAK).
11.40 Felagsmál og vinna Umsjón: Helgi
Már Arthúrsson og Guðrún Ágústs-
dóttir.
12.00 Dagskrá. Tónleikar. Tilkynningar.
12.20 Fréttir. 12.45 Veðurfregnir. Til-
kynningar. Fimmtudagssyrpa - Ásta R.
Jóhannesdóttir.
14.30 „Lcyndarmálið í Engidal“ eftir Hug-
rúnu Höfundur les (4).
Sigrún Björnsdóttir leikkona sér um þáttinn
Hátíð á öðrum bæjum, sem er á dagskrá
útvarps kl. 21.10.
15.00 Miðdcgistónleikar: Tónlist eftir
Edvard Grieg Eva Knardahl og Kjell
Ingebretsen leika fjórhent á píanó Norsk-
an dans nr. 1 op. 35/Eva Knardahl og
Fílharnióníusveitin í Lundúnum leika
Píanókonsert í a-moll op. 16; Kjell Inge-
bretsen stj.
15.40 Tilkynningar. Tónleikar.
16.00 Fréttir. Dagskrá. 16.15 Veðurfregn-
ir.
16.20 Útvarpssaga barnanna: „Ógnir töfr-
amannsins“ eftir Þóri S. Guðbergsson
Höfundur les (2).
16.40 Tónhornið Stjórnandi: Guðrún
Birna Hannesdóttir.
17.00 Bræðingur Umsjón: Jóhanna
Harðardóttir.
17.55 Snerting Þáttur um málefni blindra
og sjónskertra í umsjá Arnþórs og Gísla
Helgasona.
18.05 Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins.
19.00 Kvöldfréttir.
19.40 Tilkynningar. Tónleikar.
20.00 Fimmtudagsstúdíóið - Útvarp unga
fólksins Stjórnandi: Helgi Már Barða-
son (RÚVAK).
20.30 „Jólaóratóría“ eftir Johann Sebasti-
an Bacli I. hluti - Kantata á jóladag
Hljóðritun frá tónleikum Kórs Lang-
holtskirkju í Langholtskirkju 28. þ.m.
Stjórnandi: Jón Stefánsson Einsöngvar-
ar: Ólöf Kolbrún Harðardóttir, Sólveig
Björling, Michael Goldthorpe og Hall-
dór Vilhelmsson. Kammersveit leikur.
- Kynnir: Knútur R. Magnússon.
21.10 Hátíð á öðrum bæjum Umsjón: Sig-
rún Björnsdóttir.
21.45 Almcnnt spjall um þjóðfræði Dr. Jón
Hnefill Aðalsteinsson sér unt þáttinn.
22.15 Veðurfregnir. Fréttir. Dagskrá
morgundagsins. Orð kvöldsins.
22.35 „Jólaóratóría“ eftir Johann Sebasti-
an Bach, frh. II. og III. hluti - Kantötur
á annan og þriðja dag jóla. Hljóðritun
frá tónleikum Kórs Langholtskirkju 28.
þ.m. Kynnir Knútur R. Magnússon.
23.45 Fréttir. Dagskrárlok.
Útvarp kl. 21.45
Um uppruna íslensku jólasveinanna
„Mig langar að leiðrétta ansi
hvimleiðan misskilning um
uppruna íslcnsku jóla-
sveinanna, sem hver maður
virðist taka upp eftir öðrum.
Það þarf að leiðrétta ýmislegt í
þessum sígildu missögnum",
sagði Jón HncFdl Aðalsteins-
son seni sér um almennt
þjóðfræðispjall t útvarpi í
kvöld.
En það verður fleira en jól-
asveinauppruni til umræðu í
kvöld. Eitt af því er staða
þjóðfræðinnar í íslenska
skólakerfinu, en að sögn Jóns
er greininni því rniður lítill
sómi sýndur í því kerfi.
Þá verður tekið á stóru
vandamáli sem þjóðfræðingar
eiga sífellt við að glíma. Þar er
um að ræða þann vanda sem
oft skapast við upptöku á
munnlegum heimildum sem
teknar eru beint af vörum
fólks.
I lokin ætlar Jón að upplýsa
hver hinn eini og rétti höfund-
ur limrunnar um Hildi er, en
fjöldi manna hafði verið til-
nefndur sem höfundur þessar-
ar vinsælu limru.
