Þjóðviljinn - 30.12.1982, Qupperneq 16
Fimmtudagur 30. desember 1982
Aðalsími Þjóðviljans er 81333 kl. 9 - 20 mánudag til föstudags. Utan þess tíma er hægt að ná í blaðamenn og aðra starfsmenn blaðsins í þessum sínum: Ritstjórn 81382, 81482 og 81527. umbrot 81285, ljósmyndir81257. Aðalsími Kvöldsími Helgarsími afgreiðslu 81663
Laugardaga kl. 9 - 12 er hægt að ná í atgreiðslu blaðsins í síma 81663. Prentsmiðjan Prent hefur síma 81348 og eru bTaðamenn þar á vakt öll kvöld. 81333 81348
Verðlaun úr
sjóði Ásu
Wright
í gær var úthlutað heiðurs-
verðlaunum úr verðlaunasjóði
Ásu Guðmundsdóttur Wright,
en þeim er jafnan úthlutað einu
sinni á ári.
Verðlaunin hlaut að þessu
sinni dr. Jónas Kristjánsson,
forstöðumaður Stofnunar Árna
Magnússonar.
Sturla Friðriksson afhenti
verðlaunin fyrir hönd stjórnar
sjóðsins og tók fram, að Jónas
hefði orðið fyrir valinu vegna
starfa sinna, og fyrir að ganga
fremstur í flokki þeirra, sem
starfa að varðveislu handrit-
anna og hins forna menningar-
arfs okkar íslendinga.
Bæjarútgerð Hafnarfjarðar
segir upp 200 manns
Óviðunandi ástand
segir Hans
Einarsson
trúnaðarmaður
hjá BÚH.
Það hafa um 200 inanns lengið
uppsagnarbréf frá Bæjarútgerð
Hafnarljarðar nú fyrir hátíðarnar,
þar af 150 í fiskvinnslunni og 50
undirmenn á togurunum, sagði
Ilans Einarsson trúnaðarmaður
starlsfólks í fiksvinnslu BÚH í við-
tali við Þjóðviljann í gær.
- Okkur finnst þaö hart að þetta
fyrirtæki, sem stofnað var af bæjar-
félaginu til þess að bæta atvinnu-
ástandið skuli ganga á undan öðr-
um með uppsagnir á fólki.
Þetta er sjöunda uppsagnar-
bréfið sem við fáum frá stjóm BÚH
á árinu, og það geta allir séð, að
þetta er óviðunandi ástand, sem
skapar óöryggi og leiðinda and-
rúmsloft á vinnustaðnum.
Á starfsmannafélagið fulltrúa í
útgerðarráði?
Það á að heita svo að við höfum
þar einn fulltrúa, sem er verkstjóri
hér á staðnum. Hann hefur hins
vegar sagst vera bundinn þagnar-
eiði um það sem geristá útgerðar-
ráðsfundum þannig að okkur finnst
takmarkað gagn af honum. Ég get
ekki sagt að nokkurt samráð hafi
verið haft við starfsfólk um rekst-
ursvanda fyrirtækisins, en okkur
skilst að hann stafi fyrst og fremst
af miklum viðgerðarkostnaði á tog-
aranum Júní, sem hefur verið rek-
inn með stórtapi.
Hvað tekur við ef fyrirtækið
opnar ekki aftur eftir áramótin?
-Það er engin von til þess að
svona stór hópur fái vinnu við ann-
að á þessum tíma, svo ég reikna!
með að flestir fari á atvinnuleysis-
bætur. —ólg.
Þrýstingsaðgerðir
gegn stjórnvöldum
segir Jónas r=j-
Jósteinsson háseti
á togaranum Maí
Þrír togarar Bæjarútgerðar
Hafnarfjarðar, Apríl, Maí og Júní,
liggja nú bundnir við togarabryggj-
una. Við fórum um borð í togarann
Maí og hittum fyrir Jónas Jósteins-
son háseta þar sem hann var að
hella upp á könnuna frammi í
lúkar.
-Okkur var tilkynnt um upp-
sögninanúna í síðastatúrnum fyrir
jól. Við höfum ekki nema viku
uppsagnarfrest og fáum þessa viku
ekki einu sinni borgaða. Það má
segja aö við búum við algjört ör-
yggisleysi í þessu starfi, sem sést
best á því að þetta er í þriðja skipti
sem við erum stopp á árinu. Okkur
finnst þetta furðulegar aðfarir af
þessu fyrirtæki, sem er stofnað til
þess að bæta atvinnuöryggið í
bænum.
Hver er skýringin á slæmri stöðu
fyrirtækisins?
