Þjóðviljinn - 06.08.1983, Blaðsíða 18

Þjóðviljinn - 06.08.1983, Blaðsíða 18
18 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Helgin 6.-7. ágúst 19^3 daegurmál (sígiid?) ,/í ekki að spyrna viðfœti.. ? „The Boys from Chicago" Þorlákur Kristinsson og hljómsveitin ik.irus: Beggi, Bragi, Kommi, Megas. Raddir: Finnbogi Pétursson, Guðbjörg Thoroddsen, Kristinn Morthens. Gunnar Smári og Júlíus Agnarsson tóku upp í Grettisgati. Þá er hún loks komin platan hans Tolla sem upphaflega stóð til að birtist á þjóðhátíðardegi allra Islendinga en rétt hafði að komast á markaðinn frjálsa fyrir hátíð þjóðarbrotanna Vest- mannaeyinga og verslunarmanna um síðustu helgi. Þessir árlegu viðburðir eru auðvitað hinir tnerkustu hver á sinn hátt og vel þess virði að miða plötuútgáfu við, en það er góð tilviljun(?) að platan skuli hafa birst svo nálægt deginum í dag, þegar Friðarg- anga ’83 er farin frá herstöðvar- hliði í Keflavík til höfuðborgar- innar, því að „platan er innleg í baráttu líðandi stundar", eins og Tolli eða Þorlákur Kristinsson fullu nafni, sagði í viðtali við JVS Aðstandendur „Drengjanna frá Chicago“ á bæjarrölti. Þorlákur Kristinsson er lengst til hægri (ber í Bankastræti núll). sem fullorðna fólkið er ekki eins fúst að ræða og „hneykslanlegt" framferði unglinga, en það er kynferðisleg misnotkun full- orðinna karlmanna á börnum. Um það kveður og syngur Megas Krókódílamanninn, sem bíður oní kjallaratröppum og kemur auga á píu sem stendur vart á ■ löppunum og á ekki fyrir bíl heim. Krókódílamaðurinn „býðst“ til að aka henni „heim“ og dregur bráðina upp Bröttug- ötu, því að skyldi nokkur taka eftir þótt æpi drukkin, lítil dama? En þessi saga endar betur en á horfist, því að bjargvætturinn Laufey birtist „blásvört í framan" þegar krókódílamaðurinn hel- tekinn „gráa fiðringnum" er að troða bráðinni inn í gráa Lödu. Hann hefur þá miklu „siðgæðis- kennd“ að hann veit að enginn má verða vitni að slíku athæfi, sleppir bráðinni og leggur á flótta heim til „konunnar“. Þessi texti Megasar er því mið- ur sönn lýsing á því sem gerist í Reykjavík um hverja helgi. Ekki eru allir svo heppnir að Laufey, sem rekur athvarf að eigin frum- kvæði í Grjótaþorpinu fyrir vega- lausa unglinga og illa til reika, stöðvi slíkar „boðsferðir“ áður en innifalin þjónusta er látin í té. Lag Tolla næst á undan um Ikarus-strætisvagnana, Ungver- ska vorið, rifjar upp fyrir manni að SVR hafði efni á að kaupa þá ekki, heldur miklu dýrari Volvo- bíla. Hins vegar ákvað hægri meirihlutinn í borgarstjórn að sama fyrirtæki hefði ekki efni á að reyna að koma í veg fyrir að unglingsstúlkur bíði misjafnlega varanlegan skaða af áðurnefnd- um „boðsferðum“, meðþví að vera með næturferðir um helgar. „The Boys from Chicago" er engin venjuleg hljómplata og á vel skilin langlokuskrif sem ég vona þó að ekki verði til að fólk springi á limminu, því að heyrn er frásögn hressari. Ádeilutextar Tolla eru auðvit- að kjarni plötunnar, en músikin er í þéttu sambandi við ákveðna afstöðu hans til manna og mál- efna. Hún (músikin) er af rótum þjóðlagarokks Dylans, þegar hann var ungur reiður maður, vel blönduð nýbylgjurokki. Hljóm- listarmennirnir standa sig líka þrælvel, t.d. er gítar- og bassa- leikur sérlega skemmtilegur, rödd Finnboga og flutningur Kristins Morthens, föður Tolla, í frumlegu lagi sem heitir Glugg- inn á plötuhulstri en Fallið á textablaði. Þá er Megas „spes“ eins og alltaf í þeim 4 lögum sem hann á á B-fleti, en þó frábærast- ur í Krókódílamanninum. Hljóðblöndun finnst mér góð, en „græjudellumenn kvarta undan „sándinu" sem þeir segja því að kenna hversu mörg lög eru á plötunni. En það plagar mig ekki. Tolli sjálfur skefur ekkert utanaf flutningnum á textum sín- um. Rödd hans hljómar líkt og í Bubba, hans yngri og frægari bróður, en mismikið þó - og svo sem ekkert hægt að fullyrða um hvor sé líkur hvorum. Þó þarf hvorugur á upphefð hins að halda, og báðir eiga þeir erindi á hljómplötu og ná til breiðari aldurshóps en flestir hérlendir rokkarar. Ég hugsa að Þorláki Kristins- syni takist með „Drengjunum frá Chicago" að ýta við einhverjum sofandi sálum, og fá þær til að „spyrna við fæti áður en hann dettur af. Sumir eru að byrja að haltra af stað“... Sjáumst í Frið- argöngu ’83. A í Þjóðviljanum um síðustu helgi. „Við veröum að láta heyra í okk- ur áður en kjarnorkusprengjun- um rignir yfir okkur“...og að | eint