Þjóðviljinn - 06.08.1983, Side 20
20 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Helgin 6.-7. ágúst 1983
að Hannibal Valdimarsson hef-
ur verið formaður þriggja
stjórnmálaflokka á Islandi,
Álþýðuflokksins, Alþýðu-
bandalagsins og Samtaka
frjálslyndra og vinstri manna.
að árið 1969 risu upp nokkrir
næturklúbbar í Reykjavík
sem hétu m.a. Club-7,
Playboy, Apollo og Start.
Saksóknari ríkisins höfðaði
mál á hendur eigendunum og
starfsemi þeirra var stöðvuð.
að síðan ríkisútvarpið tók til
starfa árið 1930 hafa aðeins
þrír menn verið útvarps-
stjórar. Þeir eru Jónas Þor-
bergsson, Vilhjálntur Þ. Gísl-
ason og Andrés Björnsson.
að listanraðurinn Erró (Guð-
mundur Guðmundsson) kall-
aði sfg fyrst Ferró en varð að
breyta nafninu því að annar
listamaður sem kallaði sig
sama nafni fór í mál við hann.
að séra Jakob Jónsson er doktor
í kímni og hæðni í Nýja test-
amentinu.
að í Borgarfirði er bær sem heitir
England.
að Bjarnarstígur í Reykjavík
liggur á bak við Kárastíg.
Ástæðan fyrir því er frásögnin
í Njálu um Björn að baki
Kára.
að Guðrúnargata í Reykjavík
liggur á milli Bollagötu og
Kjartansgötu. Ástæðan er
ástarþríhyrningurinn í Lax-
dælasögu.
að orðið heimskur er dregið af
orðinu heim eða heima og
merkir sá sem alltaf situr
heima.
að ljósið er 8 mínútur á leiðinni
frá Sól til Jarðar.
að Færeyingar eignuðust ekki
eigið ritmál fyrr en á síðustu
öld.
að fyrsti íslendingurinn sem hét
karlmannsnafninu Björgvin
var Björgvin Vigfússon
(1866-1942) sýslumaður
Rangæinga.
að stofnandi danska viku-
blaðsins Hjemmet var ís-
lendingurinn Björn Bjarnar-
son er síðar varð sýslumaður
Dalamanna.
Pínulítið
stjörnugeiminn og látum hugann
fara á víðáttuflakk. Um þessar
mundir er bara alltaf skýjað í
Reykjavík og oftast rigning. Við
vöknum dauf á morgnana og
göngum dauf til hvílu. Drunginn
sem fylgir veðrinu leggst á okkur
eins og mara. Barnið í okkur er
fjarri.
Mér datt þetta í hug einn dag í
vikunni þegar ég leiddi hugann
að göngunni miklu sem farin
veröur í dag, friðargöngunni frá
herstöðinni á Keflavíkurflugvelli
til Reykjavíkur. Til hvers er
svona ganga farin? Hverju þjón-
ar hún? Ég ætla að ganga af einni
ástæðu. Ég ætla að láta það eftir
alheimsborgaranum sem blundar
í mér. Náttúrulega væri þægi-
legast að sofa fram eftir í dag,
hvíla sig rækilega og láta öðrum
eftir svona erfiði. En ég ætla
að ganga.
Við erum líklega 4-5000 milj-
ónir manns sem búum á litla
jarðkrílinu sem er eins og kræki-
ber í helvíti í heiminum. Allur
þessi fjöldi er á miklu iði og hver
starfar að sínu. Pínulítil jörð, ein
lóð
af mörgum plánetum sem snýst í
kringum litla sól sem er örsmá í
Vetrarbrautinni og Vetrar-
brautin er bara ein af mörgum.
Og svo er hægt að fara víðar.
Ósköp hlyti að vera skrýtið að sjá
allar þessar iðandi mannverur
hringsnúast í kringum sjálfar sig á
Jörðinni ef maður væri staddur á
annarri vetrarbraut og gæti litið
þetta hlutlausum augum.