-Ég er ekki beint í aðstöðu til að
dæma um það. Við sjómenn eigum
engan fuiltrúa í útgerðarráði, en ég
veit ekki betur en að útgerðin hafi
gengið vel i haust. Viö höfum verið
á karfa hér við suðvesturhornið og
fiskað ágætlegn og ekki ver en
aðrir. Við viturn aö vísu að
viðgerðarkostnaður á Júní hefur
verið mikill, og svo eru sögusagnir
á kreiki um óstjórn á fyrirtækinu.
Annars er ég að ímynda mér að
þetta séu þrýstingsaðgerðir af fyrir-
tækisins hálfu. Það er aö þrýsta á
bæjaryfirvöld og stjórnvöld um
aukna fyrirgreiðslu. Þetta er
ódrýgsti tíminn í fiskiríi á árinu og
þeir eru nú að yfirfara vélar og ann-
að, og togararnir eiga að vera til-
búnir til að fara á veiðar með
þriggja daga fyrirvara. Ég spái því
að við verðunr komnir út aftur þeg-
ar vika er liðin af janúar.
-ólg.
Fjárhagsáætlun borgarinnar 1983:
Lokað með stór-
felldum lántökum
segir Sigurjón
Pétursson
„Það er fullkomlega
óeðlilegt að á sama tíma og
fjárhagsáætlun er lokað
með stórfelldum lán-
tökum, eru fasteigna-
skattar lækkaðir um 30
miljónir króna sem kemur
fyrst og fremst stóreigna-
mönnum til góða“, sagði
Sigurjón Pétursson m.a. í
útvarpsþætti í gær þar
sem fjárhagsáætlun
Reykjavíkur 1983 var til
umræðu.
Sigurjón benti á að á næsta ári
ætlaði borgin að taka 111 miljónir
króna að láni, 53,7 miljónir frá
væntanlegum lóðarhöíum í Graf-
arvogslandi og 57,3 miljónum frá
lánastofnunum. Hér er um 61,3%
hækkun frá lántökuáætiun þessa
árs að ræða, en þá var áætlað aö
taka lán að upphæð 80 miljónir
króna. Lán að upphæð 26 miljónir.
sem ætlað var til bygginga leiguí-
búða var hins vegar aldrei tekið,
þannig að hér í raun um miklu
meiri mun að ræða.
Davíð Oddsson borgarstjóri
taldi þennan samanburð alrangan
og neitaði að viðurkenna að 53,7
miljónirnar, sem sækja á til lóðar-
hafa, væri lán. Hann fullyrti að lán-
tökur væru í raun áætlaðar minniá
næsta ári en 1982, því einungis
stæði til að taka 57 miljónir króna í
lán á móti 80 á þessu ári. Þá benti
hann á að á næsta ári ætti að verja
80 miljónum í afborganir af lánum,
sem einungis hefðu verið 25 milj-
ónir á þessu ári.
Sigurjón sagði að hér væri um að
ræða fé frá væntanlegum hús-
byggjendum, sem yrði varið á næsta
ári af tekjum, sem með eðlilegu
móti ættu ekki að koma inn fyrr en
eftir 1,2 eða 3 ár, er menn fengju
lóðirnar. „Auðvitað er hér um lán-
töku að ræða“, sagði Sigurjón,
„hvernig svo sem menn reyna að
pakka því inn í skrautpappír og fela
í fjárhagsáætlun.“
Sigurjón mótmælti einnig þeim
aðdróttunum sem hann sagði felast
í orðurn Davíðs um afborganir
lána. „Hér er verið að gefa í skyn
að um 80 miljón króna skuldaarf sé
að ræða frá fyrrverandi meiri-
hluta“, sagði hann. „Það er al-
rangt.“ Stærsti hluti þessarar fjár-
hæðar væru lán, sem Davíð Odds-
son hefði tekið eftir mitt þetta ár.
Þetta væri einfaldlega tilfærsla fjár-
muna hjá núverandi borgarstjóra
og meirihluta hans. ÁJ
g///
m
rugla'pigU
Þótt sýrði rjóminn standi fylli-
lega undir nafni er hann alls ekki
jafn fitandi og þú heldur.
Tökum dœmi: í 100 g af sýrðum
rjóma eru 195 hitaeiningar, í
venjulegum rjóma 345 og í sömu
þyngd afmajones eru 770 hitaein-
ingar.
Taktu nú eftir. Efþú notarsýrð-
an rjóma í salöt, sósur eða ídýfur,
getur þú haft til viðmiðunar að í
hverri matskeið af sýrðum rjóma
eru aðeins 29 hitaeiningar.
Nú hefur sýrði rjóminn verið
endurbœttur. Hann er þykkari en
áður, þótt hitaeiningafjöldinn sé
sá sami. Á dósunum er nýtt og
hentugra lok sem einnig má nota á
skyrdósimar. Með því að þrýsta
létt ofan á miðju loksins fellurþað
allur
þar sem hann er séður.
alveg að.
Já sýrði rjóminn er ekki