Þjóðviljinn - 14.05.1983, Qupperneq 7
Helgin 14.-15. maí 1983 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 7
Á að leggja áherslu á einhliða aðgerðir í afvopnunarmálum eða fyrst og fremst á alþjóðlega samninga um þau
mál?
Austur-Evrópa fór ifýlu:
Óháða friðarhreyfmgin
á fundi í Vestur-Berlín
Nú í vikunni hófst í Vestur-Berlín fundur sem menn telja
mikilvægan um fyrir framtíð friðarhreyfinga í Evrópu.
Þar er í fyrsta sinn saman komin sú friðarhreyfing sem
telst vera óháð hagsmunum beggja risavelda.
í næstu viku verður svo haldið
áfram að ræða í Genf um meðal-
dræg kjarnorkuvopn og mun það
einnig skipta miklu fyrir framtíð
friðarhreyfinga hvernig málum
reiðir af þar milli fulltrúa Banda-
ríkjanna og Sovétríkjanna.
E.P.Thompson: vildi fá bæði
„óháða“ og „opinbera“ friðarsinna
til Berlínar.
Ágreiningur
En bæði Berlínarfundurinn og
viðræðurnar í Genf hafa leyst úr
læðingi miklar andstæður innan
friðarhreyfingarinnar. Sá ágrein-
ingur sem þar hefur komið fram
leiðir m.a. til þess, að fundurinn í
Vestur-Berlín er sýnu fámennari
en við hafði verið búist, en það þarf
ekki að þýða að hann verði ómerki-
legri fyrir bragðið.
Ekki koma neinar opinberar
sendinefndir frá Sovétríkjunum
eða öðrum löndum Austur-Evrópu
og einnig munu þeir í friðarhreyf-
ingum Vestur-Evrópu sem hafa í
stórum dráttum tekið málstað Sov-
étmanna í ýmsum deiluefnum láta
sig vanta. Astæðan er sú, að skipu-
leggjendur Berlínarfundarins hafa
lagt á það mikið kapp að hafa sam-
band við hópa í Austur-Evrópu
sem hafa reynt að koma á fót sjálf-
stæðum friðarhópum, sem ekki
færu í einu og öllu að fyrirmælum
stjórnvalda. Mest hefur farið fyrir
slíkum hópum í Austur-Þýskalandi
og þá í tengslum við kirkjur lands-
ins.
Báðir sekir
Sumir telja það miður að slíkur
klofningur sé að staðreynd orðinn,
en aðrir telja bót að því að nú séu
hreinlega dregin mörkin milli
óháðra friðarhreyfinga og þeirra
sem fylgja öðru stórveldinu að mál-
um í veigamiklum greinum.
Þeir sem mæta til Berlínar eru
einkum þeir sem aðhyllast viðhorf
END (Kjarnorkuafvopnun í Evr-
ópu) en helsti oddviti hennar er
breski sagnfræðingurinn E.P.T-
hompson, sem í fyrra kom til ís-
lands í boði Samtaka herstöðva-
andstæðinga. END hefur gefið út
stefnulýsingu þar sem lögð er.
áhersla á að bæði risaveldin beri
ábyrgð á vígbúnaðarkapphlaupinu
og ekki sé ástæða til að skipta sekt-
inni milli þeirra eftir einhverjum
formúlum. í annan stað eru vax-
andi umsvif áhrif hernaðarvélar-
innar í báðum hernaðarblökkum
gagnrýnd sem og sá háski sem af
þeirri maskínu stafar fyrir sjálf-
stæða hugsun og mannréttindi.
Sovétmenn
reiðir
Reyndar er það svo, að ýmsir
talsmenn END og þá ekki síst
E.P.Thompson, hafa í vaxandi
mæli beint gagnrýni sinni að So-
vétríkjunum að undanförnu og þá
fyrir þær ofsóknir sem opinberu
friðarhóparnir hafa sætt. Gagnrýni
á stefnu Sovétríkjanna í vígbún-
aðarmálum og á mannréttindabrot
af þeirra hálfu hefur leitt til harðra
viðbragða frá Moskvu.
Til dæmis hefur formaður
Friðarráðsins sovéska, Júrí Sjúkof,
í bréfi fyrir nokkrum mánuðum
gagnrýnt END harðlega fyrir að
„kljúfa friðarhreyfinguna“ og
heyja „kalt stríð gegn sósíalískum
ríkjum“.
Einhliða
aðgerðir?
