Þjóðviljinn - 08.10.1983, Side 7

Þjóðviljinn - 08.10.1983, Side 7
Helgin 8.-9. október 1983 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 7 í fyrradag. Ljósm.: eik. Yfir hádegisbauginn SEtHMARKA TIMAMOT Merkilegt samstarf hefur á und- anförnum árum verið að þróast milli hollenskra og íslenskra lista- manna. I dag, iaugardag, verður opnuð sýning 9 hollenskra mynd- listarmanna í Nýlistasafninu og Listasafni alþýðu og eftir nokkra daga verður samsvarandi sýning 9 íslenskra listamanna opnuð í Muse- um Fodor, sem tilheyrir Borgarlist- asafninu í Amsterdam og Gallerie ’A’ í Amsterdam. Síðan 1980 hafa verið tvær hol- lenskar myndlistarsýningar hér og þessi er sú þriðja. Þeir Hollending- ar sem sýna hér nú eru heldur af yngri kynslóð,,sumir eru orðnir vel þekktir í heimalandi sínu og aðrir eru að verða þekktir. Þeir heita Erik Andriesse, Ansuya Blom, Frank van den Broeck, Réne Dani- les, Marlene Dumas, Jean-Paul Franssens, Peer Veneman, Henk Visch og Martin van Vreden. Átta af þeim verða viðstaddir opnunina. Auk málverka og skúlptúra verður bókverkasýning í Nýlistasafninu og ennfremur verða þar hljóðverk og Svein Nymo Aldrei aftur Á morgun, sunnudag kl. 13.30, treður norski fiðlarinn Svein Nymo upp í Gerðubergi og verða það síð- ustu tónleikar hans með tríóinu Aldrei aftur a.m.k. að þessu sinni, því hann er á förum heim til Nor- egs. Málverka- sýning í Eden Dagana 1. til 11. október stend- ur yfir málverkasýning í Eden í Hveragerði, þar sem sýndar eru myndir eftir þýsku listakonuna Christiane von Geyr von Schwepp- enburg. Sýningunni var komið upp í samvinnu við sendiráð V- Þýskalands og þýska konsúlinn á Hellu, Karl Kortsson. Á sýning- unni eru 27 olíumálverk. myndbandverk. Listadeild hol- lenska menntamálaráðuneytisins styður sýninguna. Sýningin í Nýlistasafninu verður opnuð kl. 3 og verður þá m. a. vígð- ur nýr 100 fermetra sýningarsalur í safninu. Sýningin í Listasafni al- þýðu verður opnuð kl. 4. -GFr rCKRÍSTJÁN Ó Ll JSKAGRJÖRD HF Tölvudeild, Hólmaslóð4,101 Reykjavíks.24120 'RAFAFL NEYTENDAÞJÓNUSTA SIMI: 85955 Neyðar - þjónusta nött sem nýtan dag Neytendaþjónusta Rafafls sem undanfarin ár hefur sinnt viðgerðum, víkkar nú út þjónustuna og byður þér viðgerðarmann strax hvenær sólarhringsins sem er. Ef rafmagnsbilun verður, þá hringir þú í síma 85955, og símsvarinn okkar gefur þér upp símanúmer þess sem er á vakt. m ■

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.