Þjóðviljinn - 08.10.1983, Side 12
12 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Helgin 8.-9. október 1983
Toni Negri
Lög gegn
hryðjuverkum
Á meðan baráttan gegn hinni
rauðu skæruliðastarfsemi stóð sem
hæst á Ítalíu voru sett sérstök lög
sem rýmkuðu heimild yfirvalda til
beitingar gæsluvarðhaldsvistar upp
í allt að 11 ár, þegar grunur lá á
aðild að hryðjuverkastarfsemi.
Síðan hefur gæsluvarðhaldsúr-
skurðum verið beitt óspart á Ítalíu,
reyndar með góðum árangri að því
leyti að hin rauða skæruliðastarf-
semi hefur að mestu verið upprætt,
en um leið munu allmargir hafa
hlotið frelsissviptingu að ósekju.
Beiting gæsluvarðhalds um
lengri tíma er nú orðin að heitu
deilumáli á Ítalíu, og einn þeirra
flokka sem sett hefur mál þetta á
oddinn er „Róttæki flokkurinn" -
Partito radicale - sem er lítill
stjórnmálaflokkur sem barist hefur
fyrir einstökum málum er snerta
mannréttindi, náttúruvernd,
jafnréttismál, frið og afvopnun.
/ framboð
Leiðtogi Róttæka flokksins er
Marco Pannella, litríkur stjórn-
málamaður og harður áróðurs-
maður, sem oft hefur vakið athygli
fyrir óvænta og afdráttarlausa af-
stöðu sína í hinum ýmsu málum.
Það var dæmigert fyrir starfsað-
ferðir Panella og Róttæka flokks-
ins, þegar hann gerði heimspeki-
prófessorinn sem ákærður var fyrir
glæpi gegn ríkinu og aðild að pólit-
ískum morðum að frambjóðanda
sínum til ítalska þingsins í þeim yf-
irlýsta tilgangi að mótmæla því tak-
Marco Pannella leiðtogi Róttæka flokksins: gerði mál Toni Negrí að próf-
máli um réttindi einstaklingsins annars vegar og öryggishagsmuni ríkisins
hins vegar.
ítalski heimspekiprófessorinn Toni Negri. Mál hans hefur vakið heiftúð
legar deilur á Ítalíu um beitingu gæsluvarðhalds við dómsrannsóknir
hans til Parísar og jafnvel áfram til
Bruxelles, og var hann síðan gerð-
ur eftirlýstur af Interpol.
í þau rúm fjögur ár sem Toni
Negri hefur setið í fangelsinu hefur
hann ekki verið iðjulaus. Hann
hefur á þessum tíma gefið út 4
bækur, þar af eitt stórt ritverk um
heimspekinginn Spinoza. Eftir að
hann hafði boðið sig fram til þings-
ins var Toni Negri gagnrýndur af
mörgum fyrri samherjum fyrir svik
við málstað þeirra félaga sinna,
sem enn sátu inni. En þann eina og
hálfa mánuð sem hann naut frelsis
notaði hann mikið til þess að ferð-
ast á milli fangelsa í embætti þing-
mannsins og kanna aðstæður þar.
Aftur f framboð
Fréttaskýrendur telja ólíkiegt að
Toni Negri ætli sér með flóttanum
að komast undan armi laganna.
ÖIlu líklegra sé að þessi flótti sé
liður í meistaralegri leikfléttu Neg-
ris og vinar hans Pannella, er miði
að því að opna augu alheimsins
fyrir því ófremdarástandi er nú ríki
við beitingu gæsluvarðhalds á ítal-
íu. Talið er víst að Toni Negri verði
aftur í framboði fyrir Róttæka
flokkinn þegar kosið verður til
þings Efnahagsbandalags Evrópu á
næsta vori, en kosning til Evrópu-
þingsins myndi veita honum þing-
helgi nema þingið ákvæði annað.
Og þar með væri málið komið á
alþjóðavettvang eins og Pannella
stefnir að. Ekki er talið líklegt að
dómur verði felldur í máli Negri
fyrir vorið, en yrði hann sakfelldur
myndi hann missa kjörgengi til
þings samkvæmt lögum.
