Þjóðviljinn - 14.05.1983, Side 13
Helgin 14.-15. maí 1983 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 13
gæti verið að heimurinn hafi verið
skapaður handa manninum sér-
staklega, sem nærist á og læknast af
því sem unthverfis hann er“.
- Samkvæmt lögmálum tíbetskr-
ar læknisfræði, - segir Elbert Bas-
aron, sá sem stjórnar vinnu lífefna-
fræðilækninga, - getur hvaðeina
það sem finnst á jörðu og í and-
rúmslofti haft lækningamátt. -
Samkvæmt frumtalningu okkar,
sem er langt frá því að vera tæm-
andi, notuðu læknar í Tíbet yfir
3000 læknislyf unnin úr eðlilegu
umhverfi. Mörg þeirra voru notuð
sem ábót á fæði. Jurtir gefnar í fæði
voru jafnframt partur af flóknar
samansettum lyflækningum. Það
þarf því engan að undra að ekki
skuli finnast eiturefni í lyfjabúri tí-
betsku læknanna eða lyf með
hliðarverkanir...
Tíbetbúar gerðu lyf úr jurtum,
dýrum og steinefnum. Steinefnin
ein, þau sem lýst er í „Tsjúd-Si“ eru
114. Þeirra á meðal eru ýmsir dýrir
málmar og steinar svo sem gull,
silfur, emerald og perlur. Gull var
til dæmis talið auka langlífi. Kvik-
asilfur var talið hreinsa líkamann
bæði af sýklum og úrgangsefnum.
Vísindamenn álíta að það hafi ein-
mitt verið lækningamáttur ýmissa
steinefna sem olli því að fólk fór að
bera verndargripi gerða af þeim.
Aðferðirnar við að gera „töfra-
lyf“ þessi voru flóknar. Við alþýðu-
lækningar þær sem kunnar eru í
ýmsum löndum er gjarnan notuð
einhver ákveðin jurt við hverjum
ákveðnum sjúkdómi. í tíbetsku
lyfjunum gátu aftur á móti verið
samsetningar úr allt að 80 efnum.
Sjúkdómslýsingar í „Tsjúd-Si“
enda gjarnan á orðunum: „.... en
hvernig lyf þetta er gert skalt þú
spyrja kennara þinn“. Bannhelgi
hvíldi á nákvæmum leiðbeiningum
og uppskriftum þeirra. Þær voru
geymdar í umsjá æðstu prestanna
og almennir læknar áttu ekki að-
gang þar að.
Vísindamenn í Búrjatíu hafa
nokkur þessara gagna undir
höndum.
Starfsmenn rannsóknarstöðvar-
innar eru nú að búa sig undir að
gefa út lýsingar á þeim lækninga-
jurtum sem taldar eru upp í frægum
bókum frá Tíbet og Mongólíu.
Úr steinöld
í okkar tíma
Sérstöðu meðal handlækninga
hefur nálastunguaðferðin.
- Við setjum okkur það, - segir
Khúdanov, - að sannprófa og geta
bent starfandi læknum á næmustu
líffræðilega punkta mannslíkam-
ans, þá sem bent er á í „Tsjúd-Si“.
Núna erum við að koma saman nál-
astungukerfi því sem notað var við
lækningar á miðtaugakerfinu og í
kuðungi innra eyrans. Tilraunir
með að eyða höfuðverkjum hafa
gefið dágóðan árangur.
Tíbetsku læknarnir notuðu nál-
astungur í ríkum mæli til þess að
eyða sársauka af völdum hinna
ýmsu sjúkdóma, svo sem kunnugt
er. Nútíma læknavísindi eru að
leggja fræðilegan grunn að þessari
aðferð. Gert er ráð fyrir að nála-
stungurnar veki framleiðslu efnis í
líkamanum sem til þessa hefur ver-
ið lítt þekkt og netnist endorfín.
Deyfihæfni þess er nokkur hundr-
að sinnum meiri en morfíns.
Endorfín er heldur ekki vanabind-
andi eins og fíknilyf þar eð það
verður til í líkamanum sjálfum.
Sérfræðingar sem fylgst hafa
með því sem fram fer í líkama
mannsins þegar veður er vónt eða
þegar áhrifa sólar gætir mest hall-
ast að þeirri skoðun að hinir virku
punktar á likamanum séu einmitt
þeir „leiðarar“ sem tengja orku
geimsins við orku þá sem flytur
taugaboð nútímans.
- Reynist þessi tilgáta rétt, -
segir Lév Khúdanov, - eru hinir
fornu tíbetsku læknar að gera okk-
ur gáttaða eina ferðina enn með
djúpskyggni sinni. Þeir slógu því
föstu fyrir þúsundum ára að mann-
inn bæri að skoða sem eina heild
með umhverfi sínu og óaðskiljan-
legan frá því.
(APN)
RÍKISSPÍTALARNIR
lausar stöður
LANDSPÍTALINN
AÐSTOÐARLÆKNIR óskast á lyflækningadeild frá
15. júní n.k. til 6 mánaöa meö möguleika á framleng-
ingu. Starfiö skiptist að jöfnu milli blóðskilunardeildar
og göngudeildar sykursjúkra. Umsóknir er greini
nám og fyrri störf sendist Skrifstofu ríkisspítalanna
fyrir 26. maí n.k. á sérstökum eyðublööum fyrir
lækna.
