Þjóðviljinn - 17.09.1983, Síða 17
Helgin 17.-18. september 1983 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 17
Nýja útvarpshúsið er við hlið Norðurlandahússins og hvergi eins tilkomumikið að utan.
Glœsilegt hús
en aðeins 20
starfsmenn
Þegar gengið er um götur Þórs-
hafnar í Færeyjum, vekur at-
hygli falleg byggingarlist. Ekki
aðeins Norðurlandahúsið, sem
hefur þó vakið verðskuldaða
athygli, heldur einnig falleg ein-
býlishús, lágreist, gjarnan úr
timbri, og stærri byggingar, svo
sem sundhöllin, nýja hótelið og
nýja útvarpshúsið.
Útvarpshúsið lætur lítið yfir sér
að utanverðu, en er þeim mun fal-
legra að innan. Arkitektinn, J.P.
Gregoriussen hefur valið að láta
hráan steininn halda sér að veru-
legu leyti að innan, stórir gluggar
eru yfir öllu húsinu og glæsilegt úr-
val af færeyskum málverkum á
veggjum.
í Útvarpshúsinu vinna um 20
manns, fæstir fastráðnir. Útvarpið
hefur verið starfrækt síðan 1956 en
ekki er ennþá útvarpað allan dag-
inn. Á hverjum laugardegi er sent
út leikið efni, en Oskar Hermanns-
son, sem er mörgum íslendingum
að góðu kunnur, stjórnar „leiklist-
ardeildinni". J>á sér Oddva Natt-
estad um efni fyrir börn, en það er
sent út á hverjum degi.
Fréttadeildin er þó stærsta
deildin. Þar vinna 8 manns, allt
karlmenn og lesa þeir sjálfir frétt-
irnar. Ekki sjaldnar en 9 sinnum á
hverjum degi eru sendar út fréttir
og alltaf á færeysku. Þá eru veður-
fréttirnar ekki þýðingarminnstar,
en eins og þeir vita sem komið hafa
til Færeyja, skiptir oft um veðurlag
á hverjum degi. Færeyingar eru
mjög háðir flugsamgöngum og
jafnan er tilkynnt í útvarpi ef flug
fellur niður og eins þegar breyting-
ar verða á flugáætlun. Sent er út frá
kl. 7.15 og til kl. 13.00 og síðan
aftur kl. 18.15 og fram á kvöld.
Færeyska útvarpshúsið er aðeins
2ja ára gamalt og hefur vakið mikla
athygli fyrir fallegan arkitektúr, en
hins vegar virðist starfseminni
þarna innan dyra að sumu leyti
skorin nokkuð þröngur stakkur.
Til dæmis litum við niður á tónlist-
ardeildina og ætluðum að skoða ís-
lenska plötusafnið. Þar var ekki
um auðugan garð að gresja. Sára-
lítið var til af nýjum íslenskum
plötum, Stuðmenn og Grýlurnar
voru t.d. ekki til, en 3ja flokks
norskt og danskt popp í metravís.
Það segir sig sjálft að útvarpsstöð
með aðeins 20 manna starfslið hef-
ur ekki ótakmarkaða möguleika,
og til dæmis klippa dagskrárgerð-
armennirnir gjarnan sína þætti
sjálfir og fréttamennirnir eru jafn-
framt þulir, eins og fyrr segir.
Þegar hlustað var á færeyska út-
varpið kom þó oft fyrir að maður
heyrði afbragðsgóða þætti, vel
unna og skemmtilega. Nú er í ráði
að koma upp færeysku sjónvarpi
og er undirbúningur hafinn.
Tekur það væntanlega til starfa í
janúar en aðeins tveir menn hafa
verið ráðnir ennþá.
Við ræddum stuttlega við þau
Oddvu og Oskar. Oskar hefur ný-
lega lokið við að þýða Jóa eftir
Kjartan Ragnarsson fyrir Klakks-
víkinga en hann hefur þýtt allmörg
íslensk verk yfir á færeysku. Til
dæmis hafa mörg verka Jónasar
Árnasonar verið flutt í færeyska út-
varpinu í þýðingu hans. Oskar leik-
stýrir oftast sjálfur og sagðist hann
líka gera mikið af því að dramatis-
era sögur fyrir útvarpið. Hann
sagði að það væri orðið langt síðan
hann hefði flutt íslenskt leikrit og
vonaðist til að fá íslensk leikrit
send frá leiklistardeildinni við Út-
varpið á íslandi. Oddva sagðist
hins vegar nota mikið íslenskt efni í
barnatímana, meðal annars sögur
eftir Guðrúnu Helgadóttur. Þau
voru bæði sammála um að auka
þyrfti samskipti á milli íslands og
Færeyja á sviði menningarmála og
fjölmiðla.
Útvarpsstjórinn við færeyska út-
varpið er Nils Juul Arge. þs
Oddva sem sér um barnaefnið. Húsið er sérlega glæsilegt að innan og gluggar yfir öllu. Ljósm. þs.
Það er nóg að gera á fréttastofunni, en fréttamennirnir eru jafnframt
þulir.
Miklar blómaskreytingar eru við
hina risastóru glugga hússins.