Þjóðviljinn - 08.10.1983, Blaðsíða 24

Þjóðviljinn - 08.10.1983, Blaðsíða 24
24 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN. Helgin 8.-9. október 1983 bæjarrölt Bíllinn minn hefur verið á verkstæði að undanförnu og ég hef smám saman aðlagað líf mitt að fyrri og gamalkunnum hátt- um, bíllausri veröld sem er ágæt. Ég ferðast nú um gangandi,hjól- andi eða fer með strætisvagni. Ég uppgötvaði á nýjan leik hvað það er gaman að fara í strætó, sitja niðursokkinn í hugsanir sínar, með bók eða blað í hendi eða virðandi fyrir sér samferða- fólkið og húsin og mannlífið sem líður hjá fyrir utan gluggann. Besta skemmtun mín er að virða fyrir mér annað fólk í laumi og reyna að geta mér til um hvað það er að bauka í tilverunni og til þess gefst gott næði í strætó. Ann- Fer sem fer ars er það síður en svo þver- skurður þjóðfélagsins sem ferð- ast með þessum samgöngutækj- um. { strætisvögnum ferðast einkum börn, gamalmenni, námsmenn, öryrkjar, húsmæður og vinstri sinnaðir sérvitringar. Þar sjást hvorki forstjórar, stjórnarráðsfulltrúar né iðnaðar- menn. Mér var gefið forláta hjól um daginn. Eigandinn, ungur tón- listarmaður, var að fara til náms í Ameríku og ákvað að gefa hjólið sitt. Ég varð þeirrar auðnu að- njótandi að hreppa hnossið. Þetta er eitt af þessum gömlu “ I Veistu... svörtu karlmannahjólum af gerð- inni Hercules frá borginni Birm- ingham. Og nú hjóla ég líka til vinnu þegar sá gállinn er á mér. Ég þeysi eftir gangstéttunum með flaksandi frakka og goluþyt um kinn, rjóður og sællegur. Konurnar sem verða á vegi mín- um horfa með aðdáun á þennan glæsilega mann á svarta hjólinu eða svo ímynda ég mér. Ég var að vísu ansi móður fyrst eftir að ég byrjaði að hjóla. Eitt sinn var ég að hjóla upp alla Flóka- götuna og tók hana allgeyst fyrsta spölinn. Rétt fyrir ofan gatnamótin á Rauðarárstíg hjól- aði ég fram úr skólastúlku með stoltsmannssvip en eftir því sem ofar dró í brekkuna dró af mér og upp við gatnamótin á Lönguhlíð hjólaði skólastúlkan ofur rólega fram úr mér á nýjan leik og blés ekki úr nös. Ég sá út undan mér vorkunnarsvipinn á henni er hún fór fram úr en lét sem ég sæi hann ekki enda var ég að springa úr mæði og þessi undarlega mátt- leysistilfinning lá alveg niður í kálfa. Stúlkan var að vísu á 10- gíra hjóli en á mínu hjóli er ekki einn einasti gír. Það var nokkur afsökun. En nú er ég smám saman að verða stæltari og er farinn að taka ýmsar brekkur án þess að fara af baki síðsta spölinn. Þetta er ann- að líf. Bíllinn minn er að koma úr við- gerð. Hún kostar það sama og 10-gíra hjól. Samt kem ég ekki til með að selja bílinn og sennilega læt ég mig hafa það á næstunni að fara á bílnum í vinnuna daglega og leggja hjólið til hliðar. Maður á mínum aldri, í minni stöðu á að eiga bíl, segja óskráð lög. Og ég er of værukær og ístöðulaus að gera uppreisn gegn þessum lögum. Fer sem fer. - Guðjón að stundum hefur tvennt verið talið óteljandi á íslandi: vötn- in á Arnarvatnsheiði og eyj- arnar á Breiðafirði. að Ódáðahraun er nær helmingi stærra en Luxemborg. að