Þjóðviljinn - 06.08.1983, Side 11
Heígin 6.-Í. ágúst 1983 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 11
Borgarbókasafn:
Útlánum
fækkaði
r
i
fyrra
Borgarbókasafn Reykjavíkur
lánaöi út 893 þúsundir bóka í fyrra
og jafngildir þaö því að hver
Reykvíkingur hafi fengið lánaðar
meira en tíu bækur. Samt voru út-
lán nokkru færri en árið 1981 eða
um 73 þúsundum.
Flestar bækur voru lánaðar út í
niars eða tæplega 90 þúsundir en
minnst út í desember - enda fá þá
margir nýjar bækur að gjöf.
Bókaeign Borgarbókasafnsins
er nú 323.256 bindi og nam brúttó
aukning um 14 þúsundum bóka.
Dynskógar
komnir út
Dynskógar, rit Vestur-Skaftfell-
inga, annar árgangur, eru komnir
út. Þetta er ákaflega glæsilegt rit,
bundið inn með litprentaðri kápu,
prentað á góðan pappír og vel
myndskreytt. I ritstjórn eru þeir
Björgvin Salómonsson, Helgi
Magnússon og Sigurjón Einarsson.
Veigamesta efnið í þessu riti er
greinin Rafvæðing í Vestur-
Skaftafellssýslu eftir Þórólf Árna-
son vélaverkfræðing. Þar er eink-
um sagt frá hinu mikla
brautryðjandastarfi Bjarna Run-
ólfssonar í Hólmi i Landbroti en
hann reisti um 116 vatnsaflsstöðvar
víða um land á árunum 1920-1938.
í kjölfar hans komu svo menn eins
og Eiríkur Björnsson í Svínadal,
Sigurjón Björnsson í Svínadal, Sig-
fús Vigfússon á Geirlandi, Einar
Sverrisson á Kaldrananesi og Guð-
mundur Einarsson í Vík. Þáttur
heimamanna í Vestur-Skaftafells-
sýslu í byggingu vatnsaflsstöðva og
hin merkilega túrbínusmíði þeirra
er merkur þáttur í þjóðarsögunni
og hér eru henni gerð ýtarleg skil,
bæði frá sögulegu og verkfræðilegu
sjónarmiði. Greininni fylgir fjöldi
mynda.
Af öðru efni í ritinu má nefna
Um Skaftárelda og Skaftárelda-
hraun eftir Þorleif Einarsson
jarðfræðing og Um áhrif Skaftár-
elda á mannlíf á íslandi eftir
iSveinbjörn Rafnsson prófessor,
hvort tveggja erindi flutt á Kirkju-
bæjarklaustri 8. júní sl.
Þá skrifar Sigurjón Einarsson
um kirkjur á Kirkjubæjarklaustri
1783-1983 og Gísli Brynjólfsson
um Smíðaskólann í Hólnti í Land-
broti. Sigurbjörn Einarsson biskup
gerir athugasemdir um jarðarfar-
arsiði í Meðallandi og í lokin eru
annálar úr Vestur-Skaftafellssýslu.
- GFr
•S
M.
Jf^
Bergljót og Elmer á sýningu sinni í Nýlistasafninu. Ljósm.: Leifur
Post-Painting Elmers og Bergljótar
Plastveröld í Nýlistasafninu
Post-painting - eftir málun - er
yfirskrift sýningar sem opnaði í gær
í Nýlistasafninu við Vatnsstíg og
Daninn Elnter og íslendingurinn
Bergljót Ragnars standa að. Tit-
illinn er tvíræður: liann getur þýtt
að loknu málverkinu, þegar mál-
verkið er dautt eða eitthvað þvíum-
líkt og harin getur líka vísað til
vinnubragða Elmers og Bergljótar:
þau mála eftir öðrum myndum á
plast.
Sum sé: sú myndlist sem við
fáum að skoða í Nýlistasafninu
næstu vikur eru plastútgáfur af
verkum ýmissa annarra lista-
manna; þarna eru myndir í anda
nýja málverksins, klósettveggja-
litteratúr, jólakort og samanbitinn
Dick Tracy og fleira og fleira.
Við Þjóðviljamenn kíktum við
hjá þeint í vikunni og snarlega upp-
hófust andríkar samræður um
post-painting á harðsnúinni Kaup-
mannahafnar-dönsku milli sýn-
enda og Leifs Ijósmyndara - blaöa-
maður var hins vegar hálf utan-
veltu með sína Andrésar Andar-
dönsku og takmarkaö vit á mynd-
list.
