Þjóðviljinn - 08.10.1983, Qupperneq 14

Þjóðviljinn - 08.10.1983, Qupperneq 14
14 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Helgin 8.-9. október 1983 Troðfullt var út úr dyrum þegar hin nýja félagsmiðstöð unglinga í Kópavogi var opnuð í fyrri viku og var greinilega mikil ánægja með aðstöðuna. - Ljósm. eik. Krakkarnir sjá um reksturinn Spjallað við forstöðumanninn Eddu Andrésdóttur Á fimmtudaginn 29. sept. var opnuð félagsmiðstöð í Kópavogi í kjallara leikskólans í Fögrubrekku. Félagsmiðstöðin Agnarögn, nafnið er mjög við hæfi því ekki er staðurinn stór en mjög skemmtilegur. Þessi staður er afrakstur ráðstefnunnar í mars sem krakkar úr Kópavoginum héldu ásamt fleirum. Þarna var margt um manninn og komust færri inní aðalsalinn en vildu, en þar var dagskrá allt kvöld- ið ræður, laust orð og tvær hljóm- sveitir úr Kópavogi, Aids og Aluc- ard, tróðu upp. Eftir mikinn troðning fann ég loks baksviðs Eddu Andrésdóttur forstöðumann miðstöðvarinnar, en þar var hún að ýta krökkum fram á svið og taka við þeim aftur, klappaði á bök og hvíslaði hug- hreystandi orðum í eyru. Milli þess brosti hún til mín og svaraði eftir- töldum spurningum: Hversvegna varst þú valin í þessa stöðu, er þetta eitthvað tengt fyrri störfum þínum? - Ég sótti bara um og fékk stöðuna. Þetta tengist ekki fyrri störfum mínum, þetta er allt mjög nýtt og spennandi fyrir mér. Hvernig verður staðnum stjórn- að? - Undirbúningsnefndin mælir með þrem krökkum sem sjá um stjórn í eina viku og sjá þá alveg um staðinn sjálf og ég verð þeim innan- handar. En ef það verður mjög mikið að gera þá geta þau fengið aðstoð. Síðan þegar vikan er liðin þá mæla þessir þrír með öðrum þrem sem sjá svo um næstu viku osfrv. Hvað verður að gerast, verður þetta einungis skemmtistaður? - Nei alls ekki, hér verða uppá- komur allskonar, skemmtun og upplýsing. A föstudögum og laugardögum verða diskótek og þá verður opið til eitt. Á fimmtudögum verður reynt að fá hljómsveitir og opin hús á þriðju- dögum, þá er opið til 11. Hvernig líst þér á staðinn? - Þetta kvöld sýnir nú að það er brýn þörf fyrir þennan stað og ef þetta verður svona áfram þá sprengjum við hann utan af okkur. Hljómsveitin AIDS á fullu í félagsmiðstöðinni. Ljósm.: eik. Edda Andrésdóttir í Agnarögn í Kópavogi: sprengjum húsnæðið örugg- lega utan af okkur innan tíðar. - Ljósm. eik. Unglingurinn Fullorðna fólkið það lífsreynt er litli unglingur það geturðu séð hlustaðu á okiair annars illa fer þú ert bara lítið peð. En hvers má unglíngurinn gjalda komdu heim klukkan tíu og hvað á hann að halda oj bara ég fæ klíju. Viðlag: Fullorðinn og lífsreyndur þegiðu þú ert bara unglingur. Einn góðan veðurdag segir einn lífsreyndur maður þetta mun allt komast í lag og unglingurinn fer heim glaður Unglingurinn lengi beið og ekkert gerðist enn óralangur tími leið það vita konur og menn. Viðlag: Er þetta klikk í kerfinu eða á þetta að vera svona rúlla áfram í lífinu eldast bíða og vona. En hvað skyldi lífsreynslan vera því tekur enginn mark á mér og hvað á ég að gera NEI bless heimur burt ég fer. Arnþór Sigurðsson

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.