Þjóðviljinn - 06.08.1983, Side 28
PWDVHUNN
Helgin 6.-7. ágúst 1983
Aðalsimi Pjóðviljans er 81333 kl. 9 - 20 mánudag til fóstudags. Utan þess tíma er hægt að ná í blaðamenn og aðra starfsmenn blaðsins í þessum símum: Ritstjórn Aðalsími Kvöldsími Helgarsími
81382, 81482 og 81527, umbrot 81285, Ijósmyndir 81257. Laugardaga kl. 9 - 12 er hægt að ná í afgreiðslu blaðsins í síma 81663. Prentsmiðjan Prent hefur sima 81348 og eru blaðamenn þar á vakt öll kvöld. 81333 81348 81663
Námsmenn mótmæla kjaraskerðingum
Jafnrétti til náms í hættu
Námslánin má ekki skerða
í dreifibréfi samtakanna er
minnt á að námslánin miðást við
nauðþurftir og skerðing þeirra er
því alvarlegt mál fyrir námsmenn
og fjölskyldur þeirra. Þar er lögð
áhersla á jafnrétti til náms, sem
námslánin stuðla að, og fullyrt að
skerðing námslána komi niður á
samfélaginu í heild, þótt síðar
verði, bæði í menningarlegu og
efnahagslegu tilliti, - almenn fram-
haldsmenntun sé ein af helstu
undirstöðum samfélagsins.
I dreifibréfinu er að finna loforð
stjórnarflokkanna til námsmanna
fyrir kosningar og spurt um efndir.
Það eru taldar fram ýmsar
staðreyndir um námsaðstoðina, og
þar er klausa um tilgang kjara-
skerðinganna sem ríkisstjórnin
hefur ákveðið, minnt á stórfelldar
hækkanir síðustu vikurnar: „En
hvernig var þetta annars með fórn-
irnar sem námsmenn eiga að færa
eins og aðrir? Áttu þær ekki að
stöðva verðbólguna?"
Það heyrir til tíðinda að náms-
menn dreifðu í gær leiðara fyrrver-
andi menntamálaráðherra í Degi,
þar sem Ingvar Gíslason varar við
niðurskurði á Lánasjóði náms-
manna, og talar um að þröngsýni
og þekkingarleysi ráði umræðum
stjórnvalda um málefni sjóðsins.
Mótmælaaðgerðum SINE lauk
unt sexleytið á föstudag
-Ig/m
Eina tækifærið
- Nú standið þið SÍNE-menn
einir að þessum aðgerðum?
„Nú fær einstaklingur hér heima
um 10.700 kr. í lán; ef þetta verður
að veruleika lækkar það niður í um
8.800 kr. Þetta getur hver og einn
borið saman við eigin fjárhag"
sagði Emil.
„Við mótmælum skerðingu námslána". Nokkrir þátttakenda koma sér fyrir með borða fyrir framan
Stjórnarráðið, - aðrir dreifðu dreifibréfi í Bankastræti og á Lækjartorgi. Mynd -eik.
„Já. Raunar hafa önnur náms-
mannasamtök í Háskólanum og
öðrum skólum heima Iýst yfir
stuðningi sínum. En við vildum
nota tækifærið. Námsmenn er-
lendis eru jú erlendis á veturna og
hafa ekki möguleika til að koma
saman heima nema á sumrin. Við
erum ekki mörg hér í dag, en á
bakvið hvern þátttakanda standa
tugir námsmanna. Þetta er örugg-
lega ekki í síðasta sinn sem náms-
menn láta frá sér heyra ef svo fer í
lánamálum námsmanna sem nú
horfir, en í vetur eru SÍNE-menn í
útlöndum við sitt nám, það er ef
þeir fá þá lán til“ sagði talsmaður
námsmanna erlendis.
„Við mótmælum skerðingu
námslána" var textinn á borða sem
íslenskirnámsmcnn erlendis hófu á
loft fyrir framan Stjórnarráðshús-
ið á föstudag. Um 30-40 námsmenn
erlendis stóðu í tvo tíma með borða
við Lækjargötu og dreifðu upplýs-
ingum um stöðu námsmanna og
fyrirhugaðar kjaraskerðingar í til-
efni af fréttum um 40 milljón
króna niðurskurð hjá Lánasjóði
námsmanna.