Af santræðunum mátti þó ráða
að Post-painting er kaldhæðnislcgt
andsvar við ógöngunt listarinnat í
markaðssamfélagi þarscm sérhver
nýjung er tekin og gerð að huggu-
legri vöru og þar með vængstýfð.
Þau Bergljót harðneita aö láta
bendla sig viö nokkuð sem heitið
gæti list. „Öll list býryfirákveðinni
kænsku" scgir Elmcr í greinargerð
með sýningunni: „Post-painting
býrckki yfirneinni kænsku." Hann
segir að Post-painting krefjist
engra íorsendna né „sérlegs
persónuleika" - hún bara er.
Bergljót talar unt að af Post-
painting bliki „þessi geislaröðull
tómsins, vegna þess að myndirnar
eru skapaðar fyrirfram og verða til
aðeins við snertingu efnisins/
plastsins."
Ungbarnadauði
minnkar
Skelfileg tíöindi birtust á
forsíðu New York Times fyrir
skömmu. „Fjöldi barnafædd
andlega eða líkamlega vanheil
hefur tvöfaldast á síðustu 25
árurn". Sjónvarp og útvarp, auk
annarra blaða tóku málið upp
og sagt var að um 140.000
börn fæddust vansköpuð eða
andlega vanheil árlega.
Orsakirnar: Óþekktir vírusar,
efnamengun og síðast en ekki
síst hájDróaðaraðferðirviðað
halda lífi í ófullburða,
vanheilum nýburum.
Þessi tíðindi vöktu mikinn óhug,
en læknar voru fljótir að leiðrétta
þau. Málið var eícki svona slæmt.
Andlega og líkamlega vanheilum
Nýburi sem vegur innan við 1 kg. Fjölgar vanheilum börnum, vegna þess að unnt er að halda lífinu í
miklum fjölda ófullburða barna?
Vanheilum börnum fjölgar
börnum hafði alls ekki fjölgað frá
2% í 4% eins og fréttirnar sögðu,
heldur hefur börnum með vægari
sjúkdóma, allt frá asma til sykur-
sýki, fjölgað úr 1,7% til 3,8% frá
1958 til 1981.
Þó aö þetta hafi verið leiðrétt og
menn hafi andað léttar, er ekki þar
með sagt að menn séu ánægðir með
þessar niðurstöður heldur. Hvers
vegna fjölgar svo slíkunt sjúkdóm-
um í nýburum?
Vissulega hafa líkurnar á að
hægt sé að halda lífi í veikburða
nýburum aukist mjög, en t.d.
hjarta- og lungnasjúkdómar eru
talsvert algengir hjá börnum sem
fæðast mjög smá. Einnig er talið að
hjartasjúklingar, sent nú orðið lifa
oft svo lengi að þeir ná að eiga eða
geta börn, fiytji ágallann áfram í
nýja kynslóð, en fyrir nokkrum ár-
atugum létust börn oftast nokkurra
ára gömul, ef þau voru með ágalla
á hjarta.
Mengun, - hættuleg efni í and-
rúmslofti, á vinnustöðum og á
heimilum eru líka oft mjög skaðleg
fyrir fóstrin, og aukin þátttaka
kvenna í atvinnulífi hefur há áhrif.
Konur sem vinna við einhvers kon-
ar efnaiðju á meðan þær eru van-
færar eru t.d. í mun nteiri hættu en
aðrar. Þá hafa auknar reykingar
áhrif á fóstur og margir læknar telja
að konur sem reykja ntikið eigi
ekki aðeins minni börn, heldur oft-
ast einnig vanheilli.
Þrátt fyrir öll þessi válegu tíð-
indi, eru þó gleðilegri fréttir innan
um og saman við. Margir lífshættu-
legir barnasjúkdómar eru úr sög-
unni, bólusetning og rannsóknir á
vanfærum konum hafa rutt úr vegi
að mestu heyrnarleysi af völdum
rauðra hunda og blóðflokkarann-
sóknir eru nú svo fullkomnar að
unnt er að koma í veg fyrir hættu-
legar afleiðingar andstæðra blóð-
flokka foreldra. Og ekki ntá
gleynra legvatnsprófunum, sem
sýna hvort um alvarlegar litning-
askemmdir er að ræða hjá fóstrinu.
Allt þetta gefur þrátt fyrir allt til-
efni til nokkurrar bjartsýni.
(Byggt á Newsweek, þs)