Þjóðviljinn - 14.05.1983, Page 27
Helgin 14.-15. maí 1983 ÞJOÐVILJINN - SIÐA 27
Stj órnarmyndunin:
Mun snúa mér til
Sjálfstæðlsmanna
sagði Steingrímur Hermannsson
eftir þingflokks og framkvæmda-
stjórnarfund Framsóknarmanna í gær
Þingflokkur og framkvæmda-
stjórn Framsóknarflokksins kom
saman til fundar í gær og að honum
loknum sagði Steingrímur Her-
mannsson formaður flokksins að
niðurstaðan hefði orðið sú á fund-
inum að óska eftir viðræðum við
Sjálfstæðisflokkinn.
Hann var þá spurður hvort
eitthvað hefði breyst frá því að
þessir sömu aðilar slitu viðræðum
sl. miðvikudag að öðru leyti en því
að nú færi hann sjálfur með um-
boðið til stjórnarmyndunar?
Við höfum farið vandlega yfir
þau málefni sem þessir flokkar
hafa rætt um og við munum byrja
þar sem þær viðræður enduðu. Eg
hef, eftir að ég fékk umboð til
stjórnarmyndunar, átt viðræður
við fulltrúa allra flokka og lista og.
útúr þeim viðræðunr kom það, að
engin von væri til að korna saman
ríkisstjórn 4ra eða 5 flokka á svo
skömmum tíma sem nú er.
Áttu þá við tímann fram að hvíta-
sunnu?
Já, við geturn sagt það, en ég
hygg að það yrði mikið verk að
koma saman ríkisstjórn svo margra
flokka og ennþá nreira verk að
halda slíkri stjórn saman. Við
Framsóknarmenn viljum ekki
mynda ríkisstjórn til skamms tíma
og munum ekki taka þátt í því.
Nú hafið þið á þessum fundi
samþykkt nýjar eða endurskoðað-
ar efnahagstillögur og það bar ekki
svo mikið í milli þegar þið slituð
viðræðum á miðvikudaginn, ertu
bjartsýnn á að saman dragi nú?
Já, ég er það, ég vona það að
minnsta kosti.
Hvað með tímamörk á þinni
stjórnarmyndunartilraun?
Ég hef sagt það við Forseta ís-
lands að ég vilji láta þessa tilraun
ganga hratt og vel og það hygg ég
Kannski dugar helgin, sagði Steingrímur.
að Sjálfstæðismenn vilji líka, en
aðalatriðið er að það komi fljótt í
Ijós hvort það er raunverulegur
vilji og möguleiki til stjórnarmynd-
unar.
Dugar þessi helgi ?
Ef það erekki vilji þá dugar hún,
annars þarf lengri tíma.
Kemur AI|rýðuflokkurinn inní
þessar viðræður?
Hann hefur sett sín skilyrði og ég
er sammála því sem Geir Hall-
grímsson sagðium þau, að ekkiværi
hægt að ganga að þeim.
-S.dór
Starfslaun listamanna
Fjörutíu og
tveir hlutu
starfslaunin
Úthlutunarnefnd starfslauna
listamanna hefur tilkynnt um
starfslaun fyrir árið 1983. Samtals
sóttu 103 listamenn um laun að
þessu sinni en 42 höfðu erindi sem
erfiði. Samkvæmt fjárlögum eru
2.5 miljónir ætlaðar til þessa og
miðast starfslaunin við byrjunar-
laun menntaskólakennara.
Þeir sem hlutu starfslaun eru
þessir:
10 inánaða laun:
Einar Hákonarson til að vinna að
myndlist.
Hjálmar H. Ragnarsson til að
vinna að tónverkum.
6 mánaða laun:
Áslaug Ragnars til að semja leikrit.
Borgar Garðarsson til að vinna að
leiksýningu.
Edda Erlendsdóttir til að undirbúa
tónleikahald.
Einar G. Baldvinsson til að undir-
búa myndlistarsýningu.
Einar Þorláksson til að vinna að
myndlistarsýningu.
Hafliði Hallgrímsson til að vinna að
tónverkum.
Magnús Pálsson til að vinna að
myndlistarsýningu.
Oddur Björnsson til að vinna að
leikritagerð.
Ólafur Haukur Símonarson til að
vinna að leikritagerð.
Ragnar Kjartansson til að vinna að
myndlistarsýningu.
Sigrún Guðjónsdóttir til að vinna
að myndlistarsýningu.
Steinunn Marteinsdóttir til að
undirbúa myndlistarsýningu.
Þórarinn Eldjárn til að fullgera
smásagnasafn.
3ja mánaða laun:
Alfreð Flóki til að vinna að mynd-
list.
Ása Ólafsdóttir til að vinna að
, myndlist.
Ásgeir Jakobsson til að vinna að
skáldsögu.
Brynhildur Þorgeirsdóttir til að
vinna að myndlistarsýningu.
Einar Guðmundsson til að vinna að
ritstörfum.
Guðjón Ketilsson til að vinna að
myndlistarsýningu.
Guðmundur L. Friðfinnsson til að
vinna að ritverki.
Guðmundur Halldórsson frá
Bergsstöðum til að vinna að
skáldsögu.
Guðmundur Thoroddsen til að
vinna að myndlist.
Guðrún Hrönn Ragnarsdóttir til að
undirbúa sýningu.
Gunnar Dal til að vinna að
ljóðabók.
Hallsteinn Sigurðsson til að vinna
að myndlist.
