Þjóðviljinn - 17.09.1983, Page 8

Þjóðviljinn - 17.09.1983, Page 8
8 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Helgin 17.-18. september 1983 Húsnæðismálin í hnút hjá ríkisstjórninni „Ef víð bara vissum” Einar Karl Haraldsson skrifar „Ríkisstjórnin stefnir að því að veita 50% lán af kostnaði staðalíbúðar til húsbyggjenda og íbúðakaupenda og munu þær nýju reglur taka gildi um nk. áramót”, hefur DV eftir Steingrími Hermannssyni sl. mánudag, og á þetta loforð að hafa komið fram á fundi með Áhugamönnum um úrbætur í húsnæðismálum fyrir hálfum mánuði. Fram hefur komið að algjört lágmark til þess að rétta við hag húsbyggjenda og íbúðakaupenda sé viðbótarframlag frá ríkinu til Húsnæðismálalána uppá Vh milljarð króna. „Það er ekki hægt að ná fjár- magninu neins staðar nema með sparnaði, og þess vegna þurfa allir að skilja það, að taka þátt í að spara. Við aukum ekki erlenda lán- töku okkar og við sækjum ekki aukið fjármagn í Seðlabankann, og ég hætti frekar í embætti heldur en að leggja nýja skatta á fólkið til þess að afla fjár”, segir Albert Guð- mundsson í viðtali í gær. Og Alex- ander Stefánsson félagsmálaráð- herra, sem fóðrað hefur fjölmiðla á yfirlýsingum um úrbætur í húsnæð- ismálum dag hvern í hálfan mánuð segir um þessi ummæli fjármála- ráðherra: „Það er ekki búið að ganga frá þessu máli, því það er ennþá í vinnslu hjá nefndinni. Á meðan svo er tel ég enga ástæðu til þess að vera með neinar yfirlýsingar”. í öðru viðtali hafði félagsmálaráðherra látið hafa eftir sér, að „ef við viss- um hvar útvega ætti fé væru vanda- mál húsbyggjenda úr sögunni”. Þögn Morgunblaðsins Þetta er staða mála eftir að gengið hefur á með „fréttum” frá ráðherrum Framsóknar að ríkis- stjórnin ætli að afgreiða húsnæð- ismálin í fyrri viku, sl. þriðjudag, sl. fimmtudag, og nú nk. þriðju- dag. Athygli hefur vakið að meðan félagsmálaráðherra hefur sagt fjöl- miðlum allt af létta um óskir sínar og hugmyndir í húsnæðismálum hefur Morgunblaðið þagað þunnu hljóði, og hvorki greint frá óskum Framsóknarrádherranna né hug- leiðingum um fjármögnunarleiðir. Hjá Alexander félagsmálaráð- herra virðist vera meiningin að leika svipaðan leik og Albert Guð- mundsson hefur gert í sumar með því að gefa út yfirlýsingar um fyrir- ætlanir sínar, stilla samráðherrum upp við vegg, og skelia skuldinni á Steingrímur: 50% lán til Albert: Engir peningar, alra um áramót. engin lán, engir skattar. þá ef vilji hans nær ekki fram að ganga. Félagsmálaráðherra hyggst væntanlega benda á Sjálfstæðis- flokkinn sem sökudólg, þegar „draumórar” hans, eins og þeir eru nefndir af niðurskurðarmönnum Sjálfstæðisflokksins hafa verið þaggaðir niður. Ekki fimmeyringur „Mér finnst þetta allt mjög ó- ljóst. Hitt og þetta fjálglegt er sagt, en ekkert haldbært hefur enn kom- ið fram til hagsbóta fyrir húsbyggj- endur og íbúðakaupendur”, sagði Jóhanna Sigurðardóttir alþingis- maður Alþýðuflokksins, sem látið hefur húsnæðismál til sín taka. Svavar Gestsson fyrrv. félagsmála- ráðherra tók í sama streng: „Það er ekki komin ákvörðun um fimmeyr- ing til viðbótar í húsnæðiskerfið þrátt fyrir allan orðavaðalinn að undanförnu. Húsbyggjendur og íbúðakaupendum gengur jafn illa að lifa á loforðum stjórnarherr- anna nú eins og á kosningaloforð- um þeirra um 80% húsnæðislán, sem við vöruðum við og töldum vera af ómerkilegasta