Gœsluvarðhaldsfangi og þingmaður
eftirlýstur af Interpol
Hinn 8. júlí síðastliðinn var
heimspekiprófessorinn
Antonio Negri látinn laus úr.
Rebibbía-fangelsinu í Róm þar
sem hann hafði setið í rúm 4 ár,
ákærður fyrir samsæri gegn
ítalska ríkinu og með ábyrgð á
fjölmörgum pólitískum morðum
og hryðjuverkum, sem
framkvæmd höfðu verið í nafni
Rauðu herdeildanna. Þaðer
ekki sýknun sem olli því að Toni
Negri gat fagnað nýfengnu
■ frelsi, heldursúundarlega
I staða að hann hafði hlotið
lögmæta kosningu til ítalska
þingsins,' og hafði þar með
hlotið titilinn „hinn hæstvirti"
með tilheyrandi þinghelgi er
bannarfrelsissviptingu þing-
manna.
Mál þetta á sér þá forsögu, að
Antonio Negri var heimspekipró-
fessor við háskólann í Padova og
naut virðingar þar fyrir fræðistörf
sín. Jafnframt er hann þekktur af'
róttækum skoðunum í þjóðmálum
og var hann af dómsyfirvöldum
ákærður fyrir að vera hugmynda-
fræðilegur leiðtogi Rauðu her-
deildanna og að hafa með skrifum
sínum hvatt til vopnaðrar baráttu
gegn ríkjandi stjórnvöldum. Toni
Negri hafði á opinberum vettvangi
gerst málsvari hinnar sjálfstæðu
róttæku hreyfingar verkamanna og
námsmanna er spratt upp á síðari
hluta 7. áratugsins og starfaði utan
þingræðisrammans meðal annars í
fullri andstöðu við hinn öfluga
ítalska kommúnistaflokk. Hann hef-
ur ávallt neitað að bera nokkra
ábyrgð á þeim ofbeldisverkum sem
framin voru í nafni Rauðu her-
deildanna og annarra hliðstæðra
samtaka, en málaferli gegn honum
hafa staðið allt frá því hann ásamt
með fleiri félögum Rauðu her-
deildanna var handtekinn hinn 7.
apríl 1979. Á þeim tíma sem liðinn
er síðan hefur Toni Negri ásamt
með fjölmörgum öðrum setið í ein-
angrun, á milli þess sem hann hefur
setið undir opinberum yfirheyrsl-
um í hinu fræga „tígrisbúri” í rétt-
arsalnum á Foro Italico í Róm.
markaða réttaröryggi sem mis-
beiting gæsluvarðhaldsúrskurða
fæli í sér. Toni Negri var í framboði
í iðnaðarborginni Torino, þar sem
hann hafði á sínum tíma haft af-
skipti af harðvítugri stéttabaráttu
„heitu áranna“. Mörgum þótti að
hér væri of langt gengið, en þegar í
ljós kom að Toni Negri hafði hlotið
50 þúsund atkvæði og var floginn
inn á þing tók málið nýja stefnu:
samkvæmt ítölskum lögum varð að
láta prófessorinn og þingmanninn
lausan, og nú var það einungis á
valdi ítalska þingsins hvort svipta
ætti hann þinghelgi eða ekki.
Klofningur
á þingi
Ríkissaksóknari fór fram á svipt-
ingu þinghelgi, og brátt kom í ljós
að ágreiningur ríkti um málið
innan allra stjórnmálaflokka og
umræður um málið urðu bæði
heitar og langar á ítalska þinginu
áður en gengið var til atkvæða.
Þótt flokkarnir hafi reynt að móta
opinbera stefnu í málinu riðluðust
flest flokksböndin við atkvæða-
greiðsluna. Kristilegi lýðræðis-
flokkurinn, sósíaldemókratar, lýð-
veldisflokkurinn og hinn hægri-
sinnaði MSI-flokkur höfðu lýst sig
hlynnta sviptingu þinghelgi en
innan allra þessara flokka reyndust
„svikarar" við flokksstefnuna.