En fleiri deiluefni eru uppi í
friðarhreyfingunni en afstaðan til
Sovétríkjanna. Meðal annars þarf
hún að gera það upp við sig, hvort
hún á aðeins að berjast fyrir af-
vopnun í þrengri merkingu orðsins
eða hvort hún á einnig að láta til sín
taka í ýmsum félags- og mannrétt-
indamálum. Líkur benda til þess að
friðarhreyfingin vilji tengja saman
mál eins og atvinnuleysi, stöðnun í
efnahagslífi og útgjöld til hernað-
ar.
í annan stað er spurt að því,
hvort friðarhreyfingarnar eigi að
berjast fyrir einhliða aðgerðum í
afvopnunarmálum í eigin löndum,
eða eiga þær að leggja höfuðá-
herslu á gagnkvæma afvopnun sem
byggi á alþjóðlegum samningum?
Og þarf hið fyrra að útiloka hið
síðarnefnda? Búast má við, að
svarið verði það, að friðarhreyfing-
ar í hverju landi verði að hafa sem
mest frjálsræði um það, hvaða
áherslur þær helst kjósa sér í starfi
sínu.
ÁB tók saman.
Combi Camp
3 útgáfur
’83
'.W.\
psipgf
CC 150
Háfættur fjallavagn sem
kemst um allt hálendiö.
Svefnpláss fyrir 4.
Verö kr. 29.775,-
CC 200
Sá reyndasti I fjölskyldunni.
Svefnpláss fyrir 5-8. Gott far-
angursrými.
Verö kr. 41.600.-
CC 202
Lúxus útgáfan sem tekur viö
af hinum vinsæla Easy.
Svefnpláss fyrir 5-8 og gott
farangursrými.
(Fæst einnig með 2 öxlum til
fjallaferöa.)
Verö kr. 53.435.-
Oa Benco
Bolholti 4 sími 91-21945/84077
Gengi 10.2.83.
i^> Auglýsið í Þjóðviljanum <j|
TIL GRIKKLANDS
MEÐ NÁMSMANNAFLUGI
OGÞÚKEMST ÞANGAÐ TÍMANLEGA TILAÐ
FÁ NÝBAKAÐ GRÍSKTBEAUÐ
AÞENA. Nú er mögulegt að
komast til Aþenu með náms-
mannaflugi frá London, Amster-
dam eða Kaupmannahöfn og
ferðast síðan frjálst um Grikk-
land.
Aþenu er erfitt að lýsa. Sumir
segja að hún sé óhrein og
hávaðasöm, en aðrir halda því
fram að hún sé engu öðru I ík og
hafi töfra sem séu ómótstæði-
legir. Ekki síst sé dvalið þar í 1 -2
daga í byrjun eða lok Grikklands-
ferðarinnar. Til að komast að
hinu sanna er aðeins til eitt ráð,
- þú verður að sjá hana sjálf(ur).
Að sjálfsögðu er tilvalið að nota
Alþjóðlega Afsláttarskírteinið
eða Stúdentaskírteinið og líta
ögn á menninguna á staðnum,
- því hana er jú Grikkland frægt
fy™ Verð: 11.980.-
BAÐSTRANDIKNAR OG NÁJTURÚFEGURÐINA ERAFTUR Á
MÚIIAÐ HNNA Á GRÍSKUEVJUNUM
Þar eru hreinar og cjóðar bað-
strendur, einstök veðursæld,
fjöldi veitinga- og skemmtistaða
og síðast en ekki síst sérstæð
menning, þar sem gestrisni og
innileiki eru i fyrirrúmi.
Hægt er að velja um 1 -3ja vikna
ferðir og brottfarir eru frá Kaup-
mannahöfn tvisvar f viku.
Á KOS er að finna sérstæða
menningu og mikið af fornum
minjum, m.a. má enn sjá merki
um skóla Hippokratesar - föður
læknislistarinnar.
LEROS - eyja Díönu veiðigyðju,
hefur engan flugvöllinn, en
þangað er þó ekki nema 3ja
tíma sigling frá Kos. Á Leros
gengur lífið sinn vanagang í
friðsemd og rólegheitum.
2 vikur á Kos: 13.800.
2 vikur á Samos: 13.770.
2 vikur á Leros: 13.790.
Morgunverður innifalinn.
Á SAMOS getur þú upplifað
einfaldleikann á sama hátt og
Pýþagóras og fegurðina eins og
Fönekíumenn, enda töldu þeir
Heru - gyðju fegurðar fædda á
Samos.
FERÐA
SKRIFSTOFA
STÚDENTA
Hringbraut, sími 16850