tagi. Ráð- herrar eru vanir að halda því til haga sem þeir gera, en tala lítt um það sem ógert er. Við myndum áreiðanlega vita af því ef einhver aur hefði verið settur í húsnæðis- lánin. Svo er ekki og það bendir margt til þess að ríkisstjórnin verði að velkjast með málið þar til höggvið verður á hnútinn með ein- hverjum hætti við lokaafgreiðslu fjárlaga um áramótin”. Laga ekki þörf Þjóðviljinn birti í vikunni út- færslu Áhugamanna um úrbætur í húsnæðismálum á frumkröfum sín- um um hærri langtímalán strax, lengri lánstíma og afturvirkni til upphafs verðtryggingar á útlánum. Þar segir m.a. að fyrstu úrbætur sem þeir fara fram á rúmist nær allar innan ramma núgildandi laga. Þær þurfa því ekki að tefjast vegna endurskoðunar húsnæðislöggjafar- innar. Félagsmálaráðherra gerir hins vegar talsvert úr því að starfandi sé nefnd á hans vegum sem muni leggja fram frumvarp þegar þing komi saman og málin verði svo væntanlega afgreidd fyrir áramót. Nefndin hefur unnið mjög lokað og gagnrýna þau það t.a.m. bæði Jó- í Ol '■ ' . J&A Alexander: Gef engar Geir Haarde: Neitarað yflrlýsingar núna. svara hvaðan peningar eigi aðkoma. hanna Sigurðardóttir og Svavar Gestsson að ekki skulu hafa verið leitað samstarfs við stjórnarand- stöðuna í þessu máli fremur en öðr- um af hálfu ríkisstjórnarinnar. Þó hafa bæði Alþýðubandalagið og Alþýðuflokkurinn lýst vilja sínum til þess að leggja stjórninni lið við lausn húsnæðismálanna og skapa sem breiðasta samstöðu um úrbæt- ur. Þrautalending í viðtali við Þjóðviljann sl. fimmtudag kom fram að óskalisti félagsmálaráðherra er langur: Hækkun húsnæðislána í 50% af verði staðalíbúðar fyrir þá sem byggja eða kaupa í fyrsta sinn (takið eftir að þarna er dregið í land frá yfirlýsingu Steingríms sem rakin var í upphafi greinar), 30% lán til annarra, og lenging húsnæð- islána um 5-10 ár. Þá vill hann að útborgun húsnæðislána verði flýtt, og framkvæmd sú lagaheimild að hafa fjóra gjalddaga á láni. Hins vegar kom í ljós í samtali við ráðherrann sl. föstudag að hug- myndir um afturvirkni í húsnæðis- lánakerfinu mæta andróðri, og skuldbreytingar til verulega langs tíma í bönkunum eru einnig taldar torsóttar. Þeir sem Þjóðviljinn ræddi við í gær töldu líklegt að þrautalending ríkisstjórnarinnar kynni að verða sú, að hækka húsnæðislán til þeirra sem kaupa eða byggja í fyrsta sinn í 50% af kostnaðarverði, en láta annað liggja kyrrt, nema hvað reynt yrði að knýja bankana til eitthvað lengri sículdbreytingar- lána en nú tíðkast. Ef útborgun húsnæðislána dreifðist áfram á l'h ár óverðtryggt myndi þetta í raun þýða 30% lán af verði staðalíbúðar, og verða meira áróðursflagg heidur en veruleg úr- bót. Neita að svara Enda þótt þessi leið yrði valin er ljóst að verulegt viðbótarfjármagn þarf að koma frá ríkinu, ef til vill 5 eða 6 földun frá því sem nú er. Af fréttum stjórnarblaðanna má ráða að gatið á fjárlögum næsta árs sé a.m.k. 1 miljarður króna, og hvar á þá að taka annað eins og meira til. Ekki meiri halli, ekki erlend lán, ekki skattar segir Albert. Fréttir úr stjórnarherbúðum herma að fjár- lagafrumvarpið sé því sem næst frá- gengið og Alexander hafi verið vís- að á innlendar lántökur með „hús- næðisvanda” sinn. Það komi til álita við gerð lánsfjáráætlunar, sem ætlunin er að leggja fram með fjár- lagafrumvarpinu í haust. Hvar á að taka