Sósíalistaflokkurinn var talinn
hlynntur málstað Negris, en klofn-
aði engu að síður, þótt flestir sósí-
alistanna hefðu farið að dæmi komm-
únistaflokksins, sem greiddi ekki
atkvæði en vildi að málinu yrði
frestað þar til hugsanlegur dómsúr-
skurður í máli Negris lægi fyrir.
Þetta var í raun og veru málamiðl-
un á milli andstæðra fylkinga innan
kommúnistaflokksins, sem höfðu
deilt heiftarlega um málið. En
endanleg niðurstaða þingsins varð
sú að samþykkt var í atkvæða-
greiðslu á þinginu 21. september
s.l. að Toni Negri skyldi sviptur
þinghelgi og því bæri hann ekki
lengur titilinn „hinn hæstvirti"
Toni Negri, heldur skyldi hann
heita „gæsluvarðhaldsfanginn"
Toni Negri.
Á flótta
Málinu var þó ekki þar með lok-
ið, því þegar lögreglan ætlaði að
ganga að prófessornum til þess að
færa hann í fangelsið á nýjan leik
var hann víðs fjarri, og brátt var
ljóst að hann var horfinn úr landi.
Þóttist lögreglan geta rakið spor
Eina leyni-
samkundan
Toni Negri hefur staðfastlega
neitað öllum sakargiftum um aðild
að ofbeldisverkum. Hann lítur hins
vegar á sig sem talsmann þeirrar
sjálfstæðu fjöldahreyfingar sem
spratt upp á Italíu á síðari hluta 7.
áratugarins og „náði að skekja
undirstöður hins kapítalíska kerfis
á 20 árum“ eins og hann hefur sjálf-
ur orðað það. „Ég tek því fulla
ábyrgð á þátttöku minni í barátt-
unni fyrir frelsun og breytingum,
baráttu, sem einnig getur falið í sér
að gripið sé til ofbeldis, en aldrei að
fólk sé myrt á götum úti! Ég tek
ekki minnstu ábyrgð á því sem ég
hef ávallt barist gegn: hryðjuverk-
um og ofbeldi sem framið er í ein-
angrun frá fjöldahreyfingunni."
Annars staðar hefur Toni Negri
haldið því fram að ítalska þingið sé
eina leynisamkundan sem hann
hafi nokkru sinni átt aðild að.
1 pólitískum yfirlýsingum sem
Toni Negri hefur gefið eftir að
hann var látinn laus hefur komið
fram heiftúðleg gagnrýni á stefnu
kommúnistaflokksins, sérstaklega
í málefnum gæsluvistarfanga.
Einnig hefur hann farið jákvæðum
orðum um tilraunir Sósíalista-
flokksins og Bettino Craxi til þess
að skapa jafnvægi í ítölskum
stjórnmálum með stjórnarsam-
vinnu við Kristilega lýðræðisflokk-
inn. Jafnframt hefur hann ásakað
stjórnmálaflokkana og þingið fyrir
spillingu, þar sem hvert hneykslið
hafi verið afhjúpað af öðru og í ljós
komið að valdaelítan sé ekki annað
en strengjabrúður í höndum frí-
múrarastúkunnar P2. Hann hefur
jafnframt lýst því yfir að hann muni
helga sig baráttunni gegn lögunum
um gæsluvarðhald, en samkvæmt
þeim er nú hægt að halda mönnum
inni án dóms í allt að 11 árum og 8
mánuðum. Negri heldur því fram,
að nú þegar hryðjuverkasveitirnar
hafi verið sigraður sé enn síður á-
stæða til slíkra laga, heldur séu
ástæður til að láta lausa þá fanga
sem nú sitja inni, þannig að tímabil
óttans verði yfirstigið og Ítalía geti
aftur „öðlast eðlilegan sess innan
hins borgaralega evrópska þing-
ræðiskerfis“, eins og hann orðaði
það sjálfur í nýlegu viðtali.
- ólg/Espresso, Inf.
Toni Negri með eiginkonu sinni Paolu.