Þjóðviljinn - 15.04.1983, Side 6
6 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 15. apríl 1983
kvikmyndir
Einar
Ólafsson
skrifar
Á hverfanda hveli
Handrit: Svarthöfði
Tónlist: Big Band
Verslunarráðsins
Leikstjórn:
Geir Bilderberg
Það var mikil hátíð hjá kvik-
myndahúsgestum þegar banda-
ríska stórmyndin Á hverfanda
hveli var frumsýnd hér í Reykja-
vík um daginn.
Mikil leynd hvíldi yfir gerð
þessarar myndar, en eftir að það
okkur vesturlandabúum. Al-
menningur í Vestur-Evrópu
krefst þess að þessum vígbúnaði
verði svarað og fleiri kjarnorku-
vopnum verði komið upp í
Vestur-Evrópu. En ljóst er að
engin hefðbundin kjarnorku-
vopn duga gegn þessum nýja víg-
búnaði Sovétmanna. Stjórnvöld
NATO-ríkjanna standa ráðþrota
gagnvart þessari ógn að austan.
Þá leita þau á náðir hugvitsmann-
sins Ronnie og gefa honum frjáls-
ar hendur um lausn þessa vanda.
Ronnie veit að hann verður að
byggja svar vesturveldanna á
tvennu, annars vegar afli fólksins
sjálfs, en hins vegar fullkomnustu
tækni. Hann leggur nú nótt við
dag og á nokkrum vikum skipu-
leggur hann nýja stefnu í varnar-
málum, hann lætur færa varnirn-
ar út í geiminn og beinir þannig
Þessi mynd er mikil tækniund-
ur. Stórkostlegir eru þeir kaflar
myndarinnar sem sýna byggingu
varnarkerfisins úti í geimnum.
Vísindamenn og tæknimenn hafa
bækistöðvar í geimstöðvum þar
sem þeir dveljast fjarri ættingjum
sínum á jörðu niðri, svífandi í
geimbúningum vinna þeir störf
sín af nákvæmni og einbeitingu
og vita að þeir hafa ákaflega
skamman tíma og starf þeirra
mun skipta sköpum. Kringum þá
grúfir kolsvartur himingeimur-
inn, fullkomlega ómennskt um-
hverfi og í því umhverfi eru þeir
að vinna að björgun mannkyns-
ins. Og milli þess sem Ronnie
grúfir sig yfir teikniborð vísind-
amannanna á jörðu niðri eða
heldur ræður á fjöldafundum
víða um heim kemur hann í heim-
Kvikmynd um
•1 •1 •• 1 ••
mikil orlog
fór að kvisast út að hún væri
væntanleg var hennar beðið með
eftirvæntingu. Og hún hefur
sannarlega ekki valdiö vonbrigö-
um.
Myndin fjallar um efni sem er
öllum mjöghugstætt núna, það er
ógn kjarnorkustríðsins og þarátt-
an gegn því. Rússar hafa fundið
upp geysilega öflug kjarnorku-
vopn og þrátt fyrir gífurlega öflug
mótmæli um alla Evrópu hafa
þeir komið upp skotpöllum fyrir
þessi morðtól um alla Austur-
Evrópu, jafnvel rétt við vestur-
landamærin fyrir framan nefið á
hugsanlegum átökum frá
jörðinni. Jafnframt ferðast hann
um og talar til fólksins og skapar
geysiöfluga fjöldahreyfingu. Það
er hrífandi að sjá hvernig þessi
einbeitti og viðfelldni hugvits-
maður hrífur fjöldann og virkjar
það afl sem í honum býr. Við hlið
tækniundursins út í geimnum sem
hann skipuleggur af hugviti sínu
gefur hið opna þjóðfélag vestur-
landa honum tækifæri til að skapa
með sannfæringarkrafti sínum og
alþýðlegu viðmóti vopn sem hið
lokaða kerfi Sovétríkjanna á ekk-
ert svar við.
sókn til geimstöðvanna og fylgist
með vinnunni þar.
En þessi mynd er meira en saga
tækniundra og fjöldafunda, hún
fjallar líka um tiífinningar og ör-
lög einstaklinga, eins og öll mikil
listaverk hljóta að gera. Ronnie
til aðstoðar kemur stúlka frá
Bretlandi, Maggie. Hún verður
hægri hönd Ronnies, hún hvetur
hann og veitir honum uppörvun
þegar hann mætir andstreymi í
hinu mikla ætlunarverki sínu, og
að lokum kviknar hjá þeim djúp
ást og á örlagastundinni fylgir
hún honum ótrauð.
FÖSTUDAGSKVÖLD
IJIIHUSINU11 JliHUSINU
OPIÐ í ÖLLUM DEILDUM TIL KL. 10 i KVÖLD
G/æsilegt úrvai
húsgagna á 2. og 3. hæð.
