Þjóðviljinn - 08.10.1983, Blaðsíða 29
fkiiiio.. , f: - <-r_.í>>V /•/ »,»„>« * SI'
Helgin 8.-9. október 1983 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 29
Svavar Gestsson á hinum glæsilega Sögufundi Alþýðubandalagsins
Þurfum að eiga mlklu sterkari
stj órnmálasamtök vinstrimanna
Guðrún
Grundvöllurinn
er jafnrétti,
lýðræði og krafa
um hollustu
við málstað
þjóðfrelsis
„Meginverkefni okkar á
næstu mánuðum og árum er
að skapa forsendur fyrir
samheldni vinstri manna
þannig að þeir sem aðhyllast
stefnu samhjálpar, jafnréttis
og samvinnu geti haft í fullu
tré við íhaldsöflin“, sagði
Svavar Gestsson formaður
Alþýðubandalagsins m.a. á
hinum glæsilega Sögufundi í
fyrrakvöld, sem haldinn var
undir yfirskriftinni lýðræðið
og launakjörin baráttan gegn
ríkisstjórninni. „Þessi sam-
fylking hlýtur að byggjast á
kröfunni um jafnrétti, um
lýðræði og á skýlausri holl-
ustu við þjóðfrelsi íslend-
inga“.
Súlnasalur Hótel Sögu var troð-
fullur í fyrrakvöld og 6-700 manns
munu hafa komið á staðinn meðan
á fundinum stóð. Mikil og góð
stemmning varð á fundinunr er líða
tók á og ræðumenn jafnt sem fyrir
spyrjendur höfðu talað í sig hita,
Svavar Gestsson sagði og í fundar-
lok:
„Þessi fundur sýnir að það er afl í
Alþýðubandalaginu sem er vísir
þess sem koma skal.“
Hann ræddi og verkefnin fram-
undan og sagði m.a.:
„Núverandi ríkisstjórn var
mynduð í skjóli sundrungar vinstri
manna. Á því er engin vafi. Við
skulum jafnframt gera öllum ljóst
að í Framsóknarflokknum er ekki
lengur falið úrræði fyrir vinstri-
menn; Framsókn hefur um árabil
leitað til vinstri. Það er liðin tíð.
Með stofnun ríkisstjórnar Stein-
gríms Hermannssonar hafa orðið
kaflaskil í íslenskri stjórnmála-
sögu. Við þau kaflaskil verður
Framsóknarflokkurinn úrræði
hægrimanna í íslenskum
stjórnmálum.
1942 náðist jafnvægi stéttanna,
faglegt jafnvægi, sem auðstéttin
reyndi aldrei að brjóta niður fyrr
en 1983 í ríkisstjórn Steingríms
Hermannssonar. Reynslan frá
sumrinu 1983 sýnir að við þurfum
að eiga mikið sterkari stjórnmál-
samtök vinstrimanna. Það er okkar
verkefni að skapa þau stjórnmála-
samtök.
Ræðumenn og fyrirspyrjendur fengu góðar undirtektir hjá fundarmönnum í Súinasal í fyrrakvöld. Ljósm. eik.
« V —----------7 —■ ■•w ww. VIV V* u IMUIUI mv/l IIIVIIO 1UIIUU1 OlJVtl 1,
Guðmundur J. Guðmundsson og Svavar Gestsson, sem ásamt Guðrúnu höfðu framsögu á fundinum. Ljósm.
eik.
Það var þéttsetið við hvert borð í Súlnasalnum og margir urðu að láta sér lynda að standa. Ljósm. eik.
Við höfum mikið verk að vinna fyrir allt. Alþýðubandalagið er svo að við getum náð árangri og knúið
og við getum verið bjartsýn þrátt sterkt afl í íslenskum stjórnmálum fram nýja stjórnarstefnu." -ekh
íbúasamtök Skuggahverfis:
Skúlagötuskipulag
verði kynnt betur
Stofnuð hafa verið íbúa-
samtök Skuggahverfis í Reykja-
vík og á stofnfundinum, sem um
70 manns sóttu, voru samþykkt
lög fyrir samtökin og ný stjórn
kjörin. Er Geirharður Þor-
steinsson formaður.
Helstu markmið samtakanna
eru að auka samskipti og efla sam-
kennd íbúa hverfisins og vera vett-
vangur skoðanaskipta um málefni
þess.
Varðandi áform borgaryfirvalda
um nýtt skipulag að byggð við
Skúlagötu skora samtökin á
borgaryfirvöld að kynna þau áform
betur áður en ákvarðanir verða
teknar. Þá skora samtökin í Skipu-
lagsstjórn ríkisins að fá nánari rök-
stuðning fyrir skipulagsáformum
við Skúlagötu áður en skipulags-
breytingin verður auglýst.
íbúasamtök Skuggahverfis bíða
nú eftir svari borgaryfirvalda um
það hvenær orðið geti af kynningu
fyrirhugaðs skipulags við Skúla-
götu.
-v.
Bœjarstjórnin
í Garðabæ ósínk
¥
Uthlutar
auka-
vinnu-
tímum
Félagsmálafulltrúi Garða-
bæjar hefur fengið 30 auka-
vinnutíma í kaupauka sam-
kvæmt samhljóða ákvörðun
bæjarstjórnar.
Fyrir nokkru sagði Þjóðvilj-
inn frá því að tæknifræðingur
Garðabæjar hefur verið
hækkaður úr 40 í 70 aukavinn-
utíma. Bæjarfulltrúi Alþýðu-
bandalagsins lagði til að þess-
ari vinnuáþján yrði létt af við-
komandi starfsmanni og ráð-
inn annar maður til þess að
létta undir með honum.
Félagsmálafulltrúi Garða-
bæjar benti á að hún væri eini
forstöðumaðurinn í bænum
sem ekki fengi greidda auka-
vinnutíma. Eftir að bæjar-
tæknifræðingur var hækkaður
úr 40 í 70 aukavinnutíma þótti
ekki lengur fært að standa
gegn kröfunni lengur og var
félagsmálafulltrúanum út-
hlutað 30 aukavinnutímum
með samhljóða ákvörðun
bæjarstjórnar.
Launahækkanir þær sem
bæjarstjórn Garðabæjar út-
hlutar þessa dagana í formi
aukavinnutíma nema tugum
prósenta meðan almennir
launamenn fá 4% 1. okt.
-ekh
85 ára
afmæli
Þriðjudaginn ellefta októbe
verður 85 ára Erlendur Indriiðaso
fyrrum fisksali í Hafnarfirði. Hani
mun taka á móti gestum á heimil
dóttur sinnar og tengdasonar, Mið
vangi 5, Hafnarfirði, eftir klukkai
sex.