En við búum á jörðinni og get-
um ekki annað. Þess vegna er það
fáránlegt að við eyðum stórum
hluta af orku okkar í að búa til
tæki til að tortíma öííu þessu lífi.
Og til hvers? Það skil ég ekki einu
sinni þó að ég leggist upp á fjall
og horfi lengi upp í himininn.
Þetta er örugglega ekki það sem
þessir miljarðar mannkríla vilja í
raun og veru. Þess vegna held ég
að hver og einn eigi að láta þetta
mál til sín taka. Við verðum að
sýna afstöðu. Hinir fáu mega
ekki ráða örlögum hinna mörgu.
Með því að ganga í dag legg ég
pínu- pínulítið lóð á vogar-
skálina, á vogarskál alheimsins.
- Guðjón
Stundum er hollt og gott að
hugsa eins og barn. Þegar við
erum börn leiðum við stundum
hugann að alheiminum og enda-
mörkum hans, hugsum eins og al-
heimsborgarar. Hvar er t.d.
heimsendir og hvað skyldi vera
hinum megin við þann? Eftir því
sem við eldumst verður hugur
okkar æ bundnari við hið
jarðneska, við búsorgir, basl og
eigin lífsbaráttu. Það er helst á
stjörnubjörtum kvöldum á síð-
sumrum að við leggjumst kannski
upp í loft og virðum fyrir okkur
sunnudagskrossgátan
Nr. 383
1 Z 3 4 5 6 7 3 <? 5 10 77
s 3 1 5 II 12 /2 7 13 1 2 S /4
/5 6 /6 5 IZ 11 3 1 / /8 16 7<F~ n C?
n II 4 5 /4 <P 20 Z 4 /4 /4 á 21 4
4 m n 21 II 4, 5 y 4 15 /4 16 V /4
7 4 °l 5 23 7 N/ 24 5 10 V 4 14 21
20 ii II 23 \°l 10 25 14 1 °l 21 20 n
1 ) lo 26 6 7 <? 24 il 6 N? 21 2? IS JO V
4 25 IH lo V 1 24 1 4 5 » 6 7 4
I4) 3 10 5 /4 'v' 4 14 21 2S 6 S
14 y /4 20 2/ S /4 4 2? 15 23 \? 10
2 24 4 7 IZ S /2 V ii /4 V 5 23
1 24 ' s 6 S /4 £ /o 3o 23 2 14 13 31 7
AÁBDÐEÉFGHIÍJKLMNOÓPRSTUÚVXYÝÞÆÖ
Setjið rétta stafi í reitina hér fyrir neðan. Þeir mynda þá bæjarnafn.
Sendið þetta nafn sem lausn á krossgátunni til Þjóðviljans, Síðu-
múla 6, Reykjavík, merkt: „Krossgáta nr. 3S3“. Skilafrestur er
þrjár vikur. Verðlaunin verða send til vinmngshafa.
8 1 12 17 27 J3 7 9 5' 17
Stafirnir mynda íslensk orð eða mjög kunnugleg erlend heiti hvort
sem lesið er lá- eða lóðrétt.
Hver stafur hefur sitt númer og galdurinn við lausn gátunnar er sá
að finna staflykilinn. Eitt orð er gefið og á það að vera næg hjálp.
því með því eru gefnir stafir í allmörgum orðum. Það eru þvf
eðlilegustu vinnubrögðin að setja þessa stafi hvern í sinn reit eftir
því sem tölurnar segja til urm Einnig er rétt að taka fram, að í
þessari krossgátu er gerður skýr greinármunur á grönnum sér-
hljóða og breiðum. t.d. getur a aldrei komið í stað áog öfugt.
Verðlaunin
Verðlaun fyrir krossgátu nr.
382 hlaut Valgarður Stefáns-
son, Borgarsíðu 17, Akureyri.
Þau eru Þyrnar Þorsteins Erl-
ingssonar. Lausnarorðið var
Bergsveinn.
Verðlaunin að þessu sinni er
Ijóðabókin Svartur hestur í
, myrkrinu eftir Nínu Björk
Árnadóttur.