Útvarp kl. 17.00
Víða komið
við í Bræðingi
Bræðingur Jóhönnu
Harðardóttur nýtur mikilla
vinsælda útvarpshlustenda,
og síðdegis í dag flytur hún
landsmönnum síðasta þátt
sinn á þessu ári.
Jóhanna sagði að viss ára-
mótastemmning ntyndi ríkja
yfir þættinum og komið víða
við í efnisumfjöllun. Rætt
verður við starfsmann Osta-
og smjörsölunnar unt matar-
tilbúning fyrir áramótaveislur.
Þá verður fólk á götunni spurt
út úr unt áramótaheit. Að
sögn Jóhönnu var það að
heyra á fólki að töluvert hefði
dregið úr þessum sið frá því
sem áður var. Helst strengdu
menn þess heit að hætta
reykingum eða öðru álíka, og
margir heita því að verða betri
menn á komandi ári, hvað
sem það nú merkir.
Og það er fleira í bræðingn-
urn. Heimilisiðnaðarfélagið
verður kynnt og rætt við
skólastjóra Heimilisiðnaðar-
skólans um starfsemina á
komandi ári. Áhugi á þjóðleg-
uni heimilisiðnaði hefur stór-
aukist á síðustuárum, einkum
vefnaður, þjóðbúningasaum-
ur og jurtalitun, og fleira má
til nefna sem kennt er í Heim-
ilisiðnaðarskólanum.
Útvarp kl. 20.30 og 22.35
Jólaóratoría Bachs
í Langholtskirkju
Jólaóratoría Jóhanns Se-
bastians Bachs skipar veg-
legan sess í kvölddagskrá út-
varpsins. Henni verður út-
varpað í tvennu lagi í kvöld,
fyrst kl. 20.30, þ.e. 1. katla og
síðan II. og III. katla kl.
22.35.
Það er kór Langholtskirkju
sent flytur, en upptakan var
gerö á jólatónleikum kórsins í
*
Langholtskirkju 28. desem-
ber s.l.
Stjórnandi er Jón Stefáns-
son, en einsöngvarar þau Ólöf
Kolbrún Harðardóttir, Sól-
veig Björling, Michael Goldt-
horpe og Halldór Vilhelms-
son. Kammersveit leikur
undir.
Það er Knútur R. Magnús-
son sem kvnnir.
frá lesendum
Enn um Stundarfrið
Mjög þakklát
að fá að sjá
sýninguna
MS hringdi:
Hún vildi korna því á frant-
færi að hún hefði verið ein
þeirra sem sá Stundarfrið fyrir
nokkrunt árum, en hafði ekki
minna gaman af að sjá hann
nú í sjónvarpinu. Hún kvaðst
þekkja ntarga utan af landi
sem aldrei hefðu haft tækifæri
til að sjá sýninguna og hefðu
því verið ntjög þakklátir að fá
þetta tækifæri. Það væri vel,
þegar tvær ríkisstofnanir,
sjónvarpið og Þjóðleikhúsið
tækju svona höndum saman
um að koma bestu menning-
arviðburðum þjóðarinnar til
sveitafólksins líka.
En hún kvaðst furða sig á
því, hvers vegna sjónvarpið
gæti ekki gert efni af þessu
tagi sjálft og var að því leyti
sammála lesendabréfi í
blaðinu á þriðjudag. Hvernig
stendur á því að það efni sem á
að vera samið og unnið sér-
staklega fyrir sjónvarp, eins
og t.d. Félagsheimilið og
margt fleira, er svo margfalt
verra en efni sem kemur úr
leikhúsi, samið og upphaflega
unnið fyrir leikhús? Hún
kvaðst ekki hafa séð öllu betri
kvikmyndaleik hér á landi en í
Stundarfriði í sjónvarpinu og
varpar fram þeirri spurningu
Þorsteinn Ö. Stephensen, Kristbjörg Kjeld og Guðbjörg Þor-
bjarnardóttir í hlutverkúm sínum í sjónvarpsuppfærslunni á
Stundarfriði.
hvort hér sé um að ræða svona
frábæra aðlögun leikhúsverks
að sjónvarpi, eða hvort allt
talið um sjónvarpsleik og
sviðsleik væri einfaldlega mis-
skilningur.