endurteknum orðum birt- um við kaldhæðnislegan texta hans um okkur sem „hér uppi á skerinu sitjum... saman í næði" sem áskorun til værukærra friðar- sinna, sem ennþá heima sitja, að drífa sig í Friöargöngu ’83: Hér skeöur ahlrei neitt Kaldastrídskálinu í guddavírsmnnan- um dansar. Hvers viröi er líj'id ef ekki era teknir sénsar? Einn á móti þústtnd ad við kotnumsl af Einn á móti þúsund að við komumst af Einn á móli þúsutul ad við komumst af Pað er nú það. Mœðtir, þið fóstrið upp fallbyssu- fóður í tilbúnum fjöldagröfum. Heimurinn sjóður af kjurnorkubomb- um á hinum og þessum stöðum. A ekki að spvrna viðJ'œti áðuren Itann dettur af? A ekki að spyrna við Jieli áðuren hann dettur af? A ekki að spyrna við fœti áður en hann dettur af? Sumir eru að byrja að hahra af stað. Járntjaldið œðir gegnum hug og vit- und okkur allrtt. Við bíðum og bíðum, hvenœr láta þeir bomburnar falla? Ókeypis regnltlífar áðttr en bvrjar að rigna. Ókeypis regnhlífar áðttr en byrjar að rigna. Ókeypis regnhtífar áður en byrjar að rigna. Undan farginu allt er tekið að svigna. Hér uppi á skerinu sitjum við saman í nœði. Finnst ykkur vídeodallasinn hreint ekki vera œði? Gaman vœri að vitu hvernig síðasli þátturinn j'er. Gaman vœri að vita hvernig síðasti þátturinn fer. Gaman vœri að vita hvernig síðasti þátturinn fer. Pað skeður ekkerl hér. „The Boys from Chicago“ nefnist þessi fyrsta hljómplata Þorláks Kristinssonar, en Chicago-drengirnir eru hag- fræðingar úr háskóla þeirrar borgar, með Milton Friedman í broddi fylkingar. Þeir boða þá „frjálshyggju" að „afsósíalisera" þjóðféiög, og láta einkafram- takiö njóta sín á öllum sviðum; afnema félagslega samábyrgð og þar með félagslega þjónustu sem kemur augljóslega harðast niður á fátækari hluta þjóðfélagsins sem verður æ öryggislausari og hefur æ minna bolmagn til að framfleyta sér í lífsbaráttunni. Að sama skapi eykst þá svigrúm þeirra sem fyrirtæki „eiga“. Þeir borga minna til samfélagsins af gróða sínum og verða enn ríkari. Síðan kemur atvinnuleysið því að einkaframtakið hefur einungis áhuga á að reka þau fyrirtæki sem mestan arð gefa og launum verkafólks er síðan haldiö niðri í skjóli atvinnuleysis og neyðar þess. Besta dæmi um slíka stjórn, sem fer hvað vandlegast eftir kokkabókum drengjanna frá Chicago, er herforingjastjórnin í Chile og á plötunni flytur Tolli auk titillagsins lag Bubba Mort- hens bróður síns um Chile (á sólóplötu Bubba, Plágunni), og segir það enda eiga við um fjölda kúgunarstjórna í S-Ameríku sem ríkja einungis vegna hernaðar- legs og fjárhagslegs stuðnings „frjálshyggjustjórnar" Reagans. Þorlákur Kristinsson hefur veriö í fararbroddi í baráttu far- andverkafólks fyrir rétti þess til mannsæmandi viðurværis og er helmingur A-flatar þessarar plötu úr lífi þess og baráttu við bæði atvinnurekendur og verka- lýðsforystu (m.a. lag hans Kyrr- látt kvöld við fjörðinn sem Utan- garðsmenn leiíca á Geislavirkir). Þar er auk þess Kyrkingarólin: Frá iðnvceddum hájöklum landsins falla stórfljót í túrbínudans en í tíftínu stálmastra á milli liggur kyrk 'tnguról þessa lands. Þá vinnttndi lýð af httfi og úr sveit verður veitt inn í verksmiðjugeim, í kolsvörtu reykjurkófi kafnar krafun um betri heim. Bréfnefs er ekki getið á „Drengjunum frá Chicago“ þótt hann skreyti albúmið með heiðursmerkjum og unglingafjöld. Þar eru hins vegar nefndir þjóðkunnir íslendingar eins og Gunnar, Geir, Guðmundur J, Hjörleifur og Stefán í Eyjum. Ég er fúndamenlal gœi sýni á Gullströndinni borgarana rœgi ég er seif í kúnstinni. Sagan á eftir ttð setja Hjörleif Gtttt- ormsson Austfirðing á stall með frels- ishetjum okkar þjóðar. Og eins og aðrttr frelsishetjur okkar íslendinga er honum launað með sviksemi auðsveipra rakka erlends valds sem lirtedd og rttgluð þjóðin krýnir siðan sem heljtir. Á flöt A syngur Tolli lög sín og texta við kassagítarundirleik. nema hvað Hér skeður aldrei neitt er rafmagnað mjög skemmtilegum bassa. A fletinum lýkur meðlaginu Fúndamental gæi þar sem hann hæðist að aðstandendum (og þá sjálfum sér líka) Gullstrandarinnar, sýning- arinnar sem haldin var í mót- mælaskyni við „borgaralega" list- sýningu á Kjarvalsstöðum. Lagið er flutt á fyndinn hátt, Tolli syng- ur aðalrödd, aðrir „úa“ gamal- dags með, ekkert undirspil: Jón Viðar Andrea Flöt B mætti kalla unglinga- síðuna. Hér er það tekið fyrir,

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.