MATVÖRUR
FATNAÐUR
HÚSGÖGN
RAFTÆKI
RAFLJÓS
REIÐHJÓL
Munið okkar
hagstæðu
greiðslu-
skilmála
Jli
Jón Loftsson hf.
Hringbraut 121 Sími 10600
OPIÐ LAUGARDAG FRÁ KL. 9-12
Hautl kkIí
NAID
5HHK
■ HAXU Vj«iU»aAJ<A«'S*S
Mesti ástarekiur
alira ftma
MILTON fRIEOMAN
gr OG PENTAGON-GENGIÐ SÝNA:
1 VW WBWISBÍ
aMI
SHjASTA
Þetta er mynd mikilla and-
stæðna: Ronnie er hvorttveggja í
senn einbeittur vísindamaður og
mælskur alþýðuforingi, í hinni
ómensku tækniveröld úti í
geimnum er unnið að björgun
mannkynsins, andspænis þessum
miklu atburðum er sýnd hugljúf
ástarsaga. Og í hinni miklu tog-
streitu stórveldanna verður hlut-
verk smáríkis afgerandi. Og þetta
smáríki er ísland. Þar þarf að
koma upp mikilvægum fjarskipt-
astöðvum sem eiga að fylgjast
með sérhverri hreyfingu frá So-
vétríkjunum og þaðan á síðan að
senda boð til varnarkerfisins í
geimnum sem eiga að eyðileggja
kjarnorkueldflaugarnar áður en
þær ná til Bandaríkjanna. En
þessurn stöðvum verður að korna
upp með mikilli leynd og aðeins
tveir menn á íslandi vita um hvað
málið snýst. Það er hinn einbeitti
Óli og hinn trygglyndi Geiri, en
hann hefur þegar myndin hefst
beðið mikinn ósigur heima fyrir
og við fylgjumst með því hvernig
hann fær uppreisn æru, hvernig
hann með trygglyndi og óbilandi
trú rís aftur upp.
Það verður hlutverk Geira að
fara til Bandaríkjanna og standa
þar við hlið Ronnies og Maggie
og stjórna þaðan starfinu á Is-
landi sem Óli hefur umsjón með
gagnvart samlöndum sínum.
Fórnarlund þessara tveggja
manna er stórkostleg, en þeim er
báðum ljóst að íslandi verður að
fórna í þessum leik þar sem ólík-
legt er að takist að eyða kjarnork-
uflaugum Rússa áður en þær ná
til íslands. En fyrir þeim vakir
heill mannkynsins í heild og þeir
hvika ekki þótt einhverju þurfi að
fórna.
Því miður leynist svikari á ís-
landi sem tekst að vinna skemmd-
arverk á viðvörunarkerfinu. Ekki
verður komið í veg fyrir að
sprengjur falli á Bandaríkin en
hins vegar er komið í veg fyrir að
gjöreyðingu þar meðan heims-
hluti kommúnismans er lagður í
rúst.
Ógleymanlegt er lokaatriði
myndarinnar. Ronnie, Maggie
og Geiri eru stödd fyrir utan
glæsilegt hús Ronnies þegar
kjarnorkusprengjan springur.
Þau er í skjóli fyrir verstu áhrifum
sprengjunnar, en Maggie slasast
svo að hún verður ófær um gang.
Ronnie tekur hana þá í fang sér
og hleypur að loftvarnabyrginu.
Geiri lítur við og út úr andlitinu
skín sorg yfir örlögum landa
hans, Ronnie horfir á hann alvar-
legur og veit að þarna á hann
traustan vin og Maggie liggur
lömuð í örmum Ronnies og horfir
í sterklegt andlit hans full trún-
aðartrausts. Við göngum út úr bí-
óinu fullviss þess að mannkynið
muni aftur rísa upp úr loftvarna-
byrginu og skapa sér aftur frjálst
samfélag.
V.S.t-MYNÖ
Hún lofaði að fSigja honuni á heiitisenda
llann lotaði að vísa veginn!
UIFTUH- fHM HF
„Það verður hlutverk Geira að fara til Bandaríkjanna og standa þar við
hlið Ronnies og Maggie og stjórna þaðan starfinu á íslandi sem Óli hefur
umsjón með gagnvart samlöndum sínum“
Laus staða
Við Menntaskólann við Hamrahlíð er laus til umsóknar
staða íslenskukennara.
Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna ríkisins.
Umsóknir ásamt ýtarlegum upplýsingum um námsferil og
störf skulu hafa borist menntamálaráðuneytinu, Hverfisgötu
6,101 Reykjavík, fyrir 13. maí n.k. - Umsóknareyðublöð fást
í ráðuneytinu.
Nlenntamálaráðuneytið,
12. apríl 1983.
U! Viðskiptaráðuneytið
óskar aö ráöa ritara til sumarstarfa frá 15.
maí nk..
Umsóknir óskast sendar viöskiptaráðuneyt-
inu fyrir 30. apríl nk..