Þjóðviljinn - 08.10.1983, Blaðsíða 8

Þjóðviljinn - 08.10.1983, Blaðsíða 8
8 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Helgin 8.-9. október 1983 fréttasHýring Álfheiður Baksvið frœðslustjóramálsins Sjálfstœðis- flokkurinn þarf af sérstökum ástœðum að koma sínum mönnum að Kennsla 5 ára barna í Álftamýrarskóla varö til þess aðuppúrsauðá borgarstjórnarfundi í fyrrakvöld, þegar Ragnar Júlíusson borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, varaformaður fræðsluráðs og skólastjóri Álftamýrarskóla, bjó til tilefni til að ráðast að fræðslustjóranum í Reykjavík, Áslaugu Brynjólfsdóttur. Sakaði hann fræðslustjóra m.a. um vanrækslu í starfi, en Ragnar hefur ekki fengið skriflegaheimild ráðuneytisins fyrir 5 ára deildinni, þrátt fyrir það að fræðslustjóri hafi skrifað ráðuneytinu 30. mars s.l. og síðan ítrekað málið. í borgarstjórn er rík hefð fyrir því að borgarstjóri grípi til varna fyrir embættismenn ef á þá er hallað í ræðustól og minni á að viðkomandi geti ekki svarað fyrir sig á sama vettvangi. Adda Bára Sigfúsdóttir, sem setið hefur í borgarstjórn með stuttu hléi frá 1962 sagðist ekki minnast þess að nokkur borgarfulltrúi hefði áður lagst svo lágt sem Ragnar Júl- íusson gerði, að ráðast að em- bættismánni með persónulegum svívirðingum og beinum ásökun- um um vanrækslu í starfi. „Ég hefði talið það skyldu forseta að veita borgarfulltrúanum áminn- ingu”, sagði Adda. Markús Örn Markús Örn Antonsson: Næsti útvarpsstjóri? Antonsson, forseti borgarstjórn- ar og formaður fræðsluráðs sá þó ekki ástæðu til slíks, heldur bætti frekar um betur í ræðu sinni nokkru síðar. Dró hann þá álykt- un að fræðslustjóri hefði tekið af- stöðu gegn meirihlutasamþykkt fræðsluráðs um 5 ára deildina eða ætlaði sér ekki að taka afstöðu. Þar væri kannski fundin skýringin á því að ráðuneytið hefði enn ekki afgreitt málið! Davíð Oddsson borgarstjóri sá heldur ekki ástæðu til að grípa til varna fyrir fjarstaddan fræðslu- stjóra, þrátt fyrir ítrekuð tilmæli minnihlutafulltrúanna, enda lítur hann ekki á Áslaugu sem starfs- mann borgarinnar heldur ráðu- neytisins. Sjálfstæðismenn í borgarstjórn brugðu hart við í fyrra þegar Ing- var Gíslason, þáverandi mennta- málaráðherra setti ekki Sigurjón Fjeldsted, borgarfulltrúa flokks- ins og fræðsluráðsmann í embætti fræðslustjóra. Lýstu þeir yfir stríði við fræðslustjórann og skömmu síðar var kunngerður samningur sem þeir höfðu náð við embættismenn ráðuneytisins um tvískiptingu fræðsluskrifstof- unnar. Samkvæmt honum átti Ragnar Júlíusson: Næsti forstjóri Bæjarútgerðar Reykjavíkur? fræðslustjórinn að sjá um lítinn afmarkaðan hluta skólastarfs í borginni en annar „stjóri", borg- arstarfsmaður (og væntanlega þá Sjálfstæðismaður), átti að hafa með eiginlegan rekstur fræðslu- mála að gera. Ingvar Gíslason lýsti því yfir að hann myndi ekki staðfesta samninginn enda höfðu ýmsir lögmenn bent á að hann bryti gegn grunnskólalögunum. Hugsuðu Sjálfstæðismenn sér því gott til glóðarinnar þegar fulltrúi flokksins, Ragnhildur Helgadótt- ir, settist í stól hans eftir kosning- ar í vor. Síðan eru liðnir fjórir mánuðir og ekki er vitað til þess að fræðsluráð hafi ítrekað tilmæli um að samningurinn verði stað- festur. Á meðan hefur starfsár setts fræðslustjóra runnið sitt skeið á enda og Áslaug Brynjólfs- dóttir hefur óskað eftir að verða skipuð í starfið. Það er ekki venj- an að ráðherra leiti umsagnar fræðsluráða í slíku tilfelli, en það er einmitt það sem ráðherra nú gerði. Fræðsluráð tekur málið fyrir á fundi sínum á mánudag. „Ég vænti þess fastlega að ráðið gangi frá meðmælum sínum á fundinum á mánudag“, sagði Sigurjón Fjeldsted: Næsti fræðslustjóri? Adda Bára Sigfúsdóttir í borgar- stjórn á fimmtudag. „Þó meiri- hlutanum hafi ekki geðjast að því að Sjálfstæðismaður var ekki skipaður í stöðu fræðslustjóra þá er ljóst að fræðslustjóri nýtur fulls stuðnings kennara og á rétt á skipun í stöðuna eftir heilt ár. Ég vænti þess að enginn fari að leggja stein í þá götu.