„Skerðing lánanna mundi hafa
margháttaðar afleiðingar“ sagði
Emil Bóasson fulltrúi SlNE (Sam-
bands íslenskra námsmanna er-
lendis) í stjórn Lánasjóðsins í sant-
tali við Þjóðviljann þar sem hann
afhenti vegfarendum dreifibréf
samtakanna í gær. „Það alvarleg-
asta fyrir þá sem nú eru í námi er
auðvitað að kjör þeirra þrengdust
svo að tvísýnt yrði um námsfram-
hald.“
Lánasjóð íslenskra námsmanna
vantaði 182 milljónir til að geta lán-
að námsmönnum í haust, þar af
hefur verið ákveðið að veita 135
milljónir, en það sem á vantar jafn-
gildir 22% skerðingu á kjörum
hvers námsmanns.
Friðargangan 1983:
Keðja milli sendiráða
í lok göngunnar í kvöld
Klukkan hálf níu í morgun lagði
Friðargangan ’83 af stað frá
hliðinu á Keflavíkurflugvelli,
áleiðis til Reykjavíkur.
Gert er ráð fyrir að gangan komi
í miðbæinn um klukkan tíu í kvöld
og þá verður mynduð keðja milli
sendiráðs Rússa, við Garðastræti
og sendiráðs Bandaríkjanna við
Laufásveg.
í dag, 6. ágúst þegar 38 ár eru
liðin frá því kjarnorkusprengja var
sprengd í Híróshíma í Japan, minn-
ast friðarsinnar þess um allan heim
með ýmsum hætti. Víða verða
myndaðar keðjur milli sendiráða
stórveldanna - og alls staðar berst
fólk fyrir kjörorði friðargöngunn-
ar: Aldrei aftur Híróshíma.
Þeir sem ekki mættu við hliðið í
morgun, geta farið til móts við
gönguna í rútum í dag. Þær fara frá
Umferðarmiðstöðinni klukkan
10.00, 13.20 og 15.30. Gengið
verður gegnum Reykjavík eins og
sést á kortinu, þ.e. eftir fundinn í
miðbæ Kópavogs, sem verður um
kvöldmatarleytið, verður gengið
niður Kringlumýrarbraut að
Miklubraut, niður Miklubraut að
Rauðarárstíg, niður Rauðarárstíg
að Hlemmi, niður Laugaveg í átt
að Iðnó þar sem gangan skiptist og
verður mynduð keðja milli sendi-
ráðanna. Síðan verður safnast
saman við Miðbæjarskólann, þar
sem séra Rögnvaldur Finnbogason,
prestur á Staðastað flytur aðalræðu
göngunnar og Vigfús Geirdal, rit-
ari SHA, slítur henni.
Ræður verða einnig fluttar á án-
ingarstöðum. I Vogi flytur Berg-
þóra Gísladóttir sérkennslufulltrúi
ræðu um klukkan hálf-ellefu.
Gangan verður í Kúagerði um
klukkan tvö. Þar flytur Vésteinn
Ólason fyrrverandi formaður SHA
ræðu. 1 Straumi er áætlað að vera
klukkan fjögur. Þar mun Arni
Björnsson flytja ræðu. Næst verður
haldið til Hafnarfjarðar þar sem
haldin verður minningarstund um
Híróshíma og Jóna Ósk Guðjóns-
dóttir frá Hafnarfirði, heldurræðu.
í Kópavogi munu Sólrún Gísladótt-
ir borgarfulltrúi Kvennafram-
boðsins og Steinbjörn B. Jacobsen
frá Færeyjum, halda ræður.
Komið í gönguna og takið undir
kjörorð hennar með samherj-
unum. EÞ
Aldrei aftur
Hírósíma
Hlutleysi ís-
lands-gegn
hernaðar-
bandalögum
Friðlýsing N-
Atlantshafs
Kjarnorku-
vopnalaus
Norðurlönd
Sjálfs-
ákvörðunar-
réttur
þjóða sé
virtur
Ferðir tit móts
við
Friðargöngu’83
1. Áætlunarbíll fró Umferðar-
miðstöðinni kl. 10.00, mætir
göngunni á áningarstað í
Vogum kl. 10.45. Fer aftur til
Reykjavíkur kl. 11.00.
2. Áætlunarbíll frá Umferðar-
miðstöðinni í Reykjavik kl.
13.20 mætir göngunni á án-
ingarstað í Kúagerði ki.
14.00. Sá bíll fer aftur til
Reykjavikur kl. 15.05.
3. Áætlunarbíll frá Umferðar-
miðstöðinni kl. 15.30 mætir
göngunni á áningarstað við
Straum kl. 16. Fer aftur til
Reykjavíkur kl. 16.30.