Hjalti Rögnvaldsson til að vinna að
leikgerð.
Jakob Jónsson til að vinna að mál-
verkasýningu.
Jónas Guðmundsson til að vinna að
leikriti og smásagnasafni.
Níels Hafstcin til að undirbúa sýn-
ingu.
Ólafur Ormsson til að vinna að rit-
störfum.
Ómar Þ. Halldórsson til að skrifa
skáldsögu.
Sigfús Halldórsson til að vinna að
tónsmíðum og undirbúa mynd-
listarsýningu.
Sigríður Guðjónsdóttir til að
undirbúa sýningu.
Sigurður Þ. Sigurðsson til að vinna
að myndlistarsýningu.
Sigþrúður Pálsdóttir til að undir-
búa sýningu.
Steinunn Sigurðardóttir til að
vinna að skáldsögu.
Sveinn Björnsson til að vinna að
myndlist.
Veturliði Gunnarsson til að vinna
að nryndlistarsýningu.
Valgerður Þóra Benediktsson til að
semja skáldsögu.
Þorbjörg Þórðardóttir til að vinna
að myndlistarsýningu.
Uthlutunarnefnd skipuðu Magn-
ús Þórðarson, formaður úthlutun-
arnefndar listamannalauna, Þor-
kell Sigurbjörnsson, forseti Banda-
lags íslenskra listamanna, og Run-
ólfur Þórarinsson stjórnarráðsfull-
trúi, formaður nefndarinnar.
Laus staða
deildarstjóra í skrifstófu Alþingis
Staða deildarstjóra í skrifstofu Alþingis er laus til umsóknar.
Veitt frá 1. júlí 1983. Verkefni m.a.: Ritstjórn prentunar
þingskjala og skjalaparts Alþingistíðinda. Menntun cand.
mag próf frá Háskóla íslands.
Laun samkvæmt launakerfi opinberra starfsmanna. Um-
sóknir ásamt upplýsingum um menntun og fyrri störf berisl
skrifstofunni eigi síðar en 15. júní n.k.
Skrifstofa Alþingis 13. maí 1983
Göngudagur
ásunnudag
Norræna Trimmlandskeppnin
fyrir fatlaða hefur gengið mjög vel
fram að þessu, og er þátttaka sér-
lega góð á fjölmörgum heimilum
og dvalarstofnunum fyrir fatlaða.
Af þeim stöðum sem við höfum
haft samband við er þátttakan víða
allt að 100%. Vinsælustu greinarn-
ar fram að þessu eru án efa sund,
hjólastólaakstur og ganga.
íþróttasamband fatlaðra hefur
ákveðið að efna til sérstakra göngu-
daga í tilefni Trimmlandskeppn-
innar og verður sá fyrsti núna á
sunnudag. Gangan hefst kl. 13.30.
Gengið verður frá Sjálfsbjargar-
húsinu, Hátúni 12 og eru sem flest-
ir hvattir til að mæta. Laugardag-
inn 21. maí hefst gangan frá sama
stað kl. 11.00 og sunnudaginn 29.
maí kl. 13.30.
Trimmlandskeppninni lýkur 31.
Myndlista- og
handíðaskólinn
Vorsýning
Árleg vorsýning Myndlistar- og
handíðaskólans verður opnuð í
húsnæði skólans að Skipholti 1 kl.
14 í dag.
Nemendur 4. árs halda sýningu
að Skipholti 25 á lokaverkefnum
sínum. Sýnt verður tauþrykk, vefn-
aður, grafík, málverk, auglýsinga-
gerð og sitthvað fleira sem nem-
endur skólans hafa glímt við í
vetur.
Um 200 nemendur stunduðu
nám við skólann í vétur en vin-
sælustu deildir skólans eru
auglýsinga- og málunardeild. 60
kennarar kenndu við skólann í vet-
ur, þar á meðal nokkrir þekktir er-
lendir listamenn.
í gær unnu nemcndur skólans við
að hengja upp myndverk sín fyrir
sýninguna. Mynd -eik.
fg? Lausar stöður
í jf hjá Reykjavíkurborg
Reykjavíkurborg vill ráða starfsfólk til eftirtalinna
starfa. Starfskjör skv. kjarasamningum.
• Staða forstöðumanns við eftirtalin heimili.
Fóstrumenntun er áskilin:
- Dagheimilið Laufásborg, Laufásv. 53
- Dagheimilið/ leikskólann Ösp, Asparf. 2
- Leikskólann Leikfell, Æsufelli 4
- Skóladagheimilið Auðarstraeti 3.
• Fóstrustöður við eftirtalin dagvistarhefmili:
- Hlfðaborg v. Eskihlíð
- Hólakot v. Suðurhóla
- Vesturborg, Hagamel 55
- Ægisborg v. Ægisíðu
Upplýsfngar veitir umsjónarfóstra Fornhags §, síma
27277 eða forstöðumaður viökomandi dagvistar-
heimihs.
matsveins við Þjónustufbóðtr iMraðra
við Dalbraut.
Upplýsingar veitir forstöðumaður Þjónustuíbúða aldr-
aðra, í síma 85377.
Umsóknir skulu vera skriflegar og grema »».a. frá
menntun og starfsreynslu, auk almennra pirsónu-
legra upplýsinga.
Umsóknum ber að skila til starfsmannahaWa Reykja-
víkurborgar, Pósthússtræti 9, 6. haeð fyrtr kl. 16.00
miðvikudaginn 25. maí 1983.