“ Flest bendir til þess að það tak- ist heldur ekki. „Það hafa ekki svo vitað sé verið gerðar athuga- semdir við embættisfærslu Ás- laugar Brynjólfsdóttur“, sagði Kári Arnórsson, skólastjóri Foss- vogsskóla í viðtali við Tímann á fimmtudag. „Það er mjög sér- stætt ef settur embættismaður fær ekki skipun ef ekki koma fram kvartanir yfir störfum hans. Fari svo nú, hlýtur það að vera alvar- legt mál fyrir mjög marga, t.d. kennara og aðra embættismenn ríkisins." Og kennarareru greini- lega á sama máli því áskorunum á menntamálaráðherra um að skipa Áslaugu tafarlaust rignir inn. Á fimmtudag héldu stjórn og trúnaðarráð Kennarafélags Reykjavíkur fund um málið og í gær föstudag voru haldnir kenn- arafundir í skólum borgarinnar. Ingadóttir skrifar Ekki eru neinar líkur á öðru en að menntamálaráðherra verði við þessum tilmælum og skipi Ás- laugu í embættið, enda eru ásak- anir Ragnars Júlíussonar um van- rækslu í starfi heldur seint til komnar nú. Sjálf segir Áslaug Brynjólfsdóttir að ásakanir séu á misskilningi byggðar. „Ég hef margsinnis ýtt á eftir staðfestingu ráðuneytisins á 5 ára deildinni en án árangurs," sagði hún í viðtali við útvarpið í gær. En hvað gerir Sjálfstæðisflokk- urinn í borgarstjórn Reykjavíkur þá? „Það getur vel verið að Sjálfstæðisflokknum takist að fá grunnskólalögunum breytt, þannig að samningurinn um tví- skiptingu fræðsluskrifstofunnar verði staðfestur“, sagði einn skólamaður í gær. „Það tekur hins vegar sinn tíma en þá geta þeir væntanlega ráðið Sigurjón Fjeldsted sem sinn fræðslustjóra fyrir kosningar 1986.“ Og þar liggur hundurinn grafinn. Á fyrsta fundi eftir kosn- ingar samþykktu 12 borgarfull- trúar Sjálfstæðisflokksins að fækka sér um 3, því í næstu kosn- ingum eiga borgarfulltrúar að verða 15 á nýjan leik en ekki 21 eins og nú. Hefur þessi samþykkt gengið undir nafninu „Rússneska rúllettan" þvf enginn vissi hverjir áttu að hverfa af vettvangi. Þau mál eru nú farin að skýrast. Fyrir nokkru bárust fregnir af því að Markús Örn Antonsson, forseti borgarstjórnar yrði eftir- maður Andrésar Björnssonar út- varpsstjóra sem mun draga sig í hlé á næstunni. Markús hefur á undanförnum árum verið í út- varpsráði fyrir flokkinn og er harður fylgismaður hins „frjálsa“ útvarpsreksturs og sammála menntamálaráðherranum núver- andi í þeim efnum. Þar fer einn. Nýlega var báðum fram- kvæmdastjórum Bæjarútgerðar Reykjavíkur sparkað og auglýst hefur verið eftir einum forstjóra með 4 framkvæmdastjórum sér við hlið. Ragnar Júlíusson er ekki aðeins áhugamaður um skóla- mál. Hann er einnig formaður stjórnar Bæjarútgerðarinnar og hefur setið í útgerðarráði árum saman. Hans er forstjórastaðan og þá eru farnir tveir. Þriðji maðurinn er Sigurjón Fjeldsted. Tilgangurinn helgar meðalið. Álfheiður Ingadóttir. ritstjórnargrcin Siðferðislegt ~ grundv allaratriði í eldri borgaralegum þjóðfé- lögum hafa mótast hefðir, þar sem viðskiptasiðferði skipar nokkurn sess. Borgararnir reyna að hafa sitt á þurru og þess er gætt