ein þingmannaleið til forna var talin jafngilda 5 landmíl- um eða 37.6 km. að þegar klukkan er 12 á hádegi á Islandi er hún 12 á miðnætti í Wellington á Nýja Sjálandi. að allir forsætisráðherrar á ís- landi frá upphafi hafa verið háskólamenntaðir. Björn Jónsson ráðherra íslands 1909-1911 lauk þó aldrei há- skólaprófi. að eitt orð í íslensku er komið úr ungversku. Það er kjötréttur- inn gúllas. að fyrstu tveir framkvæmda- stjórar Sameinuðu þjóðanna voru frá Norðurlöndum, þeir Tryggve Lie frá Noregi og Dag Hammarskjöld frá Sví- þjóð. að Stjórnarráðið við Lækjar- torg, aðsetur forsætisráð- herra og forseta fslands, var upphaflega reist sem fangelsi. að konungsættir í Evrópu, m.a. sú breska, geta rakið ættir sínar til Auðuns skökuls Bjarnarsonar sem bjó að Auðunarstöðum í V-Húna- vatnssýslu. að Austur-Skaftafellssýsla til- heyrir Austurlandskjördæmi en Vestur-Skaftafellssýsla Suðurlandskjördæmi. að Árnes sem Árnessýsla er kennd við, er eyja í Þjórsá. Þar er talið að þingstaður Árnesinga hafi verið til forna. að íslenska örnefnið Dímon er talin komið úr latínu: di montes og merkir tvífjall. að tvö af þekktustu núlifandi skáldum okkar eru alin up við Sogið, þeir Tómas Guð- mundsson og Ólafur Jóhann Sigurðsson. að þrjú af þekktustu skáldum síðustu aldar voru úr Reykhólasveit, þeir Jón Thoroddsen, Matthías Joc- humsson og Gestur Pálsson. sunnudagskrossgátan Nr. 392 / 2 "3 V- T~ <o V T~ y <7 10 )/ S /2 8 W~ V /3 s /<r 10 V /<r /o /0 /2 n /?- tsr s? T~ /s* 7 /0 r? y 1$ 7- /V 3 20 2J 1? n )> 12 )S 2 22 ? 10 T )(, V 22r (x 2 u 2? 9 W /$ 22 y 28 T~ /</ V 28 /ST 2Í X w f3 /ST 5? 2/ V 2í>' 2 ?- 19- /S V sr /? 22 V V- 2? 23 f/ 1/ % 15 'Jo 23 '1 n ¥ /? 12 /r V l(o Z 1 H, 10 /5 /z 52 z $ t /2 z 2S 2/ /3 $ 2$ á? /? /5 v IV z? Y V 31 /0 S £ )? 23 *7 /2 /(, ? z d 2</ 2 /5' V lf 23 I? V w Z°1 /Sm 2 V 2V /S' 2 <T /7- Zs 2 W 20 r 23 A Á B D ÐEÉF GHIÍJKLMNOÓPRSTUÚVXYÝÞÆÖ Setjið rétta stafi í reitina hér fyrir neðan. Þeir mynda þá bæjarnafn. Sendið þetta nafn sem lausn á krossgátunni til Þjóðviljans Síðu- múlaó, Reykjavík, merkt „Krossgáta nr. 392“. Skilafresturerþrjár vikur. Verðlaunin verða send til vinningshafa. )á> 8 6 15 2 20 12 /2 í> Stafirnir mynda íslensk orð.eða mjög kunnugleg erlend heiti hvort sem lesið er lá- eða lóðrétt. Hver stafur hefur sitt númer og galdurinn við lausn gátunnar er sá að finna staflykilinn. Eitt orð er gefið og á það að vera næg hjálp. því með því eru gefnir stafir í allmörgum orðum. Það eru þvs eðlilegustu vinnubrögðin að setja þessa stafi hvern í sinn reit eftir því sem tölurnar segja til um. Einrtig er rétt að taka fram, að. f þessari krossgátu er gerður skýr greinarmunur á grönnum sér- hljóða og breiðum. t.d. getur a aldrei komið í stað áog öfugt. Verðlaunin Verðlaun fyrir krossgátu nr. 388 hlaut Pálmar Kristinsson, Leirubakka 22, 109 Rvík. Þau eru skáldsagan Sylvía eftir Ás- laugu Ragnars. Lausnarorðið var Björgvin. Verðlaunin að þessu sinni er bókin Andvökuskýrslurnar eftir Birgi Engilberts.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.