peningana? Þetta var sú spurning sem Þjóðviljinn beindi til Geir Haarde aðstoðar- manns fjármálaráðherra í gær. Hann harðneitaði að svara henni, og vísaði á félagsmálaráðherra og fjármálaráðherra, sem færu með þessi mál. Innlend fjármögnun vísar sterk- lega á lífeyrissjóðina, þó ráðherrar Svavar: Ekki Hmmeyr- Jóhanna: Allt er óljóst og ingur komið enn. ekkerthaldbært. séu fáorðir um það. Sá maður sem hvað hatrammast hefur barist á móti því á Alþingi að kaupskylda lífeyrissjóðanna á skuldabréfum Byggingarsjóðs ríkisins verði aukin er einmitt Albert Guðmundsson. Það skyldi þó aldrei eftir að henda fréttciskýring helgarinnar að hann setji lögþvinganir í lífeyris- sjóðina. Aðrar leiðir Aðspurð um leiðir til þess að út- vega meira fé í húsnæðislánakerfið kvaðst Jóhanna Sigurðardóttir hafa bent á að ríkinu bæri að skila launaskattinum aftur inn í Bygg- ingarsjóð ríkisins og tryggja hon- um öruggan tekjustofn. Svavar Gestsson lagði hins vegar áherslu á að ekki mætti hreyfa við fram- lögum í Byggingarsjóð verka- manna, og hiklaust ætti að skylda banka og lífeyrissjóði til meiri þátt- töku í húsnæðislánakefinu, og taka það sem á vantaði með sérstakri skattlagningu. Jóhanna Sigurðar- dóttir taldi hins vegar að ekki væri hægt að íþyngja lífeyrissjóðunum um of og það myndi þá bitna á getu þeirra til að lána til húsbygginga. Skemmri skírn haldlaus Ríkisstjórnin leitar nú að lausn sem er í senn ódýr og pólitískt við- unandi. Minnispunktar frá Áhuga- mönnum um úrbætur í húsnæðis- málum, sem Þjóðviljinn hefur und- ir höndum, eru hins vegar vísbend- ing um hvernig brugðist yrði við „skemmri skírn” í húsnæðismál- um. Þeir telja að krafan um aftur- virkni sé ófrávíkjanleg vegna þess að ekki hafi verið staðið við að fullnægja skilyrðum verðtryggðra lána. Þá telja þeir ekki ástæðu til þess að gera greinarmun á þeim sem byggja eða kaupa, og ekki heldur á þeim sem byggja í fyrsta sinn og þeim sem eru að fjárfesta í annað og þriðja sinn. Telja þeir að húsnæðispólitík sem byggði á mis- munun milli þessara hópa myndi fljótlega leiða til enn meiri vand- | ræða á húsnæðismarkaðinum og ' færa að því rök. „Væntingarnar eru í hámarki”, . sagði Stefán Ólafsson einn formæl- ; enda Áhugamanna um úrbætur í húsnæðismálum í samtali við blað- ið. Það er von eftir hinn há- stemmda loforðaflaum sem lagt hefur frá sumum ráðherrum síð- ustuviku.Endahringjamennnútil i Húsnæðisstofnunar og spyrja: Hvenær fæ ég miljónina? En Áhugamenn um úrbætur í húsnæð- ismálum setja von sína á útvarps- þátt nk. þriðjudagskvöld, og búast við að þá muni félagsmálaráðherra ef til vill geta svarað einhverju í stað þess að lofa öllu. -ekh ritstjórnargrei n Nýtt skipulagshneyksli Sjálfstæðisflokkurinn í Reykjavík hefur ekkert lært af skipulagsmistökunum í Grafar- vogi. Uppbyggingaráætlun flokksins þar er hrunin, tvær af hverjum þremur lóðum í fyrsta áfanga verða auðar, eitt og eitt hús verður reist á stangli um svæðið endilangt og frumbyggjar í Grafarvogi sjá fram á nöturlega búsetu þar um margra ára skeið. Þrátt fyrir þessar staðreyndir, dreifða byggð, einangruð hús, 140 miljón króna fjárvöntun í gatnagerð og það óhagræði sem íbúar munu verða fyrir vegna hægrar uppbyggingar og lítillar þjónustu hafnaði Sjálfstæðis- flokkurinn í fyrrakvöld tillögum Alþýðubandalagsins um endur- skoðun á skipulagi 2. og 3. áfanga