Upplýsingar veita yfirlæknar lyflækningadeildar í
síma 29000.
AÐSTOÐARLÆKNIR óskast á lyflækningadeild til
eins árs frá 1. október n.k.
Umsóknir er greini nám og fyrri störf sendist skrif-
stofu ríkisspítalanna fyrir 30. júní n.k. á sérstökum
umsóknareyðublöðum fyrir lækna.
Upplýsingar veita yfirlæknar lyflækningadeildar í
síma 29000.
MEINATÆKNJR óskast sem fyrst eða eftir sam-
komulagi við hjartarannsóknastofu.
Upplýsingar veitir deildarmeinatæknir hjartarann-
sóknastofu í síma 29000.
RÍKISSPÍTALAR
Reykjavík, 15. maí 1983.
Þorgerður Ingólfs-
Símaskráin
Afhending símaskrárinnar 1983 hefst mánu-
daginn 16. maí til símnotenda.
í Reykjavík veröur símaskráin afgreidd á
Aöalpósthúsinu, gengiö inn frá Austurstræti,
mánudag til föstudags kl. 9-17.
í Hafnarfirði verður símaskráin afhent á
Póst- og símstöðinni Strandgötu 24.
í Kópavogi veröur símaskráin afhent á Póst-
og símstöðinni, Digranesvegi 9.
Varmá í Mosfellssveit veröur símaskráin af-
hent á Póst- og símstöðinni.
Peir notendur, sem eiga rétt á 10 símaskrám
eða fleirum, fá skrárnar sendar heim.
Símaskráin verður aðeins afhent gegn af-
hendingarseðlum, sem póstlagðir hafa
verið til símnotenda.
Athygli skal vakin á því að símaskráin
1983 gengur í gildi frá og með miðviku-
deginum 1. júní 1983.
Frá sama tíma fellur úr gildi símaskráin 1982
vegna fjölda breytinga, sem orðið hafa frá því
hún var gefin út.
Póst- og símamálastofnunin.
1983
Símaskráin
komin út
Símaskráin 1983 verður afhent
til símnotenda frá og með mánu-
deginum 16. maí n.k. og gengur
hún í gildi miðvikudaginn 1. júní
1983. Sjá nánar auglýsingu um af-
hendingu símaskrárinnar í dag-
blöðunum. Símaskrána er þegar
farið að senda út á land til dreif-
ingar.
Upplag símaskrárinnar er um
113 þúsund eintök. Brot skrárinnar
er óbreytt frá 1982. Blaðsíðutal
bókarinnar hefur aukist um 32.
Sú breyting hefur verið gerð á
símaskránni frá 1982, að atvinnu-
viðskiptaskráin (gulu síðurnar) er
nú fyrir aftan nafnaskrá landsíma-
stöðvanna.
þegar á ráðgjöf
reynir
dóttir hlaut
B j artsýnis ver ðlaunin
Þorgerður Ingólfsdóttir hefur
hlotið Bjartsýnisverðlaun Bröste
árið 1983 og verða þau afhent í
Kaupmannahöfn 9. júní.
í greinargerð hinnar íslensku út-
hlutunarnefndar segir á þá leið, að
eftir að Þorgerður réðst til Hamra-
hlíðarskólans hafi hún stofnað
skólakór. „Eldheitur áhugi hennar
samfara listrænum hæfileikum,
laðaði brátt að sér sönggefna nem-
endur skólans og tendraði í þeim
ást á tónlistinni, sem hinsvegar
leiddi til þess, að kórinn varð öðr-
um kórum, sem á eftir komu, til
fyrirmyndar og ávann sér slíka
hylli, að orð fór af, langt út fyrir
landsteinana. Boð fóru að berast
frá ýmsum löndum og sótti kórinn
margar söngstefnur og kórhátíðir
erlendis. Með fádæma ástundun og
fórnfýsi hefur kórinn tileinkað sér
víðtæka efnisskrá, og hefir orðið
lyftistöng íslenskum nútíma-
skáldum, sem flestöll hafa tileink-
að kórnum og stjórnanda hans
söngverk eftir sig.
Það er ekki heiglum hent að
koma af stað jafnstöðugri og vax-
andi framvindu í söngmenningu
einnar þjóðar eins og þeirri, sem að
framan hefur verið lýst og sem
fremstu söngkennarar vorir, með
Þorgerði Ingólfsdóttur í farar-
broddi, hafa átt hlutdeild í. Til þess
þarf þolinmæði og þrautseigju auk
þekkingar og listræns þroska langt
fram yfir það, er gengur og gerist.
Aðalatriðið er samt bjartsýnin,
trúin á að vel takist og að hugur
þess, er í hlut á, ráði hálfum sigri.“
Gunnar J. Friðriksson, Árni
Kristjánsson og Gylfi Þ. Gíslason
eru í úthlutunarnefnd, en verndari
verðlaunanna er Vigdís forseti -
verðlaunin voru stofnuð er hún var
í opinberri heimsókn í Danmörku
fyrir þrem árum.
Suðurnes
Lóðaskoðun hjá fyrirtækjum á svæðinu er
hafin og er þess vænst, að eigendur og um-
sjónarmenn fyrirtækja taki virkan þátt í fegr-
un byggðarlaganna með snyrtilegri um-
gengni við fyrirtæki sín.
Heilbrigðisfulltrúi Suðurnesja