að viðskiptavinir og aðrir samfé- lagsþegnar hafi ekki tilefni til tor- tryggni. Uppá okkar kalda skeri er því miður öðru að heilsa. fslensk borgarastétt er sögulega á bernskuskeiði og kann illa að fara með valdið. Síðustu mánuði höfum við verið að kynnast stæl- um og bráðræði þeirra nýríku í félagslegum og pólitískum efnum meira en stundum áður. Og þessi ólánsstétt er líkleg til að hljóta dapurleg örlög ef svo heldur sem horfir. Gerræði hennar og sið- Isysi nú þegar henni gefst olnbog- arými fyrir hvers konar brask vís- ar glötunarveginn. Þjóðviljinn hefur að undan- förnu sagt frá og rakið nokkur mál. sem eru í senn lýsandi og afhjúpandi fyrir þá spilltu yfir- stétt sem með völdin fer á íslandi. Það er ekkert launungarmál, að stjórnarflokkarnir báðir, Framsóknar- og Sjálfstæðisflokk- ur bera mesta ábyrgð á sukki og spillingu sem viðgengst í þjóðfé- laginu. í nær öllum þeim málum, sem komast uppá yfirborðið, eru viðkomandi f eða tengdir þessum flokkum, þannig að ef spillingar- öflin njóta ekki beinna ívilnana þessara flokka þá njóta þau að minnsta kosti þagnarinnar; skjólsins, sem þögnin veitir í málgögnum Framsóknar og S j álfstæðisflokksins. Þegar kerfisflokkarnir báðir sitja að kjötkötlum landsstjórn- arinnar, þá þrífst sukkið vel og dafnar. Þá þarf að hygla sínum. •; Ríkisstjórn spillingarinnar get- ur keík og kát gefið ráðherra eftir af almannafé til að kaupa Blazer- bfl, meðan hún bannar að verð- bætur séu greiddar á lágu launin. Slík ríkisstjórn tvískinnungs get- ur glöð og hress skrifað undir al- þjóðlegan sáttmála um virðingu fyrir samningsrétti verklýðssam- taka - á sama tíma og hún hrifsar þau lýðréttindí af launamanna- hreyfingu í eigin landi. Slík ríkis- stjórn hræsninnar getur sem hæg- ast gumað af frjálsri verslun og frjálsum gjaldeyri á sama tíma og hún bannar frjálsa samninga. Sú ríkisstjórn stærsta kaupráns í fs- landssögunni getur sem hægast gortað sig af því að ætla að halda kaupskerðingunni við á sama tíma og hún sleppir taumlausum milliliðagróða útí tilgangslausa sóun. Slík ríkisstjórn óráðsíu fer létt með að láta milliliðina eyða miljörðum í þarflaus stórhýsi á sama tíma og verið er að skerða fjármagn til verkamannabú- staða. Þetta alltsaman er vegna þess að ríkisstjórn kerfis og kaupránsflokkanna er ekki síður ríkisstjórn siðleysis en ríkisstjórn stórkapitalsins. Einmitt sukkið og þetta sam- tvinnaða kerfi spillingar og valdhroka kallar á harkaleg við- brögð, kallar á ný vinnubrögð. Auðvitað verður almennt launa- fólk að sækja kaupmáttinn aftur í greipar spillingaraflanna um leið og við verðum að sækja félags- lega fram til meiri mannréttinda. Og það þarf að uppræta sukkið og siðleysið í kringum kerfis- flokkana. Það þarf nýtt og ferskt loft til að blása um feysknar stoð- ir valdastéttarinnar íslensku. Um leið og sósíalistar, vinstri menn og samvinnumenn endurheimta lýðréttindin, munu þeir samein- ast gegn spillingunni. Talað hefur verið um að í vetur skerist í odda, í vetur verði hólmgönguáskorun ríkisstjórnarinnar svarað. Mesta þarfaverkið í vetur verð- ur að koma þessari ríkisstjórn í burtu. Formaður Alþýðubanda- lagsins hefur bent á að þjóðin þurfi nýja ríkisstjórn - gegn kerf- isflokkunum. Vinstri menn eiga nýja ríkisstjórn. Samfylking vinstri manna um nýja ríkisstjórn gegn spillingunni er okkar val- kostur. Ný ríkisstjórn er því.ekki aðeins efnahagsleg nauðsyn, hún er siðferðislegt grundvallaratriði. -óg

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.