hverfisins og viðræðum við lóðar- hafa um að flytja sig um set þann- ig að unnt verði að mynda heil- legan byggðakjarna sem hæft væri að veita lágmarksþjónustu strax. „Við höldum áfram eins og ekkert hafi í skorist”, sagði borg- arstjóri og trúr slagorði sínu úr síðustu kosningum, „Byggjum á ströndinni”, siglir hann nú hrað- byri í næsta strandstað, í þetta sinn við Skúlagötu. Ágreiningurinn um skipulag við Skúlagötu snýst ekki um það hvort reisa eigi þar íbúðabyggð heldur um það hvernig sú byggð skuli vera. Borgarskipulag Reykjavíkur hefur sýnt framá hvernig tryggja megi notalega byggð með fjögurra hæða íbúðar- húsum og breyttri nýtingu þeirra stórbygginga sem fyrir eru á svæðinu. Sjálfstæðismenn hafa hins vegar samþykkt að uppbygg- ingin verði helmingi meiri og öll gömul hús rifin, þannig að reistur verðir hár borgarmúr eftir Skúla- götu endilangri. Slík ofbygging mun koma verulega niður á gæð- um byggðarinnar og ekkert svig- rúm verður til að uppfylla þær kröfur sem almennt eru gerðar til útivistarsvæða, þjónustu, útsýnis og skjólmyndunar. Þó Sjálfstæðisflokkurinn kjósi nú allt í einu að beita fyrir sig rökum vinstri meirihlutans um þéttingu byggðar, þá eru það tylliástæður. Raunveruleg ástáeða þess að flokkurinn hefur nú áhuga á uppbyggingu í Skugga- hverfi er sú að nokkur stórfyrir- tæki sem þar eiga víðlendar eignarlóðir þurfa að selja þær og það dýrt. „Skipulagið verður að vera arðbært”, segir borgarstjóri, „annars verður engin uppbygg- ing”. Hér kemur raunverulegt eðli Sjálfstæðisflokksins í Ijós: Peningalegir hagsmunir nokk- urra fyrirtækja eru settir ofar hagsmunum íbúa á svæðinu og ofar hagsmunum borgarbúa í heild. Á meðan borgarstjóri situr á einkafundum með forstjórum viðkomandi fyrirtækja og býður þeim gull og græna skóga, neitar hann að tala við 150 íbúa í Skugg- ahverfi, - þeirra bíður hvorki gull né grænir skógar, heldur skuggi og sviptibyljir af völdum hins nýja borgarmúrs og ofsetin byggð háhýsa sem mun byrgja alla sýn til Esjunnar allt upp að Lauga- vegi. En Sjálfstæðisflokkurinn hundsar ekki aðeins varnaðarorð minnihlutans og óskir íbúa um viðræður, heldur einnig alvar- Álfheiftur_________________ Ingadóttir skrifar legar aðvaranir tveggja þýðing- armikilla embættismanna borg- arinnar: forstöðumanns borgar- skipulags og borgarlæknisins í Reykjavík. Viðvaranir borgar- skipulags um hættuna á myndun slömmhverfis í svo ofsetinni byggð og viðvaranir borgarlæknis um stórfellda mengunarhættu frá skólplögnum við Skúlagötu mega sín einskis. Borgarstjórnarmenn Sjálfstæðisflokksins heyra það eitt sem þeir vilja heyra: forsvars- menn einkagróðans eru ánægðir, - hvað varðar þá um álit minni- hluta borgarstjómar, íbúa á svæð- inu eða fagíegt álit embættis- manna? Með þessu nýja skipulags- hneyksli hefur verið vakinn upp gamall draugur niðurrifsstefn- unnar, stefnu sem var aflögð á fjögurra ára stjórnartíma vinstri meirihiutans í Reykjavík. Borg- arbúar komu þá í veg fyrir að hús- in í Grjótaþorpi, við Hallærisplan og á Bernhöftstorfu yrðu rifin og í þeirra stað reistar Morgunblaðs- hallir í gamla bænum, eins og skipulagshöfundar Sjálfstæðis- flokksins höfðu ákveðið. Nú þarf einnig að hindra að Sjálfstæðis- flokknum takist að gera skipu- lagsdrauma sína við Skúlagötu að veruleika. ÁI

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.